Morgunblaðið - 11.09.1977, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1977
hermenn mannskap til að bera varning-
inn yfir í sin farartæki. Þá kom fyrir að
flutningamönnum tækist að flýja. En
enginn Thailendingur fékk að fara
lengra en að brúarsporðunum. Í júní
1976 fór forsætisráðherra með leynd að
hitta Ieng Sary, utanríkisráðherra Kam-
bodíu, í einbýlishúsi hans í nýlendustíl í
bænum Sisophon, sem vopnaðar herkon-
ur gættu, og fór vel á með þeim. Var
ákveðið að bæta samgöngúrnar milli Ta
Phraya og Aranyaprathet. Thailend-
ingar segjast ekki þá háfa haft hugmynd
um að Kambodíumenn mundu vefengja
landamæralinurnar, sem Thailendingar
og franska nýlendustjórnin höfðu dregið
milli landanna eftir seinni heimsstyrj-
öldina, enda hafði verið tekið fram í
samningnum um að hefja stjórnmála-
samband að hvor þjóðin um sig mundi
virða fullveldi og rétt hinnar á grund-
velli „núverandi landamæra“.
Nú er þó ljóst, að Kambodíumenn hafa
þarna skipt um skoðun, um leið og þeir
eru líka farnir að deila við Viet Nama,
um yfirráð yfir eyjum á mörkunum aust-
an megin, að talið er vegna fiskveiðirétt-
inda i framtíðinni. Þó samþykkt væri sl.
september að opna verzlunarleið milli
Iandanna, byrjuðu árekstrar syðst á
landamærum Kambodíu og Thailands
strax í nóvember og í héruðunum kring-
um Aranyaprathet og Ta Phraya tóku
kommúnistar i desember að sækja inn
fyrir landamærin með skæruliðum að
næturlagi. Átökin hörnuðu þar til i jan-
úar sl„ að þeir hófu fyrstu innrásirnar í
þorpin, sem fyrr er sagt frá. Síðan hafa
engin samskipti verið milli landanna.
Thailendingar hafa mótmælt í hvert
skipti, sem ráðizt var inn i þorpin og
óbreyttir borgarar myrtir. Janúarárás-
inni i þorpin þrjú var svarað frá Phnom
Penh á þann veg, að Kambodíumenn
hefðu aðeins verið að „lagfæra sín eigin
mál i þorpunum þremur". Þeir sökuðu
Thailendinga lika um að hýsa skæruliða,
sem gerðu innrás T Kambodíu. Siðan
hafa Kambodíumenn gert innrásirnar
skýringarlaust og fyrirvaralaust. I hvert
skipti hafa embættismenn Thaistjórnar-
innar reynt að nota beina símasamband-
ið, sem komið var upp milli Aranyaprat-
het og Piopet, þegar stjórnmálasam-
bandi átti að koma á. En Rauðu
khmerarnir svara ekki símanum. Mót-
mælum gegn árásinni 2. ágúst reyndi
Thanin Kraivichien forsætisráðherra að
% *»> ___________________________
_ r rr " ' * *^r*r*-
Pa Ong er einn hinna nýkomnu i flóttamannabúðirnar. Hann hafði búið i Thailandi
síðan 1974 með sin sex börn. En nú hefur þessu vesalings fólki sem ekki veit hvort það
eru Tahilendingar eða Kambodfumenn verið smaiað f flóttamannabúðirnar, af ótta
við njósnara og hryðjuverkamenn.
koma á framfæri gegnum sendiráðið i
Vien Tien, en ekki var tekið við þeim.
Voru blöðin i Thailandi full af spurning-
um til ráðamanna, hvað þeir hygðust
gera. Talað var um að kæra til öryggis-
ráðsins og Thanin Kraivichien bar fram
kvartanir á fundi forsætisráðherra SA-
Asíubandalagsins i Kuala Lumpur.
Óg nú hafa báðir aðilar safnað herliði
að landamærunum. Thailendingar safn-
að sínum herstyrk að Aranyaprathet
með skriðdrekum, þyrlum og flugvélum,
svo sem við augum blasti þar er ég var
þarna. Siðasta daginn, sem ég var í land-
inu, fluttu blöðin fregnir af þvi að Kam-
bodíumenn væru að flytja mikið herlið
að landamærunum sín megin, hefðu
flutt liðstyrk frá landamærum Viet
Nam, þar sem þeir eiga lika i útistöðum.
Útvarpið í Phnom Penh skýrði nú líka i
fyrsta skipti frá átökum Kambodíu-
manna við bæði Thailendinga og Viet
Nama. Fimmtudagskvöldið 16. ágúst sát-
um við með frönsku læknishjónunum,
sem starfa í flóttamannabúðunum, hjá
kanadískri hjúkrunarkonu, sem þar
vinnur á vegum flóttamannahjálparinn-
ar, og heyrðum allt kvöldið fallbyssu-
skothriðina í næturkyrrðinni. Hvað þar
var að gerast vissum við ekki. Þeir sem
búa á þessum slóðum sögðu mér, að það
væri ekkert einsdæmi. En þrátt fyrir
skothrið og jafnvel mannfall á stundum,
er enginn opinberlega að stríða á þess-
um slóðum.
