Morgunblaðið - 27.05.1977, Side 32
A U(tLYSIN(í ASIMINN EK:
22480
JW#rjjunWntiií>
Þarf aldrei að pressa
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1977
Narfa breytt
í loðnuskip
Verkið hafið í Stálvík
ÁKVEÐIÐ hefur veriö aó breyia
skuttogaranum Narfa í loðnuskip
og hefur Stálvík hafió verkið, en
áætlað er að Ijúka þvf á næstu
þremur mánuóum. Samkvæmt
upplýsingum (íuðmundar Jör-
undssonar útgerðarmanns kvað
hann áætlað að Narfi beri um
1100 lestir af loðnu eftir breyting-
una, sem talin er munu kosta 165
millj. kr. Ástæðuna fyrir breyt-
ingunni kvað (iuðmundur vera þá
miklu loónu sem gengi vió landið
og góðar markaðshorfur auk þess
að hann teldi ástæðu til þess aó
létta á þorskveiðunum eins og
unnt va*ri með þvf að taka stóru
skipin af þeim.
Áður var byggt yfir Narfa og
nauðsynlegur vindubúnaður er
fyrir um borð í skipinu og einnig
Pólýfónkór inn
fær milljón í
styrkfráríkinu
MENNTAMÁLARÁÐHERRA
hefur í samráði við fjármálaráðu-
neytið ákveðið að veita Pólýfón-
kórnum á þessu ári sérstakan
styrk að upphæð 1 milljón króna.
Að sögn Vilhjálms Hjálmars-
sonar, menntamálaráðherrar er
styrkur þessi veittur i framhaldi
af ósk um það efni frá stjórn
kórsins. Er styrkurinn veittur f
tilefní af 20 ára starfi Pólýfón-
kórsins og vegna kostnaðarsamra
viðfangsefna á þessu ári.
búnaður til kolmunnaveiða. Hins
vegar verða sett í skipið Sonar-
fiskleitartæki, tvær fiskdælur, 2
kranar, 2 kraftblakkir o.fl. Lestar
skipsins og milliþilfar verða inn-
réttuð í sjálfstæða geyma með
fullkomnum lensiútbúnaði.
Björn Jónssbn skipstjóri mun
taka við Narfa eftir breytinguna
en hann hefur'verið með Ásberg
RE.
Krafizt
alltaðlOára
fangelsis
MÁLFLUTNINGDR fór í gær
fram í Sakadómi í ávana- og
flkniefnum f máli bandarfska
sjóliðans Christopher Barbar
Smith, sem nefndur hefur ver-
ið „Korkurinn" í hlaóafrétt-
um, en hann er ákærður fyrir
stórfelldan innflutning á
fíkniefnum til landsins á tíma-
bilinu maí — nóvember 1975.
Er þess krafizt af ákæruvalds-
ins hálfu, að hann verði dæmd-
ur samkvæmt hegningariög-
um, en við stórfelldu smygli og
dreifingu á fíkniefnum liggur
2—10 ára fangelsi.
Barbar Smith er talinn hafa
smyglað til landsins einn eða
með öðrum nálægt 20 kg af
hassi auk nokkurs af LSD-
töflum og amfetamindufti. Að-
Framhald á bls. 18
Fólk hefur notið sólarstunda undanfarna daga, tyllt sér niður og rabbað saman um jarólffið og ef til
vill sungið með Tómasi: „Nú verður aftur bjart og hlýtt um bæinn, af bernskuglöðum hlátri strætið
ómar.... “Ljósmyndina tók RAX við Austurvöll.
VMSÍ vill hærri sérkröfupró-
sentu fyrir sig en aðra hópa
ENGAR samningaviðræður áttu
sér stað á þriggja klukkustunda
löngum sáttafundi I gær milli að-
alsamninganefnda aðila vinnu-
markaóarins. Allur tíminn fór
hins vegar f það, að Verkamanna-
samband íslands fjallaði um sér-
kröfur sínar og á hvern hátt unnt
væri að samræma þær sam-
ræmdri lausn sérkrafnanna. Ekki
Eimskip að semja um
kaup á tveimur skipum
— hefur keypt Hofsjökul og tvö önnur skip á árinu
agið fest kaup á Hofsjökli, en tvö tölu, en ekki þau skip tvö, sem nú
elztu skip félagsins, Lagarfoss og er verið að semja um kaup á.
Fjallfoss, hafa verið sett á sölu-
lista.
SAMNINGAR um kaup Eim-
skipafélags íslands á tveimur
vöruflutningaskipum af danska
skipafélaginu Mercandia eru nú á
lokastigi. Þá hefur Eimskipafél-
Ríkisstjómin
gefurfyrirheit
um stuðning
— taki Friðrik
Olafsson við for-
mennsku í FIDE
RÍKISSTJÓRNIN hefur nú
tekið til meðferðar ósk Skák-
sambands íslands um stuðning
íslenzkra stjórnvalda, ef til
þess kemur að Friðrik Ólafs-
son gefur kost á sér til for-
mennsku i Alþjóðaskáksam-
bandinu. Að sögn Vilhjálms
II jálmarssonar, menntamála-
ráðherra, tóku allir ráðherrar
vel f þessa málaleitan Skák-
sambandsins og var ákveðið að
veita þá fyrirgreiðslu, sem
unnt væri að láta í té af hálfu
stjórnvalda. Var menntamála-
ráðherra og fjármálaráðherra
falið að vinna áfram að málinu
I samvinnu við forráðamenn
Skáksambandsins.
