Morgunblaðið - 08.06.1977, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JUNÍ 1977,
13
Aki. „Ertu ekki þarna með nótu frá
Svalbak. Hvað sýnir hún?“
Ég er með skýrslu framleiðslueftirlits
sjávarafurða undirritaða af Jóni Jakobs-
syni, matsmanni, þar sem segir, að skipt-
ing aflans, sem landað var úr Svalbaki
þennan fimmtudag og næstu daga á und-
an, hafi verið eftirfarandi:
Af þorski 97% i fyrsta flokk og 3% f
annan. Af ýsu 98% í fyrsta flokk og tvö í
annan. Ufsinn fer allur I fyrsta flokk, af
steinbítnum 65% i 1. flokk og 35% í
annan. Og af lúðunni fara 70% ífyrsta
flokk og 30 I annan.
Af þorskinum eru 63% 70 sm og yfir,
26% eru 54—70 sm, 10% eru 50—54 sm
og 1 % er 43—50 sm.
Af ýsunni eru 89% 52 sm og yfir og
11% á bilinu 42—52 sm. Af ufsanum eru
94% 80 sm og yfir og 6% á bilinu 54—80
sm.
„Þetta var um 200 tonna túr af þessum
ógurlegu smáfiskamiðum, sem við eigum
að vera skarkandi á,“ segir Aki.
„Samkvæmt reglunum er hámarkið
10% af afla 43—50 sentimetra fiskur. En
þarna er bara eitt prósent".
„Ef þarna hefði átt að vera um það að
ræða að smáfiski væri hent, þá kemur
það úr sem nokkuð kúnstug fullyrðing,"
segir Sigurður. „Því það vantar nítján
tonn upp á leyfilegt magn, það sem má
vera undir 50 sentimetrum.
Ætli maður myndi nú ekki stoppa áður
en nitján tonnum hefði verið hent 1
hafið."
— En nú getur þessi túr hafa verið
sérstakur?
„Af hverju? Af þvi hann sannar
ekkert um smáfiskadráp?" spyr Halldór
snöggt.
— Þetta afsannar ekkert heldur.
„Sussu nei. Auðvitað ekki,“ svarar
Halldór um hæl. „Við eigum auðvitað að
sitja uppi með skömminá bara af þvi að
aðrir vilja að svo sé.“
— Nú hefur komið fram fullyrðing
um að í áramótatúrnum hafi smáfiski
verið hent...
„Ég fæ nú bara engan botn i þessa
frétt í Morgunblaðinu," segir Áki. „Ég
var þarna á þessu svæði og ekki varð ég
var við allan þennan smáfisk."
„Ég var þarna lika,“ segir Halldór. „Og
við gerðum allt annað en að fleygja fiski
fyrir borð. Við drógum fisk inn og
lönduðum þessum túr á Húsavik.
Ég veit ekki betur, en þeir hafi kunn-
að að meta aflann sem fyrsta flokks
hráefni."
„Ég verð nú bara að segja eins og er,
að ég man ekki frá fleiri, fleiri túrum
eftir fiski á nótunum undir fimmtiu
sentimetrunum," segir Sigurður.
— Það segir bara að þið komið ekki
með hann að landi.
„Við skulum bara ganga frá þessu máli
i eitt skipti fyrir öll,“ segir Halldór.
„Möskvastærðin sér til þess, að við
stundum ekki smáfiskadráp.
Við Áki staðfestum báðir að í þessum
áramótatúr var engum smáfiski hent
fyrir borð hjá okkur. Og ekki sáum við
aðra henda fiski. Þetta er okkar sann-
leikur i málinu. Meira eða betra getum
við ekki sagt.“
— En af hverju er þetta þá fullyrt?
„Ég kann nú alveg orðið yfir svona
fullyrðingar," segir Halldór. „En hafi
þeir hent fiski, þá var það ekki smá-
fiskur i þeirri merkingu að þeir hafi
ekki mátt koma með hann að landi.
