Morgunblaðið - 30.09.1977, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 30.09.1977, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1977 L Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjóm og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannssón. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, simi 10100. Aðalstræti 6, sími 22480. Umfcrðarslysin Frá því var greint í fréttum nýverið, að 25 íslendingar hefðu látið lífið í umferðinni hér á landi það sem af er þessu ári. Á sama tima á síðastliðnu ári höfðu 13 manns beðið bana í umferðarslysum. Slysatíðni hefur því aukizt verulega á þessu ári. Við þessi dauðaslys bætast svo öll hin umferðarslysin, sem valdið hafa meiri og minni likamlegum meiðslum eða örkumlum, sem á stundum setja ævilangar hömlur á líf viðkom- anda. Ökumenn, sem verða fyrir þvi óláni að valda öðrum tjóni, meiðslum eða dauða, bíða og oft á tíðum sálarleg örkuml, sem sízt eru léttbærarí en þau likamlegu. Verðmætatjón í umferðar- slysum, sem árlega nemur miklum fjárhæðum, er vart hægt að nefna samtímis þeim hörmungum, sem umferðarslys valda á lífi og högum einstaklinga og fjölskyldna, er fyrir verða Það er fyllilega tímabært, eftir slysatíðni siðustu vikna, að staldra við og hugleiða, hvað valdi og hverjar séu tiltækar fyrirbyggjandi aðgerðir Það er mikið mannfall fámennri þjóð, er 25 íslendingar bíða bana í umferðinni á 9 mánuðum, sem eru tæplega 3 dauðsföll í piánuði hverjum Nú fara i hönd haustmánuðir og skammdegi, sem sumir telja helzta slysatima ársins Myrkur, votviðri, ísing og snjór hafa áhrif á akstursskilyrði, sem oftar en skyldi er ekki tekið nægjanlegt tillit til, hvorki varðandí búnað bifreiðar né stjórnun hennar. Skammdegi og veðurfar kunna og að hafa áhrif á hugarástand manna, sem komið getur fram í akstri Það verður þvi ekki um of hvatt til varúðar, tillitssemi og háttvísi i umferðinni, samhliða því að halda út í yztu æsar umferðarreglur, sem settar eru til að tryggja öryggi ökumanna og annarra vegfarenda Enginn veit, hver næstur á um sárt að binda vegna örkumla eða ástvinamissis í umferðinni. Allir vita hins vegar, eða ættu að vita, hvernig þeim ber að haga sér i umferðinni, ef þeir vilja forðast slys, bæði á sjálfum sér og öðrum. Þvi miður eru frekja og tillitsleysi við aðra oft ráðandi i huga stjórnanda bifreiðar, — að þvi er virðist — sem leitt getur til sviplegra afleiðinga. Og sumum líggur svo mikið á i umferðinni, var eitt sinn sagt, að þeir mega ekki vera að því að lifa. Það fyrsta sem ökumanni ber að hafa í huga er að búnaður bifreiðar hans sé í góðu lagi, miðað við akstursaðstæður, sem fyrir hendi eru hverju sinni. í annan stað ber honum að halda í heiðri þær umferðarreglur, er tryggja eiga öryggi hans og annarra. Siðast en ekki sízt ber honum að sýna háttvísi og tillitssemi í umferðinni, varðveita hugarró sína og létta lund Brosið í umferðinni, sem íslendingar hagnýttu sér er hægri umferð var upp tekin í landinu, hefur enn mikilvægu hlutverki að gegna. Bezta vörnin gegn umferðarslysum er einhuga samstaða akandi og gangandi vegfarenda um að gera allt sem í mannlegu valdi stendur til að tryggja slysalausa umferð Þessa samstöðu geta fjölmiðlar, blöð, útvarp og sjónvarp, vakið og viðhaldið. Stanzlaus og hnitmiðaður áróður, sem stefnir að því marki, getur áorkað miklu, öllum til góðs ísland og Sakharov. r Island og Sakharov Morgunblaðið leitaði eftir í því að blaðamaður þess, sem var í för með Geir Hallgrimssyni, forsætisráðherra, i opinberri heimsókn hans til Sovétrikjanna, fengi að hafa viðtal við rússneska vísindamanninn Andrei Sakharov Drög voru lögð að slíku viðtali við sovézka sendiráðið í Reykjavík og beiðni sett