Morgunblaðið - 08.06.1977, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JUNÍ 1977.
7
Hvað er að
gerast í Alþýðu-
bandalaginu?
Magnús Kjartansson,
fyrrverandi orkuráðherra,
„faðir" viðræðunefndar
um orkufrekan iðnað, höf-
undur frumvarpa um
Kröfluvirkjun og jám-
blendiverksmiðju í Hval
firði, ritar enn eina furðu-
greinina um orkumál í
Þjóðviljann í gær. Ber hún
nafn með rentu:
„ Bommsarabomms".
Hæfir það greinarheiti I
mark Alþýðubandalagsins
I orkumálum; það mark,
sem er m.a. var grund-
vallað á orkuafsetningu til
orkufreks iðnaðar og
„ Union-Carbide-valkosti"
þessa fyrrverandi ráð-
herra.
Þessar greinar ganga
þvert á fullyrðingar Ragn-
ars Arnalds, formanns
Alþýðubandalagsins, er
hann reit í Þjóðviljann í
febrúarmánuði sl„ til
skýringar og varnar á
framkvæmdum við Kröflu-
virkjun, sem hann stýrir
með öðrum. Þær virðast
beinlínis fram settar til
þess að veita flokksfor-
manninum og flokksbrot-
inu umhverfis hann ráðn-
ingu. Spuming er, hvort
þessi skrif bergmáli þann
vopnagný, sem nú heyrist
að tjaldabaki í flokknum,
vegna væntanlegs for-
mannskjörs, en flokkslög-
um samkvæmt hlýtur
Ragnar Arnalds að láta af
formennsku f haust.
Ragnar um
stærð Kröflu-
virkjunar
Ragnar Arnalds, for-
maður Alþýðubandalags-
ins, sagði svo I sinni Þjóð-
viljagrein um stærð
Kröfluvirkjunar:
„í skýrslu Orkustofnun-
ar, sem gefin er út I sept-
ember 1973, er m.a.
gerður samanburður á 8
Mw, 16 Mw og 55 Mw
rafstöð. Niðurstaða þess-
ara útreikninga er sú, að
orkuverð frá 16 Mw afl-
stöð sé 66% dýrara en frá
55 Mw stöð, og orkuverð
frá 12 Mw stöð verði
87% dýrara en frá 55 Mw
stöð. Á þessari skýrslu
byggði iðnaðarráðuneytið
og Alþingi ákvörðun slna,
sem tekin var nokkrum
mánuðum sfðar, um heim-
ild til 55 Mw virkjunar".
Magnús um
stærð Kröflu-
virkjunar
Magnús Kjartansson
segir hins vegar um sama
efni: „Að ráði Orkustofn-
unar var farið mjög var-
lega í allar ákvarðanir;
hún áformaði þá að virkj-
unin gæti verið komin f
gagnið 1978—1979 og
væri hæfilegt að byrja
með 15 MW-virkjun og
láta reynsluna sfðan skera
úr um stækkun hennar f
55 MW. .
Hér kveður við annan
tón, enda stangast greinar
þessara flokksforingja á f
bókstaflega öflum efnis-
atriðum, þeim er máli
skipta. Það er þvf von að
fólk spyrji; kýs Alþýðu-
bandalagið að hafa tvö
gjörólfk andlit f afstöðu
sinni til Kröfluvirkjunar,
eins og f flestum öðrum
málum: samanber Union
Carbide ævintýrið f vinstri
stjórn (en gagnstæð sjón-
armið i stjórnarandstöðu);
samþykkt þingmanna Al-
þýðubandalags á veiði-
heimildum til 139 brezkra
togara til 2ja ára innan 50
mflna 1973; mismunandi
afstöðu f reynd til aðildar
að Nato innan og utan
rfkisstjórnar; afnáms
kaupgjaldsvfsitölu f
vinstri stjóm 1974 (en
gagnstæð sjónarmið nú)
— svo örfá dæmi af fjöl-
mörgum séu nefnd. Eða er
hér á ferð, eins og sumir
álfta, bergmál formanns-
átaka, sem Magnús Kjart-
ansson vill hafa allsráð-
andi „hönd f bagga með",
hvern veg lyktar?
Magnús Kjartansson er
e.t.v. þekktari fyrir annað
en nákvæmni f sannri frá-
sögn atburðarásar, ef póli-
tfskir hagsmunir hans
krefjast hagræðingar á
raunveruleikanum. Engu
að sfður kemur þessi bak-
árás á fráfarandi formann
Alþýðubandalagsins und-
arlega fyrir — og vekur
margar spurningar f huga
hins almenna borgara. Ef
til vill eru „formannsraun-
ir" Alþýðubandalagsins
nægjanleg skýring á
skreytni og skringilegheit-
um, sem skrif hans bera
vottinn um.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins 1977
SJÓNARMIÐ
S JÁLFST ÆÐISM ANN A
íþrótta- og
æskulýðsmál.
Þróttmikið félagsstarf æskunnar
er samfélaginu nauðsynlegt Með
virkri þátttöku I þvi leggur æsku-
maður grundvöll að þætti sínum i
lýðræðislegu starfi þjóðfélagsins og
þroskar einstaklingsbundna hæfi-
leika sina til að taka ákvarðamr og til
forystustarfa Heilbrigt félagsstarf
veitir æskunni jafnframt lifsfyllingu
og ánægju
Til eflingar félagslegu starfi
islenzkrar æsku leggur Sjalfstæðis-
flokkurinn áherzlu á eftirfarandi:
1 jþrótta- og æskulýðsfélögum sé
veitt sem best aðstaða til að laða
ungmenni til þátttöku i frjálsu
félagsstarfi. Til þess að svo megi
verða, þarf m a til að koma öflugri
fjárhagslegur stuðningur hins opin-
bera.