Þetta hafa þá bara verið þeir guttar, að
þeir hafa ekki nennt að vinna fiskinn."
— Er það til?
— Ég segi ekkert um það. En hafi þeir
hent fiski, þá er þetta eina skýringin,
sem ég kann. Það er svo sáralitlu hent
yfirleitt, að slikt magn kæmi aldrei til
greina."
— Það er þá einhverju hent?
„Það er alltaf eitthvað rusl og drasl i
hverju hali og smátittir með, kannski
kassi i mesta lagi.
Þessu hendum við og það er engin leið
að komast hjá þvi að þetta slæðist með.
En tonnavís verður þetta drasl aldrei.
Aldrei!"
Og slikur þungi fylgir þessu síðasta
orði Halldórs og samþykki hinna tveggja
á þvi, að það fer vel á þvi að það endi
umræðurnar um smáfiskadrápið.
Glæpurinn er að
stækka f lotann
— Er þá bara allt i lagi á sjónum?
„Lang frá þvi,“ segir Áki. „En
smáfiskadráp er ekki meinið. Hins vegar
vitum við að fiskurinn hefur farið
minnkandi, þannig að við stefnum og
erum reyndar komnir í ofveiði..
„Annars er ég nú sannfærður um það,
að þorskurinn sé betur staddur, en menn
vilja vera láta,“ segir Sigurður. „Ég er
svartsýnni á karfann og ufsann. Mér
heyrist karfinn vera alveg horfinn af
grunnmiðunum og skilst að Vestur-
Þjóðverjarnir séu að klára djúpkantana
þarna syðra...“
„ ... Þetta er bara afleiðing af þvi að
við vorum á siðasta snúningi með að
færa út landhelgina," heldur Áki áfram.
„Utfærsla landhelginnar og það að losna
við Bretann, rússnesku móðurskipin og
alla útlendingana yfir höfuð er stórkost-
legasta friðun, sem við höfum gripið til.“
— En dugar útfærslan ein?
„Nei. Við erum með alltof mikla sókn
sjálfir," segir Halldór.
„Það er náttúrlega forkastanlegt að
við skulum alltaf vera að bæta við okkur
skipum, þegar við vitum að við eigum nú
þegar hámarksflota fyrir fiskimiðin,"
segir Áki. „Það er glæpurinn i þessum
málum.“
„Það er þegar komin algjör örtröð á
miðin," segir Sigurður. „Og það hug-
rekki, sem þarf til að léysa þessi mál, er
ekki hvað sízt fólgið í þvi að stöðva
stækkun flotans."
„Ég var nú að lesa i Morgunblaðinu i
morgun frétt um að Vestmannaeyingar
ætluðu að fá sér nýjan skuttogara,” segir
Halldór „Að visu ætla þeir að kaupa
Framhald á bls. 19
r
Vilhelm Þorsteinsson, framkvæmdarstj. Ut-
gerðarfélags Akuregringa í spjalli viðMbU
..Það er tiúmer eitt. tvö og þrjú
að togararnir komi að landi meö
vel með farinn og góðan afla og að
hann sé unnin á vandaðan hátt.
Alveg saina um hvaða fisktegund
er að ræða. Það er landlæg bölv-
un, hvað okkur tslendingum hætt-
ir til að einblina á tonnafjöldann.
en spyrja ekkert um verðmætið.”
segir Vilhelm Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Utgerðarfélags
Akureyringa hf.. þegar ég hef
tekið hann tali. Úti eru inenn að
ljúka löndun úr Svalbak og í
fyrramálið er Harðbakur væntan-
legur. Þá verður Svalbakur far-
inn. Þannig gengur þetta.
— Finnst þér eitthvað vanta á
að við förum nægilega vel með
fiskinn?
„Ég er anzi hræddur um það, að
potturinn sé nokkuð viða brotinn
og þá einkum i Iandi. Það vantar
talsvert á það, að almennur skiln-
ingur sé á því að fiskiðnaðurinn
er toppvandasöm stóriðja.
