Morgunblaðið - 12.05.1977, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1977
19
Strassborg 11. maí — Reuter.
EFNAHAGSBANDALAG Evrópu
hefur farið þess á leit við Evrðpu-
dómstólinn, sem fjallar um
ágreining EBE-ríkjanna, að felld-
ur verði úr gildi I þrjár vikur
reglur um fiskveiðitakmarkanir,
sem Irar hafa sett á miðum
sínum, að sögn talsmanns EBE I
dag. Ákvörðun um þetta var tekin
af framkvæmdanefnd bandalags-
ins eftir að trar neituðu að af-
nema fyrir miðnætti aðfararnótt
miðvikudags takmarkanir, sem
gera ekki öllum EBE-rlkjum jafn
hátt undir höfði að áliti nefndar-
innar.
írar settu einhliða bann við
veiðum skipa sem eru stærri en
33 metrar á svæði sem nær um 50
til 100 mílur frá landi, eftir að
tilraunir til að ná samkomulagi
innan EBE um fiskvernd fóru út
um þúfur. Framkvæmdanefndin
sagði, að með þessu væri EBE-
ríkjunum mismunað og skipaði
hún trum að fella reglur sínar úr
gildi. Svo til öll írsk fiskiskip eru
minni en 33 metrar gagnstætt því
sem er um skip annarra EBE-
þjóða, sem venjulega veiða við
Írland.
Margir hollenzkir togarar hafa
verið teknir og færðir til hafnar á
írlandi en dómstóll hefur vísað
máli þeirra til Evrópudómstólsins
og sagt að hann verði að skera úr
um hvort veiðitakmarkanirnar
eigi sér stoð í lögum.
Fréttamenn benda á, að fram-
kvæmdanefndin fer ekki fram á
það við Evrópudómstólinn að
hann lýsi aðgerðir Ira lögleysu
heldur aðeins að takmarkanir
þeirra verði tímabundið felldar
úr gildi þannig að ráðrúm gefist
til að leysa málið með samn-
ingum.
EBE leitar
til Evrópu-
dómstólsins
Concorde á
Kennedy
New York 11. mai — NTB.
Bandarískur héraðsdómari gaf I
dag grænt Ijós fyrir lendingar
brezk-frönsku hljóðfráu farþega-
þotunnar Concorde á Kennedy-
flugvelli við New York. Stjórn
flugvallarins hafði áður bannað
lendingar flugvélarinnar þar.
Úrskurður héraðsdómarans er í
samræmi við fyrri ákvörðun
William Coleman, samgöngumála-
ráðherra Bandarikjanna i forseta-
tið Geralðs Fords. Veitti hann á
sínum tíma lendingarleyfi fyrir
Concorde í 16 mánaða reynslu-
tíma.
Samkvæmt úrskurði dómsins
getur flug með Concorde til
Kénnedy hafizt þegar í stað. Tals-
menn British Airways og Air
France segja að það muni þó taka
að minnsta kosti eina viku áður
en undirbúningi að áætlunarflugi
vélarinnar er lokið. Yfirmenn
beggja flugfélaga hafa lýst
ánægju sinni með úrskurðinn, en
þau hafa lengi barizt fyrir því að
fá að lenda Coneorde í New York.
Nú er hins vegar búizt við and-
stöðu ibúa Queens, þar sem flug-
völlurinn er, og Hugh Careys,
fylkisstjóra, sem lengi hefur bar-
izt gegn lendingum Concorde í
New York.
Pólland:
Aukið verksvið mann-
réttindanefndarinnar
Varsjá, 11. mai.
Reuter.
NEFND sú, sem pólskir
.verkamenn stofnuðu til
varnar þeim, sem urðu fyr-
ir barðinu á yfirvöldum í
landinu eftir uppþot vegna
verðhækkunarstefnu
stjórnarinnar í sumar sem
leið, skýrði frá því í dag, að
starfssvið hennar hefði
verið aukið, og mundi
nefndin framvegis berjast
gegn hvers konar mann-
réttindabrotum í Póllandi.
Hingað til hefur starf-
semi nefndarinnar ein-
skorðazt við að aðstoða
verkamenn, sem handtekn-
ir voru í kjölfar uppþot-
anna eða reknir úr starfi,
og fjölskyldur þeirra. Þá
hefur nefndin annazt upp-
lýsingamiðlun þar að lút-
andi.
Frá slökkvistarfinu (Amsterdam.
Brunin í Amsterdam:
13 lík fundin -
20 enn saknað
Amsterdam — 11. maí — AP
EFTIR þvl sem næst veróur
komizt eru enn allt að 20 Ifk
grafin í brunarústum Polen-
gistihússins í Amsterdam. Að
minnsta kosti 13 Hk hafa fund-
izt sfðan slökkvistarfinu lauk,
en um 100 manns voru í fasta
svefni f gistihúsinu þegar eld-
urinn kom upp árla á mánu-
dagsmorgun.
25 manns eru enn i sjúkra-
húsi og segir lögreglan að þar
af sé líðan þriggja mjög slæm.
