Morgunblaðið - 08.06.1977, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 08.06.1977, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JUNÍ 1977. Ræða Péturs Sigurðssonar formanns sjómannadagsráðs á sjómannadaginn Góðir áheyrendur nær og fjær. í*að eru ótrúlega margir, sem gera samanburð á 1. maí, hátíðis- degi verkamanna og sjómanna- deginum. Á framkvæmd þessara tveggja hátiðisdaga og tilgangi er þó mik- ill munur. Að 1. maí standa öll aðildar- félög A.S.Í. lærðra og ólærðra, þar á meðal sjómanna nema þau sem aðild eiga að F.F.S.Í. Það samband, iðnnemasam- bandið, samtök opinberra starfs- rhanna og nokkrir öfgahópar voru þó þátttakendur í hátiðahöldum þessa dags nú fyrir skömmu og tóku þátt í kröfugerð hans. Þetta er skiljanlegt þegar til þess er horft, að megin hlutverk 1. maí, er kaup- og kjarabarátta líðandi stundar, þótt hin síðari ár hafi farið vaxandi og orðið meira áberandi ýmsar kröfur um félags- legar umbætur. Fyrir um 40 árum var sjó- mannadagurinn mótaður á þann veg sem hann hefur nú starfað allt þetta timabil með litlum breytingum. Var strax í upphafi gengið út frá því að samtök dagsins sem slík hefðu ekki með hina beinu kaup- og kjarabaráttu að gera, þótt ræðumenn sjómanna þennan dag drægju að sjálfsögðu fram hags- munamál þeirra á þessu sviði sem öðru. Tilgangur sjómannadagsins er samkvæmt reglum hans að: a. efla samhug meðal sjómanna og hinna ýmsu starfsgreina sjó- mannastéttarinnar. b. að heiðra minningu látinna sjó- manna og þá sérstaklega þeirra, sem láta líf sitt vegna slysfara í starfi. c. að kynna þjóðinni lífsbaráttu sjómannsins við störf hans á sjón- um. d. að kynna þjóðinni hin mikil- vægu störf sjómannastéttarinnar í þágu þjóðfélagsins í heild. e. að beita sér fyrir menningar- málum er sjómannastéttina varð- ar, og vinna að velferðar- og öryggismálum hennar. f. að afla fjár til að reisa og reka dvalarheimili og íbúðir fyrir aldr- aða sjómenn og sjómannaekkjur. g. að koma upp og annast sumar- dvalarheimili og skylda starfsemi fyrir börn sjómanna, sem munaðarlaus eru eða búa við erf- iðar aðstæður. Þá segir: Að þessu skal unnið með kynningu á málefnum Sjó- mannadagsins á opinberum vett- vangi í fjölmiðlunartækjum og á hvern þann hátt, sem málefninu getur orðið til heilla, þar á meðal hverri leið sem vænleg getur orðið til fjáröflunar. Að öllu þessu hefur veið unnið í fjóra .áratugi með margvíslegu móti. Meðal fyrstu verkefna samtak- anna var, að hefja sund- og róðraríþróttina til fornrar virð- ingar meðal sjómanna, stuðla að stofnun sjóminjasafns, vinna að, styðja og styrkja byggingu nýs sjómannaskóla, reisa minnisvarða á leiði óþekkta sjómannsins í Fossvogskirkjugarði, heiðra aldr- aða sjómenn árlega og þá, sem unnið hafa óvenjumikið að félags- málum sjómannastéttarinnar og á annan hátt barist fyrir framgangi málefna Sjómannadagsins. Tvær sjávarútvegssýningar samtakanna árin 1939 og 1968, sem gífurlegur fjöldi fólks sótti, útgáfa Sjómannadagsblaðsins ár- lega og framkvæmdir á jörð sam- takanna í Grímsnesi. Þar er nú sumardvaiarheimili fyrir allt að 60 börn auk félagsaðstöðu, 22 or- lofshús í eigu sjómannafélaga og Sjómannadagsins, auk mikils fjölda skipulagðra leigulóða fyrir einstaklinga. Lang veigamesta verkefni sam- takanna hafa þó verið byggingar fyrir aldrað fólk, fyrst dvalar- heimili aldraðra sjómanna — Hrafnista í Reykjavík og nú Hrafnista í Hafnarfirði. Að sjálfsögðu er annarra að dæma um hvernig til hefur tekist, en sjálfur finn ég að enn vantar mikíð á að sambærilegri félags- legri aðstöðu sjómanna við aðrar stéttir hafi verið náð og tek ég þó í þvi mati mínu fullt tillit til sér- stöðu þessarar atvinnugreinar vegna langtímafjarveru. Bygg- ingar fyrir aldraða hafa verið veigamesta verkefnið En þessi stétt missir ekki ein- ungis af eðlilegu fjölskyldulífi heldur tapar hún einnig af marg- háttaðri