Vilhjálmur Hjálmarsson
sagði i samtali við blaðið að
Framhald á bls. 18
Skipin tvö, sem Eimskipafélag-
ið er að kaupa af Mercandia, eru
systurskip tveggja annarra, sem
félagið hefur keypt af þesSum að-
ila fyrr á árinu. Verða þau átt-
unda og niunda skipið, sem Eim-
skip kaupir af Mercandia. Tvö
fyrri skipin, sem E.í. hefur keypt,
á þessu ári verða afhent í júnf n.k.
Þessi skip eru smíðuð 1974 og
1975, stærð þeirra er 3050 DW
tonn og lestarrými um 120 þús-
und teningsfet. Ganghraði skip-
anna er 13 sjómílur. Af hálfu selj-
anda er lögð áherzla á það, að
verð skipanna sé eldri gefið upp
sem stendur, þar sem félagið er
með fleiri slík skip i sölu en Eim-
skipafélagið hefur náð hagstæðu
verði á skipunum vegna fjölda
þeirra.
Eimskipafélagið hefur haft
Hofsjökul á leigu frá því í árs-
byrjun 1969 og er gert ráð fyrir
þvf, að skipið verði afhent Eim-
skipafélaginu sem eiganda í lok
júní. Kaupverð var 1240 þúsund
dollarar, eða jafnvirði 239 mill-
jóna 320 þúsund króna.
Elztu skip Eimskipafélagsins,
sem nú hafa verið sett á sölulista,
voru smíðuð 1949 og 1954 og er
Lagarfoss eldra.
Skipastóll Eimskipafélags ís-
lands telur nú 24 skip og eru
Lagarfoss og Fjallfoss i þeirri
fékkst niðurstaóa af þessum
fundahöldum, en sérstök nefnd
Verkamannasambandsins og
vinnuveitenda mun hittast f húsa-
kynnum sáttasemjara rfkisins I
dag klukkan 13 vegna sérkrafn-
anna. Sáttafundur er sfðan boóaó-
ur á sama stað f dag klukkan
16.30.
Að loknum fundum Verka-
mannasambandsins i gærkveldi
ræddi Morgunblaðið stuttlega við
Guðmund J. Guðmundsson, for-
mann Verkamannasambands ís-
lands, og Karl Steinar Guðnason,
varaformann þess. Þeir félagar
sögðu, að menn væru ekki sáttir
við, að verkafólki væri alltaf hald-
ið í sama farinu. Um væri að ræða
snauðasta fólkið og sérkröfur
sambandsins sögðu þeir aðeins
vera atriði, sem fyrir væru í öðr-
Nýja þotan sem Arnarflug hefur nú fengið er eins útlits að utan og
gamla vélin, sem sést hér á myndinni, en hreyflar nýju vélarinnar eru
fullkomnari.
Ný Arnarflugs-
vél í flugfiotann
Miklar annir framundan heima og heiman
NV ÞOTA Arnarflugs var
væntanleg til landsins um mið-
nætti í gærkvöldi máluð litum
Arnarflugs og hefur hún íslenzku
einkennisstafina TF-VLB. Arnar-
flug leigir þotuna af bandarfska
flugfélaginu Western Airlines
með þeim skilmálum að geta
keypt hana. Samkvæmt upplýs-
ingum Marinós Jóhannssonar,
flugrekstrarstjóra Arnarflugs, er
þotan af gerðinni Boeing 720 B,
mjög nýtfzkulega búin f farþega-
rými, þ.e. með svokallaðri breið-
þotuinnréttingu, en slfkar inn-
Framhald á bls. 21
um kjarasamningum betur settra
launþega, sem viðsemjendur
Verkamannasambandsins, vinnu-
veitendur, hefðu þegar undirrit-
að. Þeir sögðu, að sú aðferð, sem
sáttanefnd legði til, væri í raun
staðfesting á því,. að verkafólk
þyrfti ávallt að sitja í sama far-
inu. Af því væri óánægja þeirra
sprottin.
Morgunblaðið spurði þá þá fél-
aga að því, hvort þeir væru ekki
hræddir við að krefjast of hárrar
prósentu í sérkröfur, þannig að
óeðlilega hár hluti færi í að fylla
þann ramma, sem óneitanlega
kæmi þá niður á kauptaxtahækk-
un. Þeir sögðust vissulega óttast
það, að há prósenta í sérkröfur
gæti komið niður á hækkun kaup-
taxtanna — ef sama prósenta ætti
að ganga yfir alla hópa innan Al-
þýðusambandsins. „Við eigum að
fá hærri prósentu,“ sögðu þeir
eða með öðrum orðum: Verka-
mannasambandið á að fá sam-
þykktar sérkröfur án þess að þær
reiknist með innan 2.5% ramm-
ans, sem sáttanefnd hefur gert
tillögu um. Sem dæmi um mis-
rétti nefndu þeir konu, sem starf-
að hefur í 20 ár í frystihúsi. Þessi
___________Framhald á bls. 18
Guðmundur
á mót í
Júgóslavíu
GUÐMUNDUR Sigurjónsson stór-
meistari hefur fengið boð um að
tefla á mjög sterkú skákmóti í
Ljubliana í Júgósiavíu. Hefst mót-
ið í næstu viku. Þarna tefla marg-
ir mjög sterkir skákmenn t.d.
Hort, Ljubojevic og Larsen.
Geir á ráðherra-
fund í Færeyjum
GEIR Hallgrímsson, forsætisráð-
herra, fór f morgun til Færeyja,
þar sem hann mun sitja fund sam-
starfsráðherra Norðurlanda i
Þórshöfn. Forsætisráðherra er
vætanlegur heim á laugardag.