Við hér hjá Útgerðarfélagi Ak-
ureyringa höfum alltaf reynt að
keppa að hæsta markinu og lagt á
áherzlu á sein beztan afla og síðan
vandaða vinnslu i verðmætustu
framleiðsluna. Og við skiptum
ekki um vinnubrögð eftir fiskteg-
undum. Til að sanna þetta fyrir
þér skal éf» sýna þér svart á hvítu,
að á síöasta ári var meðaltalið af
fimm togurum okkar 93,25'V, afl-
ans í fyrsta flokk. Og afkoman er
sú. að vera réttu megin við strikið
þrátt fyrir miklar afskriftir af
nýjum togaraflota.
Annars er það orðið nijög
shemt. hvað búið er að troða inn i
fólkiö. að togaraútgerð sé ekkert
nema smáfiskur og ef ekki það, þá
vinmmannslegt dráp á undirmáls-
fiski. Eg bendi nú bara á þetta
fyrirtæki hérna. Við erum ein-
göngu með togarafisk. þannig að
ef um tóman smáfisk væri að
ræða, þá ætti afkoman nú ekki að
vera svo bevsin er ég hræddur
um.“
Vilhelm var sjálfur skipstjóri
áður en hann settist i brúna i
landi. ,,Eg hef nú þá trú að
ástandið á fiskinum sé ekki eins
slæmt og menn vilja vera láta,"
segir hann. „En ef það á að fara
að grípa til einhverrar stöðvunar
á sókninni, þá tel ég nú engan
veginn rétt að vera að bæta við
flotann í sömu andránni."
— Hvað hefur þú fyrir þér í því
sem þú segir um ástand fisksins?
„Ég á við það, að þótt fiskurinn
hafi ntinnkað við suðvesturhornið
þá er ýmislegt annars staðar sem
bendir ti! þess, að ytri skilyrði
eins og hitastig sjávar, straumar
og æti hafi sitt að segja. Nú gerist
það hér í vor, þegar aflinn tregð-
ast syðra. að í fjöldamörg ár hafa
aðrar eins giingur af stórum
hrygmngarfiski ekki komiö inn i
firði og flóa
Og það veit ég, þó að ég hafi um
það engar tölur. að hér i Eyjafirði
er ástandið nú allt öðru vísi, en
verið hefur Sjórinn er hlýrri og
hér hefur komið mikið af þorski
iil hrygningar."
— Telur þú þá að ekki þurfi að
grípa til frekari aögeröa?
,,Kg hef þá trú að með útfærslu
landhelginnar og lokuðunt stórum
svieðum. (d'tirlitsmönnum og
skynsamlegunt s\ ieðaaðgerðum.
og svo takmörkun netafjöldans sé
þessum málum borgið, ef rétt er
staðið við þetta allt.
Kn ég undirstrika það, að flot-
inn á ekki að stækka og þegar
svæðum er lokað til friðunar, þá á
að loka þeim fyrir öllum veiðar-
færum."
— Merkir þú einhvern mun á
fiskinum eftir því, hvar togararn-
ir taka hann?
„Fiskurinn fyrir Norðurlandi
er ekkert smærri nú en verið hef-
ur i gegnum öll árin.
Hitt er, að hér áður fyrr, þegar
Halamiöin voru mest toguð, þá
stunduöu togararnir þau stðsum-
ars og fram i janúar, en þá var
fariö vestur og suöur fyrir og
haldið þar áfram i stærsta fiskin-
urn. Nú er búið að loka öllu þar
fyrir togurunum og þannig hefur
aukinni sökn verið beint á Vest-
fjarðarmiðin, sent við vitum :ð
eru smáfiskaslóðir austantil.
Þannig er ekki um það að ræða,
að fiskurinn hafi minnkað, heldur
er aukinn hlutdeild smærri fisks í
aflanum afleiðing þess, að sókn-
inni hefur verið skellt of hastar-
lega á Vestfjarðamiðin og þar við
bætist timi. sem þessi mið voru
ekki stunduð á áður."
