Morgunblaðið - 03.06.1977, Síða 27

Morgunblaðið - 03.06.1977, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JUNl 1977 27 Hafliði A rnberg Árnason - Minning F. 16. október 1934 D. 26. maíl977 Þann 19. mai á uppstigningar- dag, bárust okkur þær slæmu fregnir, að Hafliði frændi væri mikið veikur vestur í Flatey, og biði þar þyrlu til flutnings suður til Reykjavíkur á sjúkrahús. Til Reykjavíkur var hann svo kominn síðla þann sama dag. Var þá þegar óttast um líf hans og versnaði honum stöðugt og andaðist hann 26. maí á gjör- gæsludeild Borgarspítalans, viku eftir komu sína þangað. Hafliði var sonur hjónanna Guðbjargar Jónsdóttur og Árna J. Einarssonar, yngstur fjögurra alsystkina, en einnig átti hann eina hálfsystur. Hann var fæddur 16. okt. 1934 í Flatey á Breiðafirði og átti hann þar lögheimili sitt allatíð. Móður sina missti Hafliði fyrir tæplega sex árum, en faðir hans lifir á níræðisaldri. Hafa þeir búið saman tveir feðgarnir mörg hin síðustu ár i Flatey og stundað þá selaveiðar á sumrin. En Hafliði tók alveg við þeirri iðju fyrir nokkrum árum vegna heilsu- brests föður hans. Hafliða var margt til lista lagt og vandvirkur mjög. Vann hann mikið við smíðar og viðgerðir síðustu árin og þá einkum i sam- bandi við báta. Og var hann m.a. búinn að smíða sér hraðbát, sem hann nefndi Hrungni. Ein mesta og besta skemmtun Hafliða var að spila á harmonikku og spilaði hann mikið á böllum og ýmsum skemmtunum. Oft spilaði hann lika fyrir okkur frændfólk sitt og lifði hann sig þá alveg inn i tónlistina, og stappaði alltaf taktinn með öðrum fætinum. Við systurdætur Hafliða þökkum honum allt gott á liðnum árum og einnig litlu syturbarna- börnin hans. Þvi þau eru ótalin þau bros, sem lýstu upp litlu and- litin í návist hans. Einnig þökkum við Hafliða fyrir móttökurnar þegar við komum til þeirra afa til Flateyjar. Við vissum það öll, að amma Guðbjörg var mjög trúuð og trúði hún á annað líf eftir dauðann. Ef henni hefur orðið að trú sinni, vitum við að vel hefur verið tekið á móti honum. Okkur er mikill harmur í huga, er við horfum á eftir Hafliða en við þökkum honum samverustundirnar. Guð veri með honum. Auður Sigurdís Þorvaldsdóttir. Hafliði Arnberg Árnason í Flatey á Breiðafirði lézt á Landspítalanum 26. mai s.l. Hann vaknaði naumast til fullrar meðvitundar frá þvi hann gekk þreyttur til náða að heimili sinu í Flatey nokkrum sólarhringum áður. Kom það ættingjum hans og vinum mjög í opna skjöldu, þar sem hann virtist bæði hraustur og var á bezta skeiði ævinnar. Hafliði var fæddur í Flatey i Breiðafirði 16. okt. 1934, og var sonur hjónanna Guðbjargar Jóns- dóttur, sem ættuð var norðan úr Strandasýslu og Árna Einars- sonar, Guðmundssonar bónda í Holti og víðar á Barðaströnd. Hann var yngstur af fjórum al- systkinum, en þau eru Bergþóra, búsett í Kópavogi, Anna Aðal- heiður, d. 1959, og Sigurjón, búsettur á Patreksfirði, Elísabet, búsett í Reykjavík, var hálfsystir hans. Hann var ókvæntur og barn- laus. Sem títt var um ungt fólk þar um slóðir hóf Hafliði snemma lífsbaráttuna, en hún er þar af slíkum toga, að hún krefst meira frumkvæðis og sjálfræðis en al- mennt gerist í fjölbýli. Ilann var viðkvæmur í lund og það átti ef til vill nokkurn þátt í að gera hann varkáran í kynnunt við annað fólk og fara meira að þvi, sem sjálf- stæð igrundan blés honum i brjóst en að talhlýðnast öðrum. Það birtist berlega i lifsháttum hans, að hann var óspilltara nátt- úrubarn en venja er, en þó voru viðhorf hans til manna og mál- efna mótuð af lífsskoðun geng- inna kynslóða um gildi mannlegra dyggða, og stjórnaði athöfnum hans i stóru og smáu. Fáa menn hef ég þekkt, sem voru grandvar- ari til orðs og æðis sem hann og nákvæmari að halla í engu á rétt annarra og gæta hófs og still- ingar, þegar málefni hans voru annars vegar. Það var í fullu samræmi við skaphöfn hans, að hann undi sér bezt í átthögunum og ól manninn jafnan þar, en Breiðifjörðurinn með hvannagrænu eyjaskrúði, dökkbláum sundum, fagur- skyggðum ögurnesum og háreistum fjallahring var einlæg- lega eign hans í þeim skilningi, að við eigum allt, sem við elskum. Hann lifði þar á landsins gæðum, nytjaði selalátur og vann að skinnum af stakri vandfýsi, aflaði fiskjar og fugls og vann á millum að öðrum nytjastörfum. Smíði, bæði á tré og járn, léku í höndum hans, og varði hann tómstundum sínum oft að smíði báta. Hann ól með sér ósk að fá viðurkennd réttindi í þeirri grein, en í heima- högum er