Morgunblaðið - 06.07.1977, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JULI 1977
31
"-'í '
Þeir eiga góða möguleika. Mynd þessi er úr ieik Vais og ÍA á Akranesi á sunnudaginn og sýnir þá
Guðmund Þorbjörnsson og Guðjón Þórðarson I baráttu um knöttinn. Bæði Akurnesingar og Valsmenn
eiga góða möguleika á að komast áfram í Evrópubikarkeppninni að þessu sinni, svo og Framarar.
fill íslenzku liðin eiga
möguleika á að komast
áfram í Evrópubikarnum
t FYRSTA sinn síðan fslenzk lið hófu þátttöku f Evrópubikarkeppn-
inni má telja að góðir möguleikar séu á þvf að þeim takist að komast
áfram f aðra umferð. Þegar dregið var um hvaða lið eiga að leika
saman í fyrstu umferð keppninnar f höfuðstöðvum UEFA f Zurich f
Sviss f gær, voru öll fslenzku liðin þrjú sem taka þátt f Evrópubikar-
keppninni heppin að því leyti að að þau drógust á móti liðum sem þau
ættu að eiga f fullu tré við. Islandsmeistarar Vals eiga að leika við
norður-frska liðið Glentoran frá Belfast f meistaraliðakeppninni,
Akurnesingar sem leika f bikarhafakeppninni drógust á móti Brann
frá Bergen f Noregi og Framarar sem taka þátt f UEFA—bikarkeppn-
inni drógust á móti Start frá Kristiansand f Noregi.
Glasgow Rangers og Yong Boy frá
Sviss. Má ætla að Glasgow Rang-
ers hafi betur í þeim leik og ætti
því að geta orðið harður slagur í
annarri umferð milli grannlið-
anna. Bikarhafarnir í ár, Ham-
burger SV, ættu hins vegar tæp-
ast að vera í erfiðleikum með mót-
herja sina i fyrstu umferð sem
verða finnska liðið Lahden
Reipas.
— Við ættum að eiga góða
möguleika á því að komast áfram
að þessu sinni, sagði Ingi Björn
Albertsson, fyrirliði Valsliðsins, i
viðtali við Morgunblaðið í gær, —
ef að likum lætur þá er þetta
norður-írska lið svipað að styrk-
leika og Portadown-liðið var
þegar Valsmenn mættu því i
Evrópubikarkeppninni um árið.
Hljóðið var einnig gott í Fröm-
urum og Akurnesingum, og for-
ráðamenn beggja þeirra liða töldu
góða möguleika á þvi að komast
áfram. Brann-liðið sem varð
norskur bikarmeistari i fyrra
mun nú vera mjög neðarlega í
norsku 1. deildar keppninni, og
hefur ekki eins góðu liði á að
skipa og það hafði í fyrra, en
Start-liðið hefur hins vegar staðið
sig betur i sumar og mun vera um
miðja deild í Noregi. Ætla má að
knattspyrna sú sem norsku liðin
leika sé ekki óáþekk knattspyrnu
islenzku félagsliðanna, þannig að
möguleikar ættu vissulega að
vera fyrir hendi. Væri það
sannarlega saga til næsta bæjar
ef þremur islenzkum liðum
heppnaðist að komast áfram í
Evrópubikarkeppninni, en hing-
að til hefur vegur þeirra ekki
verið mjög mikill í þessum mót-
um.
Valur á heimaleik sinn á undan,
og mun hann væntanlega fara
fram 14. september. Fram og IA
eiga hins vegar að leika fyrst i
Noregi — þennan sama dag.
Seinni umferðin á svo að fara
fram 28. september.
En það verða fleiri Islendingar
í eldlinu Evrópubikarkeppninnar
að þessu sinni en leikmenn Vals,
ÍA og Fram. Bæði Celtic, sem
Jóhannes Eðvaldsson leikur með,
og Standard Liege, sem Asgeir
Sigurvinsson leikur með, eru með
i keppninni. Celtic mætir i fyrstu
umferð Luxemburgarliðinu
Jeunesse, en það lið var eitt sinn
mótherji Vals i Evrópubikar-
keppninni, og komst þá Valur i
aðra umferð. Ætti það að verða
næsta auðvelt fyrir Búbba og Co.
að komast áfram i aðra umferð.
