Morgunblaðið - 06.07.1977, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JULÍ 1977
5
„World open,, í skák:
Jón varð í
19.— 30.sæti
JON L. Árnason hafnaði I
19.—30. sæti af 365 keppendum á
World Open skákmótinu f
Philadelphia í Bandarfkjunum,
en mótinu lauk f fyrrinótt. Jón
laut 6'A vinning af 9 mögulegum,
íbúasamtök
Vesturbæjar
ÍBUASAMTÖK Vesturbæjar
gangast fyrir almennum félags-
fundi að Hallveigarstöðum f kvöld
kl. 9. Á dagskrá verða meðal ann-
ars skipulagsmál í Hafnarstræti,
græna byltingin í Grjótaþorpi og
stofnun vinnuhópa.
Ibúasamtök Vesturbæjar, segir
i fréttatilkynningu frá þeim, eru
opin öllum sem stuðla vilja að
stefnumiðum þeirra.
Þjófur úrskurð-
aður í 60 daga
gæzluvarðhald
LIÐLEGA tvítugur piltur var úr-
skurðaður í allt að 60 daga gæzlu-
varðhald fyrir helgi, grunaður um
fjölmörg innbrot i mannlausar
ibúðir og fleiri þjófnaði. Mál hans
er til rannsóknar hjá Rannsóknar-
lögreglu ríkisins og er málið á
frumstigi.
en sigurvegararnir, Henley og
Sedorovich, báðir Iftt þekktir
skákmenn, hlutu 8 vinninga hvor.
í tveimur siðustu umferðum
fékk Jón l'A vinning. Hann sigr-
aði Bandarikjamann að nafni
Begley og gerði jafntefli við einn
efnilegasta skákmann Bandarikj-
anna, Regan að nafni. Jón sagði i
samtali við Mbl. i gær, að þetta
hefði verið mjög erfitt mót, tvær
skákir á dag og engin hvíld. Einn-
ig hefðu þátttakendur verið alltof
margir og hefðu þvi sumir siglt i
gegnum mótið án þess nokkurn
tíma að lenda gegn sterkum and-
stæðingi. Aðeins þrir stórmeist-
arar tóku þátt I mótinu, Laine,
Bandarikjunum, Shamkovic,
Israel, og Bisguier, Bandarikj-
unum.
Helgi Ölafsson keppti á þessu
sama móti i fyrra og hreppti þá
lika 6'A vinning.
Bifreið
stolið
BIFREIÐINNI R-42170 var stolið
aðfararnótt 1. júlí s.l. þar sem hún
stóð við Skúlagötu. Bifreiðin er af
Ford Cortinagerð, árgerð 1970
gulbrún með svörtum vinil-toppi.
Þeir, sem geta veitt upplýsingar
um það hvar bifreiðin er nú nið-
urkomin, eru beðnir að hafa sam-
band við lögregluna i Reykjavík.
Elliðaárnar:
10% veiddra laxa
2ja ára fiskur
úr Kollafirði
MJÖG athyglisverðar heimtur
hafa í sumar orðið á laxaseiðum
úr Kollafjarðarstöðinni, sem
sleppt var úr sleppitjörn við Ell-
iðaárnar vorið 1975. Af 140 löx-
um, sem veiðzt höfðu i ánum 3.
júli s.l., voru 15 laxar merktir
örmerkjum úr Kollafjarðarstöð-
inni, sem þannig höfðu verið 2. ár
í sjó og voru að meðaltali 1 l'A
pund að þyngd. Hins vegar virö-
ast örfá Elliðaárseiða dveljast 2 ár
í sjó, en um 25% merktra niður-
gönguseiða úr ánum 1975 skiluðu
sér sem smálax á s.l. sumri. Eini
Elliðaárlaxinn, sem hefur skilað
sér i ár frá merkingu 1975, var 5
punda lax 61 cm á lengd, en hann
hafði hrygnt í ánum i fyrra,
greinilega sem örlítill fiskur, og
var nú að koma i annað sinn.
Þessar upplýsingar fékk Mbl. hjá
Árna Isakssyni, fiskifræðingi hjá
Veiðimálastofnun.
