Morgunblaðið - 12.05.1977, Page 24
24: MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1977
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
tiíkynningar
Bessastaðahreppur
— Lóðahreinsun
Heilbrigðisnefnd Bessastaðahrepps minn-
ir hreppsbúa á að hreinsa til á lóðum
sínum og lendum sbr. 40 gr. gildandi
heilbrigðisreglugerðar. Er þess fastlega
vænst að þessu verkefni verði lokið fyrir
1. júní n.k. Til þess tíma mun skrifstofa
oddvita veita upplýsingar og aðstoð til að
auðvelda íbúum hreinsunina. Minnt skal
á það sérstaklega að bannað er að kasta á
fjörur á Álftanesi hverskonar rusli eða
öðru er til fellur við hreinsunina.
Heilbrigðisnefnd Bessastaðahrepps.
Frá Sjúkrasamlagi
Hafnarfjarðar
Skrifstofa samlagsins er flutt að Strand-
götu 33 í hús Samvinnubankans, bakdyr.
Sjúkrasamlag Hafnarfjarðar.
Réttindi til
hópferðaaksturs
Þann 1. júní 1 977 falla úr gildi réttindi til
hópferðaaksturs útgefin á árinu 1 976.
Umsóknir um hópferðaréttindi fyrir árið
1977 —1978 skulu sendar Umferðar-
máladeild pósts og síma, Umferðarmið-
stöðinni, Reykjavík fyrir 20. maí n.k.
í umsókn skal tilgreina árgerð, tegund og
sætafjölda þeirra bifreiða, sem sótt er um
hópferðaréttindi fyrir.
Reykjavík, 10. maí 1977,
Umferðarmáladeild pósts og síma
Hestaeigendur athugið
Við starfrækjum tamningastöð í sumar i
Fossnesi, Gnúpverjahreppi. Byrjað verður
um miðjan júní.
Upplýsingar í gegnum símstöðina á
Ásum.
Tilkynning
til söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á
því, að gjalddagi söluskatts fyrir apríl-
mánuð er 15. maí. Ber þá að skila
skattinum til innheimtumanna ríkissjóðs
ásamt söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið
10. maí 1977.
Afmœliskveðja:
Guðbjarni Sigmundsson
r
frá Ivarshúsum áttrœður
i.
Guðbjarni Sigmundsson verka-
maður frá ívarshúsum á Akranesi
varð áttræður hinn 2. apríl s.l.
Hann er fæddur að Arnþórsholti í
Lundarreykjardal 2 apríl 1897.
Foreldrar hans voru hjónin Vig-
dís Jónsdóttir og Sigmundur
Guðbjarnason, en þau hófu
búskap á Akranesi árið 1884. Arin
1897—’99 bjuggu þau að Arnþórs-
holti í Lundarreykjadal, en vegna
veikinda Vigdísar varð Sig-
mundur að bregða búi og fluttist
aftur á Akranes og þá að Ivars-
húsum, þar sem hann bjó upp frá
því. Þar var landrými gott til
sjávar. Guðbjarni og Óskar heit-
inn Halldórsson útgerðarm. voru
bræðrasynir. Tvær systur átti
Guðbjarni; Sigríði konu Eyleifs
ísakssonar skipstjóra á Akranesi,
og Jónínu, sem lézt 14 ára gömul.
Fóstursystir hans er Jónína
Guðvarðardóttir, kona Þórðar
Hjálmarssonar framkvæmda-
stjóra, Akranesi.
Guðbjarni naut venjulegrar
barnafræðslu þeirra tíma og var
einn vetur i unglingaskóla á
Akranesi. Hafði hann af þvi mikil
not. Hann fer að róa 15 ára gamall
og þar með er lífsbraut hans
mörkuð. Næstu árin er hann á
bátum frá Akranesi eða Sand-
gerði á vertíðinni, en við heyskap
i sveit á sumrin. Hann var síldar-
matsmaður á Siglufirði í 12
sumur og oft á vorin við verkun
grálúðu á Ólafsfirði og Dalvík. Þá
starfaði hann i mörg ár hjá S.F.A.
