Morgunblaðið - 11.09.1977, Side 18
50
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1977
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Sendlar óskast
á ritstjórn blaðsins.vinnutími frá kl.
9—6. Upplýsingar í síma 10100 á
morgun, mánudaginn 12. sept.
JflnrigMíriM&foifo
Unglingur óskast
til sendiferða á skrifstofu blaðsins. Upp-
lýsingar á mánudag í síma 10100, skrif-
stofan.
Niðursuðu-
fræðingur
með starfsreynslu erlendis ásamt sérþekk-
ingu og reynslu á lokunarvélum, óskar
eftir starfi. Tilb. sendist Mbl. sem fyrst
merkt: „Lagmeti—4277".
Skipstjóri
Vanur skipstjóri á nótaveiðum, óskar eftir
plássi á bát. Get hafið störf um miðjan
nóvember. Þeir sem hafa áhuga sendi
tilboð ásamt upplýsingum á afgr. Mbl
sem fyrst, merkt: ,,N—4427".
Starfsfólk
hCtmffjS
Sjá auglýsingu bls. 45
Heildversiun
í Reykjavík
óskar eftir að ráða starfskraft til sima-
vörslu, vélritunar og almennra skrifstofu-
starfa. Nokkur tungumálakunnátta nauð-
synleg. Æskilegt að viðkomandi hafi bíl til
umráða og geti hafið störf síðast í októ-
ber.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og
fyrri störf óskast sendar Mbl. merktar:
„Heildverslun — 4059".
r
Oskum eftir
að ráða
aðstoðarfólk á trésmiðaverkstæði og hús-
gagnasmið eða mann vanan innréttinga-
smíði
Hagasmíði h. f.,
Hafnarbraut 7. Kópavogi.
simi 4001 7.
Verslunarstjóri
Kaupfélag Steingrímsfjarðar, Hólmavík,
óskar að ráða verslunarstjóra. Skriflegar
umsóknir, ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf, sendist Jóni
Alfreðssyni kaupfélagsstjóra eða starfs-
mannastjóra Sambandsins, sem gefa
nánari upplýsingar
Kaupfé/ag Steingrímsfjarðar
Atvinna
Vantar starfsfólk í fiskvinnu. Upplýsingar
i síma 1 104.
Hraðfrystihús Keflavíkur.
Skrifstofustarf
Útgerðarfyrirtæki í Keflavík, óskar eftir að
ráða starfskraft á skrifstofu. Upplýsingar
um aldur, menntun og fyrri störf, sendist
Mbl. fyrir 16 9.'77 merkt: „Atvinna —
975".
Járniðnaðarmenn
Okkur vantar til starfa blikksmiði, renni-
smið og járniðnaðarmenn. Mikil vinna.
Góð laun. Uppl. hjá verkstjóra.
B/ikk og Stá/ h.f.,
Bíldshöfða 12.
Smiðir og
verkamenn
Smiðir og verkamenn óskast nú þegar í
byggingavinnu. Uppl. í síma 72030 e.h.
Sölustjóri
Eitt af stærstu bifreiðainnflutningsfyrir-
tækjum landsins óskar eftir að ráða sölu-
stjóra. Starfssvið hans er að sjá um
pantanir og sölu á nýjum bifreiðum. Leit-
að er að manni með þekkingu á þessu
sviði; hann þarf að hafa góða enskukunn-
áttu og geta unnið sjálfstætt. Umsóknir
sendist blaðinu fyrir 21 . sept. n.k. merkt-
ar: „Sölustjóri—4276". Farið verður með
umsóknir sem trúnaðarmál.
Vátryggingarfélag
óskar að ráða starfsmann til ýmis konar
ábyrgðarstarfa. Æskilegt er að viðkom-
andi hafi viðskiptafræðipróf eða góða
verzlunarmenntun. Góð enskukunnátta
nauðsynleg.
Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf sendist Morgunblaðinu
fyrir 20. sept. merkt: „Ábyrgðarstörf —
4374".
r
Utflutningsstarf
Viljum ráða sem fyrst starfsmenn í sölu-
deild okkar á Akureyri. Viðskiptafræði-
menntun og/eða reynsla af útflutnings-
verslun æskileg. Hér er um að ræða
sjálfstætt framtíðarstarf. Skriflegar um-
sóknir sendist starfsmannastjóra. Farið
verður með umsóknir sem trúnaðarmál.
Iðnaðardeild Samhands íslenskra
Samvinnufélaga.
Glerárgötu 28.
Akureyri.
Arkitekt
með 3ja ára starfsreynslu óskar eftir
(áhugaverðu) starfi.
Tilboð sendist á afgreiðslu Mbl. fyrir 17.
þ.m. merkt: „3 — 4282".
Málari eða maður
vanur bílamálun
getur fengið atvinnu nú þegar. Uppl.
gefur verkstjóri á málningarverkstæðinu
Egill Vilhjálmsson h. f.
Laugavegi 118
Aðstoðarstúlka
eða piltur óskast á hárgreiðslustofu, hálf-
an eða allann daginn. Þarf að geta byrjað
strax. Listhafendur leggi nöfn sín og aðrar
upplýsingar á afgreiðslu blaðsins fyrir
föstudaginn 16. september merkt:
„Framtíð—4371".
Bókbindarar
Óskum að ráða vanan bókbindara strax.
Tilboð sendist Mbl. merkt: „Gott
kaup—-4055". Fyrir 16. september.
Bifvélavirki
Óskum að ráða bifvélavirkja til framtíðar-
starfa á verkstæði okkar. Upplýsingar á
skrifstofunni, ekki í síma.
H. F. Ölgerðin Egill Ska/lagrímsson
Þverholti 20.
Skrifstofustarf
Laus staða á skrifstofu við uppgjör og
almenn skrifstofustörf. Starfið gæti
hentað húsmóður sem vildi vinna, hálft til
þrír fjórðu starfs eftir samkomulagi um
tíma. Umsóknir er tilgreini menntun aldur
og fyrri störf, sendist Mbl. fyrir 15. sept.
merkt: „skrifstofustarf — 4058".
Vátryggingarfélag
óskar að ráða starfsfólk til almennra skrif-
stofustarfa, þ.e.a.s. vélritun, götun, síma-
vörzlu o.fl. Til greina kemur einnig hálfs-
dagsstarf.
Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf sendist Morgunblaðinu
fyrir 20. september merkt: „Vátrygging
— 4373".
Óskum að ráða til starfa eftirtalið starfsfólk:
Við Heilsuverndar-
stöðina:
Deildarmeinatækni, fullt starf.
Hjúkrunarfræðing við heilsugæzlu i skólum, hluta starf.
Ritara, hálft starf. Leikni í vélritun, gott vald á íslenzku og
einhver tungumálakunnátta áskilin.
Við Heilsugæzlu-
stöðina í Arbæ:
Meinatækni, hluta starf.
Laun samkvæmt kjarasamningum Starfsmannafélags Reykja
víkurborgar og Hjúkrunarfélags fslands við Reykjavíkurborg.
Umsóknir sendist framkvæmdanefnd Heilsuverndarstöðvar-
innar fyrir 20. september n.k.
Heilsuverndarstöð Reykjavikur