fram við upplýsingadeild sovézka utanríkisráðuneytisins í Moskvu. Þessum tilmælum var eindregið eytt — af hálfu sovézkra embættismanna I frétt Morgunblaðsíns af þessum atburði segir viðkomandi blaðamaður: ,,l Moskvu er engin símaskrá til þannig að ekki gafst kostur á að komast í samband við Sakharov með þeim hætti enda þótt sími væri í gistihúsinu þar sem ég dvaldist Hins vegar mun vera til sérstök simaskrá, sem erlend sendiráð i borginni hafa komið sér upp . Mun hún vera prentuð í Lundúnum og síðan send í stjórnarpósti til Moskvu. Yfir þetta þarfaþing komst ég ekki " Blaðafulltrúi rússneska sendiráðsins í Reykjavik, Victor Elisev, ráðlagði Morgunblaðinu eindregið að hverfa frá því að hafa samband við andófsmanninn Andrei Sakharov Slíkt gæti orðið til að eyðileggja hina opinberu heimsókn íslenzka forsætisráð- herrans til Sovétríkjanna, eíns og hann orðaði það Auk þess gaf hann i skyn að þessi heimskunni rússneski vísindamaður og Nóbelsverðlaunahafi „væri truflaður". Dagblaðið Tíminn segir svo um þetta atvik „Framkoma af þvi tagi sem fulltrúar sovézkra stjórnvalda hafa viðhaft i þessu máli hljóta íslendingar að fordæma og frábiðja sér trakteringar af þessu tagi. Það öfugsnúna viðhorf til sjálfsagðra og einfaldra mannréttinda, sem fram kemur í þessari frásögn, á sér v.onandi fáa formælendur hérlendis. Og satt að segja geta menn ekki séð að Sovétmenn sjálfir hafi minnstu þörf fyrir smásmygli af þessu tagi, jafnvel þótt ekki sé höfð í huga sú kúgun, sem þar i landi viðgengst að öðru leyti" Þannig tekur dagblaðið Timinn undir gagnrýni Morgunblaðs- ins, sem fram var sett m.a. af þessu tilefni. Það kemur svo engum á óvart, þótt annað dagblað, sem einnig hefur látið til sín heyra af sama tilefni, sé enn í ,,kópíu"-hlutverki af forskriftarblöðum sínum á Volgubökkum. Valgarð Briem hrl.: Umferðarslys Að undanförnu hefur mikið verið rætt og ritað um hin tiðu ög alvarlegu umferðarslys í landinu og ekki af ástæðulausu. Einstakir aðilar hafa eftir mætti reynt að vekja athygli á því, hve hér sé um alvarlegt mál að ræða og vafalaust hefur sú viðleitni borið nokkurn árangur. Ekki er þó óeðlilegt að veg- farendur spyrji hvort hér sé nóg að gert og sjálfsagt finnst flestum að svo sé ekki. Engum einum aðila verður með réttu kennt um, að ekki skuli meira gert gegn þessum vágesti en orðið er. Til þarf að koma samstillt skipulegt átak margra afla ef árangurs er að vænta svo um munar. A næsta vori eru 10 ár liðin siðan hægri umferð var tekin upp í landinu. Fiestir, sem um þau mál hugsuðu um þessar mundir fyr- ir 10 árum, báru nokkurn ugg í brjósti, að sú grundvallarbreyt- ing á háttum vegfarenda, sem hægribreytingin hlaut að verða, myndi hafa i för með sér verulega fjölgun umferðar- slysa, ef ekki yrði sérstaklega gegn þeirri hættu snúizt. Breytingin úr vinstri í hægri umferð var rétt um garð gengin í Svíþjóð og vitað var, að veru- legu fjármagni hafði þar í landi verið varið til þess að draga úr slysahættu samfara breyting- unni. Þeir, sem hér á landi undir- bjuggu hægri umferð, fylgdust náið með undirbúningi og framkvæmd breytingarinnar í Svíþjóð, til þess að draga af henni sem mestan lærdóm. Eitt af því fyrsta, sem af því leiddi, var beiðni framkvæmda- nefndarinnar til dómsmálaráð- herra um að fá sérstaka fjár- veitingu er nam 10 milljónum króna til þess að auka umferð- aröryggið og draga úr slysa- hættu. Þetta þótti mikið fé fyrir 10 árum, en tilgangurinn þótti réttlæta að verja því fé með þessum hætti og var fjárveit- ingín veitt. Öllu þessu fé var markvisst varið í þeim tilgangi að bæta svo þekkingu vegfarenda í um- ferðarmálum og hafa þau áhrif á hegðun vegfarenda að um- ferðaröryggi yrði ekki minna