Morgunblaðið - 27.05.1977, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1977
11
en um skaðsemi þess eru alltaf að
berast nýjar og nýjar upplýsing-
ar.
Og hvað þýðir að segja við ungl-
inga: Þú mátt ekki reykja hass.
Þeir spyrja: Af hverju? Og svarið
er: Af þvi bara. Því að fræðslan er
ekki fyrir hendi.
Þetta er allt ósköp augljóst. Til
að fækka neytendum, þarf að
minnka innflutninginn. Til að
minnka innflutninginn, þarf
aukna löggæslu, meira fé.
Hverjir standa á bak við inn-
flutninginn? Ja, það hefur verið
gefið í skyn að hér sé ekki um
neina hringi eða mafiu að ræða.
En ég er ekki svo sannfærður um
það. Alla vega eru það einhverjir
nógu harðsvíraðir — og á þá dug-
ir ekkert annað en harka á móti.
almennt hætt að veita lögreglunni
upplýsingar, þótt það byggi yfir
einhverri vitneskju og er hann
inntur eftir ástæðunni fyrir því.
„Þegar ég fyrst byrjaði að
starfa að þessum málum, komu
upplýsingar varðandi þau á færi-
bandi, ef ég má orða það svo. Þar
fékk ég upplýsingar um neysiu og
um misferli — en mér var ekki
gefið tækifæri til þess að vinna úr
þeim og kom ég þeim á framfæri
við fíkniefnadeild Reykjavíkur-
lögreglunnar, sem virðist hafa
orðið lítið ágengt með hráefnið.
Af þeim orsökum hafa þessir upp-
lýsingaraðilar haft samband við
mig siðar og sagt að þeim þætti
gagnslaust að vera láta mér i té
upplýsingar, þegar afraksturinn
væri nánast enginn.
Þorsteinn Steingrímsson og scháferhundurinn Skuggi
að störfum.
Sem ég stend hér — að ef ekki á
að stefna í óefni i þessum málum,
þarf stórátak til — og það fljótt.
Vitiborið fólk á að hætta þessu
röfli um að hass sé skaðlaust —og
færa fram þá fáránlegu staðhæf-
ingu að hér séu engir djúpt
sokknir heróinistar (sem sprauta
sig) eða morfínistar. Tökum sem
dæmi bátana, sem liggja við hafn-
ir út um land allt. Alltaf er verið
að brjótast inn í þá og stela mor-
fíni úr sjúkrakössum — það sýnir
að hér eru morfínistar og sem
slíkir eru þeir ekki langt frá
heróninistunum. Nú orðið hafa
skipstjórnarmenn tekið fyrir það
að morfin sé i sjúkrakössum um
borð, og er það eingögnu af fyrr-
nefndum ástæðum.
Trúnaðarsamband við
upplýsingaaðila
Það má ef til vill færa rök að
því að innflutningur á hinu stór-
skaðlega ofskynjunarlyfi LSD
hafi aukist hér um tíma vegna
hasshundanna. En þeir eru ekki
þjálfaðir í það að finna LSD, sem
er mjög auðvelt að smygla inn,
sökum þess að það er lyktar- og
litlaust. Mér er aðeins kunnugt
um einn sérþjálfaðan hund í LSD-
leit og hann er í eign sænsku
lögreglunnar. Það þarf gífurlega
þjálfun til að hundur geti fundið
LSD, sem hægt er að smygla inn í
hvaða formi sem er.
Taki maður inn LSD einu sinni,
getur hann átt það a hættu að fá
það sem kallað er ,,flashback“ eða
afturkast, hvenær sem er. Það
lýsir sér á þann hátt að hann
verður fyrir sömu áhrifum og
þegar hann tók lyfið inn, þótt um
enga frekari notkun hafi verið að
ræða“.
Þorsteinn hefur talað um það
hér fyrr, að nú orðið væri fólk
Frumskilyrði í svona málum er
trúnaðarsamband við upplýs-
ingaraðila, sem að mínu mati á
heimtingu á þvl að halda nafni
sínu leyndu. En dómstólar virðast
líta öðrum augum á málið og
heimta það að upplýsingaraðili
mæti fyrir rétti og staðfesti sinn
framburð. I stað þess að ætla
rannsóknarlögreglunni að nýta
þessar upplýsingar, gera þær
opinberar og sannar, eigi þær i
upphafi við rök að styðjast. Við
búum í það smá samfélagi og upp-
lýsingar varðandi fikniefni geta
oft á tíðum verið það viðkvæmar
að ekki er hægt að ætlast til þess
af fólki, sem býr yfir einhverri
vitneskju að það standi frammi
fyrir dómstólum og segi t.d.r ,,Ég
veit að Guðmundur vinur minn
selur hass“.
Við höfum misst mikið af okkar
samböndum af þessum ástæðum.
Lengi vel fór rannsóknarlög-
reglan ekki á veitingastaði til að
kanna hvort þar væri um neyslu
að ræða, á þeirri forsendu að allir
mundu þekkja okkur og því væri
sú aðferð vonlaus. Hins vegar átti
það að liðast að fólk gæti setið á
opinberum veitingastöðum og
svælt eins og það vildi. Á siðasta
ári var sá siður endurvakinn að
menn úr fikniefnadeild lög-
reglunnar fóru aftur að sækja
veitingastaði, þar sem grunur lék
á að fólk hefði fíkniefni undir
höndum, árangurinn varð sá að
einum veitingastað var lokað.“
Þegar ég hafði komist á
snoðir um eitthvað.
Hafa hasshundarnir orðið fyrir
aðkasti á þessum árum?
Já. Hundarnir voru og eru að
mínum dómi „baromet" i sam-
bandi við innflutninginn. Fyrir
Framhald á bls. 29
Þessi mynd var tekin vorið 1975 er ný sundlaug við Tjaldanesheimilið
var vfgð.
TjaldanesDÍltar opna
sölusýningu á handavinnu
PILTARNIR í Tjaldnesi f Mosfellssveit opna f dag ( Tjaldanesi
sölusýningu á handavinnu sinni og er þetta f fyrsta sinn, sem efnt er til
slíkrar sýningar. Allur ágóði af sölu munanna verður notaður til kaupa
á nýjum tækjum og vélum, sem notaðar eru við smfðar og aðra
handavinnu. Margt fallegra muna er á þessari sýningu, sem verður
opin milli kl. 14—16 f dag og næstu daga fram til 3. júnf.
Verd aðeins
LAUGAVEG'JR
®-21599
BANKASTRÆTI
___■St-14275
%tu skyrtulous?
§corpioiv skyrtur
Mörg sniö - Margir litir