Morgunblaðið - 08.06.1977, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JUNÍ 1977.
23
hún okkur ætíð sem hin besta
amma i blíðu sem strfðu, svo til
fyrirmyndar þótti.
Langar okkur því til að þakka
hinni látnu fyrir þær samveru-
stundir sem við áttum með henni,
án þeirra hefðu unglingsárin
misst mikið af lit sinum.
Börn Unnar Sveinsdóttur.
í dag, 8. júní, fer fram frá Frí-
krikjunni í Reykjavík útför Þóru
Ágústsdóttur. Hún var fædd á Isa-
firði 10. mars 1907. Foreldrar
hennar, sem þá bjuggu þar, voru
hjónin Ágúst Guðmundsson og
Ingigerður Sigurðardóttir. Ágúst
var sonur Guðmundar bátasmiðs
Guðmundssonar og Helgu hómó-
pata Símónardóttur, sem margir
kannast við. Voru þau velþekkt
bæði tvö, hann fyrir iðn sina og
verkstæði, sem hann rak á ísa-
firði, hún fyrir störf sín sem
hómópati, en af kunnáttu hennar
og læknishæfileikum fór víða orð.
Ingigerður var dóttir Sigurðar
hafnsögumanns Sigurðssonar sem
oft var kenndur við „Steinhúsið"
í Reykjavík Þórðarsonar og konu
hans Margrétar Magnúsdóttur.
Þóra var annað barn foreldra
sinna. Eldri henni var Höskuldur
vélstjóri eg lengi stöðvarstjóri hjá
Hitaveitu Reykjavíkur, kvæntur
Áslaugu Ásgeirstóttur. En yngri
voru: Margrét, g. Einari Guð-
mundssyni gjaldkera í Hamri h/f;
Steinunn, g. Þóri Kjartanssyni
lögfr. og bankafulltrúa í Lands-
banka Islands; Nanna, g. Ás-
munda Sigurðssyni iðnrekanda í
Reykjavík; Ágústa, g. Ástmundi
Guðmundssyni, framkv.stjóra í
Stálsmiðjunni h.f., og Guðmund-
ur bakari og skákmeistari, kv.
Þuríði Þórarinsdóttur. Öll syst-
kini Þóru eru á lífi og búsett í
Reykjavík eða nágrenni. Tvær
systur hennar, Nanna og Stein-
unn, eru fyrir stuttu orðnar ekkj-
ur.
1 spönsku veikinni 1918 lést
Ingigerður, en þá voru þau hjón
flutt til Reykjavikur. Skömmu
siðar leystist heimilið upp og fóru
börnin þá til frændfólks og vina,
og var þáttur Steinunnar móður-
systur þeirra í Sveinsbakaríi þar
stærstur og verður hennar fram-
lag og aðhlynning aldrei fullmet-
in fyrir þessa fjölskyldu.
6. jan. 1927 giftist Þóra eftirlif-
andi manni sínum Karli Ó. Jóns-
syni. Karl var uppalinn i vestur-
bænum og voru foreldrar hans
Elísabet Bjarnadóttir og Jón Guð-
mundsson stýrimaður, en þau
bjuggu lengi í Péturshúsi við
Bræðraborgarstig.
Karl gerðist snemma sjómaður.
En hugur hans stóð til nokkurra
mennta og eftir giftinguna og eft-
ir að fyrsta barn þeirra var fætt,
ákvað Karl að ganga í Stýri-
mannaskólann. Segir það sig
sjálft, að þó nokkrir góðir vinir,
aðallega foreldrar Karls, hjálp-
uðu þeim þá var það erfitt ungum
hjónum á þeim tíma að klára slik-
an áfanga. En þar átti Þóra, hin
unga húsmóðir, sinn stóra þátt.
Hún var sparsöm, nægjusöm og
sívinnandi og lagði mikið á sig til
að gera þennan draum manns síns
að veruleika.
Strax og náminu lauk — en þá
voru börnin orðin tvö — fór Karl
á sjóinn. Hann fékk fljótlega
pláss sem stýrimaður með af-
bragðs skipstjóra og þess var ekki
langt að biða að hann fékk skip og
varð skipstjóri. Hann sigldi öll
stríðsárin, var fengsæll og farsæll
skipstjóri og hafði marga góða
sjómenn, sem með honum unnu í
áraraðir.
Lifsferill Þóru Ágústsdóttur er
á ytra borði líkur ferli fjölda ann-
arra kvenna, er unnið hafa störf
sín á hljóðlátan hátt á islenskum
heimilum, sivinnandi alltaf þegar
tækifæri gafst.
