Morgunblaðið - 08.06.1977, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JUNl 1977.
29
B W 'k " A)
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10—11
FRÁ MANUDEGI
‘fwijjyVTm-aM'uu
Tónleikar í Keflavík
mfnútur f nfu, Lúðrasveit Reykja-
vfkur leikur Öxar viö ána. Þetta
lag er eftir Helga Helgason sem
var iðnaðarmaður og tónskáld f
Reykjavík á öldinni sem leið, og
tók virkan þátt i tónlistarlifi.
Margur minnist þess að hafa séð
mynd af lúðraflokki, sem leikur
við Öxará á Þingvöllum. Þetta lag
er við ljóð Steingríms Thorsteins-
sonar sem orkt var til þjóðliðsins
sem hafði afskipti af málum hér á
öldinni sem leið. — öxar við ána
árdags i ljóma upp rfsi þjóðlið og
skipist f sveit.“ Lagið.
Um þessar mundir mun
Straumsvfkurþjóðliðið hafa verið
komið á vettvang við gönguupp-
haf og hefði nú mátt búast við því
að þó nokkur stemmning hefði nú
þegar náðst með aðstoð Mósesar
gamla, og þar á eftir Lúðrasveitar
Reykjavíkur með „Öxar við ána“,
en það var eins og í loftinu lægi
að betur skyldi ef duga skyldi.
Þótti nú ekkert minna duga en að
aumingja Guðmundur Jónsson
með Karlakór Reykjavíkur eins
og hann leggur sig kæmi fram á
sviðið:
Þulur: „Það voru hraustir
menn sem söfnuðust saman á
Þingvöllum í sinni tið, hér er lika
sungið um hrausta menn:
Guðmundur Jónsson og Karlakór
Reykjavíkur syngja Hraustir
Og brátt mundi marséringarleið
hins hrausta þjóðliðs vorra tíma
liggja um hinn fagra bæ Hafnar-
fjörð:
Þulur: „Það eru líka hraustir
menn í næsta flokki sem Ieikur
fyrir okkur. Þetta er Lúðrasveit
Hafnarfjarðar sem leikur undir
stjórn Hans Clauder, og lagið er
Hafnarf jörður eftir Friðrik
Bjarnason.. ..“(Lagið).
Eftir þetta kynnti þulur að
morgunleikfimi yrði eftir þrjár
mínútur, lék lagið Litla stúlkan,
en þar á eftir kom morgunleik-
fimin sjálf, siðan fréttir og þá
tilkynningar, — allt áróðurslaust
nema að sjálfsögðu undirspilið að
þular-þulunni, íréttirnar og til-
kynningarnar, en það efni verður
ef til vill tíundað seinna.
Það sem nú var eftir af morgun-
útvarpi reyndist vera, auk enn
frekari frétta og tilkynninga með
tilheyrandi og framhaldandi
gönguáróðri, — þáttur Kristínar
Sveinbjörnsdóttur, óskalög
sjúklinga ásamt barnatíma, sem
hvorugt hafði reynst virkjanlegt
fyrir róttæklingaáróður — og
lýkur þvi hér því sem ég kalla
grfmuklæddur áróður út-
varpsþular f þularstörfum, mælt-
um af munni fram eftir inn-
blæstri. — í þvi efni bendi ég þér
á Velvakandi góður, að í töluðum
texta þeirrar göngudagsáróðurs-
þulu sem nú hefur verið tíunduð
var aldrei einu orði minnst á
Straumsvik né hernámsand-
stæðinga (fyrirgefðu Velvakandi
góður — róttæklingar hafa upp á
siðkastið talið orðið Herstöðvar-
andstæðingar vænlegra til tagl-
hnýtingasöfnunar,) en þessi orð
þeim mun vandlegar nýtt I undir-
leiknum, sem skipulega var
fléttað inn i áróðursþuluna i
formi tilkynninga ásamt frétta-
lestri, sem eins og áður segir var í
ljúfu samræmi við afgreiðslu^
málefnisins í Þjóðviljanum
þennan dag, á meðan aðrir fjöl-
miðlar en Þjóðviljinn og Ríkisút-
varpið, minntust tæpast á
málefnið.
Að endingu þetta: Ég endurtek
að ég tel lágt metið, að 80%
íslensku þjóðárinnar sé andvig
misnotkun rikisútvarpsins, eins
og hér hefur verið tiundað. En ég
spyr: Hversu mafgir af þeim sem
þetta lesa, höfðu áður gert sér
raunverulega grein fyrir hvað hér
er á ferðinni i hreiðri rauðliða,
rikisútvarpinu stofnun allra
landsmanna?
Hvar eigum við að bera niður
næst? — Eigum við að athuga það
sem ég nefni grfmulausan rót-
tæklingaáróður ríkisútvarpsins
Straumsvikurgöngudaginn 21.
mai 1977. Af nógu er að taka.
Utvarpshlustandi."
Þessir hringdu . . .
Lipur bíl-
stjóri
97, sem ekur á leið nr. 1. Ég vil
lýsa ánægju minni yfir lipurð
hans í allri þjónustu við unga og
gamla sem fara með þessum
vagni.
