Morgunblaðið - 21.08.1977, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. AGUST 1977
„Hér verður hægt
að lækka vöruverð”
Einn ntargra verzlunarsala hinna nýju verzlunar. Þegar m.vndin var tekin voru flestar hillur enn
tómar og ýmis varningur á gólfinu.
hjá Radíóhúðinni, bæði hvað
snertir viðskiptavininn og
starfsfólkið, sem nú telur um
20 manns. „Hér verður hægt að
gera miklu betri innkaup en
áður, og einnig verður hægt að
lækka vöruverð eftir að starfs-
semin er komin í aðstöðu sem
þessa“, sagði Halldór Laxdal í
spjalli við Mbl.
1 þeim húsakynnum sem
Radíóbúðin er nú flutt í var
áður danshúsið Röðull. Sagði
Halldór nágrannana nú vera
ákaflega ánægða með að fyrri
starfssemi húsakynnanna
skyldi lögð niður. „Hér verður
eflaust einhver hávaði í fram-
tíðinni, enda stærsta verzlun
sinnar tegundar hérlendis, en
hann verður aðeins að dcgi til
og mun því ekki spilla ró
nágrannanna sem fyrri umferð
hér gerði", sagði Halldór. Með-
fylgjandi Ijósmyndir tók Olaf-
ur K. Magnússon á föstudag er
verið var að Ijúka undirhúningi
opnunarinnar.
Innréttingar allar f verzlun-
inni voru teiknaðar og settar
upp af starfsmönnum Bang &
Olufssen verksmiðjanna í Dan-
mörku.
A þessu gólfi hefur margt danssporið verið stigið, en í framtíðinni verður þarna hægt að prófa ýmis
hljómtæki áður eii menn gera upp hug sinn um hvert þeirra er bezt.
- segir eigandi Radióbúðarinnar sem
opnað hefur nýja og stóra verzlun
I anddyri verzlunarinnar verður hljómplötudeild, og verður þar
hægt að hlusta á tónlist af fjórum plötuspilurum í einu.
RADtOBÚDIN opnar á morgun
nýja og stóra verzlun að Skip-
holti 19, og verður þá á einum
og sama staðnum í fyrsta sinn í
langan tfma, boðið upp á alla
þá þjónustu sem fyrirtækið
veitir, að sögn Halldórs Laxdal,
eiganda Rdfóbúðarinnar.
Verða þarna til sölu hljóm-
flutningstæki öll, hljómplötur.
sjónvörp og útvörp, svo og önn-
ur rafeindatæki. Undanfarin ár
hefur þessi þjónusta verið
dreifð um borgina, en fyrirtæk-
ið var stofnað árið 1950. Að
sögn Halldórs Laxdal skapar
hið nýja húsnæði, en f þvf er
verzlun á tveimur hæðum og
verkstæði f kjallara, miklu
betri aðstöðu en verið hefur
Kartöflusprettan ekki rnikil enn
nýjar á markaðinn í næstu viku
„ÞAÐ ER of snemmt að spé nokkru
enn um kartöfluuppskeruna, næstu
þrjár vikurnar munu ráða úrslitum,
ef frostnœtur koma fyrir 5.—7.
september verður uppskeran léleg,
en annars á hún að geta orðið nokk-
uð góð,” sagði Magnús Sigurlásson
fréttaritari Morgunblaðsins I
Þykkvabœ I samtali við Morgunblað-
ið F gær
Magnús kvað ástæðuna fyrir því að
brugðið gæti til beggja vona með kart-
öfluuppskeruna vera, að í vor hefðu
menn sett mjög seint niður, vegna
holklaka i jörðu, hins vegar væri þvf
ekki að neita, að tíðin síðustu 10 daga
hefði verið mjög heppileg, og nú
stækkuðu kartöflurnar með degi hverj-
um
Hann kvað grös hafa litið látið á sjá i
frostinu á dögunum, aðeins efstu grös-
in hefðu fölnað
Jóhann Jónasson, forstjóri Græn-
metisverzlunar ríkisins sagði þegar
Morgunblaðið ræddi við hann, að þótt
fólk ætti kannski von á mjög góðri
kartöfluuppskeru að þessu sinni, þá
væri staðreyndin sú, að sunnanlands
væri uppskeran ekki mikil enn Kartöfl-
ur hefðu verið settar niður 3—4 vikum
síðar í vor en æskilegt gæti talizt, og
allt væri því seinna á ferðinni. „En
útlitið batnar með degi hverjum þ e á
meðan veðrið helzt svona gott."
Þá sagði Jóhann að vitað
✓æri, að menn væru byrjaðir að
taka upp kartöflur á Norðurlandi
ag þar væri ágætis uppskera,
hins vegar væri ekki reiknað með að
kartöfiur þaðan kæmu suður alveg
strax, og ekki væri reiknað með að
mikið framboð af nýjum íslenzkum
kartöflum yrði fyrr en um mánaðarmót,
en Grænmetisverzlunin myndi væntan-
lega fá eitthvað af nýjum kartöflum í
næstu viku.
Engar bollaleggingar
um annað einvigishald
- segir Einar S. Einarsson, forseti S.í.
„ÞAÐ eru nú engar bollalegging-
ar uppi um frekara einvígishald í
sambandi við heimsmeislara-
keppnina í skák“, sagði Einar S.
Einarsson, forseti Skáksambands
lslands, er Mbl. spurði hann um
það mál í gær. „Við höfum ekkert
rætt þetta eða áformað neitt".
Einar sagði, að slikt einvigis-
hald krefðist mikillar vinnu og
sagði, að það væri erfitt að brúa
peningahliðina. „Þetta hafðist
síðastliðin vetur með því að ganga
mjög hart fram i betlinu og ég á
ekki von á þvi, að við gætum
gengið eins hart að fyrirtækjum
aftur á sama árinu.
