Morgunblaðið - 06.07.1977, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JULl 1977
17
Skák — Skák — Skák — Skák
Korchnoi tefldi
djarft og sigraði
Hvftt: Lev Polugaevsky
Svart: Viktor Korcnoi
Drottningarindversk vörn.
1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rf3
— b6,4. g3
(1 1. einvigisskák þeirra
Spasskys og Portisch lék sá
fyrrnefndi hér 4. Rc3 sem leiðir
til flóknari stöðu. Friðrik Ólafs-
son leikur hér oft 4. a3 — Bb7,
5. Bg5 sem leiðir til skemmti-
legra sviptinga)
Bb7, 5. Bg2 — Be7, 6. 0-0 — 0-0
7. Rc3 — Re4, 8. Dc2
(Polugaevsky leikur ávallt
þessum leik i stöðunni. A síðari
hefur 8. Bd2 öðlast þó sifellt
meiri vinsældir)
Rxc3, 9. Dxc3 — f5
(ÖUu algengari leikur í þessari
stöðu er 9... c5 sbr. 11. einvígis-
skák þeirra Polugaevskys og
Meckings í vor. Korchnoi kann
hins vegar sjaldan við sig á
alfaraleið og velur þvi annan
eldri og lítt þekktari leik.)
10. b3
(Eftir 10. d5!? — Bf6 er staðan
öllu tvísýnni. Skiljanlegt er að
Polugaevsky vilji sneiða hjá
flækjum. Þar fylgir hann þeirri
reglu Laskers, „að ávallt skuli
tefla til jafnteflis eftir tap“.)
Bf6,11. Bb2 — Rc6!?
(Korchnoi er greinilega í
baráttuhug. Annars hefði hann
látið sér nægja að jafna taflið
með 11... d6, 12. Hadl — De7,
en þannig tefldist 21. einvígis-
skák þeirra Tals og Botvinniks
árið 1960.)
12. Hadl — Re7
(Svartur flytur lið sitt yfir á
kóngsvæng, þvi að þar ætlar
hann að leggja til atlögu)
13. Rel — Bxg2,14. Rxg2
(Dæmigert fyrir Korchnoi.
Hann reynir að hrifsa til sin
frumkvæðið, I stað þess að
koma til móts við hægfara tafl-
mennsku andstæðingsins og
gera stutt jafntefli.)
15. Dc2 — Rg6,16. e4
(Hvítur verður að sprengja upp
sjálfur, því að ekki getur hann
beðið eftir 16... De7 fylgt eftir
af h7-h5-h4)
f4,17. e5
(Hvitur átti einnig völ á þvi að
leika hér 17. f3. Framhaldið
gæti orðið 17... De7, 18. g4 —
Kf7, 19. Kf2 — Hh8 og svartur
getur ráðið hvenær hann opnar
h-linuna með h7-h5)
Bg7,18. De4 — De7
(En auðvitað ekki 18... f3?, 19.
Rel og peðið fellur)
19. Hd3
(Hvítur hefur talið nauðsyn-
legt að hindra 19... f3. Eftir 19.
Hel — f3, 20. Re3 er Rf4!?
mögulegt. Framhaldið gæti orð-
ió: 21. Rg4 — Dg5, 22. Dxf3 —
h5, 23. h3 — Kh7, 24. Kfl —
hxg4, 25. Dxg4 — Dh6 og svart-
ur hefur mótspil fyrir peðið.)
Had8, 20. Hel — d5!, 21. exd6
(Eftir 21. cxd5 — Hxd5 er það
hvitur sem hefur aila helstu
veikleikana I stöðunni)
Dxd6, 22. Hedl
(Slæmt var 22. Dxe6+ — Dxe6,
23. Hxe6 vegna 23... c5, 24. He4
— Re5! og svartur hefur yfir-
höndina)
De7, 23. Rel — Df6,24. Hld2
(Leikið til að hindra 24... c5,
og valda f-peðið.)
Df5,25. Dxf5?
(Rangt stöðumat. Rétt var 25.
De2)
exf5!
(Svörtu peðin á kóngsvæng
verða nú geysisterk)
—ip 'ipp— s*
4 4 A 4
4 £ £ 'ii
8§£®Í21§
aB S m m
li §á
26. Rg2 — g4, 27. Rxf4 — Rxf4
28. gxf4 — Bh6, 29. He2 —
Bxf4, 30. He6
(Engu betra var 30. f3 — Hfe8,
Framhaid á bls. 18
Stutt en ekki
tilþrifalaust
jafntefli
Hvítt: Lajos Portisch
Svart: Boris Spassky
Tarrasch vörn
1. d4 — d5, 2. c4 — e6, 3. Rc3
— c5
(Tarraschvörn. Eftir 3 ... Rf6,
4. Bg5 kemur upp hefðbundið
drottningarbragð)
4. cxd5 — exd5, 5. Rf3 — Rc6,
6. g3
(Schlechter-Rubinstein af-
brigðið)
Rf6, 7. Bg2 — Be7, 8. 0-0 — 0-0,
9. Bg5
(Hér er leikur A-þýski stór-
meistarinn Uhlmann jafnan 9.
b3; meðgóðum árangri)
c!?
