Morgunblaðið - 11.09.1977, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 11.09.1977, Qupperneq 16
48 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1977 m I þessari grein segir Elín Pálmadóttir í máli og myndum frá heimsókn sinni að landamærum Thailands og Kambódíu, þar sem átökin eru að harðna og fólkið að hrekjast Móðir litlu telpunnar og systkini lágu eftir í valnum, þegar Rauðu khmerarnir réð- ust inn í þorpið þeirra og drápu fólk, en amman greip þessa litlu stúlku og bjargaðist út f skóg. Blaðamaður Mbl. var þar í flóttamannabúðunum og tók myndina af þeim. við landamærín lifir í eilífum ótta Gamla konan Som Si sat á veröndinni í bambusstráhúsinu í flóttamannabúð- unum í Aranayprathet með þriggja ára dótturdóttur sina í fanginu og brosti svo skein í tanngarðinn, eldrauðan af tuggu. Kringum hana voru fleiri ættingjar og allir tóku ljúflega á móti okkur, báðu okkur blessuð að drffa okkur upp á pallinn, i skjóli fyrir hitabeltisregninu. Þetta var allt ákaflega eðlilegt. En það var ekkert eðlilegt við aðstæður þessa fólks. Merkilegt að barnið skyldi enn geta brosað og gamla konan sagt okkur frá þvi, sem fyrir hana hafði komið — og sem blaðamaður norðan af íslandi var kominn til að spyrja hana um með hjálp thaimælandi landa hennar — árás Rauðu khmeranna frá Kambódíu inn í þorpið þeirra Ban Noi Parai 30. janúar sl., þar sem þeir myrtu alla fjölskyldu þessarar litlu stúlku. Móðir þess, sem átti von á barni, lá eftir með upprifinn kviðinn, litlu systkinin skorin á háls — en amman hafði gripið litlu telpuna og bjargaó henni með sér út í skóginn. Þetta var sú fyrsta af næturárásum kommúnistahermannanna frá Kambó- díu inn i vopnlaus þorp Thailandsmegin landamæranna til að drepa óbreytta borgana og brenna hús þeirra. Þær hafa siðan verið endurteknar. Rauðu khmerarnir komu i skjóli myrk- urs um klukkan 11 um kvöldið, öllum að óvörum. Á eftir rifjaðist upp, að einhver hafði heyrt gæsakvak, sem þeir seinna áttuðu sig á að hafði verið Rauðu khmerarnir að gefa hverjum öðrum merki. Þeir höfðu ráðizt nokkuð sam- tímis á þrjú fámenn þorp um 4 km frá Arenayprathet, þ.e. Nong Dor, Kiong Kor og Ban Noi Barai, og skildu eftir i blóði drifnum valnum 33 þorpsbúa. I þorpi gömglu konunnar brenndu þeir öll 10 húsin og drápu nokkur vinnudýr. Hvernig hún hafði nákvæmlega komizt i burtu var óljóst. Hún hafði bara gripið barnið og hlaupið í myrkrinu og falið sig í skóginum. Hún var svo heppin, að litla stúlkan grét ekki. Talið var að 500 Rauðir Khmerar hefðu samtímis ráðizt inn í þessi þrjú þorp. Eitt þeirra var ekki Iangt frá lög- reglustöð, sem kallaði á hjálp hersins. En böngulega tókst að komast á vett- vang, því fyrsti skriðdrekinn stöðvaðist er hann lenti á jarðsprengju og tæki biluðu í flugvélinni, sem þá var send af stað. Raunar hefði það ekki hjálpað þeim þorpsbúum, sem lágu dauðir þar sem þeir voru komnir í grasinu milli hús- anna, en kom þó í veg fyrir að ráðizt væri á fleiri býli. Þegar Rauðu khmerarnir hörfuðu, drógu þeir að venju með sér fallin félaga sinn í bandi, sem bundið var um mitti liksins svo blóðslóðina mátti rekja. Og kringum eitt þropanna gengu þeir i jörðu frá plastsprengjum, sem ekki finiast með málmleitara, svo ekki var hægt að komast að og ná likun- um fyrr en á þriðja degi. Þeir sem eftir lifðu þarna og i nálægri byggð urðu skélfingu losnir og tóku að flýja burt. Létu lönd og leið hrísgrjóna- og maísuppskeruna á ökrunum, sitt fá- tæklega lifibrauð. Gamla konan var ásamt 1100 öðrum flutt i flóttamanna- miðstöð, sem i skyndi var komið upp nálægum hofum, Wat Anukul Banpote og Wat Luang. Þangað fór líka dóttir hennar og tengdasonur, sem höfðu búið skammt frá með sín fjögur börn 3ja til 8 ára þau sátu þarna öll í kringum okkur, fallegur, brosmildur hópur. En hörm- ungar þeirra voru ekki afstaðnar. Siður en svo. Þetta fólk er í hópi þeirra íbúa á svæðinu, sem hafa búið þarna við landa- Amman kennir litlu dótturdóttur sinni, sem misst hefur alla sfna fjölskyldu, að kveðja blaðamanninn að Thaisið, með þvf að leggja saman lófana og bera upp að andlitinu. Móðursystur barnsins horfa á. mæri Kambódíu og Thailands um langan tíma, án þess að hirða um landamerki eða hafa pappíra upp á þjóðerni sitt. Og nú, eftir að slíkum árásum Rauðu khmeranna inn í Thailand hefur fjölgað sl. 8 mánuði og tíðara orðið að skærulið- ar frá þeim finnist þeim megin, verður allt það fólk, sem einhvern tíma hefur búið í Kambodiu, tortryggilegt. Því hef- ur þessu fólki nú nýlega verið smalað inn í flóttamannabúðir i Araneyaprat- het, til þeirra sem flúið hafa ógnar- stjórnina i Kambodiu. Þetta vesalings fólk, sem e.t.v. hraktist yfir til Thailands undan ófriðinum á sínum tíma og í mörg ár hefur getað haft í sig og á með hokri Thailandsmegin, verður nú að skilja eft- ir uxa sinn og akurspildu eða ávaxtatré og flytja hús sin inn í flóttamanna- búðirnar, þar sem það neyðist til að lifa i aðgerðaleysi á flóttamannahjálp. Gamia konan og fólkið hennar hafði flúið frá Kambodiu fyrir hálfu öðru ári og setzt að í þorpinu, sem nú var eyði- lagt. Nokkrar fjölskyldur höfðu þá flúið saman, gengið i 30 nætur um 70 km leið frá þorpi 8 km utan við Battambang og jafnan skipt sé i smáhópa á nóttunni. Þetta var óbreytt bændafólk. Hvers vegna hafði það flúið? Jú, það hafði verið hrakið stað úr stað til að vinna á ökrum og vissi varla hvaðan á sig stóð veðrið eða hvar það hafði verið, sagði það. Svo hafði það setzt, að I Thailandi, þar til Rauðu khmerarnir réðust á þorp- ið þeirra og það leitaði skjóls i hofinu og var nú komið i flóttamannabúðirnar i hópi 3000 annarra. Sá hópur kom þangað seint i júlí og gengu undir nafninu „hin- ir nýkomnu“. Starfsfólk hjálparstofn- ananna er að reyna að liðka til þeirra mál og Thailendinga, svo að einhver hluti þeirra a.m.k. fái að fara frjáls ferða sinna og geti séð fyrir sér. Þarna eru þeim allar bjargir bannaðar og eiga kannski eftir að bætast í hóp þess flótta-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.