Aðgangurinn gerir varla meira
en að mæta verðlaunaupphæðinni
og þá er mikill kostnaður eftir í
sambandi við ferðir, uppihald og
skipulagið allt. Þá erum við með
stórmót í febrúar, þar sem
Reykjavikurmótið er og undir-
búningur að því krefst mikillar
vinnu, auk þess sem við munum
þurfa á allri mögulegri aðstoð að
halda til þess móts. Hitt er svo
aftur annað mál, hvað við gerum,
ef ríkið, eða einhverjir aðrir
aðilar telja íslandi hag að þvi að
annað einvígi fari fram hér á
landi".
Þegar Mbl. spurði Einar, hvort
hann hefði meiri áhuga á einvigi
Spasskys og Korchnois eða einvíg-
inu um heimsmeistaratitilinn,
svaraði hann. „Ég á nú von á því
að heimsmeistaraeinvigið verði of
stór biti i háls, þar sem búast má
við að hátt verði boðið i það og
verðlaunin því stór.
Hins vegar þyrfti úrslitaeinvig-
ið um áskorendaréttinn ekki að
fela í sér svo gífurlega há verð-
laun. Þau verða ábyggilega áþekk
þvi, sem við vorum með i einvígi
Spasskys og Horts“.
Ég vil ekki bæta á
mig f ormennsku í
Alþýðubandalaginu
- segir Geir Gunnarsson, alþingismaður
„ÞAÐ hefur aldrei hvarflað að
mér“, svaraði Geir Gunnarsson,
alþingismaður, er Mbl. spurði
hann í gær, hvort hann hefði
áhuga á að keppa að formanns-
embætti Alþýðubandalagsins eða
myndi gefa kost á sér i það ef
eftir því væri lcitað við hann.
178 hval-
ir á land
I GÆRMORGUN voru 178 hvalir
komnir á land hjá Hvalstöðinni í
Hvalfirði og þá voru tveir hval-
bátanna á leið til lands með sam-
tals 5 hvali.
Tvílembingar
hættir veiðum
Vestmannaeyjabátarnir Bylgja
og Bjarnarey, sem undanfarnar
vikur hafa verið við tilrauna-
veiðar á kolmunna með svokallað
tvílembingstroll munu nú hættir
veiðum, samkvæmt því sem
Morgunblaðið frétti i gær. Hafa
veiðarnar með tveggja báta troll-
inu gengið illa og að því er
Morgunblaðinu var sagt i gær,
munu bátarnir hafa fundið litið
af kolmunna síðustu vikur.
Guðlaug og
Ólöf tefla
ÞÆR Guðlaug Þorsteinsdóttir og
Ölöf Þráinsdóttir munu tefla
fjögurra skáka einvígi um réttinn
til að tefla á kvennaborðinu í sex-
landakeppninni i V-Þýzkalandi,
og tefla þær fyrstu skákina á
mánudagskvöld
Guðlaug er nýbakaður Norður-
landameistari kvenna í skák og
Ölöf er íslandsmeistari kvenna og
Reykjavíkurmeistari.
Þrir slösuðust í
umferðarslysi
UM KL. 20.30 í fyrrakvöld fór
leigubifreið úr Hafnarfirði út af
veginum á norðanverðu Arnar-
nesi og kastaðist þar á ljósastaur.
Tveir farþegar voru i bílnum, auk
bilstjóra, og slösuðust allir. Meðal
annars var talið að tveir mann-
anna hefðu lærbrotnað.
„Við eigum nóg úrval manna,
sem eru hæfir til að taka starfið
að sér, en það er bæði krefjandi
og bindandi og ég vil ekki bæta
sliku á mig. Við höfum aldrei haft
neinn slag milli manna út af
þessu embætti og ekki held ég að
til slíks komi frekar nú. Eins og
ég sagði, þá er úryalið nóg. Vand-
inn verður bara að velja".
Þegar Mbl. spurði Geir, hvort
hann hefði heyrt einhvern nefnd-
an til formennskunnar öðrum
fremur, sagðist hann hafa verið
upptekinn við sáttanefndarstörf
að undanförnu og að þeim frátöld-
um verið fjarverandi. „En siðast
þegar ég vissi var enginn sérstak-
ur á oddinum. Þetta kemur bara í
liós á sfnum tima“.
Umferðarslys
í Mosfellssveit
UMFERÐARSLYS varð i Mos-
fellssveit í gærmorgun og urðu
þar lítilsháttar meiðsl á fólki.
Tveir bilar voru á leið eftir
Vesturlandsvegi og sá sem var á
undan ætlaði að beygja inn á
afleggjarann upp að Alafossi, er
billinn á eftirskall aftan á honum
og þeytti honum inn á afleggjar-
ann. Tveir menn voru i bilnum
sem ók aftan á og meiddust litil-
lega. Voru þeir báðir grunaðir um
ölvun.
Prófkjör Alþýðu-
flokks á Austurlandi:
„Erum að
ræða málin
og undirbúa”
„VIÐ ERUM rétt að hefjast handa
í sambandi við væntanlegt próf-
kjör Alþýðuflokksins i Austur-
landskjördæmi í santbandi við
næstu alþingiskosningar,” sagði
Gestur Janus Ragnarsson formað-
ur kjördæmisráðs í samtali við
Mbl. í gærkvöldi. „Við erum ekki
búnir að marka neina stefnu i
þessum málum, en umræður og
undirbúningur eru þó hafin og
væntanlega verður prófkjör með
haustinu. Engin framboð eru þó
komin fram ennþá."