Morgunblaðið - 03.06.1977, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JUNl 1977
27
Hafliði A rnberg
Árnason - Minning
F. 16. október 1934
D. 26. maíl977
Þann 19. mai á uppstigningar-
dag, bárust okkur þær slæmu
fregnir, að Hafliði frændi væri
mikið veikur vestur í Flatey, og
biði þar þyrlu til flutnings suður
til Reykjavíkur á sjúkrahús.
Til Reykjavíkur var hann svo
kominn síðla þann sama dag. Var
þá þegar óttast um líf hans og
versnaði honum stöðugt og
andaðist hann 26. maí á gjör-
gæsludeild Borgarspítalans, viku
eftir komu sína þangað.
Hafliði var sonur hjónanna
Guðbjargar Jónsdóttur og Árna J.
Einarssonar, yngstur fjögurra
alsystkina, en einnig átti hann
eina hálfsystur.
Hann var fæddur 16. okt. 1934 í
Flatey á Breiðafirði og átti hann
þar lögheimili sitt allatíð.
Móður sina missti Hafliði fyrir
tæplega sex árum, en faðir hans
lifir á níræðisaldri. Hafa þeir
búið saman tveir feðgarnir mörg
hin síðustu ár i Flatey og stundað
þá selaveiðar á sumrin. En Hafliði
tók alveg við þeirri iðju fyrir
nokkrum árum vegna heilsu-
brests föður hans.
Hafliða var margt til lista lagt
og vandvirkur mjög. Vann hann
mikið við smíðar og viðgerðir
síðustu árin og þá einkum i sam-
bandi við báta. Og var hann m.a.
búinn að smíða sér hraðbát, sem
hann nefndi Hrungni.
Ein mesta og besta skemmtun
Hafliða var að spila á harmonikku
og spilaði hann mikið á böllum og
ýmsum skemmtunum.
Oft spilaði hann lika fyrir
okkur frændfólk sitt og lifði hann
sig þá alveg inn i tónlistina, og
stappaði alltaf taktinn með öðrum
fætinum.
Við systurdætur Hafliða
þökkum honum allt gott á liðnum
árum og einnig litlu syturbarna-
börnin hans. Þvi þau eru ótalin
þau bros, sem lýstu upp litlu and-
litin í návist hans. Einnig þökkum
við Hafliða fyrir móttökurnar
þegar við komum til þeirra afa til
Flateyjar.
Við vissum það öll, að amma
Guðbjörg var mjög trúuð og trúði
hún á annað líf eftir dauðann. Ef
henni hefur orðið að trú sinni,
vitum við að vel hefur verið tekið
á móti honum. Okkur er mikill
harmur í huga, er við horfum á
eftir Hafliða en við þökkum
honum samverustundirnar. Guð
veri með honum.
Auður Sigurdís Þorvaldsdóttir.
Hafliði Arnberg Árnason í
Flatey á Breiðafirði lézt á
Landspítalanum 26. mai s.l. Hann
vaknaði naumast til fullrar
meðvitundar frá þvi hann gekk
þreyttur til náða að heimili sinu í
Flatey nokkrum sólarhringum
áður. Kom það ættingjum hans og
vinum mjög í opna skjöldu, þar
sem hann virtist bæði hraustur og
var á bezta skeiði ævinnar.
Hafliði var fæddur í Flatey i
Breiðafirði 16. okt. 1934, og var
sonur hjónanna Guðbjargar Jóns-
dóttur, sem ættuð var norðan úr
Strandasýslu og Árna Einars-
sonar, Guðmundssonar bónda í
Holti og víðar á Barðaströnd.
Hann var yngstur af fjórum al-
systkinum, en þau eru Bergþóra,
búsett í Kópavogi, Anna Aðal-
heiður, d. 1959, og Sigurjón,
búsettur á Patreksfirði, Elísabet,
búsett í Reykjavík, var hálfsystir
hans.
Hann var ókvæntur og barn-
laus.