Thailendingar hafa löngum haft orð
fyrir að vera beztu diplómatar heims.
Enda tókst þeim með stjórnkænsku
gegnum aldirnar og gjöfum á löndum til
Englendinga og Frakka þegar í harð-
bakka sló, að komast hjá því eitt landa að
verða nokkurn tima nýlenda. Og i sið-
ustu heimsstyrjöld tókst þeim einum
þjóða á þessum slóðum að sleppa við
hersetu með þvi að semja við Japani um
að hleypa herjum þar í gegnum landið
frá Burma til Malasiu, sem frægt er, en
láta svo útlagastjórn segja Jöpunum
stríð á hendur rétt i lokin. En nú er þeim
vandi á höndum. Þeir eru greinilega
hræddir virtust raunar reikna með því
þá þegar 1970 og 1972, þegar ég var
þarna, að eftir að stríði lyki í Viet Nam,
Laos og Kambodiu, mundu átökin næst
færast yfir þeirra lahd.
Til að friðmælast við nágrannana hafa
þeir vísað öllum bandariskum her á
brott. Nú vilja þeir um fram allt að ekki
skerist í odda með þeim og kommúnista-
ríkjunum austan við þá, Laos, Kambodiu
og Viet Nam með Sovétríkin og einkum
Kinverja og bakhjarli. Kina liggur raun-
ar að þeirra landi á kafla norðanmegin.
Og ekki vilja þeir missa samúð heimsins,
sem óneitanlega yrði i hættu ef hin 44;
milljón manna þjóð Thailendinga réðist!
á Kambodíumenn, sem aðeins töldu 7
milljónir en munu nú mun fámennari
orðnir. En innrásir Rauðu khmeranna að
undanförnu hafa vakið mikla reiði f
landinu, ekki sizt dráp óbreyttra borgara
i þorpunum. Og stjórnvöld geta varla
látið fólkið óvarið á landamærunum.
Þeir virðast þvi tvistíga, eru t.d. nýbúnir
að kippa burtu of duglegum ungum hers-
höfðingja frá landamærunum, sem vildi
herða sóknina og var það mjög umdeilt i
blöðum.
Stefna Thailendinga nú virðist eftir
ummælum stjórnmálamanna í blöðum
og hegðun þeirra að undanförnu vera sú,
að beita fallbyssuskothríð þegar ráðizt
hefur verið inn i landið til að flæma
Kambodiumenn frá landamærunum, en
halda að sér höndum að öðru leyti, beita
t.d. ekki flugvélum eða þungavopnum.
En hermennirnir eru reiðir er þeir sjá
félaga sína falla og myndir i blöðum af
árásunum á þorpin tvö 2. ágúst vekja
reiði og hræðslu almennings. Fólk flýr
frá landamærunum, en Thailendingar
vita að þeir verða að halda fólkinu þar,
svo það skilji ekki eftir óbyggð svæði
fyrir Rauðu khmerana, eins og gerðist
raunar nokkru sunnar i upphafi átak-
anna. — Við höfum lýst því yfir að
stefna okkar sé friðsamleg sambúð við
nágrannana, hvaða stjórnarhætti sem
þeir hafa, sagði varnamálaráðherrann i
blaðaviðtali i Bangkok Post, er hann var
þýfgaður um hvað Thailendingar hygð-
ust nú gera. Við verðum að reyna að
útfæra þá stefu. Hvernig? Við að reyna
samningaviðræður. Hvort sem þær verða
beinar eða gegnum þriðja sterka aðilann
(sjálfsagt átt við Kína,) þá verðum við
að koma þeim í gang. En við verðum líka
að styrkja varnir okkar.
Ég held að varla fari milli mála, að
þarna liggur við að strið sé að hefjast
aftur — eða skelfilegt stríð að halda
áfram, verði ekki einhver breyting.
Hvað verður þá um þessa 7000 flótta-
menn i flóttamannabúðunum í Aranya-
prathet og þetta vesalings ráðvillta fólk,
sem ég hitti þarna við landamærin? —
Ekki er hörmungum þess þá lokið. —
E.Pá.
Opnum
klukkan
eitt í dag.
Lokum
klukkan 10
svæöiö
opiö til 11.
Missiö ekki
at sýningar
viöburöi
HEIHILIÐ77 $
Takiö
daginn
snemma.
Öllu því fólki er heimsótt hefur
,,stærsta heimili landsins“
þökkum við kærlega fyrir komuna, og bjóðum það,
og þá er ekki komust nú,
velkomið á næstu sýningu okkar.
Kaupstefnan hf.
s|
f
5 5
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SEL JA?
l'l U OI.YSIR VM AIXT I.AM) ÞEd AR
M Al GLYSIR 1 MORGl NBLAÐIM