Morgunblaðið - 03.06.1977, Page 36

Morgunblaðið - 03.06.1977, Page 36
AK.LVSIN(.ASIMINN KK: 22480 Jflarjjnnblnötí) FÖSTUDAGUR 3. JUNl 1977 Ný gerd af ruslastömpum Akta, simi 91 76520 Sérkröfuviðræðurnar: Viðræður við verzl- unarmenn strönduðu Sérkröfuviðræður Landssam- bands fslenzkra verzlunarmanna sigldu f strand f fyrrakvöld, en þegar Morgunblaðið fór í prentun f gærkveldi stóðu vonir til að sam- komulag væri að takast. Þau atr- iði, sem komu í veg fvrir sam- komulag, voru atriði í kjarasamn- ingum við Apótekarafélag ís- lands um að matartímar f helgi- dagavinnu skulu teljast til vinnu- tfma, tæknimenntað aðstoðarfólk, svokallaðir lyfjatæknar, skuli sitja fyrir um afgreiðslustörf og aðstoðarstörf við lyfjagerð og að 201 skip sótti um síldveiði- leyfi ALLS hefur útgerð 201 fiski- skips sótt um leyfi til sfldveiða á hausti komanda, en lagt hefur verið til að heimila þá veiði á 25 þúsund lestum af síld, en í fyrra voru veiddar tæpar 18 þús. lestir og þá stunduðu milli 80 og 90 skip veiðarnar. Jón B. Jónasson, fulltrúi í Sjávarútvegsráðunevtinu, sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær, að starfsmenn ráðuneytisins væru nú að kanna hve mikil alvara væri á bak við umsóknirnar. Alls hefðu borizt 106 umsókir frá aðilum sem ætla að stunda sfldveiðar með reknetum og 95 sem ætla að stunda veiðarnar með herpinót. Ef allur þessi fjöldi skipa fær leyfi til veiðanna þá fær hvert skip ekki að veiða nema sem svarar rösklega 166 lest- um, en á s.l. ári fékk hvert skip að veiða töluvert á þriðja hundrað lestir. Að sögn Jóns, þá er mjög hæpið að önnur skip en þau sem búin eru reknetahristara fari til veiða með reknet og að Framhald á bls. 20. öll vinna á stórhátfðum skuli greiðast með tvöföldu helgidaga- kaupi. Vinnuveitendur höfnuðu þessum kröfum á grundvelli þess að þær sköpuðu fordæmi. Fulltrúar verzlunarmanna, sem semja fyrir lyfjatækna og af- greiðslufólk í lyfjaverzlunum, sögðust í viðtali við Morgunblaðið hafa boðizt til þess að setja inn ákvæði í þessu sambandi, að mat- artímar skyldu greiddir vegna þjónustuskyldu apóteka, en þau þurfa eins og kunnugt er að hafa opið á sunnudögum og öðrum helgidögum. Kvöldmatartími er greiddur alla daga, og þvf stendur deilan í raun aðeins um hádegis- matartíma á sunnudögum. í kröfu verzlunarmannanna segir að matartímar í helgidagavinnu skulu teljast til vinnutíma, enda þótt teknir séu og sé unnið í þeim, skal greiða tilsvarandi lengri vinnutíma. Framhald á bls. 20. Ungir sjómenn. Ljósm. Mbl.: RAX. Ahrif verkfallsins á höfuðborgarsvæðinu: Nær öll þjónustustarfsemi lamast nema opinber þjónusta — Einstaka verzlanir verða opnar FÉLAGSMENN stéttarfélaga innan Alþýðusambands íslands leggja niður vinnu í dag á Stór-Reykjavfkursvæðinu, þ.e.a.s. f Reykjavfk, Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi, Mosfellssveit og á Seltjarnarnesi. Verkfallið stendur til miðnættis f nótt og við það lamast flestöll þjónustustarfsemi f borginni. Mánudaginn 6. júnf verður sfðan sams konar verkfall á Reykjanesi og um Suðurland, 7. júní um allt Norður- land, 8. júnf á Vesturlandi og hinn 9. júní verður sólarhrings verkfall á Vestfjörðum og Austfjörðum. Þegar öllum þessum verkföllum er lokið munu þau hafa náð til 47.200 manna, en það er fjöldi fullgildra félaga innan ASÍ. Allar verzlanir á Stór- Reykjavíkursvæðinu verða lok- aðar í dag, nema smáverzlanir, þar sem eigendur geta stundað afgreiðslu, bensínstöðvar verða lokaðar og yfirleitt stöðvast öll verkamannavinna, skipaaf- greiðsla og vöruafgreiðsla, svo og verzlun öll. Hins vegar verður öll opinber þjónusta við lýði, þar sem 18% samdráttur í sölu kindakjöts sl. tvö ár — Smjörsalan dróst saman um 34% fyrstu þrjá mánuði ársins SALA á kindakjöti innanlands hefur dregist saman um nærri 18% á síðastliðnum tveim árum en á sama tfma hefur orðið nokkur aukning í sölu nautakjöts. Á þessum tfma hefur einnig orðið verulegur samdráttur í sölu nýmjólkur. Að undanförnu hefur sala búvöru enn dregist saman og þannig dróst sala á smjöri saman um 34% fyrstu þrjá mánuði ársins miðað við sama tfma í fyrra. Smjörsalan óx þó heldur á ný f aprflmánuði. Talið er að samdráttur f sölu nýmjólkur fyrstu þrjá mánuðina hafi verið um 0,2% en sala á undanrennu eykst stöðugt. Á síðastliðnu