Morgunblaðið - 21.08.1977, Page 42

Morgunblaðið - 21.08.1977, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. AGUST 1977 Trelkovsky (Polanski) gengur berserksgang í íbúð vinkonu sinnar, Stellu (Adjani), þegar hann grunar hana um að vera þátttakanda í samsærinu gegn sér. Le Loctaire (Leigjandinn), frönsk, 1976. Leikstjóri: Roman Polanski. Meðan Polanski beið eftir því 1 975 að byggð yrði gríðarmikil sviðsmynd fyrir Pirates (sjó- ræningjastórmynd, sem hann Joseph Losey. Val þessarra tveggja mynda vakti nokkra úlfúð meðal franskra kvik- myndagerðarmanna, þar sem leikstjórarnir voru báðir erlend- ir. í Cannes var Polanski spurð- ur að því, hvers vegna hann staðsetti Le Loctaire i Paris Hann svaraði því til, að hann hefði búið í mörgum höf- uðborgum heims og hefði kom- ist að þeirri niðurstöðu, að „Frakkar eru óvingjarnlegri og hræddari við ókunnuga (og út- lendinga sérstaklega) en annað fólk". Þetta svar er ef til vill lykillinn að þessari mynd Polanskis, en það kemur þó nokkuð á óvart þegar þess er gætt, að Polanski hafði sjálfur, líkt og aðalpersónan, sem hann leikur i myndinni, nýlega feng- ið franskan ríkisborgararétt. Hvers vegna sækist hann eftir frönskum ríkisborgararéttind- um, úr þvi fólk alls staðar ann- ars staðar í heiminum er vin- gjarnlegra en í Frakklandi? Xe Loctaire er næsta mynd Polanskis eftir Chinatown. Þar réð raunsæið meir ríkjum en þó mátti finna í henni dulinn óhugnað, innra óöryggi, sem lá í loftinu i hverfi því, sem kallað var „Kínahverfið" I Le Loctaire er þó að finna meiri samjöfnuð við eldri myndir Polanskis, bæði Rosemary's Baby (þar taka ungu hjónin á leigu ibúð í sambýlishúsi, þar sem margir nágrannarnir eru æði grunsamlegir, fyrrverandi leigjandi i ibúðinni (kona) hafði fyrirfarið sér og ung kona í næstu íbúð stekkur fljótlega út um gluggann og deyr) og Repulsion (1965) ekki síður, sem segir frá belgískri stúlku (Catherine Deneuve), sem býr í leiguíbúð í London og lokast smám saman algjörlega inni í sjálfri sér, hún læsir að sér og imyndunaraflið nær yfirhönd- inni. Út frá ýmsum hljóðum, sprungum í veggjum og blakt- Polanski tekur upp þráðinn eftir Rosemary’s Baby hafði í undirbúningi), las hann bók Roland Topors Le Loctaire Chimérique, sem segir frá væskilslegum skrifstofu- manni, sem er aðnnaðhvort haldinn ofsóknarbrjálæði eða er fórnarlamb samsæris, sem nágrannarnir í leiguhúsnæði í Paris búa honum. Innan sex vikna hafði Polanski fullgert handrit eftir bókinni og undir- búið framleiðslu myndarinnar fjárhagslega. Le Loctaire var ein af fjórum frönskum mynd- um sem opinberlega voru vald- ar til sýninga á kvikmyndahá- tíðinni í Cannes 1976, en meðal þessara mynda var einn- ig Mr. Klein, mynd um gyð- ingaofsóknir í Frakklandi i seinni heimstyrjöldinni, gerð af bandaríska leikstjóranum Isabelle Adjani og Polanski í LE LOCTAIRE. andi gluggatjöldum að nætur- þeli birtast henni ógnvekjandi sýnir. í Le Loctaire er að finna alla þessa efnisþætti, þar sem óvingjarnleg veröld þreng- ir svo að hinum viljalausa Trelkovsky, að hann hættir að lokum að þora að hreyfa sig, af ótt við að verða öðrum til ónæðis og fá á sig kæru. („íbúðir vaxa ekki á trjánum hér" segir húseigandinn Zy, sem þýðir einfaldlega, að það er betra fyrir þig að gera eins og við segjum, annars rekum við þig út).Ótti og tilfinning fyrir þvingunum verður allsráð- andi hjá Trelkovsky, sem finnst að allir séu að reyna að troða upp á hann persónuleika stúlk- unnar (Simone), sem áður bjó í íbúðinni, en fyrirfór sér, með því að stökkva út um glugg- ann. Á nærliggjandi kaffistofu, þar sem Simone hafði verið fastagestur, er hann settur við sama borð og hún var vön að sitja, honum er fært súkkulaði (eins og henni), þó hann hafi beðið um kaffi og litlu seinna fellst hann á að reykja sömu vindlinga og hún gerði. Hús- eigandinn ráðleggur honum einnig að gera eins og Simone, að ganga á inniskóm eftir kl. 10, af tillitssemi við aðra leigj- endur. Persónuleiki Simone nær smám saman tökum á Trelkovsky og án þess að segja hér frá hinu óhugnanlega