— Telur þú aö þaö hafi veriö
gengið of rösklega fram í því aö
hanna togveiöar á ákveðnum
svæóum?
,,Já. Ég tel það ekkert fara á
milli mála og þeim mun meiri
óskynsemi I þessu öllu, að bann
yið togveiðum á þesstim sva'ðum
hefur einfaldlega þýtt aukna
netasökn á þau Þetta er mismun-
un og vafasöm friðun. ef það get-
ur með nokkru móti talist heita
það."
— Nú hefur oft veriö sagt, aö
endurnýjun logaraf lolans Itafi
veriö of mikil og of hriiö. Ilver er
þín skoóun?
,,Það hefur lengi loðað við okk-
ur Islendinga að vilja gera allt i
stökkbreytingum. Svona var þetta
með siklarflotann á sinum tima.
Þá vildi enginn sjá togara. en
nokkrir þraukuðu þó við togara-
útgerð. sem betur fer.
En það sem gerði skuttogara-
kaupin jaftt stórtæk og raunin
varð, var það, að þá var tekin upp
togaraútgerð á mörgum stöðun,
þar sem hún hafði aldrei verið
reynd áður. Svona með lauslegri
ágizkun gæti ég trúað að 16 skut-
togarar af öllum hópnum séu
gerðir út af fyrirta'kjum, sem
mega kallast gamalgróin í togara-
útgerðinni.
En togaraútgerð hefur alltaf átt
rétt á sér og mun eiga það áfram.
Við skulunt ekki gleyma þvi, að
þótt það hefði kunnað að vera
heppilegra að dreifa skuttogara-
kaupunum meira. þá hefur til-
koma þeirra valdið gjörbyltingu i
mörgum plássum
Þannig eru þær kröfur, sem
þjöðfélagið nú gerir til útgerðar-
innar orðnar anzi stór hlutur. Eg
held, að ef það ætti að stöðva
þessi atvinnutæki með einhverj-
um hætti. þá verði nú að rifa
seglin á öðrunt sviðum og það
áður en togaraflotinn er haminn,
þvi eitthvað hlýtur að hrynja, ef
dregið verður úr mögulegri verð-
mætasköpun.
En til þess að ná endum saman,
verður að reka útgerðina fast og
afla. Þetta er ekki lifsspursmál
fyrir okkur útgerðarmenn eina.
sjómennina eða fólkið, sem starf-
ar beint i fiskvinnslunni. Fiskur-
inn kemur alls staðar við."
— Nú hefur verið rætt um
óhemju smáfiskadráp togara í
áramótatúrnum. A þeim slóóum
voru togarar Útgerðarfélags
Akureyringa.
„Öjú. Og Harðbakur komst á
prent í Morgunblaðinu i þessari
dæmafáu vitleysu.
Eg hef nú svarað fyrir Harðbak,
sem kom út með um 80 króna
meðalverð á kiló. Þar föru 96%
þorsksins i fyrsta flokk og fjögur i
annan. Ysan öll og ufsinn fóru i
fyrsta flokk. Og samkvæmt mats-
miðurstöðu framleiðslueftirlits
sjávarafurða voru 48% af þorsk-
inum 75 sm og yfir, annað eins á
bilinu 54—74 sm og aðeins 4% á
bilinu 50—54 srn. Af ýsunni voru
73% 54 sm og yfir og 27% á bilinu
þaðan og niður i 40 sm.
Hjá Svalbak, sem landaði á
Húsavík. skiptist þorskurinn
þannig, að 58% voru 70 sm og
yfir, 38% á bilinu 54—70 sni og
4% frá 54 og niður i 50 sm. Af
ýsunni voru 95%, 52 snt og yfir og
5%, á bilinu 40—52 sm. Af ufsan-
um voru 63%, 80 sm og yíir og
37%, 40—52 sm.
Sölbakur landaði á Þingeyri.
Hjá honum fóru 96%, af þorskin-
Framhald á bls. 18
Fiskurinn kemur
alls staðar við