Yfirvöld hafa enn ekki skýrt
frá þjóðerni þeirra, sem fórust í
eldsvoðanum, en talið er að þar
á meðal séu að minnsta kosti
þrir Svíar. Flest líkanna, sem
fundizt hafa, eru mjög illa far-
in, og telur lögreglan að tekið
geti marga daga að bera kennsl
á þau. Þá er talið að nokkrir
þeirra, sem tókst að forða sér út
úr húsinu áður en það varð
alelda, hafi haldið heim á leið
án þess að gefa sig fram við
yfirvöld. Er nú unnið að rann-
sókn þess þáttar málsins, þann-
ig að mögulegt sé að slá föstu
hve margir hafi farizt. Gesta-
bækur gistihússins urðu allar
eldinum að bráð.
Paisley ásakar CIA
og bellibragðadeild
Israelsk
herþyrla
ferst með
54 menn
Tel Aviv — 11. mai — NTB.
54 menn fórust þegar
ísraelsk herþyrla hrapaði i
námunda við Jeriko á
vesturbakka árinnar
Jórdan á þriðjudagskvöld.
Þyrlan tók þátt í her-
æfingum og var ekki til-
kynnt um slysið fyrr en um
hádegisbilið á miðvikudag.
Þetta er alvarlegasta
flugslys ísraelska hersins á
friðartímum. Óvíst er um
orsakir slyssins, en Gur
hershöfðingi útilokaói
þann möguleika á fundi
með fréttamönnum, að um
skemmdarverk væri að
ræða.
Sagan
af Litla
og Stóra
Belfast 11. maí — Reuter.
IIINN herskái leiðtogi mótmæl-
enda, Ian Paisley, ásakaði í dag
bandarlska leyniþjónustumenn
og það sem hann kallar „belli-
bragðadeild", Bretlands, um að
hafa eyðilagt allsherjarverkfall-
ið. Paisley hélt því fram að emb-
ættismenn CIA hefðu fallist á að
brjóta niður verkfallið í samtiil-
um við lögreglustjóra Norður Ir-
lands, Ken Newman.
Brezkir embættismenn lýstu
fullyrðingum Paisleys sem „móð-
ursýki" og talsmaður lögreglunn-
ar sagði að_ það væri fáránlegt að
ætla að lögreglan á Norður ír-
landi hefði átt viðræður við CIA.
Hinn eldhuga mótmælenda-
klerkur hvatti til allsherjarverk-
falls 3. maí til stuðnings kröfum
um að brezki herinn beiti sér
meira að þvi að brjóta irska lýð-
veldisherinn á bak aftur, en
hvatningum hans var lítið sinnt af
verkamönnum Ulster.
1 yfirlýsingu sinni í dag sagði
Paisley að Bretar hefðu notað
„bellibragðadeild" sina til að
myrða strætisvagnabílstjóra, sem
neitaði að taka þátt i verkfallinu.
Morðið varð til þess að lama al-
menningssamgöngur i Belfast,
þar sem strætisvagnabilstjórar
hafa neitað að vinna þar til félagi
þeirra hefur verið grafinn á föstu-
dag.
Þúsundir manna vöknuðu þvi
snemma í Belfast í morgun og
gengu til vinnu i trássi við hvatn-
ingar öfgasinnaðra mótmælenda
um að halda sig frá störfum. Lög-
reglan i Belfast se'gir að þrir hafi
týnt lífi siðan verkfallinu var lýst
yfir og að 38 lögreglumenn og 48
borgarar hafi særst. A hverjum
degi hafa lögreglunni borist um
200 kærur vegna mótmælenda,
sem hafa reynt að kúga fólk til að
leggja niður vinnu.
Á NÆSTUNNI kemur út í
Bretlandi bók um utan-
ríkisþjónustu Breta eftir
Geoffrey Moorhouse, og
birtist nýlega í Observer
úrdráttur úr henni. Þar
segir meðal annars frá af-
rekum Sir Donalds Mait-
lands, sem var sendiherra
lands sins hjá Sameinuðu
þjóðunum um þær mundir
sem íslendingar og Bretar
áttu í erjum út af þorski
öðru sinni. Fékk Sir Don-
ald eitt sinn það verkefni
að koma áríðandi skilaboð-
um á framfæri við hinn
íslenzka starfsbróður sinn.
„Sir Donald er afar lágvax-
inn maður, en íslenzki
sendiherrann var á hinn
bóginn risi, um tveir metr-
ar á hæð. Maitland storm-
aði inn á skrifstofu hans í
New York veifandi skeyt-
inu frá Lundúnum. ,,Fg
hefi fengið þau fyrirmæli,“
tilkynnti hann íslendingn-
um, „að gefa til kynna á
æðstu stöðum.. .“ um leið
og hann tók undir sig stökk
og lenti á miðju skrifborði
hins felmtri slegna manns.
Þetta varð til þess að ylja
nokkuð andrúmsloftið",
segir í bókarkaflanum.
íslenzki sendiherrann,
sem á að hafa fengið þessa
sérkennilegu heimsókn í
aðalstöævum Sameinuðu
þjóðanna í New York. er
Ingvi S. Ingvarsson. Hann
kannast vió að hafa átt
samskipti við Sir Donald
Maitland á því tímabili sem
hér um ræðir, en segir, að
sagan sú arna sé að öðru
leyti uppspuni.