Rannsóknarlögregl-
unni skipt
RANNSÖKNARLÖGREGLU
ríkisins hefur nú verið skipt i
deildir og mun hver þeirra sjá um
tiltekna málaflokka. Þannig mun
t.d. ákveðin deild sjá um allar
rannsóknir alvarlegustu mála svo
sem morð- og manndrápsmála.
Yfirstjórn deildanna hafa lög-
lærðir fulltrúar við Rannsóknar-
lögregluna. Að sögn Hallvarðs
í deildir
Einvarðssonar rannsóknarlög-
reglustjóra er verið að fikra sig
áfram með hentugasta skipulag
og sagði hann að einhverjar
breytingar kynnu að verða gerðar
á fyrirkomulaginu ef reynslan
leiddi í ljós einhverja vankanta.
Ennfremur yrðu starfsmenn
fluttir milli deilda ef þurfa þætti.
Flugleiðir með vikulegt
flug til Gautaborgar
FLUGLEIÐIR hafa 'akveðið að
hefja vikulegt flug til Gautaborg-
ar með tilkomu vetraráætlunar,
að því er segir í Flugfréttum,
starfsmannablaði Flugleiða. Flog-
ið verður til Gautaborgar um
Kaupmannahöfn með brottför frá
Keflavík kl. 08.30 að morgni
laugardags og flugi heim beint
sama dag. Ákveðið er :ð nota
Boeing 727 til þessara ferða.
Þess má geta að Loftleiðir flugu
til Gautaborgar um tíma, en þær
ferðir lögðust niður fyrir
nokkrum árum.
Edda að lesta ( Reykjavfk I gær, en Mávurinn er alveg eins.
Ljósmynd Mb.. Kristinn.
Tvö ný skipafélög:
Kæliskipin Mávurinn og Edda
FLUTNINGASKIPIÐ Edda er nú
að lesta saltfisk I Rcykjavfk, sem
Edda er f eigu nýs skipafélags,
Skipafélagsins Isafoldar h.f. f
Reykjavfk, en það er f eigu 6
manna.
Edda er 12 ára gamalt skip,
1700 tonna kæliskip, keypt frá
Spáni. Systurskip Eddu, Mávur-
inn, er einnig í eigu nýs íslenzks
skipafélags, Pólarskips h.f. á
Hvammstanga, en það er i eigu 11
manna frá Hvammstanga, Akur-
eyri, Siglufirði og Reykjavík.
Skipamiðlun Gunnars Guðjóns-
sonar sér um rekstur skipanna.
Hvort skip kostaði 180 millj. kr.
Mávurinn er um þessar mundir
að losa saltfisk fyrir Norðmenn i
Angola, en er síðan væntanlegur
til íslands í fyrsta sinn um n.k.
mánaðarmót. Bæði skipin hafa
fram til þessa verið i ávaxtaflutn-
ingum erlendis siðan islenzkir að-
ilar keyptu þau.
Sáttafimdir
YFIRMENN og undirmenn á
fiskskipaflotanum sátu í gær á
sáttafundi með útgerðarmönnum,
en þeir vinna saman að samning-
um nú. Hins vegar eru yfirmenn
og undirmenn ekki sameiginlega
í viðræðum við fulltrúa farskip-
anna og eru yfirmenn boðaðir á
fnnH hiá sáttasemjara f dag
klukkan 10 og undirmenn klukk-
an 14.
Blaðamenn áttu fund með
blaðaútgefendum i gærmorgun,
en þetta var fyrsti fundur deilu-
aðila eftir 10 vikna hlé á sarfin-
ingaviðræðum. Fundurinn stóð i
tvær klukkustundir og hefur nýr
fundur verið boðaður á morgun,
fimmtudag, klukkan 10 árdegis.
Samninganefnd þeirra 13
verkalýðsfélaga, sem semur fyrir
starfsfólk ríkisverksmiðjanna og
Kisiliðjunnar við Mývath, hefur
ekki verið boðuð á fund með við-
semjendum sinum frá þvi 29.
júní. Hefur enn ekki verið ákveð-
ið hvenær deiluaðilar híttist. Hið
sama er að segja um múrara,
pipulagningamenn og veggfóðr-
ara. Siðasti samningafundur með
þeim var haldinn 27. júni.
Austurstræti 10
simi: