Morgunblaðið - 21.08.1977, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. AGUST 1977
Guðjón á Grímsstöðum.
Rætt við Guðjón
Sigurjónsson á Gríms-
stöðum í Landeyjum
Þurrheysböggunum raðar Guðjón upp í sérstakar stæður og breiðir yfir.
Batt allt mitt vot-
hey med bindivél”
Grein og myndir:
TRVGGVI GUNNARSSON
— Ég bind allt mitt hey með
bindivél og fellur það vel. Ekki
sízt ræður þar hve miklu hand-
hægara er að gefa þá á veturna
heldur en laust hey. I sumar
gerði ég einnig tilraun með að
binda allt mitt vothey og alls er
ég nú búinn að binda rúmlega
1000 bagga. Þetta hefur eitt-
hvað verið reynt áður og að því
er mér hefur verið sagt géfizt
ágætlega en það verður bara að
sjá hvernig þessi aðferð reyn-
ist, þegar farið verður að gefa í
vetur, sagði Guðjón Sigurjóns-
son á Grímsstöðum í Vestur-
Landeyjum en þar býr hann
ásamt konu sinni, Þuríði Ant-
onsdóttir. Bú þeirra er vel með-
albú, 27 kýr og 200 kindur.
— Heyskapur gekk stirðlega
í sumar þar til við fengum góða
þurrkinn, sem stóð i viku og
þar með var okkur borgið. Ann-
ars er ekkert gagn orðið að Veð-
urstofunni, því oftast er búinn
að vera þurrkur hér í tvo til
þrjá tíma, þegar þeir fara að
spá honum.
Við spurðum Guðjón nánar
um tilraun hans með að binda
votheyið og hvaða kosti hann
teldi því samfara.
— Með því að binda það get
ég notað alveg sömu tæki og við
þurrheyið — sláttuþyrluna,
rakstrarvélina, heybindivélina,
sama vagn og fyrir þurrheys-
bagganna og baggafæribandið
til að koma þeim í turninn.
Þetta sparar fé, því að öðrum
kosti þyrfti ég að kaupa annan
umgang af tækjum að mestu.
Súrheysbaggarnir þenjast út
við að hitna og það sígur með
meiri hraða í turninum en
venjulega. Þessir baggar eru
lítið eitt þyngri en þurrheys-
baggarnir en það ætti að vera
auðveldara að ná þeim á vet-
urna. Þetta er þó allt tilraun
enn og eftir að sjá hvernig
verkun heysins verður.
Þegar við ókum heim að
Grímsstöðum vakti það athygli
okkar að heyböggum var raðað
í reglulegar stæður úti á túnun-
um og breitt yfir þær. Aðspurð-
ur sagðist Guðjón hafa þann
háttinn á að eftir að hann væri
búinn að binda heyið, raðaði
hann því upp í stæður, sem í
væru um það bil 45 baggar.
Stæðurnar væru mjóar, aðeins
ein baggaröð og þess væri gætt
að breiða yfir þær. Sagði Guð-
jón að með þessu mætti koma
íveg fyrir að það hitnaði í bögg-
unum, því það blési í gegnum
þá. Ekki væri þetta þó til að
standa úti í stórrigningum en
þessi aðferð hefði gefizt sér vel.
— Það sem fer verst með
okkur bændur er einfaldlega
mjög langur vinnutími og litið
kaup í samanburði við aðrar
stéttir. Ég hef t.d. þá trú að
kúabændum eigi eftir að
fækka, því við fáum einfaldlega
of litið fyrir mjólkina. Það er
miklu skynsamlegra að hafa
bara kindur og kartöflur og
taka sér langt sumarleyfi, sagði
Guðjón og við kvöddum en
heimilisfólkið á Grímsstöðum
hélt áfram að hirða þrátt fyrri
að rigningardroparnir tækju aö
falla ótt og titt. — Það verður
víst að nota hverja þurrkflæsu
til enda, og helzt betur varð
einhverjum á orði og viðstaddir
juku hraðann við vinnuna.
3 dagar SKYNDISALA 3 dagar
•Ensk föt m. vesti, tízkusniði Kr. 19.500,-
• Ensk föt vestislaus Kr. 17.000,-
• Skyrtur frá Kr. 1.500,-•Peysur •Bolir •Náttföt
• Stakar buxur litlar stærðir Kr. 1.000,-
• Skyrtubolir litlar stærðir og m. m. fl.
ATH. Aðeins:
Mánudag — Þriðjudag — Miðvikudag