Lifsbaráttan var ströng fram
eftir árum, en þegar um hægðist
fann Þóra sér önnur og ný verk-
efni.
Börn þeirra Þóru og Karls eru
fjögur, Ingigerður húsfrú, Valdi-
mar stýrimaður, Karl vélstjóri og
Jón Þór sjómaður, öll búsett i
Reykjavík. Eftir að þau komust á
legg, hélt Þóra áfram að hjálpa
þeim og barnabörnunum. Alltaf
var hún sívinnandi og mörgum
rétti hún hjálparhönd, ekki að-
eins sínum heldur fjölda af fólki,
Framhald á bls. 18
Ljðsm. RAX.
Baldvin Ottósson lögregluþjónn ásamt hóp af fimm og sex ára börnum, sem fylgdust spennt með
brúðuleikritinu f Vogaskóla I gær.
Umferðarfræðsla
í brúðuleikhúsi...
UMFERÐAFRÆÐSLA á veg-
um lögreglunnar og umferðar-
nefndar fyrir börn á aldrinum
fimm til sex ára hefur nú hafið
gang sinn í barnaskólum
Reykjavfkurborgar og lýkur
henni f enda þessa mánaðar.
Það er Baldvin Ottósson, sem
hefur yfirumsjón með þessari
fræðslu, en honum til aðstoðar
eru tveir aðrir lögregluþjónar
og tvær fóstrur. Er þetta f nf-
unda sinn, sem fræðsla sem
þessi er veitt og jafnframt í
fjórða sinn, sem Baldvin Ottós-
son hefur hana með höndum.
I fyrradag hófst hún í Fella-
skóla og Vogaskóla. Þar mættu
börnin, fengu verkefni til að
leysa, síðan var þeim sýnt
brúðuleikrit og á eftir kvik-
mynd í léttum dúr. Er fræðslan
endurtekin tvisvar f hverjum
skóla.
Sagði Baldvin að umferðar-
fræðslan yrði í tólf barnaskól-
um í Reykjavík. Hefði hún gef-
ið svo góða raun undanfarin ár,
aó sami hátturinn hefði verið
tekinn upp í nágrannabyggðum
Reykjavíkur, Akureyri og víð-
ar.
Sjómanna-
dagurinn
á Húsavík
Á Húsavfk gátu hátfðahöld
sjómannadagsins ekki farið fram
samkvæmt dagskrá vegna óhag-
stæðs veðurs, en heiðraðir voru
aldraðir sjómenn, þeir Þórhallur
Karlsson, Sigtryggur Jónsson,
Stefán og Þór Péturssynir. Eru
þetta allt þekktir menn í íslenzkri
sjómannastétt, m.a. fyrir það að
hafa sótt vertfðir frá Ilúsavík til
Sandgerðis í milli 20 og 30 ár og
róið frá Sandgerði á vetrarvertfð
og oft verið þar aflakóngar, þeir
Þórhallur og Stefán.
Landsbankabáturinn er ný
verðlaunaafhending á sjómanna-
daginn á Húsavík. Báturinn er
farandgripur í 5 ár og hlýtur til
varðveizlu í eitt ár sá bátur, sem
hæsta meðalverð fær á innlagðan
fisk á Húsavík og stundar róðra
allt árið. I fyrsta skipti vann
bátinn mb. Sæborg og var meðal-
verð hjá henni 53,36 kr. f. kílóið.
Næst var Fanney með 53,04 kr. pr
kg. og þriðji Grímur, en lægsta
meðalverð hjá þeim sem til greina
kom við úthlutun verðlaunanna
var 47.35 kr. Fréllaritari.
Manns saknað
á Blönduósi
UNGS manns frá Blönduósi hefur
verið saknað sfðan á föstudags-
kvöld og hafa leitarflokkar leitað
mannsins um helgina. Talið er að
maðurinn hafi farið frá landi á
árabát, en báturinn hefur fundist
rekinn og önnur árin. Leit verður
haldið áfram í dag.
51 stúdent frá Öldungadeild MH
Prestkosningar
PRESTKOSNINGAR voru í
þremur prestaköllum úti á landi
um helgina, í Vallanesprestakalli
á Héraði, Hálsprestakalli f
Fnjóskadal og Bólstaðarpresta-
kalli í Húnavatnssýslu. Einn
prestur var í kjöri á hverjum stað,
Hjálmar Jónsson i Bólstað, sr.