eftir breytinguna þrátt fyrir þá aukningu í slysahættu sem breytingin hlyti að hafa í för með sér. Tölur um tíðni umferðarslysa eftir hægribreytinguna virðast sýna, að þetta hafi tekist og heldur meira en það, því að í stað þess að slysum- fjölgaði eins og mátt hefði búast við, þá dró verulega úr þeim. í raun og veru bjó þjóðin nokkur næstu árin eftir breyt- inguna að þeirri fræðslu og um- ferðaráróðri, sem hægri um- ferðinni fylgdi. Menn geta varla efast um að umræddum 10 milljónum króna hafi verið vel varið. Sú fjárfesting skilaði sér margfalt árin á eftir í beinhörðum pen- ingum að ekki sé talað um sárs- auka og sorg sem slys valda og aldrei verður mælt. Um leið og ég minni nú á þessi sannindi, leyfi ég mér að beina þeim tilmælum til þeirra sem það mái snertir, hvort það ástand sem nú hefur skapast i umferðarmálum þjóðarinnar réttlæti ekki aðgerðir í likingu við það sem gert var fyrir 10 árum. Fjár er vant til margra hluta. Samt virðist ástæða til að kanna, hvort nú sé ekki ástæða til. við gerð fjárlaga ársins 197H að verja verulegu fjármagni, hliðstætt því og gert var fyrir 10 árum, til þess að vinna gegn umferðarslysum og bæta um- ferðaröryggið. Ef sú aðgerð tækist, má ætla að hennar nyti næstu árin og vegna þeirrar reynslu sem nú er til af skipulagningu slíks starfs má gera meira fyrir sömu fjármuni en hægt var þegar allt þurfti að skipuleggja frá grunni fyrir 10 árum. Ætla má að þeir aðilar, menn og félög, sem þá lögðu hönd á plóginn myndu enn fáanlegir til samstarfs eftir því sem hverjum og einum er unnt. Sú hreyfing, sem koma þarf á í þessum málum verður ekki án frumkvæðis hins opinbera og hún kostar verulegt fé. Getur rikissjóður séð af þeim fjár- munum? Reykjavík 29.9 1977 Valgarð Briem. 240 ljósastillingum, en gamla kerfið bauð aðeins upp á 144 still- ingar. Kristinn sagðist vera mjög ánægður með þetta kerfi, en það kæmist í notkun í áföngum og eins og áður sagði er fyrsti áfangi þess þegar tilbúinn. Kristinn sagði að ljósastillingar fyrir hvert leikhúsverk væri hægt að vinna á tölvu í tækjunum og síðan taka þau upp á segulband, og væri þannig tilbúið fyrir hverja sýningu. Kerfið væri búið góðum öryggisbúnaði og mjög vandað og ættu leikhúsgestir ekki að verða varir við minnstu breyt- ingar á sviðslýsingu eftir tilkomu þessa búnaðar. Að sögn Sveins Einarssonar. Þjóðleikhússtjóra, mun gamla kerfið vera það síðasta sinnar teg- undar sem notað hefur verið í leikhúsheiminum. Hann sagði ennfremur að það hefði verið mikið baráttumál starfsmanna leikhússíns að fá ljósakerfið end- urnýjað, enda væri endingartími slíks tækjabúnaðar venjulega 10 tíl 15 ár. Sagði Sveinn að hann og aðrir starfsmenn leikhússins væru stjórnvöldum mjög þakklát- ir fyrir að hafa hrugðizt svo vel við um lausn þessa vanda. í sumar hefur verið unnið að því að setja þetta nýja kerfi upp og hefur Kristinn Daníelsson ljósameistari Þjóðleikhússins haft umsjón með verkinu. Að- spurður sagði Kristinn að ljósa- menn leikhússins hefðu að mestu unnið að verkinu, en þeir hefðu Kristinn Daníelsson, ljósameistari Þjóðleikhússins, við nýja Ijósakerf- ið. Nýtt ljósakerfi í Þjóðleikhúsinu — það eldra hefur sungið sitt síðasta eftir 30 ára notkun í ÞJOÐLEIKHÚSINU var í gær- kvöldi formlega tekið í notkun nýtt Ijósakerfi. Það Ijósakerfi, sem áður var notað, er það sem komið var fyrir f upphafi í Þjóð- leikhúsinu t>ða fyrir tæpum 30 árum. Erfitt var orðið að nýta það og hætt að framleiða varahluti í slík kerfi. notið aðstoðar manna frá brezka fyrirtækinu Rank Strand, en það er framleiðandi þessa tækjabún- aðar. Kerfið hefur einkennisstaf- ina MMS og gefur möguleika á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.