Morgunblaðið - 08.06.1977, Síða 11
11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JUNI 1977.
þessi mál nú, þegar þau væru í
höndum samninganefnda. Her-
lúðrar hefðu þegar verið blásnir.
Hann benti á að góð afkoma
margra fiskimanna byggðist m.a.
á því að síðustu misseri hefði fisk-
verði verið haldið svo réttu sem
unnt væri. Þessari afkomu fylgdi
fifurlegt vinnuálag eins og hjá
fiskvinnslufólki i landi.
Pétur undirstrikaði að þetta
gilti einnig um farmennina, hjá
þeim væri vinnutimi óeðlilega
langur og byggðist afkoma þeirra
að mestu á yfirvinnu. Yrði að
telja slíkt óeðlilegt, þegar horft
væri til hinnar góðu afkomu far-
skipanna.
Þá vitnaði Pétur til orða sjávar-
útvegsráðherra um landhelgina
og nýtingu hennar og tók undir
þau. Hann sagðist á löngum
stjórnmálaferli hafa lært aldrei
að segja aldrei. Fyrir þjóð sem
okkar væri nauðsynlegt að taka
jákvætt undir óskir um allar við-
ræður, þvi ekki væri nóg að afla
fisks, hann þyrfti að selja lika. Nú
væri hins vegar enginn grundvöll-
ur fyrir samningum um auknar
veiðiheimildir og alls ekki meðan
fiskstofnar okkar væru í því
ástandi að við þyrftum að tak-
marka eigin veiðar.
Ef til frekari takmarkana þarf
að koma, verður það að sjálfsögðu
ekki gert einhliða á kostnað sjó-
manna og útvegsmanna. Þjóðin
öll hefur notið þess með þessum
aðilum, þegar vel hefur gengið og
verða þá að axla áföllin með þeim.
Þá sagði Pétur að lokum orð-
rétt:
í morgun var þeirra sjómanna
minnst, sem farist hafa i starfi frá
siðasta sjómannadegi, og skyld-
fólki og vinum færðar samúðar-
kveðjur.
Að þessu sinni var tala þessi
ótrúlega lág, eða 7 menn.
Sjálfsagt eru nokkrar megin-
ástæður til þess að svo blessunar-
lega hefur tekist til að þeir urðu
ekki fleiri.
Einmuna tið á vetrarvertíðinni
en um leið meiri sókn og vinnu-
álag en nokkru sinni áður. Skipin
stærri og betri, búin fullkomnari
búnaði til vinnu, siglinga, örygg-
is og björgunar. Slysavarna- og
björgunarmál aldrei betur unnin
en nú og fræðsla sjómanna i
þessum efnum betri en áður.
Þegar þessi upptalning er
skoðuð nánar má sjá að á alla
þættina nema þann fyrsta, má
hafa bein áhrif með aukinni
fræðslu, starfi og fé til úrbóta á
þessum sviðum.
Oft hefur mér fundist á liðnum
árum að betur mætti gera með
fjárframlögum af sameiginlegu
aflafé þjóðarinnar og gæti ég þul-
ið langan lista nauðsynlegra úr-
bóta sem orðið hafa að biða vegna
fjármagnsskorts.
Þeim sem valist hafa til stjórn-
unar i ýmsum félagssamtökum
sjómanna ber að sjálfsögðu
skylda til að vinna að þeim og
fylgja þeim eftir með fullum
þunga.
í þau ár sem ég hefi gegnt for-
mannsstörfum i sjómannasamtök-
unum í Reykjavík og Hafnarfirði
hefi ég verið viðstaddur minn-
ingarathafnir um nær 360
islenzka sjómenn sem látist hafa i
starfi á liðnu ári þar á undan eða
24 sjómenn á ári að meðaltali. —
Og nú bætast 7 við.
Þetta er mikil blóðtaka fá-
mennri stétt, sem sýnir betur en
nokkuð annað hvað sjómenn okk-
ar hafa við að glima í starfi sínu
og hve gjörólíkt það er störfum
annarra stétta þjóðfélagsins
vegna þessa, vegna fjarveru frá
heimilum sinum og erfiðrar
vinnuaðstöðu.
Þetta er lika mikii blóðtaka
fyrir okkar fámennu þjóð.
Við gerum þær kröfur á hendur
allra ráðamanna, bæði í stjórn
ríkis sem bæja, fyrir hönd þess-
ara manna, fyrir hönd eigin-
kvenna þeirra og barna að ekkert
verði til sparað til að auka enn
öryggi sæfarenda.
