Morgunblaðið - 27.05.1977, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1977
25
fclk í
fréttum
4- Elísabet Taylor
og maður hennar
John Warner, fyrr-
verandi flotamála-
ráðherra, eru hér
ásamt meðlimum
klúbbs sem tengdur
er Harvard-háskóla.
Þetta er auðvitaS
leiklistarklúbbur,
sá elsti f USA, og
hann hefur kjörið
Liz „Konu ársins
1977
Tuttugu ára afmæli húsgagna-
vinnustofu Ingvars og Gylfa
Ingvar og Gylfi ásamt ungum dreng, sem dró um verðlaun getraunasamkeppninnar.
+ Ilúsgagnavinnustofa Ingvars
og Gylfa á tuttugu ára afmæli
um’ þessar mundir, en fyrir-
tækið var stofnað 17. maí árið
1957. Húsgagnavinnustofan og
verziunin eru nú til húsa að
Grensásvegi 3. Eigendur og
stofnendur fyrirtækisins, þeir
Ingvar Þorsteinsson og Gylfi
Einarsson, hófu rekstur þess í
bdskúr ( BólstaðahUðinni en
byggðu núverandi húsnæði og
fluttu þangað inn árið 1966. Er
það verzlunarhúsnæði 600 fer-
metrar að stærð og vinnustofa f
kjallara, sem er álíka stór að
fermetratali.
Verzlunarstjóri er Einar
Ágúst Kristinsson og hjá fyrir-
tækinu vinna um 25 manns.
í tilefni þessara tfmamóta
efndi fyrirtækið tii getrauna-
samkeppni f dagbiöðum og var
vinningurinn hjónarúm að
verðmæti 164 þúsund. Bárust
um 6000 úrlausnir og þar af
2000 réttar, sem dregið var úr
sfðastliðinn föstudag og við-
stöddum blaðamanni.
Vinninginn hlaut Guðbjörg
Guðmundsdóttir f Sandgerði.
Þá var dregið um tuttugu auka-
vinninga, sem voru öskubakkar
framleiddir af fyrirtækinu.
Húsgagnavinnustofa Ingvars
og Gvlfa hefur sérhæft sig f
smfði hjónarúma og skápa. Auk
þess eru þeir með «11 önnur
algeng húsgögn á boðstólunum
og er það ailt fslenzk fram-
leiðsla.
Hann vann
fyrstu
verðlaun
+ Það er ekki að undra
þðtt hr. Bournehouse
Dancing Master, i dag-
legu tali kallaður
„Terry“ sé hreykinn.
Hann vann fyrstu verð-
laun á hundasýningu í
London þar sem fram
komu 10.000 hundar og
hlaut titilinn „Fallegasti
hundur í Englandi“.
Fiskvinnsluskólinn
Skólinn útskrifar fiskiðnaðarmenn og fisktækna. Náms-
tími er 1 Vi ár til 4’/2 ár og fer eftir undirbúningi og því að
hvaða námslokum er stefnt. Almennar námsgreinar skal
nú nema I öðrum framhaldsskóium og er kennslusam-
starf milli skólans og Flensborgarskóla þar um.
Inntaka nýrra nemenda;
1. Þeir sem aðeins hafa grunnskólapróf Ijúka 14—-21
stigum i almennum námsgreinum (stærðfræði, efna-
fræði, fsl. danska, enska og bókfærsla) á haustönn og
hefja síðan nám við Fiskvinnsluskólann eftir áramót.
2. Þeir sem lokið hafa sem svarar 84 stigum (stæ. 15,
efn. 15, eðl. 9, isl. 6, en. 9, þýska 6, bókf. 6, líffr. 9
og félagsfr. 3) eða meira, t.d. stúdentar af náttúru-
fræðasviði, hefja nám í skólanum i september og geta
þeir útskrifast sem fisktæknar eftir tveggja ára nám.
(ath. 3 stig = 2Vi námseining).
3. Nám annarra verður metið og veljast námsleiðir
gegnum skólann eftir undirbúningi.
4. Þeir, sem eru 25 ára eða eldri og hafa starfað við
fiskvinnslu í a.m.k. 5 ár, geta hafið nám við skólann í
haust og útskrifast þaðan sem fiskiðnaðarmenn eftir
1 '/2 ár án þess að stunda nám i almennum náms-
greinum.
Nánari upplýsingar í námsvísi skólans, sem heimsendist
ef óskað er. Sími 53544.
Umsóknir um skólavist ásamt prófskírteini og upplýsing-
um um fyrri störf, þurfa að berast Fiskvinnsluskólanum,
Trönuhrauni 8, Hafnarfirði bréflega fyrir 10. júní nk.
Skólastjóri.