samfélagslegri þjónustu, sem sjómenn eins og aðrir greiða þó til, svo sem útvarps, sjónvarps, leikhúsa, hljómleika og margs fleira í opinberri þjónustu. Fjarvera þeirra kallar líka á aukinn framfærslukostnað í heimilisrekstri. Vissulega hefur verið reynt að koma á móti þessu á ýmsan hátt t.d. með sérstökum skattfríðind- um og bættri útvarpsþjónustu. En sorglega þykir mér stundum seint ganga að ná eyrum annarra þótt hátíðisdagur sjómanna hafi svo lengi sem ég man, verið nýtt- ur til að kynna störf og starfsað- stöðu sjómannastéttarinnar og þau verkefni sem samtök dagsins vinna að. Vera má að áhugi okkar, bjart- sýni á skilning náungans og vilji til að ná settu marki hafi valdið á stundum gagnrýni á störf okkar. Gagnrýni fyrir að fara of hratt yfir og stíga máske á tær þeirra sem gleymdu að draga þær að sér þegar fram hjá var farið. Ég varð t.d. fyrir vonbrigðum nú í gær er ég las í virðulegu tímariti viðtal við tvo sérfræðinga sem vinna að vandamálum aldr- aðra. Sérfræðingarnir lýstu af fjálgleik dag-, dvalar- og hjúkrunarheimilum fyrir aldraða í Danmörku sem þeir höfðu skoð- að fyrir skömmu og hrósuðu mikið vegna búnaðar og skipu- lags, að verðleikum. En þeir virtust alveg óvitandi um það að nokkur ár eru liðin síðan við í sjómannadagssamtök- unum kynntum okkur starf og skipulag þessara og margra ann- arra heimila, sem best sést á því að allt hið besta sem þar er hrós- að, er fyrirhugað að taka upp í hinu nýja dvalarheimili Hrafn- istu í Hafnarfirði. Dropinn holar steininn segir máltækið og ég var ánægður þeg- ar ég heyrði einn ráðherra okkar fyrir skömmu skýra frá nefndar- skipun til athugunar á sendingu efnis á myndsegulbandi um borð í skip okkar. Að vísu held ég því fram að mál þetta væri komið á góðan rekspöl ef tillögu minni við afgreiðslu fjárlaga 1974 hefði verið fylgt, en hún var um eftirgjöf aðflutnings- gjalda á myndsegulbandstækjum og efni til þeirra. Þá strax hefðu margir útg. m. og skipshafnir aflað sér slíkra tækja, þau væru orðin almenn í skipunum í dag og jafnvel hafin samantekt á ýmsum þáttum hér heima sem senda má um borð i skipin og skoðast þar þegar timi og aðstæður leyfa. Ég spái því að í þessu sé fólgin lausn fyrir okkar sjómenn og ber því að fylgja þessu máli vel eftir, þótt ég sé ekki með þessu að hafa á móti fjölgun og styrkingu ým- issa strandstöðva, þegar efni og geta samfélagsins leyfa.“ Þá ræddi Pétur m.a. kjaramál sjómanna og gat þess, að sjó- mannadagurinn væri haldinn í skugga hinnar miklu launa- og kjaradeilu, sem nú er háð af öll- um launþegum, einnig sjómönn- um. Hann kvað einga bót að ræða • • Oryggismál- um sjómanna aldrei nógur gaumur gefinn Góðir áheyrendur! I dag höldum við tslendingar hátíðlegan sjómannadaginn í fer- tugasta skipti frá upphafi. Fyrir hönd útvegsmanna leyfi ég mér að færaykkur sjómönnum nær og fjær hugheilar árnaðar- óskir með daginn. Á þeim tíma, sem liðinn er, síð- an fyrsti sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur árið 1938 hafa orðið miklar breytingar og stór- stígar framfarir í þjóðfélagi okk- ar. Óþarfi er hér að tíunda þá þró- un, sem verið hefur á fiskiskipa- flota okkar íslendinga, en á síð- ustu árum hefur orðið mikil aukn- ing og endurnýjun á flotanum. Hafa verið tekin í notkun skip af nýjum gerðum og með nýjan og flókinn tækjabúnað, þar á meðal Iskuttogarar. En aukin tækni- og vélvæðing s leiðir af sér aukna slysahættu, og því miður kom það líka á daginn, að margvíslegar slysahættur voru i samfara þessum nýju skipurn og Surðu þar fljótt tíð og alvarleg slys, þar sem í flestum tilvikum mátti rekja til þess, að menn voru óvan- ir vinnutilhöguninni um borð i þessum skipum. Hún var önnur en þeir áttu að venjast og ekki var fyrir hendi sérstök þjálfun eða aðlögunartími vegna þessara nýju skipa. Öryggisbúnaöur ásjó Það eru öryggismál sjómanna, sem ég geri hér