Vigfús Ingvar Ingvarsson í Valla-
nesi og sr. Pétur Þórarinsson í
Hálsprestakalli, en þeir höfðu áð-
ur allir verið settir til að gegna
þessum brauðum. Talið verður á
skrifstofu biskups nk. fimmtu-
dag.
Leiðrétting
I GREINUM Jakobs Magnússonar
um karfann og ufsann í sunnu-
dagsblaðinu urðu tvær prent-
villur. 1 greininni um karfann
segir að áður en þetta ár verði
liðið muni V-Þjóðverjar væntan-
lega hverfa af íslandsmiðum, en
að karfaafli annarra þjóða sé
verulegur, en á að sjálfsögðu að
vera óverulegur. 1 greininni um
ufsann segir að ufsaaflinn hafi
verið kominn niður í 79 þúsund
tonn árið 1974, en þar á að standa
1976.
Þorlákshöfn 6. júní.
IIÁTlÐAIIÖLD f tilefni sjó-
mannadagsins hófust laugardag-
inn 4. júnf kl. 15 með björgunar-
æfingu við höfnina. Þar var einn-
ig koddaslagur og sfðan farin
skemmtisigling með bátunum.
Um kvöldið var stiginn dans f
félagsheimilinu með hljómsveit
Gissurar Geirs.
Á sjálfan sjómannadaginn hinn
5. júni hófst dagskráin með skrúð-
göngu frá Suðurvararbryggju að
Barnaskólanum, en þar var guðs-
þjónusta kl. 14. Sóknarpresturinn
sr. Tómas Guðmundsson prédik-
ÖLDUNGADEILD
Menntaskólans við Hamra-
hlíð var slitið 27. maí sl.
Tæplega 600 manns höfðu
skráö sig til náms á sl.
aði og Söngfélag Þorlákshafnar
söng. Siðar um daginn fóru fram
leikir, reiptog og íþróttir á
íþróttavelli Barnaskólans. Klukk-
ap 15 var svo hin árlega kaffisala
slysavarnakvenna til ágóða fyrir
starfsemi slysavarnadeildarinnar
Mannbjörg, Þorlákshöfn. Merki
dagsins voru seld. Að þessu sinni
og einnig i fyrra stóðu að hátíða-
höldum sjómannadagsins auk
slysavarnadeildarinnar, sem ann-
ast hafði þau til þess tíma, Lions-
klúbburinn og Bátaútvegsfélag
Þorlákshafnar. Hátíðahöld þessi
fóru mjög vel fram og voru öllum
hausti og gengu 420 til
prófs nú í lok voranna. Að
sögn Hjálmars Ólafssonar,
konrektors skólans, er ljóst
að fólki í yngrí aldursflokk-
til sóma sem að þeim stóðu. Veður
var gott en heldur kalt.
Það má geta þess hér i leiðinni,
þó seint sé, að á sjómannadaginn i
fyrra gaf útgerðarfélagið Meitill-
inn hf. Þorlákshöfn slysavarna-
deildinni 100 þúsund krónur og
Lionsklúbburinn gaf henni 80
þúsund krónur. Þessar höfðing-
legu gjafir komu sér alveg sér-
staklega vel þar sem björgunar-
bátur deildarinnar var orðinn vél-
vana, og gjafirnar urðu til þess að
hægt var að kaupa nýja vél.
Ragnheiður
um í deildinni er að fjölga.
Fjölmennastir eru nú nem-
endur á aldrinum 21 til 30
ára en lágmarksaldur til
inngöngu í deildina er 21
ár.
Alls hafa nú 174 stúdentar, 122
konur og 52 karlar, brautskráðst
úr deildinni frá upphafi en fyrstu
stúdentarnir voru útskrifaðir vor-
ið 1974.
Að þessu sinni skiptust
stúdentarnir þannig eftir sviðum,
á félagsmálasviði 26, náttúrusviði
12, á nýmálasviði 12, á eðlissviði 1
og fornmálasviði 1. Einn nem-
andi, Birgitte Spur Ölafsson, lauk
námi á tveimur sviðum, fornmála-
og nýmálasviði. Bókaverðlaun
voru veitt fyrir góðan námsárang-
ur i einstökum greinum. Bestum
árangri á stúdentsprófi náði
Ragnheiður Ragnarsdóttir á
félagssviði. Þegar eru skráðir á
sjötta hundrað nemendur á næstu
önn. Fleiri kennarar úr unglinga-
deild skólans kenndu nú við öld-
ungsdeildina en áður eða 38 af 42
sem kenndu í deildinni nú á vor-
önn.
Hefðbundin hátíðahöld á sjó-
mannadaginn í Þorlákshöfn