(Algengara er hér ... cxd4 eða
9 . . Be6)
10. Re5 — Be6,11. Rxc6
(I skákinni FIohr-Maroczy í
London 1932 lék hvitur hér 11.
Rxc!? og fékk betri stöðu eftsir
11.. dxc4, 12. bxf6 — Bxf6, 13.
d5 — Bd7?!, 14. dxc6 — Bxc6,
15. Bxc6 — Bxc6,16. Dc2)
12. b3 —Da5, 13. Ra4 — Hfd8,
14. Dc2
(Eftir 14. bxc4 bxc4 hótar svart-
ur bæði 15.. .Dxg5 og 15.. ,c5)
Hac8,15. Bxf6
(Sovéski stórmeistarinn
Tukmakov stingur hér upp á
15. Hfdl — c5, 16. Bd2 og teiur
stöðuna tvisýna, en eftir
16.. .Da6 virðist svartur standa
betur að vigi) Bxf6,16. Rc5
Bxd4! (Með þessari snjöllu
skiptamunsfórn jafnar svartur
taflið. Eftir 16. , .Dc7, 17. e3
stendur hvítur greiniiega bet-
ur)
17. Rb7 — Db6, 18. Rxd8 —
Hxd8
(En ails ekki 18. . Bxal?, 19.
Rxe6)
19. bxc4
(Nú leysist skákin upp i jafn-
tefli. Eftir 19. Habl — c3, 20. e3
— Bf6, 21. b4 er tafiið tvisýnt,
en staða svarts er áreiðanlega
ekki síðri.)
Bxal, 20. cxd5 Jafntefli.
Moon sendiráðsritari, Han sendiherra og Helgi Agústsson, blaðafulltrúi utanríkisráðuneytisins, á
fundi með fréttamönnum. Ijósm. Rax.
„Finnum illa fyrir
200 mílna útfærsl-
unni í heiminum”
r
—segir Sang Kook Han, sendiherra S-Kóreu á Islandi
SANG Kook Han, sendiherra
S-Kóreu á Islandi með aðsetri í
Ösló, var hér á landi í heimsókn
í vikunni til viðra*ðna við is-
lenzka embadtismenn, og sagði
þá I stuttu samtali við Morgun-
blaðið, að stöðugt væri unnið að
þvi að auka viðskiptatengsl
landanna og á öðrum sviðum.
Hann sagði, að á s.l. ári hefðu
Islendingar keypt vörur af S-
Kóreumönnum fyrir um 150
milljónir króna, veiðarfæri,
kaðla, vefnaðarvörur og nokkr-
ar aðrar tegundir, en S-
Kóreumenn keypt þorskalýsi
og grásleppuhrogn, þótt ekki
hefði það verið í jafn ríkum
mæli. Sendiherrann sem hing-
að kom, ásamt Moon sendiráðs-
ritara, sagðist vona að hægt
yrði að auka þessi viðskipti, og
að ýmislegt væri í bígerð í því
sambandi. Haraldur Ólafsson,
forstjóri Fálkans og ræðismað-
ur S-Kóreu á tslandi, hefði ný-
lega heimsótt S-Kóreu og ræðis-
maður lslands i Seoul væri
væntanlegur hingað í sumar.
H:nn sagði að samskipti Ís-
lands og S-Kóreu á alþjóðasviði
hefðu verið mjög vinsamleg og
það væri Ijúf skylda sín að
koma til lslands til að vinna að
áframhaldandi þróun á þeirri
braut.
Er talið snérist að hafréttar
og fiskveiðimálum sagði sendi-
herrann að S-Kóreumenn hefðu
ekki fært sina fiskveiðilögsögu
úr 12 mílum, og biðu átekta
eftir niðurstöðum hafréttarráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna.
Hins vegar sagði hann að út-
færsla hinna ýmsu þjóða heims
hefðu haft mjög alvarleg áhrif
á fiskveiðar og fiskvinnslu i S-
Kóreu, einkum vegna útfærslu
Sovétríkjanna og Bandarikj-
anna. Af 2.1 milljón lesta árs-
afla 1975 veiddi úthafsfloti S-
Kóreu 565 þúsund lestir á fjar-
lægum miðum. Um 1200 þús.
lestir fengust á heimamiðum og
nálægum miðum og 351 þús. 1.
var framleiðsla sjávarbúskaps,
þang, rækja, krabbategundir og
annað, og sagði hann að fisk-
veiðar og fiskvinnsla væru
mjög mikilvægur þáttur i efna-
hagslífi þjóðarinnar, sem um
6% vinnufærs fólks starfaði
við. S-Kóreumenn hefðu m.a.
brugðizt við þessum breyttu að-
stæðum með þvi að ganga til
samstarfs við bandarisk fyrir-
tæki um útgerð og fiskvinnslu.