að umtalsefni. Strax í upphafi var reynt að bregðast fljótt við þessu vanda- máli og lögðu þar margir hönd á plóginn til þess að reyna að draga úr þessum tíðu slysum. Á árinu 1975 voru gefnar út reglur um öryggisráðstafanir á fiskiskipum með skutrennu, þar sem gert er að skyldu að hafa um borð ör- yggisbelgi, öryggishjálma og björgunarvesti, sem blása sig út sjálf og hægt er að hafa innan hlífðarfata, svo eitthvað sé nefnt. En það er ekki nóg, að settar séu reglur um öryggisbúnað. Það er ekki nóg, að til séu nefnd félög og stofnanir, sem starfa að öryggismálum sjómanna. Þessi mál verða aldrei í lagi, nema sjómenn sjálfir séu virkir í baráttunni gegn slysunum. Því miður hefur verið misbrest- ur á því, að fyrirskipuð öryggis- tæki hafi verið notuð sem skyldi og í mörgum tilvikum alls ekki. Þá hafa margir verið seinteknir að viðurkenna nauðsyn þessa búnaðar og láta ekki sannfærast um gildi hans eða hlutverk. Vil ég nefna nokkur dæmi þessu til skýringar. Til er, að því hafi verið lýst yfir, að öryggisbeltiu væru gagnslaus og þeim hent til hliðar, þar sem viðkomandi hafði fallið í þilfarið, þrátt fyrir, að hann væri girtur öryggisbelti. í þessu tilfelli full-' nægði öryggisbeltið ekki þeirri kröfu mannsins að vera algild slysavörn og var þar með afskrif- að. Allir sjómenn ættu þó að vita, að öryggisbeltinu er ætlað að koma í veg fyrir að menn falli útbyrðis, en að sjálfsögðu getur notkun öryggisbeltis ekki komið í veg fyrir að menn geti dottið eftir sem áður. Til er, að menn hafi hætt að nota öryggisbúnað, þar sem þeim þótti hann ekki hentugur, og þar hef ég einkum í huga linublakkir þær, sem margir notuðu með ör- yggisbeltunum, þar sem linan læsist við minnsta hnikk, enda upphaflega hannaðar fyrir linu- menn og miðað við fall úr lofti. Þetta mátti þó auðveldlega laga með einu handbragði, sem og margir sjómenn fundu út sjáifir eða fundu þá út eitthvað betra i staðinn, nema þeir, sem voru nei- kvæðir og afskrifuðu þennan bún- að strax. Þá hafa lika, því miður, verið dæmi þess að þessi lögskipaði ör- yggisbúnaður hafi alls ekki verið til um borð, enda þótt viðkomandi skip hafi fengið haffærisskírteini. Komið hefur það þó fyrir að i einu slíku tilfelli, þar sem það hörmulega slys hafði gerzt, að maður féll aftur úr skutrennunni og drukknaði, að því var lýst yfir blá kalt í sjóprófinu, sem fram fór út af slysinu, að þótt öryggisbeltin hefðu verið til staðar, væri það fráleitt,- að nokkur hefði notað þau i þessu tilfelli, þar sem veður hafi verið það gott, er slysið skeði. Breyting til batnaðar Ég hef nefnt þessi dæmi til þess að sýna þennan neikvæða hugsun- arhátt, hvað notkun öryggistækja snertir, sem enn örlar á hjá sum- um. Þetta er vandamál, sem líka þekkist víða á vinnustöðum í landi. Sem betur fer virðist þetta nú vera að breytast verulega til batn- aðar og að sjómenn séu að verða sér meðvitandi um nauðsynina á auknum öryggisráðstöfunum, eigi að takast að fækka slysunum. Nefna mætti hér togaraskip- stjóra, sem líða mönnum sínum ekki að vinna á þilfari, án tilskil- ins öryggisbúnaðar. Slikir menn eru til fyrirmyndar og sýna þá ábyrgðartilfinningu, er góðum skipstjórum sæmir. Nefna mætti hér ótal sjómenn, sem verið hafa óþreytandi, að benda á leiðir til úrbóta í öryggis- málum sjómanna eða hafa betrum bætt þann öryggisbúnað, sem fyr- ir hendi var. Ber að fagna þessum aukna áhuga og jákvæða hugsun- arhætti sjómanna til þessara mála. Þá verður að leggja rika áherzlu á það, að sá öryggisbúnað- ur, sem til er, sé ekki aðeins not- aður, þar sem hann er fyrirskip- aður, heldur á öllum skipum, þar sem hægt er að koma því við. Öryggisbelti, sem upphaflega voru ætluð skipverjum skuttogar- anna, hafa menn notað víða t.d. við vinnu upp á nótapalli á nóta- skipunum eða við linudrátt á sum- um línubátunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.