Morgunblaðið - 27.05.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1977
Á SÝNINGUNNI „12 brezkir listmálarar" sem nú stendur yfir á
Kjarvalsstöðum, munu nokkrir tónlistarmenn flytja brezka tónlist I
kvöld kl. 20:30. Flytjendur eru Rut L. Magnússon, söngkona, Jónas
Ingimundarson, pfanóleikari, Lárus Sveinsson, trompetleikari, Jón
Sigurðsson, trompetleikari, Christina Tryk, hornleikari, Ole Kristian
Hansen, básúnuleikari, og Bjarni Guðmundsson, túbuleikari. Efnis-
skránni er ætlað að gefa mynd af brezkri tónlist f margar aldir og er
aðgangseyrir hinn sami og á sýninguna, 400 kr.
A6 gefnu tilefni
í MORGUNBLAÐINU hinn 25.
þ.m. er rætt við eiturlyfjaneyt-
anda. Áður en viðtalið hófst
'kveðst blaðamaðurinn hafa gef-
ið viðmælanda sínum loforð
um, að nafn hans yrði ekki
nefnt i viðtalinu. Er slíkt að
mínum dómi sjálfsögð tillits-
semi, þar sem gera má ráð fyrir
að um sjúkling sé að ræða.
Síðan er raunasaga eitur-
lyfjaneytandans rakin. Er hún
bæði slitrótt og handahófs-
kennd og ber greinilega vitni
um hið truflaða sálarástand
þessa illa farna einstaklings.
I þessari frásögn ber nafn
mitt á góma. Hann telur leik-
bróður sinn hafa verið son
minn („Sigurðar Sigurðssonar
þáverandi landlæknis"). Slíkt
er tómt rugl, því ég hefi ekki
eignast son, og frekari umræð-
ur varðandi skipti mín við
mann þennan eru staðlausir
stafir, sem ég kannast eigi við.
Hér ber mikið á milli og ferst
blaðamanninum ekki jafnvel og
í upphafi, er hann hóf umræðu
sína við sjúklinginn. Ekkert
virðist gert til að staðreyna frá-
sögn hans, en hann látinn vaða
elginn. Frásögn einstaklinga,
sem geta verið meira og minna
truflaðir verður þannig gagn-
rýnislaus.
Á undanförnum mánuðum
hefur notkun deyfi-, nautna- og
fíkniefna verið mikið rædd í
íslenzkum fjölmiðlum. Hér er
um álþjóðlegt og viðurkennt
stórvandamál að ræða, sem
þarf að meðhöndla af ítrustu
varkárni, tillitsemi og gagn-
rýni. Frásöng hinna illa förnu
einstaklinga getur engan veg-
inn orðið einhlýtur mælikvarði
á málið þó hún veki tilætlaðan
hrylling og meðaumkun eins og
henni er ætlað að gera.
Sigurður Sigurðsson.
Námskeið um
safnaðarstarf
á Hólum í júlí
PRESTAFÉLAG Hólastiftis
gengst fyrir námskeiði á Hólum í
Hjaltadal 8.—10. júlí, þar sem
veitt verður fræðsla og leiðbein-
ingar um verksvið og skyldustörf
í safnaðarstarfi. Námskeiðið er
ætlað leikmönnum, einkum
sóknarnefndarmönnum,
safnaðarfulltrúum, meðhjálpur-
um, fjárhaldsmönnum kirkna og
umsjónarmönnum kirkjugarða.
Flutt verða fræðsluerindi og þátt-
takendum skipt í umræðuhópa,
sem stjórnarmenn prestafélags-
ins veita forustu, þ.e. prófastarnir
á Norðurlandi og víglsubiskup
Hólastifts.
Námskeiðið hefst 8. júlí kl. 20
og lýkur með guðsþjónustu
sunnudaginn 10. júlí, en þar
prédikar sr. Sigurbjörn Einarsson
biskup. Þátttöku þarf að tilkynna
fyrir 5. júní í pósthólf 253 á Akur-
eyri. í undirbúningsnefnd nám-
skeiðsins eru sr. Pétur Sigurgeirs-
son vígslubiskup, sr. Gunnar
Gíslason og Sighvatur Birgir
Emilsson.
Saltvinnsla
á Vestfjörðum
í ársriti
Sögufélags
Isfirðinga
IJT ER komið nýtt hefti af Ársriti
Sögufélags ísfirðinga. Þetta er 20.
árgangur ritsins og ritstjórn þess
hafa þeir annast, sem áður, Jóh.
Gunnar Ólafsson og Ölafur Þ.
Kristjánsson. Aðalgrein þessa
heftis er eftir Lýð B. Björnsson og
er um saltvinnslu á Vestfjörðum
og saltverkið í Reykjanesi við
Djúp. í þessum fyrrihluta grein-
arinnar er dreginn saman mikill
fróðleikur um saltvinnslu á liðn-
um öldum.
Snorri Sigfússon fyrrum skóla-
stjóri á Flateyri á þarna grein um
Guðm. Á. Eiríksson hreppstjóra á
Þorfinnsstöðum í Valþjófsdal.
Gisli Vagnsson bóndi á Mýrum
ritar um bændaverzlun í Auð-
kúluhreppi fyrir 4 til 5 áratugum.
Haildór Kristjánsson frá Kirkju-
bóli bætir við þann fróðleik, sem
hann hefur grafið upp um séra
Sigurð Tómasson. Ýmsar fleiri
greinar eru í þessu hefti og fylgir
því félagaskrá 1976.
Síðast en ekki sízt er í þessu
heftir efnisskrá um alla tuttugu
árganga þessa ársrits. Hagnýtur
fróðleikur og til mikils hagræðis
fyrir alla þá er leita vilja þar
ákveðins efnis, greina eða lausa-
vísna, er komið hafa i ritinu.
Efnisskráin er tekin saraan af
Ólafi Þ. Kristjánssyni og er mikið
þarfaverk, sem taka mætti upp af
fleiri árs eða héraðaritum.
AlKiI.YSINCASIMINN KR:
Fullar
verzlanir
af nýjum
stórglæsilegum
sumarfatnaði
fyrir eina af
stórhelgum
sumarsins.
TfZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
KARNABÆR
AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a Simi frá skiptiborði 28155