slíkt ekki sett á oddinn, þar sem hagleikurinn og getan til verksins, sem vinna á, er sett ofar hverri kröfu. Hann var því mörgum hin mesta hjálparhella, þegar nokkurs þurfti við með vandasöm störf. Hafliði er einnig minnisstæður vinum sinum fyrir ágæta músik- gáfu. Hann lék prýðisvel á harmoniku og skemmti kunn- ingjum sínum óspart þar af, þegar þvi var að skipta. Geta vil ég þess sérstaklega, að við fráfall hans hefur aldraður faðir hans mikils misst, en Hafliði var stoð hans og stytta þegar þeir til skamms tíma bjuggu saman í Flatey þann tima ársins, sem hóg- látastur er. Þar er nú skarð fyrir skildi. Það er jafnan sjónarsviptir að við fráfall góðra manna, en sér- staklega er fráhvarf þeirra til- finnanlegt i byggðum, þar sem sökum fámennis velsæld sveitar- innar er samofnari lífshlaupi hvers og eins heimamanna er ger- ist í fjölbýli. Á undanförnum árum hefur byggðin í Breiða- fjarðareyjum verið að þynnast og hver vinnufær hönd er þar mikils virði, og þá sérstaklega, þegar um var aö ræða jafn fróman greindar- mann og Hafliði var. Breiða- fjarðareyjar hafa því misst mætan dreng, sem ættingjar og vinir munu lengi harma. Ég sendi öllum viðkomandi innilegar samúðarkveðjur. Andrés Davíðsson. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir*og afi SIGURÐUR GÍSLASON frá Kvlslum Skipholti 47. Reykjavlk er lézt 30. mai verður jarðsunginn frá Háteigskirkju mánudaginn 6 júníkl 13 30 Ingigerður Danlelsdóttir Karl Sigurðsson. Jóhanna B. Ágústsdóttir, Gunnar V. SigurSsson. Hildur Kr. Jakobsdóttir, Maggý Sigurðardóttir, Gunnar S. Sigurðsson, Guðmundur M. Sigurðsson, Ragnhildur Karlsdóttir og barnabörn t Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinsemd, viðandlát og útför HALLFRÍOAR G. GUÐMUNDSDÓTTUR. frá Ófeigsfirði • Sigrún Sturlaugsdóttir, Ása G. Sturlaugsdóttir, Anna S. Ackerman, Edda Sturlaugsdóttu, Hrólfur Sturlaugsson, Sigrlður Ólafsdóttir. Þorbjörg Sturlaugsdóttir, Stefán O. Olsen, Sigríður L. Kester, William C Kester, Hjördis Sturlaugsdóttir, Reynir U. Jóhannesson og barnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug. við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu oc langömmu ÞÓRHILDAR HANNESDÓTTUR frá Sumarliðabæ. Álfaskeiði 56. Hafnarfirði. Hannes Bjarnason, Ingi Á. Bjarnason. Brynja Bjarnadóttir. Margrát Bjarnadóttir, Helga Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Herdls Árnadóttir, Sigrlður Karlsdóttir, Brynjólfur Sveinbergsson. Garðar Glslason. t Alúðar þakkir til allra naer óg fjær fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar. tengdamóður og ömmu KRISTÍNAR R. SIGURÐARDÓTTUR Hagamel 1 6. Reykjavfk. Guðrún Árnadóttir Hannes Aðalbjörnsson. Bragi Árnason, Rósa Jónsdóttir, og barnabörn. t EINAR JÓNSSON prentmyndasmiður Laugavegi 67 léztaðkveldi hinn 31 maí Helga Á Halldórsdóttir og systkini. t Faðir okkar VALDIMAR SIGURÐSSON lézt i Landspitalanum að kvöldi 1. júní. Fyrir hönd vandamanna Jóhann Valdimarsson. t Móðir okkar og amma, ÓLÖF EINARSDÓTTIR. andaðist að Borgarspitalanum 31 mai Ragnar Olsen, Klara Olsen. Margrét Olsen, Ragnar H. Olsen t Litli sonur minn, bróðir minn og dóttursonur JÓN REYMOND HALVORSEN Jórufelli 12 andaðist 31 mai. Sigrlður Rut Gunnarsdóttir. Friðrik Már Sigurlaug Árnadóttir. t INGIBJORG ÞÓRDÍS BJORNSDÓTTIR. Sunnubraut 12. Akranesi, andaðist 28. mai Jarðaförin fer fram frá Akraneskirkju, laugardaginn 4 júni kl 14 Þeir, sem vildu minnast hennar, vinsamlega láti Sjúkrahúss Akraness. njóta þess Aðstandendur. t INGIBJORG ÞÓRDÍS BJORNSDÓTTIR. Sunnubraut 12. Akranesi. andaðist 28 maí Jarðarförin fer fram frá Akraneskirkju. laugardaginn 4 júní kl 1 4 Þeir, sem vildu minnast hennar. vinsamlega láti Sjúkrahús Akraness, njóta þess Aðstandendur. t ÓLAFUR JÓNSSON frá Kötluholti sem lézt í Landspitalanum 26. mai sl verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 6 júní kl 3 e h Þórarinn Þórarinsson. t Eiginmaður minn, faðir. tengdafaðir og afi, ÁRNI GUÐJÓNSSON. frá Stafholtsveggjum verður jarðsettur frá Stafholtskirkju. laugardaginn 4 júni kl 2 Þeim. sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð Hreins Heiðars Arnasonar Upplýsingará símstöðinni i Borgarnesi Elln Guðmundsdóttir og aðstandendur. Lokaö vegna jarðarfarar Skrifstofur okkar og verzlun, verða lokuð mánu- daginn 6. júní frá kl. 1 3 vegna jarðarfarar SIGURÐAR GÍSLASONAR Einar Farestveit & CO h.f., Bergstaðastræti 10 A.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.