ári nam undanrennusalan um 4% af heildar mjólkursölunni en það sem af er þessu ári er hlutdeild undanrennunnar orðin 8 til 9% af mjólkurmagninu. Þessar upplýsingar fékk blaðið hjá Framleiðsluráði landbúnaðarins. Fram kom einnig að sala á kindakjöti hefur dregist saman um tæp 9% frá því að haustslátrun hófst og til loka marz, borið saman við sama tíma í fyrra. Fullnægjandi upplýsingar um sölu nautakjöts eru ekki til nema frá áramótum 1976 og samkvæmt þeim hefur sala þess aukist um 12% fyrstu þrjá mánuði þessa árs miðað við sömu mánuði í fyrra. Jón R. Björnsson hjá Fram- leiðsluráði landbúnaðarins sagði aðspurður um ástæður Framhald ábls. 20. hana annast launþegar innan Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Því má gera ráð fyrir að strætisvagnar geti að mestu ekið samkvæmt áætlun, þar sem vagn- stjórarnir eru allir borgarstarfs- menn. Hins vegar eru viðhalds- og áfyllingamenn, sem setja olíu á vagnana innan ASÍ, en búizt var við i gær að unnt yrði að haga áfyllingu þannig að olfan entist allan daginn, og yrði einhvers staðar skortur væri unnt að skipta um vagna. Leigubílastöðvar verða yfirleitt allar opnar, þótt símastúlkur stöðvanna leggi niður vinnu. Á stöðvunum hafa yfirleitt starfað bílstjórar jafnhliða stúlkunum og geta þeir annast símaþjónustu stöðvanna. Þannig munu BSR, Bæjarleiðir og Borgarbílastöðin verða opnar, svo og Steindór, þar sem bílstjórarnir þar munu vera félagslausir, en þeir munu nú vera að ganga í Bifreiðastjóra- félagið Frama, þar sem þeir verða aukafélagar. Hreyfill hefur mögu- leika á að tengja síma stöðvar- innar inn á staura hennar, en ennfremur eru tveir bifreiða- stjórar, sem alla jafna hafa annast símaafgreiðslu ásamt stúlkunum og munu þeir geta haldið áfram þeim starfa. Veitingahús stöðvast almennt og mun einstaklingum því erfitt að fá sér að borða. Þrír matsölu- staðir verða opnir í Reykjavík, þar sem eigendur geta afgreitt og stundað matseld. Þessir staðir eru Múlakaffi í Hallarmúla, Kokk- húsið í Lækjargötu og Matstofa Austurbæjar. Verður á þessum MORGUNBLAÐIÐ kemur ekki út á morgun, laugardag, vegna verkfalls í dag. Hins vegar kemur Morgunblaðið út á sunnudag, að venju. Athylgi auglýsenda er vakin á því, að tekið verður á móti auglýsing- um f þriðjudagsblað til kl. 11 fyrir hádegi á mánudag. þremur stöðum opið sem venju- lega. Hótelstjórar á hótelum munu og afgreiða gesti, sem fara af hótelunum, skrifa út reikninga og annað slikt og ennfremur taka við gestum, sem koma en fari gestur úr herbergi t.d. árdegis í dag, verður það ekki i leigufæru ástandi aftur, fyrr en verkfallinu er lokið og unnt er að taka til i því. Þá ber að geta þess að eitt félag innan Alþýðusambands íslands. Starfsstúlknafélagið Sókn, tekur ekki þátt í verkfallinu og var sú ákvörðun tekin í fullu samráði við aðalsamninganefnd ASÍ. Þykir ekki rétt að valda fólki óþægindum með því að stöðva aðhlynningu sjúkra á spítölum og öðrum stofnunum, sem verkfall Sóknar myndi óhjákvæmilega gera. Samkvæmt tilkynningu frá Flugleiðum h.f., sem Morgun- blaðinu barst í gær, mun allt millilandaflug félagsins verða með eðlilegum hætti, en skrif- stofur félagsins i Reykjavík verða hins vegar lokaðar og síma- þjónusta þar engin. Hins vegar verður svarað I sima millilanda- flugs á Keflavíkurflugvelli, simar 22333 og 92-1860. Allt innanlands- Framhald á bls. 20. 4,9 stiga jarðskjálftakippur í Kötlu: Ekki ósennilegt að Katla láti að sér kveða á árinu segir Einar á Skammadalshóli TVEIR sterkir jarðskjálftakippir komu á Kötlusvæðinu í norðan- verðum Mýrdalsjökli I gær. Stærri kippurinn mældist 4,9 stig á Richter-kvarða og hinn 4 stig. Umbrot á Kötlusvæððinu byrjuðu rétt fyrir kl. 15 í gær og um kl. 20 var en talsverður órói undir Mýr- dalsjökli. Fólk f nálægum byggðarlögum varð vart við skjálftana og almannavarna- nefndin í Vfk kom strax saman til fundar og var í viðhragðsstöðu. í ga-rkvöldi áttu menn hins vegar lyfta hafi ekki von á að Katla myndi hettunni f þetta sinn. — Það má segja að nú Katla vaknað með hálfgerðu íra- fári, sagði Einar H. Einarsson, bóndi á Skammadalshóli, þegar Morgunblaðið ræddi við hann f gærdag. Umbrotin byrjudu með stóra kippnum, sem siðan reynd- Framhald á bls. 20.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.