Um leið þökkum við allt sem vel
hefur verið gert t.d. i vita- og
hafnarmálum, búnaði Landhelgis-
gæslunnar og þýðingarmikilli
öryggisþjónustu hennar, á vegum
fjársveltrar sjóslysanefndar og
hins mikilvirka og velvirka Slysa-
varnarfélags íslands og deilda
þess.
Með þá einlægu von i brjósti að
þær deilur sem nú eru uppi meðal
launafólks og vinnuveitenda megi
leysast á farsælan hátt þeim sem
hlut eiga að máli og þjóðinni allri
til farsældar flyt ég þjóðinni allri
þakkir sjómannadagssamtakanna
fyrir stuðning hennar við málefni
þeirra og hvet alla sem mega, til
frekari átaka á þeim sviðum.
Á móti, heita þessi samtök aó
vinna jafn ötullega og áður að
hagsmunamálum aldraðra i þjóð-
félagi okkar sem öðrum er til al-
menningsheilla horfa.
Ég lík orðum mínum með þvi að
flytja öllum sjómönnum og
skylduliði þeirra óskir um far-
sæld i öllu starfi og lifi.
Ræda Jónas-
ar Haralds-
sonar á sjó-
mannadaginn
Hin handhægu björgunarvesti,
sem blása sig út sjálf og sem ég
áður nefndi, eru ekki aðeins
nauðsynleg skuttogaramönnum,
heldur öllum þeim, sem sjó sækja,
ekki sizUþeim, sem á smábátum
róa. Þessi belti hafa þegar sannað
ágæti sitt og bjargað mannslífum.
Hér mætti nefna ýmis þau mál,
sem unnið er að í öryggismálum
sjómanna, svo sem að skylt verði
að hafa radarspegla um borð i
smábátum, að settir verói öryggis-
lokar við öll linu- og netaspil í
bátum stærri en 15 rúmlestir, svo
koma megi i veg fyrir hin óhugn-
anlegu slys, er hafa orðið við þessi
spil. Fleira mætti hér nefna, ef
timi gæfist til.
Mér hefur orðið skrafdrjúgt um
öryggismál sjómanna, sem aldrei
er nógur gaumur gefinn. Þetta
eru viðkvæm mál fyrir marga,
mál, sem erfitt er að ræða um án
þess að styggja kannski einhvern,
en hjá þvi verður ekki komizt.
Það næst aldrei árangur í þessum
málum, nema þau séu gripin föst-
um tökum og fjallað um þau tæpi-
tungulaust, enda skulum við hafa
það í huga, að mannslifin eru það
dýrmætasta, sem við eigum.
Að endingu þetta: Sjómenn!
Verið jákvæðir og virkir í barátt-
unni gegn slysunum, þvi frum-
kvæðið verður alltaf i ykkar
höndum. Það er ykkar líf, ykkar
öryggi sem verið er að berjast
fyrir.
Sjómenn! Hafið þessi orð að
leiðarljósi.
Öryggið framar öllu!
KÓPAVOGUR — EINBÝLISHÚS
Vorum að fá í einkasölu, mjög skemmtilegt
einbýlishús á góðum stað í Kópavogi. Húsið er
hæð og ris að grunnfleti um 108 ferm.
Geymslukjallari undir hálfu húsinu. Fallegur
garður, Mjög gott útsýni. Tvöfaldur bílskúr með
vatni og hita. Hér er um sérstaklega skemmti-
lega eign að ræða.
EIGNASALAIN
REYKJAVÍK
Ingólfsstrægi 8
simi 19540 og 19191
kvöldsími 44789.
906 þús
fm.
Óræktað land í Mosfellssveit til sölu.
Upplýsingar gefur Ingi R. Helgason Hrl. Lauga-
vegi 31.
5herbergja ib c.a 140 fm með
bilskúr við Goðheima
if Sérhæðir
Rauðilækur m/bilsk
Miðbraut m/bilsk
Hliðarhverfi
if Miðtún
Húseign með þrem 3|a herb. ib
if Byggðarendahverfi
Nýlegt einbýlishús m/bílsk c.a"
140 fm
if Vesturbær
Steinhús með tveim ib. verð 1 1
millj
if Seltjarnarnes
Raðhús i smiðum tvöfaldur bilsk
if 4ra herbergja
Æsufell — Dúfnahólar
Eyjabakki — R|úpufell
if 3ja herbergja
Dalsel — Jörfabakki
Hjarðarhagi — Blönduhlið
if 2ja herbergja
Blikahólar — Barónsstig
Arnarhraun — Baldursg.
