Morgunblaðið - 03.06.1977, Side 36
AK.LVSIN(.ASIMINN KK:
22480
Jflarjjnnblnötí)
FÖSTUDAGUR 3. JUNl 1977
Ný gerd af
ruslastömpum
Akta,
simi 91 76520
Sérkröfuviðræðurnar:
Viðræður við verzl-
unarmenn strönduðu
Sérkröfuviðræður Landssam-
bands fslenzkra verzlunarmanna
sigldu f strand f fyrrakvöld, en
þegar Morgunblaðið fór í prentun
f gærkveldi stóðu vonir til að sam-
komulag væri að takast. Þau atr-
iði, sem komu í veg fvrir sam-
komulag, voru atriði í kjarasamn-
ingum við Apótekarafélag ís-
lands um að matartímar f helgi-
dagavinnu skulu teljast til vinnu-
tfma, tæknimenntað aðstoðarfólk,
svokallaðir lyfjatæknar, skuli
sitja fyrir um afgreiðslustörf og
aðstoðarstörf við lyfjagerð og að
201 skip
sótti um
síldveiði-
leyfi
ALLS hefur útgerð 201 fiski-
skips sótt um leyfi til sfldveiða
á hausti komanda, en lagt
hefur verið til að heimila þá
veiði á 25 þúsund lestum af
síld, en í fyrra voru veiddar
tæpar 18 þús. lestir og þá
stunduðu milli 80 og 90 skip
veiðarnar.
Jón B. Jónasson, fulltrúi í
Sjávarútvegsráðunevtinu,
sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að starfsmenn
ráðuneytisins væru nú að
kanna hve mikil alvara væri á
bak við umsóknirnar. Alls
hefðu borizt 106 umsókir frá
aðilum sem ætla að stunda
sfldveiðar með reknetum og 95
sem ætla að stunda veiðarnar
með herpinót.
Ef allur þessi fjöldi skipa
fær leyfi til veiðanna þá fær
hvert skip ekki að veiða nema
sem svarar rösklega 166 lest-
um, en á s.l. ári fékk hvert skip
að veiða töluvert á þriðja
hundrað lestir.
Að sögn Jóns, þá er mjög
hæpið að önnur skip en þau
sem búin eru reknetahristara
fari til veiða með reknet og að
Framhald á bls. 20.
öll vinna á stórhátfðum skuli
greiðast með tvöföldu helgidaga-
kaupi. Vinnuveitendur höfnuðu
þessum kröfum á grundvelli þess
að þær sköpuðu fordæmi.
Fulltrúar verzlunarmanna, sem
semja fyrir lyfjatækna og af-
greiðslufólk í lyfjaverzlunum,
sögðust í viðtali við Morgunblaðið
hafa boðizt til þess að setja inn
ákvæði í þessu sambandi, að mat-
artímar skyldu greiddir vegna
þjónustuskyldu apóteka, en þau
þurfa eins og kunnugt er að hafa
opið á sunnudögum og öðrum
helgidögum. Kvöldmatartími er
greiddur alla daga, og þvf stendur
deilan í raun aðeins um hádegis-
matartíma á sunnudögum. í kröfu
verzlunarmannanna segir að
matartímar í helgidagavinnu
skulu teljast til vinnutíma, enda
þótt teknir séu og sé unnið í þeim,
skal greiða tilsvarandi lengri
vinnutíma.
Framhald á bls. 20.
Ungir sjómenn.
Ljósm. Mbl.: RAX.
Ahrif verkfallsins á höfuðborgarsvæðinu:
Nær öll þjónustustarfsemi
lamast nema opinber þjónusta
— Einstaka verzlanir verða opnar
FÉLAGSMENN stéttarfélaga innan Alþýðusambands íslands leggja
niður vinnu í dag á Stór-Reykjavfkursvæðinu, þ.e.a.s. f Reykjavfk,
Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi, Mosfellssveit og á Seltjarnarnesi.
Verkfallið stendur til miðnættis f nótt og við það lamast flestöll
þjónustustarfsemi f borginni. Mánudaginn 6. júnf verður sfðan sams
konar verkfall á Reykjanesi og um Suðurland, 7. júní um allt Norður-
land, 8. júnf á Vesturlandi og hinn 9. júní verður sólarhrings verkfall á
Vestfjörðum og Austfjörðum. Þegar öllum þessum verkföllum er lokið
munu þau hafa náð til 47.200 manna, en það er fjöldi fullgildra félaga
innan ASÍ.
Allar verzlanir á Stór-
Reykjavíkursvæðinu verða lok-
aðar í dag, nema smáverzlanir,
þar sem eigendur geta stundað
afgreiðslu, bensínstöðvar verða
lokaðar og yfirleitt stöðvast öll
verkamannavinna, skipaaf-
greiðsla og vöruafgreiðsla, svo og
verzlun öll. Hins vegar verður öll
opinber þjónusta við lýði, þar sem
18% samdráttur í sölu
kindakjöts sl. tvö ár
— Smjörsalan dróst saman um
34% fyrstu þrjá mánuði ársins
SALA á kindakjöti innanlands
hefur dregist saman um nærri
18% á síðastliðnum tveim
árum en á sama tfma hefur
orðið nokkur aukning í sölu
nautakjöts. Á þessum tfma
hefur einnig orðið verulegur
samdráttur í sölu nýmjólkur.
Að undanförnu hefur sala
búvöru enn dregist saman og
þannig dróst sala á smjöri
saman um 34% fyrstu þrjá
mánuði ársins miðað við sama
tfma í fyrra. Smjörsalan óx þó
heldur á ný f aprflmánuði.
