Morgunblaðið - 03.06.1977, Síða 5

Morgunblaðið - 03.06.1977, Síða 5
Tónleikar LISTRÁÐ Kjarvalsstaða hefur und- anfarið staðið fyrir tónleikum I tengslum við málverkasýningar og nú siðast í tilefni af heimsókn enskra listmálara. Flutt var einungis ensk tónlist og flutningurinn framinn af Rut Magnússon, sem söng með aðstoð Jónasar Ingimundarsonar enska söngva frá ýmsum tímum og hornakvintett (undirritaður stingur upp á að kvintettinn noti fornnorræna nafnið LÚR og kalli félagsskapinn Lúrkvintettinn), sem flutti verk eftir Henry Purcell, Anthony Holborne og Malcolm Arnold. Þvi miður náði undirritaður aðeins í niðurlagið af fyrsta verkinu, Svítu Örn Aðalsteinsson. Doktors- gráða ÞANN 6 janúar s.1. varði Örn Aðal- steinsson doktorsverkefni við Massachusetts Institute of Technology (MIT) -háskólann í Bandaríkjunum. Tit- ill doktorsritgerðar Arnar var „Cell-Free Synthesis of Adenosine-Tripphosphate (ATP)from Adenosine". Verkefnið, sem er á sviði lífefnaverkfræði, fjallar um mjög nýstárlega framleiðsluaðferð á hinu verðmæta ATP-efni Það sem gerir aðferðina svo nýstárlega er það, að lífhvatar (ensým) eru notaðir við framleiðsluna Nú sem stendur er verið að sækja um einkaleyfi í Bandaríkj- unum á þessari nýju framleiðsluaðferð á ATP-efni Örn hefur B sc gráðu frá University of Colorado og M.sc. gráðu frá MIT í Boston. Hann er sonur hjónanna Maríu Bjömsdóttur og Aðalsteins Guðjóns- sonar Hann er kvæntur Eve Shafter, sem er ættuð frá Bandaríkjunum Nú sem stendur vinnur Örn við rannsókna- störf í Bandaríkjunum. Þrír veit- ingastaðir opnir í dag ÞRÍR veitingastaðir verða opnir ( höfuðborginni f dag þrátt fyrir verkfall matreiðslumanna. Þessir veitingastaðir, sem opnir verða f dag eru Múlakaffi, Kokkhúsið f Lækjargötu og Matstofa Austur- bæjar. Verða þessir þrfr staðir opnir eins og venjulega, þar sem eigendur þeirra munu annast matseld. Ferming Fermingarbörn í Haga á Barða- strönd 5. júní. Árdfs LáraGfsladóttir, Hreggstöðum, Ólaffa Sigrún Kinarsdóttir, Ytri-Múla, Valgerður Ingvadóttir, Arnórsstöðum, Ilaraldur Bjarnason, Haga, Jóhann Ó. Steingrímsson, Ytri-Midhlíó. MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JUNI 1977 £> á Kjarvalsstöðum eftir Henry Purcell og getur því aðeins sagt að niðurlag verksins hljómaði vel og fallega um ganga og hús Kjarvalsstaða Rut Magnússon og Jónas Ingimundarson fluttu því næst fjögur lög. það fyrsta var eftir Thomas Arne. Þegar grýlukertin hanga Thomas Augustine Arne (1 710—17 78) lærði að leika á hljóðfæri í óþökk föður síns og breiddi klút yfir strengi harpsikords- ins svo karlinn heyrði ekki til þegar hann var að æfa sig Annað lagið er talið vera eftir Ann Boleyn og sagt að hún hafi samið það er hún beið dauða síns, enda er textinn eftir því „O Death rock me asleep' Lagið er raddsett af Dolmetsch, sennilega Arnold, en hann raddsetti einnig næsta lag The Whyte Lillie Fjórða lagið er eftir Arthur Reynolds og heitir Ah me. when shall I marry me Rut er góð söngkona og Jónas góður píamsti en salurinn að Kjar- valsstöðum er einhver versti hljóm- leikasalur sem undirritaður veit um. vegna þrumugnýs úr loftræstikerfi hússins Svo hávær var blásturinn að hann yfirgnæfði ef veikt var sungið Lúrkvintettinn lék næst þrjú skemmtileg lög eftir Anthony Hol- born. Það er að koma nokkuð góður blær á samspil og jafnvægi í styrk og verður fróðlegt að heyra Lúrkvint- ettinn að nokkrum árum liðnum og ekki ólíklegt að tónleikar þessa sér- kennilega hóps, ef þeim auðnast að halda saman verði taldir þá til tíðinda Hápunktur þessa tónleika var án efa flutningur Rutar og Jón- asar á Vögguvísum eftir Benjamin Britten. Það virðist ekki vera skilningur á þvi þegar um er að ræða flutning meiri háttar söngtón- listar. að nauðsynlegt sé að prenta texta verkanna Þetta er ef til vill ekki eins nauðsynlegt þegar um er að ræða einfalda tónlist og það er. þegar fjallað er um efnið með skáld- legum tilþrifum Undirritaður vildi gjarnan fá að heyra þessa söngva aftur og geta tengt saman tónmál og texta. en ekki aðeins til að hlusta á lag og góðan flutning Lúrkvint- ettinn lauk sinum þætti tónleikanna með verki eftir Malcolm Arnold. fyrr- um trompetleikara i Fílharmonísku hljómsveitinni i London Verkið er skemmtilegt og var mjög vel leikið Lúrkvintettinn skipa Lárus Sveins- Tónllst eftir JÓN ÁSGEIRSSON son, Jón Sigurðsson, Christina Tryk. Ole Kristian Hansen og Bjarni Guðmundsson Tónleikunum lauk með skemmtilegri Tarantellu eftir Hillarie Belloc og þremur þjóðlög- um, My Boy Willy, útsettu af Cecil Sharpe. The Fidgety Bairn. útsettu af Hugh Robert og I have a bonnet útsettu af Herbert Hughes Öll þessi lög eru skemmtileg, sérlega ensk og voru mjög vel flutt af Rut Magnús- son með aðstoð Jónasar Ingi mundarsonar. í fyrsta skipti á íslandi vió kynnum þessa glœsilegu bifreidategund í Kristalsal Hótel Loftleida sunnudaginn 5. jiiní, kl. 14 til 18 JOFUR HR AUOBREKKU 44-46 - KOPAVOGI - SIMI 42600

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.