Standard Liege fær hins vegar
erfiðan mótherja þar sem er tékk-
neska liðið Slaiva Prag i UEFA-
bikarkeppninni. En óneitanlega
verður þó lið Ásgeirs að teljast
sigurstranglegra i þeirri viður-
eign.
fAir stórleikir
Fyrsta umferð Evrópubikar-
keppninnar í knattspyrnu mun
tæpast bjóða upp á marga stór-
leiki, þar sem þeir „stóru“ dróg-
ust yfirleitt gegn veikum liðum. I
meistarakeppninni verður þó
vafalaust harður slagur milli vest-
ur-þýzka liðsins Borussia
Mönchengladbachs sem komst í
úrslit keppninnar í ár og ung-
verska liðsins Vasas frá Búda-
pest, sem er mjög gott lið. Ensku
meistararnir, Liverpool, höfðu
hins vegar heppnina með sér.
Þegar dráttur hófst i ZUrich í gær
var fyrst dregið út nafn þess liðs
sem situr hjá í fyrstu umferð og
kom þá upp hlutur Liverpool.
Manchester United mun einnig
sitja hjá í fyrstu umferð bikar-
hafakeppninnar en á siðan að
keppa við sigurvegarann í leik
BIKARLEIKIRNIR
EVRÓPUKEPPNI MEISTARALIÐA:
Omonia Nicosia (Kýpur) — FC Juventus (ttalfu)
Kupion Palloseura (Finnlandi) — FC Briigge (Belglu)
FCCeltic (Skotlandi) —Jeunesse (Luxemburg)
Red Star (Júgóslavfu) — Sligo Rovers (trlandi)
FC Diii. o Bucharest (Rúmenfu) — Atietico Madrid (Spáni)
Lilleström (Noregi) — Ajax Amsterdam (Hollandi)
Vasas Budapest (Ungverjalandi)
— Borussia Mönchengladbach (Þýskalandi)
FC Basel (Sviss) — Insbruck (Austurrfki)
Trabzonspor (Tyrklandi) — BK 1903 (Danmörku)
DuklaPrag (Tékkóslóvakfu) — FC Nantes (Frakklandi)
Levski Spartak (Búlgarfu) — Slask Wroclaw (Póilandi)
Floriana FC— Panathianikos (Grikklandi)
Benfica (Portúgal) —Torpedo (Sovétrfkjunum)
DinamoDresden (A-Þýskalandi) — Halmstadt (Svfþjóð)
Valur (tslandi) —Glentoran, Belfast (N-lrlandi)
Liverpool, Englandi, situr hjá f 1. umferð.
EVRÓPUKEPPNI BIKARHAFA:
FC Porto (Portúgal) — FC Köln (V-Þýzkalandi)
Lokomotive (Búlgarfu) —Anderlecht (Belgfu)
HamburgerSV (V-Þýzkalandi) —
Lahden Reipas (Fínnlandi)
Hajduk Split (Júgóslavfu) — Dundalk (N-trlandi)
Real Betis (Spáni) — AC Milan (Italfu)
Coleraine (trlandi) —
Lokomotive Leipzig (A-Þýzkalandi)
Vorwaerts Niederkorn —Velje (Danmörku)
Olympiakos Nicosia (Kýpur) —
rúmensku bikarmeistararnir
Brann (Noregi) — Akranes (tslandi)
Besiktas (Tyrklandi) — Diogy Oeri
Valetta (Möltu) — sovézku bíkarmeistararnir
Cardiff (Wales) —Memphis Vfn (Austurrfki)
UEFA KEPPNIN
FC Barcelona (Spáni) — Steua Bukarest
Ferencvaros — Marke Stanke
Dimitrov Fiorentina — Schalke 04
Rapid Vfn — Inter Bratislava
Servette — Athletico Bilbao
Bastia — Sporting Lissabon
Bohemias Dublin — Newcastle United
Red Boys Diffedange — AZ 67
Alkmaar Eintracht Frarikfurt — Sliema Wanderes
Boavista — Lazio
Union Las Palmas — Sloboda Tuzia
Fenerbahce — Aston Villa
Dynamo Kive — Eintracht Braunschweig
Dudee Unlted — KB Kaupmannahöfn
Haka Valkeakoski — Gornik
Lens — Malmö FF
Bayern Miinchen — Mjöndalen
Molenbeek — Aberdeen
Manchester City — Widzew Lodz
Frem Kaupmannahöfn — Grasshoppers
PSV Eindhoven — Glenavon
Odra Opole — Fc Magedburg
Landskrona — Ipswich Town
Start Kristiansand — Fram
Ziirich — CSCA Septemberfahne
Tirgu Mures — AEK Nikosia
Standard Liege — Slava Prag
Linzer ASK — Ujpesti Dozsa
Cari Zeiss Jena — Altay Izmir
Dynamo Tbilissi — AC Milan
Olympiakos Pireaeus — Dinamo Zagreb
Enn safnar ÍBK í sarpinn
KEFLVlKINGAR bættu tveimur
stigum f sarpinn f 1. deildar
keppni tslandsmótsins I knatt-
spyrnu f gærkvöldi er þeir sigr-
uðu Akureyrarliðið Þór fyrir
norðan með tveimur mörkum
gegn einu. Halda Keflvfkingar sig
þvf enn f námunda við toppinn í
1. deildinni, en staða Þórsliðsins
verður hins vegar æ alvarlegri, en
liðið hefur aðeins hlotið 6 stig í 12
leikjum sfnum. Má það nú fara að
taka sig verulega á, ef fallið á
ekki að verða hlutskipti þess.