HÍBÝLI & SKIP
Garðastræti 38 Simi 26277
Gisli ólafsson 201 78
Bjarni Kjartansson 10404
Jón Ólafsson lögmaðru
EIGNAÞJÓNUSTAN
FASTEIGNA OG SKIPASALA
NJÁLSGÖTU 23
SfMI: 2 66 50
Til sölu m.a.:
Árbæjarhverfi
2ja herb. mjög góð ibúð á 1.
hæð. Danfoss hitakerfi. Suður-
svalir og úrvalsgóð sameign.
í Vesturborginni
Mjög góðar 3ja, 4ra og 5 herb.
ibúðir. Eignaskipti möguleg i
sumum tilvikum.
í Laugarneshverfi
140 ferm. sérhæð (1. hæð)
5—6 herb. ibúð. Gott útsýni.
Skipti á 2ja—3ja herb. ibúð t.d.
i Vesturborginni möguleg
Vantar allar stærðir
íbúða á söluskrá.
Sölustj. Örn Scheving
Lögm. Ólafur Þorláksson.
Al ftl.VSIViASIMINN F;r:
22480
JRírfltmWntiib
FASTEIGNAMIÐLUN
Einbýlishús í Þorlákshöfn
145 ferm. vandað einbýlishús á einni hæð, stór stofa,
sjónvarpshol, 4 svefnherb. eldhús með nýjum innrétting
um Stór bílskúr, stór ræktuð lóð Skipti á lbú8 í
Reykjavik koma til greina. Verð 1 3 millj útb 8 millj
Garöabær - Rauðalækur
Höfum kaupanda að einbýlishúsi í Garðabæ t.d á
Flötunum eða t Túnunum allt að 140 ferm og með
bilskúr, í skiptum fyrir úrvals 145 ferm hæð ásamt
bílskúr við Rauðalæk Húsið má kosta allt að 20 millj og
er þá um peningamilligjöf að ræða.
Hæð og ris við Miðborgina
5 herb. íbúð samtals 120 ferm á annarri og þriðju hæð
við Hverfisgötu á hæðinni eru tvær stofur og eldhús í risi
eru 2—3 herb. baðheb. og geymsla. Tvöfalt gler, sér
hiti, eignarlóð Leyfi til að lyfta risi Laus strax. Verð 9
millj. útb. 4.5 millj
Sléttahraun - 4ra herb.
Snotur 4ra herb. ibúð á 2 hæð um 108 ferm Stofa, 3
svefnherb íbúðin er teppalögð vandaðar innréttingar,
þvottaherb. á hæðinm. Bilskúrsréttur. Verð 10 5 millj
útb. 6 millj.
Granaskjól - 4 ra herb.
4ra herb. íbúðá rishæð i þribýlishúsi um 100ferm Stofa
borðstofa og 2 svefnherb. baðherb. og eldhús með
nýjum innréttingum. íbúðin er litið undir súð. Sér hiti.
Verð 9.5 millj útb 6 5 millj.
Lítið hús við Óðinsgötu
50 ferm. hús á eignarlúð, stofa, herb. eldhús og gott
baðherb Teppalagt, verð 5 millj. útb 3 millj
Góð 2ja herb. ódýr við Laugaveg
2ja herb. ibúð á efri hæð i steinsteyptu þríbýlishúsi um
55 ferm. Stofa, herb. eldhús og baðherb Nýjar innrétt-
ingar i eldhúsi, tvöfalt gler, Danfoss, eignarlóð Stutt i
barnaleikvöll. Laus strax. Verð 5.5 millj. útb 3 millj
Eignarlóð við Rauöavatn
Höfum fengið til sölu 2000 ferm uppræktað eignarland
við Rauðavatn nánari upplýsingar veittar á skrifstofu
vorri Verð um 1 millj.
Lóðir óskast
Höfum kaupendur að nokkrum lóðum á Álftanesi
TEMPLARASUNDI 3(2.hæð)
SÍMAR 15522,12920
ÓskarMíkaelsson sölustjóri
, heimasími 4480Ö
Árni Stefánsson vióskf r.