Talið er að samdráttur f sölu
nýmjólkur fyrstu þrjá
mánuðina hafi verið um 0,2%
en sala á undanrennu eykst
stöðugt. Á síðastliðnu ári nam
undanrennusalan um 4% af
heildar mjólkursölunni en það
sem af er þessu ári er hlutdeild
undanrennunnar orðin 8 til 9%
af mjólkurmagninu.
Þessar upplýsingar fékk
blaðið hjá Framleiðsluráði
landbúnaðarins. Fram kom
einnig að sala á kindakjöti
hefur dregist saman um tæp
9% frá því að haustslátrun
hófst og til loka marz, borið
saman við sama tíma í fyrra.
Fullnægjandi upplýsingar um
sölu nautakjöts eru ekki til
nema frá áramótum 1976 og
samkvæmt þeim hefur sala
þess aukist um 12% fyrstu þrjá
mánuði þessa árs miðað við
sömu mánuði í fyrra.
Jón R. Björnsson hjá Fram-
leiðsluráði landbúnaðarins
sagði aðspurður um ástæður
Framhald ábls. 20.
hana annast launþegar innan
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja. Því má gera ráð fyrir að
strætisvagnar geti að mestu ekið
samkvæmt áætlun, þar sem vagn-
stjórarnir eru allir borgarstarfs-
menn. Hins vegar eru viðhalds- og
áfyllingamenn, sem setja olíu á
vagnana innan ASÍ, en búizt var
við i gær að unnt yrði að haga
áfyllingu þannig að olfan entist
allan daginn, og yrði einhvers
staðar skortur væri unnt að skipta
um vagna.
Leigubílastöðvar verða yfirleitt
allar opnar, þótt símastúlkur
stöðvanna leggi niður vinnu. Á
stöðvunum hafa yfirleitt starfað
bílstjórar jafnhliða stúlkunum og
geta þeir annast símaþjónustu
stöðvanna. Þannig munu BSR,
Bæjarleiðir og Borgarbílastöðin
verða opnar, svo og Steindór, þar
sem bílstjórarnir þar munu vera
félagslausir, en þeir munu nú
vera að ganga í Bifreiðastjóra-
félagið Frama, þar sem þeir verða
aukafélagar. Hreyfill hefur mögu-
leika á að tengja síma stöðvar-
innar inn á staura hennar, en
ennfremur eru tveir bifreiða-
stjórar, sem alla jafna hafa
annast símaafgreiðslu ásamt
stúlkunum og munu þeir geta
haldið áfram þeim starfa.
Veitingahús stöðvast almennt
og mun einstaklingum því erfitt
að fá sér að borða. Þrír matsölu-
staðir verða opnir í Reykjavík,
þar sem eigendur geta afgreitt og
stundað matseld. Þessir staðir eru
Múlakaffi í Hallarmúla, Kokk-
húsið í Lækjargötu og Matstofa
Austurbæjar. Verður á þessum
MORGUNBLAÐIÐ kemur
ekki út á morgun, laugardag,
vegna verkfalls í dag. Hins
vegar kemur Morgunblaðið út
á sunnudag, að venju. Athylgi
auglýsenda er vakin á því, að
tekið verður á móti auglýsing-
um f þriðjudagsblað til kl. 11
fyrir hádegi á mánudag.
þremur stöðum opið sem venju-
lega. Hótelstjórar á hótelum
munu og afgreiða gesti, sem fara
af hótelunum, skrifa út reikninga
og annað slikt og ennfremur taka
við gestum, sem koma en fari
gestur úr herbergi t.d. árdegis í
dag, verður það ekki i leigufæru
ástandi aftur, fyrr en verkfallinu
er lokið og unnt er að taka til i
því.
Þá ber að geta þess að eitt félag
innan Alþýðusambands íslands.
Starfsstúlknafélagið Sókn, tekur
ekki þátt í verkfallinu og var sú
ákvörðun tekin í fullu samráði við
aðalsamninganefnd ASÍ. Þykir
ekki rétt að valda fólki
óþægindum með því að stöðva
aðhlynningu sjúkra á spítölum og
öðrum stofnunum, sem verkfall
Sóknar myndi óhjákvæmilega
gera.
Samkvæmt tilkynningu frá
Flugleiðum h.f., sem Morgun-
blaðinu barst í gær, mun allt
millilandaflug félagsins verða
með eðlilegum hætti, en skrif-
stofur félagsins i Reykjavík verða
hins vegar lokaðar og síma-
þjónusta þar engin. Hins vegar
verður svarað I sima millilanda-
flugs á Keflavíkurflugvelli, simar
22333 og 92-1860. Allt innanlands-
Framhald á bls. 20.
4,9 stiga jarðskjálftakippur í Kötlu:
Ekki ósennilegt að Katla
láti að sér kveða á árinu
segir Einar á Skammadalshóli
TVEIR sterkir jarðskjálftakippir
komu á Kötlusvæðinu í norðan-
verðum Mýrdalsjökli I gær.
Stærri kippurinn mældist 4,9 stig
á Richter-kvarða og hinn 4 stig.
Umbrot á Kötlusvæððinu byrjuðu
rétt fyrir kl. 15 í gær og um kl. 20
var en talsverður órói undir Mýr-
dalsjökli. Fólk f nálægum
byggðarlögum varð vart við
skjálftana og almannavarna-
nefndin í Vfk kom strax saman til
fundar og var í viðhragðsstöðu. í
ga-rkvöldi áttu menn hins vegar
lyfta
hafi
ekki von á að Katla myndi
hettunni f þetta sinn.
— Það má segja að nú
Katla vaknað með hálfgerðu íra-
fári, sagði Einar H. Einarsson,
bóndi á Skammadalshóli, þegar
Morgunblaðið ræddi við hann f
gærdag. Umbrotin byrjudu með
stóra kippnum, sem siðan reynd-
Framhald á bls. 20.