Leikurinn á Akureyri í gær-
kýöldi bar nokkur merki þess að
völlurinn var blautur og þungur
og rigning var meðan á leiknum
stóð. Var leikurinn oft nokkuð
þófkenndur, sérstaklega þegar
nálgaðist mörkin, en úti á vellin-
um léku liðin stundum allvel sam-
an og reyndu að byggja upp.
Keflvikingar urðu fyrri til að
skora. A 7. minútu áttu Þórsarar
misheppnaða sendingu á eigin
vallarhelmingi. Ölafur Júlíusson
náði knettinum og lék með hann
upp að endamörkum, þar sem
hann gaf fallega fyrir. Ómar
Ingvarsson kom þar aðvifandi á
fullri ferð og tókst að renna
knettinum i netið.
Þór jafnaði siðan á 19. minútu.
Arni Gunnarsson átti þá fyrirgjöf
frá vinstri og var mikill darraðar-
dans inni i markteig Keflvíkinga.
Lauk þófinu þannig að Aðal-
steinn Sigurgeirsson náði knettin-
ÞOR-IBK 1:2
Texti: Sigurbjörn Gunnarsson
um og tókst að senda hann í mark
Keflvíkinga.
Við jafnteflið sat fram i seinni
hálfleik, en þá tókst Keflvíking-
um að skora öðru sinni. Voru
Þórsarar þá að gaufast með knött-
inn við vitateigslínu en misstu af
honum til Ölafs Júlíussonar sem
skyndilega var í góðu færi og
skoraði með skoti i stöngina og
inn.
Fá verulega opin færi voru í
leiknum. Helzt var það er Sigþór
Ómarsson komst inn í sendingu
til markvarðar Keflvikinga
skömmu áður en Keflvíkingar
skoruðu sitt annað mark, en
Þorsteinn varði skot hans
meistaralega.
Það sem háir Þórsliðinu greini-
lega um þessar mundir er hversu
litla áherzlu liðið virðist leggja á
sóknarleikinn, og hve einhæfur
hann er. Allt gengur upp miðj-
Framhald á bls. 18
LIO ÞÓRS: Ragnar Þorvaldsson 2, Oddur Óskarsson 2. ASalsteinn
Sigurgeirsson 2. Pétur Sigurðsson 2, Gunnar AustljörS 2. Sævar
Jónatansson 1, Sigurður Lárusson 3, Sigþór Ómarsson 2, Helgi
Örlygsson 1. Nói Björnsson 1, Ámi Gunnarsson 2, Guðmundur
Skarphéðinsson (varam) 1.
LIÐ ÍBK: Þorsteinn Bjarnason 3, Einar Ólafsson 1. Óskar Færseth 4,
GIsli Grétarson 2, Gfsli Torfason 3, SigurBur Björgvinsson 2, Hilmar
Hjálmarson 1, Ólafur Júllusson 1, ÞórBur Karlsson 1, Ómar Ingvars-
son 2, GuSjón Þórhallsson 1, Marinó Einarsson (vm) 1, Kári Gunn-
laugsson (vm) 1.
DÓMARI: Magnús V. Pétursson 2.