Morgunblaðið - 03.06.1977, Page 5
Tónleikar
LISTRÁÐ Kjarvalsstaða hefur und-
anfarið staðið fyrir tónleikum I
tengslum við málverkasýningar og
nú siðast í tilefni af heimsókn
enskra listmálara. Flutt var
einungis ensk tónlist og
flutningurinn framinn af Rut
Magnússon, sem söng með aðstoð
Jónasar Ingimundarsonar enska
söngva frá ýmsum tímum og
hornakvintett (undirritaður
stingur upp á að kvintettinn noti
fornnorræna nafnið LÚR og kalli
félagsskapinn Lúrkvintettinn),
sem flutti verk eftir Henry Purcell,
Anthony Holborne og Malcolm
Arnold.
Þvi miður náði undirritaður aðeins
í niðurlagið af fyrsta verkinu, Svítu
Örn Aðalsteinsson.
Doktors-
gráða
ÞANN 6 janúar s.1. varði Örn Aðal-
steinsson doktorsverkefni við
Massachusetts Institute of Technology
(MIT) -háskólann í Bandaríkjunum. Tit-
ill doktorsritgerðar Arnar var „Cell-Free
Synthesis of Adenosine-Tripphosphate
(ATP)from Adenosine". Verkefnið, sem
er á sviði lífefnaverkfræði, fjallar um
mjög nýstárlega framleiðsluaðferð á
hinu verðmæta ATP-efni Það sem
gerir aðferðina svo nýstárlega er það,
að lífhvatar (ensým) eru notaðir við
framleiðsluna Nú sem stendur er verið
að sækja um einkaleyfi í Bandaríkj-
unum á þessari nýju framleiðsluaðferð
á ATP-efni
Örn hefur B sc gráðu frá University
of Colorado og M.sc. gráðu frá MIT í
Boston. Hann er sonur hjónanna Maríu
Bjömsdóttur og Aðalsteins Guðjóns-
sonar Hann er kvæntur Eve Shafter,
sem er ættuð frá Bandaríkjunum Nú
sem stendur vinnur Örn við rannsókna-
störf í Bandaríkjunum.
Þrír veit-
ingastaðir
opnir í dag
ÞRÍR veitingastaðir verða opnir (
höfuðborginni f dag þrátt fyrir
verkfall matreiðslumanna. Þessir
veitingastaðir, sem opnir verða f
dag eru Múlakaffi, Kokkhúsið f
Lækjargötu og Matstofa Austur-
bæjar. Verða þessir þrfr staðir
opnir eins og venjulega, þar sem
eigendur þeirra munu annast
matseld.
Ferming
Fermingarbörn í Haga á Barða-
strönd 5. júní.
Árdfs LáraGfsladóttir,
Hreggstöðum,
Ólaffa Sigrún Kinarsdóttir,
Ytri-Múla,
Valgerður Ingvadóttir,
Arnórsstöðum,
Ilaraldur Bjarnason, Haga,
Jóhann Ó. Steingrímsson,
Ytri-Midhlíó.
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JUNI 1977 £>
á Kjarvalsstöðum
eftir Henry Purcell og getur því
aðeins sagt að niðurlag verksins
hljómaði vel og fallega um ganga og
hús Kjarvalsstaða Rut Magnússon
og Jónas Ingimundarson fluttu því
næst fjögur lög. það fyrsta var eftir
Thomas Arne. Þegar grýlukertin
hanga Thomas Augustine Arne
(1 710—17 78) lærði að leika á
hljóðfæri í óþökk föður síns og
breiddi klút yfir strengi harpsikords-
ins svo karlinn heyrði ekki til þegar
hann var að æfa sig Annað lagið er
talið vera eftir Ann Boleyn og sagt
að hún hafi samið það er hún beið
dauða síns, enda er textinn eftir því
„O Death rock me asleep' Lagið er
raddsett af Dolmetsch, sennilega
Arnold, en hann raddsetti einnig
næsta lag The Whyte Lillie Fjórða
lagið er eftir Arthur Reynolds og
heitir Ah me. when shall I marry me
Rut er góð söngkona og Jónas
góður píamsti en salurinn að Kjar-
valsstöðum er einhver versti hljóm-
leikasalur sem undirritaður veit um.
vegna þrumugnýs úr loftræstikerfi
hússins Svo hávær var blásturinn
að hann yfirgnæfði ef veikt var
sungið Lúrkvintettinn lék næst þrjú
skemmtileg lög eftir Anthony Hol-
born. Það er að koma nokkuð góður
blær á samspil og jafnvægi í styrk
og verður fróðlegt að heyra Lúrkvint-
ettinn að nokkrum árum liðnum og
ekki ólíklegt að tónleikar þessa sér-
kennilega hóps, ef þeim auðnast að
halda saman verði taldir þá til
tíðinda Hápunktur þessa tónleika
var án efa flutningur Rutar og Jón-
asar á Vögguvísum eftir Benjamin
Britten. Það virðist ekki vera
skilningur á þvi þegar um er að
ræða flutning meiri háttar söngtón-
listar. að nauðsynlegt sé að prenta
texta verkanna Þetta er ef til vill ekki
eins nauðsynlegt þegar um er að
ræða einfalda tónlist og það er.
þegar fjallað er um efnið með skáld-
legum tilþrifum Undirritaður vildi
gjarnan fá að heyra þessa söngva
aftur og geta tengt saman tónmál og
texta. en ekki aðeins til að hlusta á
lag og góðan flutning Lúrkvint-
ettinn lauk sinum þætti tónleikanna
með verki eftir Malcolm Arnold. fyrr-
um trompetleikara i Fílharmonísku
hljómsveitinni i London Verkið er
skemmtilegt og var mjög vel leikið
Lúrkvintettinn skipa Lárus Sveins-
Tónllst
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
son, Jón Sigurðsson, Christina
Tryk. Ole Kristian Hansen og Bjarni
Guðmundsson Tónleikunum lauk
með skemmtilegri Tarantellu eftir
Hillarie Belloc og þremur þjóðlög-
um, My Boy Willy, útsettu af Cecil
Sharpe. The Fidgety Bairn. útsettu
af Hugh Robert og I have a bonnet
útsettu af Herbert Hughes Öll þessi
lög eru skemmtileg, sérlega ensk og
voru mjög vel flutt af Rut Magnús-
son með aðstoð Jónasar Ingi
mundarsonar.
í fyrsta skipti á íslandi
vió kynnum þessa glœsilegu bifreidategund í Kristalsal
Hótel Loftleida sunnudaginn 5. jiiní, kl. 14 til 18
JOFUR
HR
AUOBREKKU 44-46 - KOPAVOGI - SIMI 42600