Morgunblaðið - 21.08.1977, Qupperneq 44
iLÝSINGASÍMINN ER:
22480
SUNNUDAGUR 21. AGÚST 1977
AUGLÝSINGASÍMrNN ER:
22480
Fiskvinnslunefndin á
fund forsætisráðherra
„VIÐ höfum óskað eftir viðtali
við forsætisráðherra og munum
ganga á hans fund á þriðjudag-
inn“, sagði Hjalti Einarsson,
framkvæmdastjóri, sem á sæti f
fimm-mannanefndinni, sem full-
trúar fiskvinnslunnar kusu til að
taka upp viðræður við stjórnvöld
um vanda frystihúsanna.
Hjalti sagði, að nefndarmenn
hefðu komið saman á föstudag og
þeir myndu halda með sér annan
Benny Good-
man kemur
r
til Islands
BENNY Goodman, jassistinn
heimsfrægi, var væntanlegur
til landsins í morgun með
Flugleiðavél frá New York.
Hingað kemur Goodman sér til
hvfldar og hressingar, en hann
hreifst mjög af Islandi, er
hann kom hingað á sfðustu
Listahátfð.
Á þriðjudag mun Benny
Goodman halda til laxveiða í
Vatnsdalsá og Viðidalsá, en
hér á landi dvelur hann út
mánuðinn.
fund á mánudaginn. „Annars er-
um við nú að biða eftir gögnum
frá Þjóðhagsstofnunni", sagði
Hjalti.
Þegar Mbl. spurði, hvort Þjóð-
hagsstofnun væri búin að fá
reikninga frystihúsa, sem hún
bað um, svaraði Hjalti neitandi.
„Hún mun fá þá á mánudag-
inn", sagði hann. „Þetta verða
reikníngar 15 frystihúsa innan
Sölumiðstöðvarinnar og fimm
Sambandshúsa. Við höfum beðið
eftir reikningum Sambandshús-
anna til að geta sent þetta allt i
einum pakka.
Annars hefur Þjóðhagsstofnun
reikninga allra frystihúsa fyrir
1976. Afurðaverðið liggur líka
Framhald á bls. 21
Y firborganir
fiski þarf að
á neta-
kanna
Borgarnes:
„VIÐ höfum neyðzt til að
yfirborga humarinn þann-
ig að semja hreinlega um
55% f fyrsta flokk, 44% í
annan flokk og svo er 1%
svona upp á ruslið. Þetta
urðum við að gera, þegar
fyrir lá, að ýms frystihús á
Suðurnesjum buðu uppá
svona fyrirframumsamið
fyrirkomulag. Og ég fæ
ekki betur séð, en að sama
sé uppi á teningnum með
netafiskinn, honum sé
landað meira og minna
óflokkuðum og síðan yfir-
borgaður af frystihúsum
og saltfiskstöðvum með
föstum samningum", sagði
Páll Andreason, fram-
kvæmdastjóri Meitilsins f
Þorlákshöfn, f samtali við
Mbl. í gær. Páll, sem var
áður kaupfélagsstjóri á
Þingeyri, en Kaupfélag
Dýrfirðinga rekur þar út-
gerð, sagði að hann þekkti
ekki til svona vinnubragða
á Vestf jörðum.
Umferðarslys í Kaldalóni:
2 menn slas-
ast alvarlega
Baejum. 20. ágúst
ÞRtR menn slösuðust, þar af
tveir alvarlega, þegar fólkshfl frá
tsafirði hvolfdi rétt utan við eyði-
býlið Lónseyri f Kaldalóni f nótt.
Voru mennirnir fluttir með flug-
vél til Isafjarðar og sfðan voru
tveir þeirra fluttir með sjúkra-
flugvél þaðan til Reykjavfkur,
eftir að meiðsli þeirra höfðu ver-
ið könnuð.
Mennirnir þrír höfðu verið á
dansleik hér í sveitinni og voru á
heimleið þegar slysið bar að. Bfll
þeirra endastakkst á veginum og
hafnaði á þakinu, eftir að hafa
lent ofan f skarði sem er i vegin-
um skammt frá Lónseyri. Fólk
kom fljótlega á slysstaðinn og var
strax fengin sjúkraflugvél frá tsa-
firði til að sækja mennina. Bfll
þremenninganna er stórskemmd-
ur.
Páll Andreason, framkyæmdastjóri Meitilsins:
Ljósm. Mbl.: Ól. K.M.
„... í góðu veðri að leika sér“.
Annadhvort verdur að
vík ja—vegarstæðið að
brúnni eða vatnsbólið
„ÞAÐ ER mikil hætta á að núver-
andi vatnsból Borgarness eyói-
leggist eða mengist mikið, ef
fyrirhugaðri aðkeyrslu að Borgar-
fjarðarbrúnni verður ekki breytt,
en vatnsbólið er á Seleyri," sagði
Guttormur Sigbjarnarson jarð-
fræðingur í viðtali við Morgun-
blaðið, en hann hefur að
undanförnu unnið að rannsókn-
um á vatnsbóli Borgnesinga
ásamt starfsmönnum Rannsókna-
stofnunar iðnaðarins.
Guttormur sagði, að vatnsból
Borgnesinga á Seleyri væri nokk-
uð gott, en að visu takmarkað.
Það væri á Seleyri við þann stað
sem fyrirhuguð aðkeyrsla á að
koma að Borgarfjarðarbrúnni. Nú
undanfarið hefðu ráðamenn
Borgarness og forráðamenn Vega-
gerðarinnar rætt þessi mál, þar
sem Borgnesingar vildu að vegar-
stæðið yrði flutt, en samningar
hefðu ekki náðst.