Sem títt var um ungt fólk þar
um slóðir hóf Hafliði snemma
lífsbaráttuna, en hún er þar af
slíkum toga, að hún krefst meira
frumkvæðis og sjálfræðis en al-
mennt gerist í fjölbýli. Ilann var
viðkvæmur í lund og það átti ef til
vill nokkurn þátt í að gera hann
varkáran í kynnunt við annað fólk
og fara meira að þvi, sem sjálf-
stæð igrundan blés honum i
brjóst en að talhlýðnast öðrum.
Það birtist berlega i lifsháttum
hans, að hann var óspilltara nátt-
úrubarn en venja er, en þó voru
viðhorf hans til manna og mál-
efna mótuð af lífsskoðun geng-
inna kynslóða um gildi mannlegra
dyggða, og stjórnaði athöfnum
hans i stóru og smáu. Fáa menn
hef ég þekkt, sem voru grandvar-
ari til orðs og æðis sem hann og
nákvæmari að halla í engu á rétt
annarra og gæta hófs og still-
ingar, þegar málefni hans voru
annars vegar.
Það var í fullu samræmi við
skaphöfn hans, að hann undi sér
bezt í átthögunum og ól manninn
jafnan þar, en Breiðifjörðurinn
með hvannagrænu eyjaskrúði,
dökkbláum sundum, fagur-
skyggðum ögurnesum og
háreistum fjallahring var einlæg-
lega eign hans í þeim skilningi, að
við eigum allt, sem við elskum.
Hann lifði þar á landsins gæðum,
nytjaði selalátur og vann að
skinnum af stakri vandfýsi, aflaði
fiskjar og fugls og vann á millum
að öðrum nytjastörfum. Smíði,
bæði á tré og járn, léku í höndum
hans, og varði hann tómstundum
sínum oft að smíði báta. Hann ól
með sér ósk að fá viðurkennd
réttindi í þeirri grein, en í heima-
högum er slíkt ekki sett á oddinn,
þar sem hagleikurinn og getan til
verksins, sem vinna á, er sett ofar
hverri kröfu. Hann var því
mörgum hin mesta hjálparhella,
þegar nokkurs þurfti við með
vandasöm störf.
Hafliði er einnig minnisstæður
vinum sinum fyrir ágæta músik-
gáfu. Hann lék prýðisvel á
harmoniku og skemmti kunn-
ingjum sínum óspart þar af, þegar
þvi var að skipta.
Geta vil ég þess sérstaklega, að
við fráfall hans hefur aldraður
faðir hans mikils misst, en Hafliði
var stoð hans og stytta þegar þeir
til skamms tíma bjuggu saman í
Flatey þann tima ársins, sem hóg-
látastur er. Þar er nú skarð fyrir
skildi.
Það er jafnan sjónarsviptir að
við fráfall góðra manna, en sér-
staklega er fráhvarf þeirra til-
finnanlegt i byggðum, þar sem
sökum fámennis velsæld sveitar-
innar er samofnari lífshlaupi
hvers og eins heimamanna er ger-
ist í fjölbýli. Á undanförnum
árum hefur byggðin í Breiða-
fjarðareyjum verið að þynnast og
hver vinnufær hönd er þar mikils
virði, og þá sérstaklega, þegar um
var aö ræða jafn fróman greindar-
mann og Hafliði var. Breiða-
fjarðareyjar hafa því misst
mætan dreng, sem ættingjar og
vinir munu lengi harma.
Ég sendi öllum viðkomandi
innilegar samúðarkveðjur.
Andrés Davíðsson.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir*og afi
SIGURÐUR GÍSLASON
frá Kvlslum
Skipholti 47. Reykjavlk
er lézt 30. mai verður jarðsunginn frá Háteigskirkju mánudaginn 6
júníkl 13 30
Ingigerður Danlelsdóttir
Karl Sigurðsson. Jóhanna B. Ágústsdóttir,
Gunnar V. SigurSsson. Hildur Kr. Jakobsdóttir,
Maggý Sigurðardóttir, Gunnar S. Sigurðsson,
Guðmundur M. Sigurðsson, Ragnhildur Karlsdóttir
og barnabörn
t Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinsemd, viðandlát og útför
HALLFRÍOAR G. GUÐMUNDSDÓTTUR.
frá Ófeigsfirði •
Sigrún Sturlaugsdóttir, Ása G. Sturlaugsdóttir,
Anna S. Ackerman, Edda Sturlaugsdóttu,
Hrólfur Sturlaugsson, Sigrlður Ólafsdóttir.