á Akranesi og síðustu 16 árin eða
til síðustu áramóta, vann
Guðbjarni hjá Sementsverk-
smiðju ríkisins. Hann var hjá
mörgum þekktum og aflasælum
formönnum á Akranesi og eftir-
sóttur sjómaður.
II.
Guðbjarni kvæntist þann 24.
júní 1922 Guðnýju Magnúsdóttur
bónda á Iðunnarstöðum í Lundar-
reykjardal Gunnlaugssonar,
mikilli dugnaðarog myndar konu.
Voru þær 7 systurnar frá Iðunn-
arstöóum um tima búsettar á
Akranesi og einn bróðir. Var
þetta sérlega mannvænlegur syst-
kinahópur, sem nú er farið að
skarða í.
Þau hjón eignuðust 11 börn.
Dóu 2 í bernsku en 9 eru á lífi og
hafa öll stofnað heimili. Þau eru
þessi talin í aldursröð: Sveinn
vkm á Akranesi, kvæntur Gyðu
Pálsdóttur frá Siglufirði, Fjóla
húsmóðir á Akranesi, gift
Jóhannesi Guðjónssyni skip-
stjóra, Vigdís húsmóðir á
Akranesi gift Jóhanni Bogasyni
rafvirkjameistara, Lilja húsmóðir
í RéýJóí*yíkvgi/t Jhni HaUgrims-.
syni verkstjóra, Erna húsmóðir í
Reykjavík, gift Magnúsi Ölafssyni
bifreiðastjóra, dr. Sigmundur
prófessor, kvæntur Margréti Þor-
valdsdóttur frá Akranesi, Svein-
björn bankamaður í Reykjavík,
kvæntur Sigriði Magnúsdóttur
frá Hafnarfirði, Sturla bóndi í
Fossatúni i Borgarfirði, kvæntur
Sjöfn Pálsdóttur af Snæfellsnesi
og Hannesína húsmóðir í Reykja-
vik, gift Steinþóri Viggóssyni
trésmiðameistara.
Auk 9 barna, eiga þau hjónin á
lífi 25 barnabörn og 11 barna-
barnabörn eða alls 45 af-
komendur.
III
Guðbjarni í Ivarshúsum var
einn af fyrstu mönnum, sem ég
kynntist á Akranesi sumarið 1954,
utan þeirra, sem þá voru I farar-
broddi í bæjarmálunum. Ástæðan
fyrir því var sú, að bæjarstjórnin
hafði 5 árum áður boðið ríkinu
ókeypis land undir sementsverk-
smiðju, yrði hún staðsett á Akra-
nesi. Guðbjarni átti verulegan
hluta þessa lands, en hvorki var
búið að greiða honum landið né
komast að niðurstöðu um verð á
því, enda þótt bygging verk-
smiðjunnar væri þá að hef jast.
Guðbjarni vakti strax athygli
mína, sem stálgreindur og
harðsnúinn málafylgjumaður,
sem hélt fast og einarðlega á
málstaó sínum. Áítum við marga
samningafundi um land það, sem
óskað var eftir að hann léti
bænum í té vegna verksmiðjunn-
ar. Ég reyndi eftir beztu getu að
halda á málstað bæjarins, en þar
var ekki við neitt lamb að leika.
Ég sagði þá oft við Guðbjarna —
bæði í gamni og alvöru — að hann
hefði átt að verða lögfræðingur,
því mér fannst rökfimi hans og
málafylgja öll minna á þraut-
reyndan og harðsnúinn mála-
færslumann. Eftir nokkra
mánaða samningsþóf var gengið
frá verði og greiðsluskilmálum á
umræddu landi undir sements-
verksmiðjuna. Lauk því öllu með
eðlilegum hætti og sennilega
báðir óánægðir.
En frá þessum fyrstu samskipt-
um okkar verður mér það lengst
minnisstæðast, aó hann lét mig
persónulega á engan hátt gjalda
þess, þótt ég reyndi af fremsta
megni að gæta hagsmuna bæjar-
ins gegn honum. Þetta þótti mér
bera vott um viðsýni hans og
drengskap, sem of sjaldgæft er í
slikum tilvikum. Upp frá þessu
efaðist ég aldrei um andlegan
efnivið Guðbjarna í ívarshúsum.