Aðspurður um ástandið í
efnahagsmálum S-Köreu sagði
sendiherrann að S-Kóreumenn
hefðu sloppið vel við efnahags-
kreppuna, sem kom i kjölfar
olíuverðshækkunarinnar og ár-
ið eftir þá hækkun hefði hag-
vöxtur i landinu verið 7% á
sama tima og flestar þjóðir
hefðu orðið að lifa án hagvaxtar
eða við samdrátt. Verðbólga í
landinu væri um 10% á árs-
grundvelli og hagvöxtur s.l. 10
ár um 10% að meðaltali. Japan
og Bandarikin væru stærstu
viðskiptalönd S-Kóreu, en við-
skipti við V-Evrópu færu nú
mjög í vöxt. Han sendiherra
sagði að nú væri hafið 1. ár
fjórðu 5 ára efnahagsáætlunar
landsmanna og ætti á næstu
árum að leggja höfuðáherzlu á
uppbyggingu v véla- og þunga-
vinnuvélaiðnaðar ásamt efna-
iðnaði. Skipasmiðar S-
Kóreumanna væru að verða
einn mikilvægasti iðnaður
landsmanna og gætu þeir nú
smíðað oliuskip allt að 1 milljón
brúttólesta og væru S-
Kóreumenn nú mjög sam-
keppnisfærir við Japani, þar
sem laun i Japan hefðu hækkað
miklu meira en í S-Kóreu.
Er sendiherran var spurður
um fyrir hugaðan brottfluting á
landherafla Bandarfkjamanna
frá S-Kóreu svaraði hann þvi til
að þetta ylli mönnum nokkrum
áhyggjum. Þótt S-Kóreumenn
hefðu yfir 600 þúsund manna
herafla að ráða, og herlið
Bandaríkjanna næmi aðeins
um 30 þús. manns, litu S-
Kóreumenn á dvöl bandaríska
herliðsins sem mikilvægt fyrir-
Framhald á bls. 18
r,--------
Fru
þeir að
fá 'ann
•?
■
langa a myrum
Mjög góð veiði hefur verið
undanfarið á neðsta svæði
Langár og feikna ganga í ána i
stóra straumnum. Á þriðjudag
höfðu um 700 laxar gengið upp
laxatiginn í Skuggafossi og tals-
vert af fiski gengur alltaf upp
sjálfan fossinn. Hins vegar er
laxinn nú fyrst að komast upp á
efra svæðið og höfðu t.d. aðeins
20 laxar veiðzt fyrir landi
Jarðlangsstaða, Háhóls og
Hvítsstaða og svipað í Stangar-
holti og innan við 10 fiskar á
svæðum Grenja og Litla-Fjalls.
Alls munu um 200 laxar vera
komnir úr Langá frá 15. júni.
Veitt er með 12 stöngum.
IÐA
Ekki höfum við nákvæmar
fréttir af veiði í Iðu en sl.
laugardag fékk Þorgeir Jóns-
son prentari 22 punda hæng á
Butcherflugu á mótum Hvitár
og Stóru-Laxár. Landaði hann
laxinum eftir 40 mínútna viður-
eign með aðstoð föóur sins,
Jóns Egilssonar, sem i fyrra
fékk 23 punda flugulax á sömu
slóóum.
LAXAIAÐALDAL
Veiði í Laxá hefur verið með
eindæmum góó og i fyrrakvöld
voru kornnir 420—430 laxar úr
ánni. sem er um helmingi
meira en á sama tíma í fyrra.
Höfuðborgin:
Ekkert lát
á slysum og
árekstrum
EKKERT lát virðist á slysum og
árekstrum i höfuðborginni. Yfir
30 umferðaróhöpp urðu i fyrra-
dag, þar af urðu 4 slys ög um
kvöldmatarleytið í gær höfðu orð-
ið 20 árekstrar i höfuðborginni og
ein bilvelta. I einum árekstrinum
i gær slasaðist stúlka, sem var
farþegi i bíl, sem lenti i árekstri
við annan bil á mótum Túngötu
og Garðastrætis. Gerðist þetta
laust eftir klukkan 11 í gærmorg-
un.
Þá valt jeppabill i Borgartúni
i gærmorgun. Tveir menn voru í
bilnum og sakaði hvorugan. Grun-
ur leikur á því að ökumaðurinn
hafi verið ölvaður.