% Ekki sama
hvernig vísur
börnin læra
Amma:
— Mig langar aðeins til að
hugleiða hvernig vísur það eru
sem bornar eru á borð fyrir börn-
in nú til dags, bæði á barnaheimil-
um og á plötum og vlðar. Þetta
eru oft ómerkilegar vísur, eins og
sú nýjasta t.d. sem segir á þá leið
að halda kjafti o.s.frv., en gamlar
og góðar vísur, íslenzk kvæði, sem
okkar ágætu skáld hafa ort eru
alveg að hverfa. Þetta veit ég af
eigin reynslu, þvi ég hef unnið á
barnaheimili og gæzluvöllum
sjálf og þvi held ég að það ætti að
gera meira af þvi að gefa út
plötur með visum gömlu
skáldanna, t.d. svipaða plötunni
með laginu Stóð ég úti í tungls-
ljósi, sem fyrir stuttu kom á mark-
að og hefur selst vel.
D.B.:
— Það er svo oft verið að
kvarta yfir einhverju í blöðunum
bæði í fréttunum og þessum
lesendabréfum og hringingum, en
ég ætla að gera undantekningu
frá þeirri reglu og færa fram
þakkir. Þær eiga að vera til hans
Baldurs bílstjóra S.V.R., númer
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
í POLUGAEVSKY afbrigðinu I
Sikileyjarvörn felast fjölmargar
gildrur. Gott dæmi um það er
skák þeirra Urzica og Ungureanu
sem tefld var í Rúmensku deilda-
keppninni i fyrra. Skákin tefldist
þannig: 1. e4 — c5, 2. Rf3 — d6, 3.
d4 — cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3
— a6, 6. Bg5 — e6, 7. f4 — b5, 8.
e5 — dxe5, 9. fxe5 — Dc7, 10. De2
— Rfd7, 11. 0-0-0 — Bb7, 12. Dg4
— h6??
HOGNI HREKKVÍSI
Hefur einhver áhuga á sýningunni „Gömlu
bflarnir okkar“?
SloeA V/óGÁ « VLVtKAU
ELÍSABET Erlingsdóttir söng-
kona og Guðrún Anna Kristins-
dóttir píanóleikari halda tónleika
í Félagsbiói í Keflavik í kvöld,
miðvikudagskvöld, kl. 21. Á efnis-
skránni eru fslenzk einsöngslög
eftir Árna Thorsteinsson, Fjölni
Stefánsson, Jórunni Viðar og
Karl O. Runólfsson. Einnig lög
eftir Brahms, Schubert, Richard
Strauss og Sjö sfgaunaljóð eftir
Dvorak. Aðgöngumiðar verða
seldir við innganginn.
Elfsabet Erlingsdóttir söngkona
Klippimyndir í Gallerý Súm
NÝLEGA opnaði Kristján
Kristjánsson sýningu i Gallerý
Súm á sautján klippimyndum.
Stendur sýning hans til 12. júní
og er opin frá kl. 4—8 daglega og
4—10 um helgar. Kristján
Kristjánsson er 27 ára. Hann nam
við Myndlista- og handíðaskóla Is-
lands árin 1969—1973. Kristján
hefur tekið þátt í fimm samsýn-
ingum, þ.e. á Loftinu, Skólavörðu-
stig, s.l. ár, sýningu F.J.M. á Kjar-
valsstöðum, i Sólon íslandus í
fyrra og einnig á sýningunni,
VAL ‘76, sýningu listagagnrýn-
enda. Auk þess hefur hann haldið
eina einkasýninu í Neskaupstað
1977.
Á meðfylgjandi mynd er
Kristján við eina kiippimynd
sína, sem hann kallar: Ég kem í
kvöld.
Ólöf íslands-
meistari
ÓLÖF Þráinsdóttir bar sigur úr
býtum í kvennaflokki íslands-
þingsins í skák, en keppni þar
er nýlokið. Hlaut Ólöf 4Í4 vinn-
ing af 6 mögulegum. Næst i
röðinni varð Birna Norðdahl,
Islandsmeistarinn frá i fyrra.
Þátttakendur voru 4 og var
tefld tvöföld umferð. Guðlaug
Þorsteinsdóttir, Norðurlanda-
meistari í skák, tók ekki þátt í
Íslandsþinginu að þessu sinni.
Ólöf hefur verið sigursæl á
þessu keppnistímabili, því hún
hreppti einnig Reykjavikurr
meistaratitilinn i skák.
Jóhann Hjartarson sigrar í
unglingaflokki á skákþingi
KEPPNI á Skákþingi íslands í flokki 14
ára og yngri lauk fyrir skömmu í Reykja-
vík með sigri Jóhanns Hjartarsonar Tafl-
félagi Reykjavíkur, en hann hlaut alls 8lA
vinning af 9 mögulegum. Þátttakendur á
mótinu voru 38 víðs vegar að af landinu,
en teflt var eftir Monrad-kerfi. í öðru
sæti var Jóhannes Gísli Jónsson Tafl-
félagi Reykjavíkur með 8 vinninga og
þriðji varð Gunnar Freyr Rúnarsson
einnig frá Taflfélagi Reykjavíkur með
6XA vinning.
Jóhann Hjartars.
13. Rxe6! — Dxe5 (Svartur verð-
ur mát eftir 13. .. fxe6 14. Dxe6+)
14. Re7 + ! — Dxc7, 15. De2 +
Svartur gafst upp því að eftir
15. . . Re5, 16. Dxe5 + ! — Dxe5, 17.
Hd8 er hann mát.