Líkamlegur dugnaður. hans og at»
orka var hins vegar flestum aug-
ljós.
IV.
Guðbjarni Sigmundsson lítur
nú af 80 ára sjónarhól og hefur
margs að minnast. Engir hafa lif-
að slíka breytingatíma, sem hann
og jafnaldrar hans. Hann man þá
tíð, þegar flestir bjuggu I torf-
bæjum. Þá var fátæktin og alls-
leysið fyrir hvers manns dyrum
og atvinnuleysið árvíst. Sjórinn
var sóttur á opnum árabátum og
farþegaskip tæpast til. Lífið var
þrældómur og basl. Og eftir að
framfarasókn þjóðarinnar var
hafin, kom kreppan mikla eftir
1930 og setti strik í reikninginn.
Það var þvi mikið afrek á slíkum
tímum að koma 9 börnum vel til
manns — sem hvert um sig skipar
með sóma stöðu sína í hinum
fjölbreyttustu störfum þjóð-
félagsins.
Eftir stranga vinnu í 65 ár er
Guðbjarni enn beinn í baki, léttur
í hreyfingum, glaður i lund og
gamansamur. Og þótt Guðbjarni
hafi ekki alltaf setið á friðarstóli,
andar frá honum áttræðum góð-
vild og þakklæti til samferða-
mannanna. Hann sér lífið I hinni
fegurstu mynd frá skyni aftan-
roðans, sem bregður hugljúfum
ævintýrablæ á langa og viðburða-
ríka ævi. Þannig fer þeim, sem
afrekar miklu dagsverki, þarf að
takast á við mörg vandamál og á
mörgum sigrum að fagna. I þvi er
hin mikla iifshamingja fólgin.
Viðhorf hans birtast m.a. í þessari
vísu sem hann kastaði fram
nokkru fyrir afmæli sitt, en
Guðbjarni er ágætur hagyrðingur
þótt hann fliki því lítt:
„Sé ég enn að sólin skín,
á sjó og upp til hlíða,
áttatíu árin mín,
eru senn að líða.“
V.
Guðbjarni er greindur vel og
stálminnugur. Hann hefði getað
numiö hvaða fræði, sem hann tók
sér fyrir hendur. Hann bjó yfir
fjölbreyttum hæfileikum, sem
auðvelt hefði verið að þroska og
mennta til margbreytilegra
starfa. Það var ekki gert. Hann
ólst upp á þeim tima, þegar
menntunin var sérréttindi þeirra
efnuðu. Því var hlutskipti hans að
vera verkamaður að lífsstarfi.
Einnig þar er hægt að lifa
hamingjusömu lífi og láta margt
gott af störfum sínum leiða. Hann
var stofnandi Verkalýðsfélags
Akraness í okt. 1924 og átti sæti í
stjórn félagsins og oft i
samninganefndum. Þá átti hann
um tíma sæti í stjórn Kaupfélags
Suður-Borgfirðinga.
Ágætur bókamaður er
Guðbjarni og fylgist vel með
mönnum og málefnum. Hann
kann góð skil á fornum atvinnu-
háttum og samtimasögu sinni.
Sumarið 1967 —nokkru eftir að
hann varð 70 ára — fór hann
mikla ferð til Detroit i Banda-
ríkjunum og þaðan á heims-
sýninguna í Montreal í Kanada.
Ferð þessi varð Guðbjarna til
mikillar ánægju. Dr. Sigmundur
— sonur hans — var þá prófessor
við háskóla í Detroit og réði það
að sjálfsögðu mestu um ferð hans.
Börn og tengdabörn Guðbjarna
afhentu honum farseðilinn i af-
mælisgjöf, þegar hann varð
sjötugur. í blaðinu Magna á Akra-
nesi í desember 1967 birtist viðtal
við hann um ferð þessa, sem heit-
ir: Frá ívarshúsum til Montreal.