Guttormur sagði að í sumar
hefði veríö mjög lítið vatn í vatns-
bólinu á Seleyri og Borgnesingar
þurft að fá vatn úr fjallinu. í vor
hefði komið í ljós, að búið var að
dæla of miklu úr vatnsbólinu og
efnasamsetning vatnsins þá verið
slæm, t.d. hefði tæringarhætta í
miðstöðvarkötlum aukizt vegna
samsetningar vatnsins. Sagði
Guttormur, að þurft hefði að
verja Seleyri vegna athafna Vega-
gerðarinnar í sumar og ef nota
ætti vatnsbólið á eyrinni í fram-
tíðinni yrði annaðhvort að víkja,
fyrirhugað vegarstæði eða vatns-
bölið.
„Og það er ekki nóg með að við
verðum að borga humarinn á
framangreindan hátt, heldur
verðum við lika að útvega veiðar-
færin“, sagði Páll. „Ég tel að aðal-
vandinn, sem frystihús hér syðra
eiga við að glima, sé breytilegt
hráefni. En stjórnvöld hljóta að
taka þetta yfirborgunarmál fyrir i
rannsóknum sinum nú á stöðu
fiskvinnslufyrirtækjanna, því ég
er ekki í nokkrum vafa um að of
hörð og ósvífin samkeppni um
fiskinn og ábyrgðarleysi i rekstri
eiga einhvern þátt í því ástandi,
sem ríkir“.
Páll sagði það sína skoðun, að
til að stjórna netaveiðunum,
þyrfti að skylda alla netabáta til
að gera að aflanum á sjó og koma
með hann í kössum að landi.
„Þetta myndi fækka netunum,
þvf það er grátlegt, hvað mikið af
vertíðarfiski fer í skreið af þvi
hann er svo lélegt hráfeni, >egar í
land er komið“.
Skáksamband íslands:
Fyrstu svör-
in við kynn-
ingu á fram-
boði Frið-
ríks að berast
„ÞAÐ eru svona að koma
fyrstu viðbrögðin við kynn-
ingarbréfi okkar á fram-
boði Friðriks og þau eru
öll jákvæð“, sagði Einar S.
Einarsson, forseti Skák-
sambands fslands, er Mbl.
spurði hann í gær, hvernig
unnið væri að framboði
Friðriks til forsetaemb-
ættis Alþjóðaskáksam-
bandsins.
Einar sagði að kynningarbréfið
hefði verið sent öllum skáksam-
böndum innan FIDE, fréttastof-
um og skáktímaritum. Svörin sem
borizt hafa, eru öll frá V-Evrópu
og túlka stuðning og traust á Frið-
rik. Þá hefur Prentice, forseti
skáksambands Kanada sent bréf,
þar sem hann lýsir miklu trausti á
Friðrik, en segir of snemmt að
binda stuðning skáksambands
Kanada við ákveðinn frambjóð-
anda.
Einar sagði að miðstjórnar-
fundur FIDE yrði haldinn i
Caracas i október. Þar verða mörg
mál á dagskrá, meðal annars til-
lögur um breytt fyrirkomulag
keppninnar um heimsmeistara-
tititinn, áskorendamót yrðu tekin
upp aftur og svæðismótin endur-
skipulögð, þannig að teflt yrði um
heimsmeistaratitilinn þriðja
hvert ár i stað fjórða hvers, eins
og nú er. Skáksamband tslands
mun ekki senda fulltrúa á mið-
stjórnarfundinn, en formaður
finnska skáksambandsins, Erik
Helme, mun koma við hér á leið
sinni til Caracas og sagði Einar,
að hann myndi gæta hagsmuna
S.I á miðstjórnarfundinum og
vinna að framboði Friðriks Ölafs-
sonar.
Rekneta-
veiðar byrja
illa frá
Hornafirði
SÍLDVEIÐAR I reknet byrjuðu illa
á svæðinu við Hrollaugseyjar og
Ingólishöfða að þessu sinni. Þrlr
Hornafjarðarbátar fóru út I fyrra-
kvöld, en veiðamar máttu þá
byrja á miðnætti. og urðu bátam-
ir ekki varir við sild. Hins vegar
hafa reknetaveiðar gengið mjög
vel hjá bátum af Snæfellsnesi, en
bátar þar fengu undanþágu til
veiða frá 15. ágúst og máttu
veiða 300 tonn fram til 20. Voru
bátamir svo til búnir með þann
kvóta I fyrradag. en þeir hafa
fengið 150—250 tunnur I lögn
siðustu daga. Sildin. sem veiðist
við Snæfellsnes er mjög mögur
og ný hrygnd að þvi er virðist. Er
hún ekki nema 12—13% feit og
þvi óhæf til söltunar sem stend-
ur. Hefur sildin öll verið fryst til
beitu.
Samkvæmt þeim upplýsingum.
sem Morgunblaðið aflaði sór i
gær. þarf sildin að vera með
16—17% búkfitu, til þess að
teljast hæf til söltunar og helzt
feitari. Þess má geta að demants-
sildin svokallaða. sem fókkst fyrir
norðan og austan á sildarárunum.
var oft með 25—27% búkfitu.
þannig að mikið vantar á að
Suðurlandssildin geti kallazt
demantssild. þótt mikið hafi bor-
ið á langri sild. ca. 36 cm. við
Snæfellsnes.