2 Innflutningsgjöld af búnaði til
íþrótta- og tómstundaiðkana verði
stórlækkuð Skemmtanaskattur
verði felldur niður af iþrótta- og
æskulýðsstarfi
Framlög til iþrótta- og æskulýðs-
starfa verði áfram frádráttarbær til
skatts
3. í stuðningi sveitarfélaga við
íþrótta- og æskulýðsstarf ber að
leggja höfuðáherzlu á bætta aðstöðu
til starfa frjálsra félaga svo og ráð-
stafanir til að ná til æskufólks. sem
sökum áhugaleysis eða af öðrum
orsökum sinnir ekki heilbrigðum
viðfangsefnum I tómstundum sin-
um Skólahús og félagsheimili skulu
nýtt til þessarar tviþættu starfsemi
4 Æskulýðsráð á vegum rikis og
sveitarfélaga gegni þjónustu hlut-
verki við æskulýðsstarf í landinu og
leggi i þvi skyni áherzlu á útgáfu
námsefnis og þ|álfun æskulýðsleið-
toga
5 Efla ber á allan hátt aðs skóla-
æskunnar til hagnýtra starfa í skóla-
leyfum og stefna að þvi. að islenzk
æska hafi hér eftir sem hingað til
aðstöðu til að kynnast með eigin
þátttöku atvinnuháttum þjóðar sinn-
ar
Áfengis- og fíkniefna-
mál.
Á síðari árum hefur orðið æ
Ijósara, hver hætta steðjar að
íslenzku þjóðlífi vegna neyzlu ávana-
og fíkniefna Augljóst er, að mark-
vissra aðgerða er þörf til að stemma
stigu við og uppræta meinsemdir
þessar. Áherzla skal því lögð á eftir-
farandi:
1. Koma þarf í veg fyrir ólöglegan
innflutning og neyzlu fíkniefna, og
viðurlög við slíkum innflutningi og
sölu þeirra stórlega hert. Bæta skal
starfsaðstöðu þeirra löggæzlumanna
og dómara, sem starfa að ávana- og
fíkniefnamálum, svo að þeir geti
sinnt verkefnum sínum á sem
árangursríkastan hátt
2. Auka þarf alhliða fræðslustarf-
semi um skaðsemi reykinga Vekur
Landsfundurinn sérstaka athygli á
herferð skólaæskunnar gegn
reykingum og styður öflugt starf
félagasamtaka í þeim málum.
3. Vinna ber gegn ofnautn
áfengis með öllum tiltækum ráðum
Ofneyzla áfengis, sívaxandi áhrif
þess á heimilislíf og uppeldi er eitt
alvarlegasta félagslegt vandamál,
sem við er að stríða í þjóðfélagi
okkar.
Lögð skal áherzla á eftirfarandi:
a) Fræðslustarfsemi m.a. i ríkisút-
varpi og aðrar fyrirbyggjandi
aðgerðir i áfengismálum verði
stórauknar með sérstöku tilliti til
áfengisneyzlu barna og unglinga
og i samræmi við 31. gr.
áfengislaga
b) Settar verði á fót ráðgjafa- og
fræðsludeildir um áfengisvarnir
við heilsuverndarstöðvar svo og
göngudeildir fyrir áfengissjúka
c) Starfsemi lækningastöðva fyrir
drykkjusjúklinga verði efld
d) Eflt sé starf bindindissamtaka og
annarra félaga, er standa að
virkri baráttu gegn áfengis-
neyzlu.
4. Gott uppeldi er bezta vörn
gegn hættulegum félagslegum
kvillum, svo sem ofneyzlu áfengis
og annarra fikniefna Verður því
aldrei of mikil áherzla lögð á þátt
foreldra og heimila að þessu leyti,
en við hlutverki þeirra tekur engin
stofnun að fullu Ábyrgð foreldra f
þessu efni er því mikil
Kirkjumál
Kristin kirkja hefur um aldir mót-
að að miklu hugsunarhátt íslenzku
þjóðarinnar. Einn fegursti sam-
félagslegi ávöxturinn af áhrifum
kristinnar trúar er lýðræðið með
mannhelgi sinni. frelsi og gagn-
kvæmri ábyrgðarskyldu þegnanna
Lýðræðið byggir á siðferðisþroska
þegnanna og er sprottið upp af
kristnu hugarfari Það er jafn sterkt
því hugarfari og stendur eða fellur
með því. Þess vegna ber að styrkja
kristna kirkju og efla áhrif kristinnar
trúar í öllu uppeldisstarfi á heimilum
og í skólum Þar er undirstaðan
lögð Hlutverk stjórnmálamanna á
að vera útfærsla kristinnar grund-
vallarhugsjónar á sem flestum svið
um samfélagsins
LÆrIð vélritun
Ný námskeið hefjast mánudaginn 13. jún(
Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar. Engin heimavinna.
Upplýsingar pg innritun í sima 41311.
Vélritunarskólinn
Suðurlandsbraut 20.
Hjólbörur-Hjólbörur
Hinar landsþekktu frá Nýju blikksmiðjunni
Ármúla 30, sími 81 104 ávallt fyrirliggjandi 3
stærðir.
Syðjið íslenzka framleiðslu.
SESAM H.F.
Byggingarvöruverzlun
Seljum pípur á mjög góöu verði
fittings fittings, krana og fl. til
vatns og hitalagna.
Einnig plaströr og fittings til
frárenslislagna.
Ennfremur hinar þekktu
LIMDET plastþakrennur.
Athugið verð og gæði
sendum um allt land.
SESAM H.F.
Trönuhrauni 6,
s. 52128