loka- uppgjöri Trelkovskys við sam- býlisfólk sitt, geta lesendur far- ið nærri um það. Le Loctaire er „ekta" Polanski-hryllingur, bráðvel gerð, bæði hvað snertir hljóð og mynd og Sven Nykvist nálg- as í opnunaratriðinu (samfelld mynd af húsakynnunum, skoð- að utan frá með stöðugri hreyf- ingu á myndavélinni) hina klassísku opnum i mynd Orson Welles, Touch of Evil (nafnið er einnig velviðeigandi). Pol- anski stendur sig einnig vel sem leikari, og sannar þá hæfi- leika sína best í þessari mynd, þó hann hafi einnig leikið í fyrstu myndum sínum (stuttu myndunum) pg Dance of the Vampires. Le Loctaire er tví- mælalaust á yfirborðinu jafn óhugnanleg mynd og Repulsion og Rosemary's Baby (og þvi ef til vill óheppi- leg fyrir myrkfælið fólk) og undir niðri er hún sannari og trúverðugri en hinar fyrr- nefndu. SSP. Alvin Purple — r Aströlsk kvikmyndagerd á uppleid, en kynórarnir þeir sömu og annars staðar Alvin Purple (Kvennabósinn), áströlsk, 1973. Leikstjóri: Tim Burstall. Oft og iðulega er jagast yfir þeirri áráttu kvikmyndahúsanna að sýna nær eingöngu amerískar myndir og réttilega bent á, að þær séu milli 70 og 80% af ölium sýndum myndum. Það er þess vegna ánægjulegt að sjá, að Aust- urbæjarbíó hefur að undanförnu sýnt allmargar myndir frá öðrum löndum. Gailinn á gjöf Njarðar er hins vegar sá, að margar af þess- um myndum eru aðeins kynlífs- kómedíur og skiptir þá litlu hvort þær eru franskar, ítalskar, ástralskar eða danskar. Efnið, til- gangurinn og árangurinn er í meginatriðum sá sami. Þó er hugsanlegt að lita á sýningar þessara mynda með jákvæðu hugarfari og segja sem svo, að með sýningum á svona léttmeti frá þessum löndum sé hægt að venja áhorfendur við að horfa á annað en amerískar myndir og ryðja þar með brautina fyrir bita- stæðari myndir frá þessum löndum. Slik þróun væri ekki aðeins ánægjuleg, heldur æskileg. Alvin Purple er því miður aðeins enn ein kyn-kómedían, sem gæti hafa verið gerð í hvaða heimshorni sem er, þar sem áhrifa amerískra kvikmynda hefur gætt. Myndin fer allvel af stað og tekst best í lýsingum sínum á hinum unga Alvin, á flótta undan skólastúlkunum, í fylgsnið til kennarafrúarinnar. Smám saman slakna þó tök leik- stjórans á efninu og síendurtekin notkun á myndhröðun („speed-up motin") hættir að vera fyndin. Myndin rennur fljótlega algjör- lega í sama farveg og Ævintýri ökukennarans (og öll sú syrpa) og ekki er hægt að sjá í henni nein áströlsk séreinkenni. Alvin Purple naut gífurlegra vinsælda í Astralíu 1973—’74 en myndin er framleidd af fyrirtæk- inu Hexagon í tengslum við dreififyrirtækín Warner Bros og American International. Vmsar hræringar hafa átt sér stað í ástralskri kvikmyndagerð á und- anförnum árum en hún hefur, eins og víða annars staðar átt erfitt uppdráttar vegna skipulags- leysis og peningaskorts. Samt sem áður er kvikmyndamarkaðurinn í Astraliu sá fjórði stærsti í heimi. Arið 1973 setti ástralska stjórnin amerískum dreifingarfyrir- tækjum stólinn fyrir dyrnar og sagðist mundu neyða þau til að festa fjármagn í ástralskri kvik- myndagerð ef þau gerðu það ekki sjálf, ótilneydd. Jafnframt jókst opinber styrkur til áströlsku kvik- myndastofnunarinnar til muna og árangurinn hefur ekki látið á sér standa. A siðasta ári urðu tvær ástralskar myndir, Picnit* at Hanging Rock (eftir Peter Weir) og Caddie (Donald Crombie), jafn vinsælar og best sóttu amerísku myndir ársins, en það voru Jaws og One Flew Over thc Cuckoo’s Nest. Gideon Bachman sem hefur kynnt sér þessa þróun (Sight & Sound, vetur 1976/77) telur myndirnar verða gerðar undir miklum áhrifum amerískra mynda, að þær stefni um of að alþjóðlegum (amerískum) mark- aði og að enn vanti öll séráströlsk einkenni I þessar myndir. Það er þó ekki óeðlilegt, að myndirnar muni smám saman hneigjast meir að áströlsku þjóðlifi og þessi að- lögurnartími er ef til vill mjög heppilegur fyrir t.d. íslenska áhorfendur, ef kvikmyndahúsin sæju sér þarna leik á borði til að gera efnisval sitt fjölbreyttara. SSP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.