Morgunblaðið - 11.09.1977, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 11.09.1977, Qupperneq 2
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1977 „Glaðlyndi er boðorð númer eitt hjá mér” og þá er allt í lagi. Ég lá á Borgar- spítalanum í 4 daga í vetur. Þar var gott a<) vera, en það er betra að vera á rólinu og snudda í rollunum. Ég hef alltaf verió meó rollur, komi/t upp í 100, en nú eru þær fáar, eitthvað um 40. Ég var lengi f jallkóngur í Stranda- hreppi. Þaö var ágætt. Aldrei kvæntur? spuröi ég. Ég lét mér duga eina ráöskonu, hún var góó. IIún er dáin blessun- in. Nei, aldrei giftur. Hví ekki svona reffilegur kall, spurói ég? Þaö var einhver fyrirtekt. Ég snudda bara f kringum rollurnar í staóinn fyrir aó hafa keliinguna. Mér líkar vel einlífið, hefur aldrei nokkurn (fma leiözt, veit ekki hvaó leióindi eru. Það er ágætt þegar manni leiðist ekki. Annars líkar mér ágaptlega og aldeilis Ijómandi vió konur, en ég veit bara ekki hvað maóur á aó gera vió þær úr því að manni leiðist aldrei. Berdreyminn? Mig dreymir einstaka sinnum hitt og annaó. Þaó er ekkert til aó ráða í. Nei, ég er ekki myrkfælinn, veit ekki hvaö það er. Ég hef farið yfir Stapann í brúnamyrkri og heyrt eitthvað, en ekkert almennilegt. Sáttur f búskapnum? Sambýlið með rollunum er ágætt. Ég þekki þær og er fIjótur að sakna þeirra þegar einhverja vantar. Svo á ég hest, 12 vetra. Hann heitir Jarpur. Ég rfð stöku sinnum. Nútímaþægindi, nei, ég hcf oliulampa og olíuhitun frá einum ofni sem ég elda einnig á. Ég er ekki í neinum vandræöum með að elda ofan í mig. Ég er viljugur að clda, allt frá ýsu og upp f steik. Ég hef verið kokkur svo ég ætti að kunna þetta. Ég hef líka ágætis vatn á flóðinu, en hrunnurinn tæmist á fjiirunni. Þó er engin selta í þessu og mér finnst vatnið betra en úr Gvendarbrunnunum. Það er verst aö ég verð að birgja mig upp á flóðinu. Ferðu á rall, spurði ég? Já aldeilis, ég fer á böllin í Keflavík til að dansa og ég fer ekki upp á annaö en dansa. Ég tek svona einn og einn af nýju dönsunum, en gömlu dansana kann ég alla. Mér er alveg sama hvernig dömurnar eru, þær eru allar góðar, en þó þykir mér betrai að hafa þær þéttholda, svo takið sé gott. Ahyggjur af þjóðmálum? Nei, engar áhyggjur af þjóð- málum. Ég hef trú á þessu landi og hana góða. Það hefur alltaf verið boðorð númer eitt hjá mér að vera glaðlyndur, það er drýgst. Trúaður? Nei, ekkert sérstaklega. Sumir eru að velta því fyrir sér hvort það sé annað líf. Ég veit það ekki, bíð bara rólegur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.