Þorbjörg Sturlaugsdóttir, Stefán O. Olsen,
Sigríður L. Kester, William C Kester,
Hjördis Sturlaugsdóttir, Reynir U. Jóhannesson
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug. við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu oc langömmu
ÞÓRHILDAR HANNESDÓTTUR
frá Sumarliðabæ.
Álfaskeiði 56. Hafnarfirði.
Hannes Bjarnason,
Ingi Á. Bjarnason.
Brynja Bjarnadóttir.
Margrát Bjarnadóttir,
Helga Bjarnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Herdls Árnadóttir,
Sigrlður Karlsdóttir,
Brynjólfur Sveinbergsson.
Garðar Glslason.
t
Alúðar þakkir til allra naer óg fjær fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför móður okkar. tengdamóður og ömmu
KRISTÍNAR R. SIGURÐARDÓTTUR
Hagamel 1 6. Reykjavfk.
Guðrún Árnadóttir Hannes Aðalbjörnsson.
Bragi Árnason, Rósa Jónsdóttir,
og barnabörn.
t EINAR JÓNSSON prentmyndasmiður Laugavegi 67 léztaðkveldi hinn 31 maí Helga Á Halldórsdóttir og systkini.
t Faðir okkar VALDIMAR SIGURÐSSON lézt i Landspitalanum að kvöldi 1. júní. Fyrir hönd vandamanna Jóhann Valdimarsson.
t Móðir okkar og amma, ÓLÖF EINARSDÓTTIR. andaðist að Borgarspitalanum 31 mai Ragnar Olsen, Klara Olsen. Margrét Olsen, Ragnar H. Olsen
t Litli sonur minn, bróðir minn og dóttursonur JÓN REYMOND HALVORSEN Jórufelli 12 andaðist 31 mai. Sigrlður Rut Gunnarsdóttir. Friðrik Már Sigurlaug Árnadóttir.
t INGIBJORG ÞÓRDÍS BJORNSDÓTTIR. Sunnubraut 12. Akranesi, andaðist 28. mai Jarðaförin fer fram frá Akraneskirkju, laugardaginn 4 júni kl 14 Þeir, sem vildu minnast hennar, vinsamlega láti Sjúkrahúss Akraness. njóta þess Aðstandendur.
t INGIBJORG ÞÓRDÍS BJORNSDÓTTIR. Sunnubraut 12. Akranesi. andaðist 28 maí Jarðarförin fer fram frá Akraneskirkju. laugardaginn 4 júní kl 1 4 Þeir, sem vildu minnast hennar. vinsamlega láti Sjúkrahús Akraness, njóta þess Aðstandendur.
t ÓLAFUR JÓNSSON frá Kötluholti sem lézt í Landspitalanum 26. mai sl verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 6 júní kl 3 e h Þórarinn Þórarinsson.
t Eiginmaður minn, faðir. tengdafaðir og afi, ÁRNI GUÐJÓNSSON. frá Stafholtsveggjum verður jarðsettur frá Stafholtskirkju. laugardaginn 4 júni kl 2 Þeim. sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð Hreins Heiðars Arnasonar Upplýsingará símstöðinni i Borgarnesi Elln Guðmundsdóttir og aðstandendur.
Lokaö vegna jarðarfarar Skrifstofur okkar og verzlun, verða lokuð mánu- daginn 6. júní frá kl. 1 3 vegna jarðarfarar SIGURÐAR GÍSLASONAR Einar Farestveit & CO h.f., Bergstaðastræti 10 A.