Það lýsir vel ágætum frásagnar-
hæfileikum og glöggri eftirtekt.
VI
Tveir eru þeir atburðir frá
æskuárunum, sem standa
Guðbjarna ljóslifandi fyrir hugar-
sjójium. Annar er vigður
þjónustunni við hið gróandi líf,
hinn er í ætt við eyðingaröflin og
Fyrir fáum vikum var haldin
náttúruverndarsýning á vegum
Sambands íslenskra náttúru-
verndarfélaga (SÍN) I Norræna
húsinu. Sýningin vakti óskipta at-
hygli fjölmargra á brýnum verk-
efnum. Sjö aðilar áttu aðild að
þessari sýningu þeirra á meðal
Náttúruverndarfélag Suðvestur-
lands (NVSV). Starfuemi þess
hefir ekki farið hátt frá þvi það
var stofnað árið 1971, þó að það
hafi unnið að ýmsum málum. í
ráði er að blása verulegu lífi í
félagið enda hefur það veiga-
miklu hlutverki að gegna. Hvar-
vetna blasa við óþrjótandi verk-
efni á sviði náttúruverndarmála,
ekki síst þar sem er ör uppbygg-
ing og oft er ráðist í.framkvæmdir
ber einkenni hinnar skammsýnu
rányrkju. Hann er 13 ára við
messu á Hvanneyri sumarið 1910.
Eftir messu sýndi Halldór skóla-
stjóri kirkjugestum slátt með vél
sem hestar gengu fyrir og sló á
við 10 menn. Guðbjarna þótti
glæsilegt að sjá vélina fletta
grasinu af sléttu túninu á
Hvanneyri. Þetta var mikill vor-
boði í þjóðfélaginu. Gallinn var
bara sá, að slett tún voru þá
tæpast til. Það átti eftir að breyt-
ast.
Andstaðan við þetta var rán-
yrkja breskra togara um svipað
leyti hér úti í flóanum, með
formenn af Akranesi um borð,
sem leiðbeindu þeim bresku um
beztu fiskimiðin, gegn því að
bátar héðan mættu fara út að
togurunum og hirða hjá þeim
allan smáfiskinn — ruslið — sem
þeir ensku kærðu sig ekki um.
Þetta fannst Guðbjarna ömur-
legur undirlægjuháttur.
VII
Á 80 ára afmælinu gerðu börn
Guðbjarna og tengdabörn góðan
fagnað í Oddfellowhúsinu á Akra-
nesi. Þar komu flestir af-
komendur hans og margir vinir
og samferðamenn. Hann var hinn
glaði ljúflingur, sem örðugt var
að trúa að ætti 80 ár að baki. Svo
mörg einkenni æskunnar ber
hann enn. Hann hefur notið
hinnar góðu handleiðslu guðanna
og á því vonandi bjart og fagurt
ævikvöld framundan.
Að lokum þakka ég Guðbjarna
ágæt kynni og drengileg sam-
skipti í nær aldarfjórðung. Ég
árna honum allra heilla á
merkum timamótum ævinnar.
Undir þetta veit ég að margir
samferðarmenn hans taka.
Dan. Ágústínusson
án þess að huga að náttúru-
spjöllum og röskun lífríkis, sem
fylgja í kjölfarið. Fólk gerir sér
nú miklu betri grein fyrir gildi
náttúruverndar en áður og ekki
er vanþörf á sterku og fjölmennu
félagi til þess að benda á það sem
miður fer og standa vörð um
hreint loft, hreint vatn og
heilbrigt umhverfi.
Á liðinni náttúruverndar-
sýningu kom áhugi fólks mjög vel
í ljós. Framhaldsaðalfundur
Náttúruverndarfélags Suðvestur-
lands verður haldinn í Norræna
húsinu fimmtudaginn 12. maí kl.
20.30. öllum áhugamönnum er
boðið á fundinn og að gerast
félagar.
(Fcéltatilkynning)
Náttúruverndarfélag Suðurlands:
Aðalfundur í kvöld