Morgunblaðið - 19.10.1977, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. OKTOBER 1977
23
FJÖRAR telpur efndu fyrir nokkru til hlutaveltu til ágóða fyrir
Styrktarfél. lamaðra og fatlaðra. Á myndina vantar eina úr hópnum,
en á henni eru þær Brynja Birgisdóttir, Guðlaug Ingvarsdóttir og
Anna Guðrún Gylfadóttir. A myndina vantar Lindu Birgisdóttur. Alls
söfnuðu telpurnar 2200 krónum.
Félagsstarf aldr-
aðra í Bústaðasókn
A miðvikudögum milli kl. 2 og 5
fer fram starf fyrir aldraða í
Safnaðarheimili Bústaðakirkju.
Hófst það fyrir tveimur vikum og
lofar mjög góðu.
Aðsókn hefur verið góð og hinn
rétti heimilisbragur yfir öllu. Það
er lesið, enda liggja öll dagblöðin
frammi, og mikið sungið, enda
hefur organisti kirkjunnar Guðni
Þ. Guðmundsson verið ötull og
léttur við hljóðfærið og komið
með aðra listamenn með sér. Þá
hefur verið spilað á spil af sannri
leikgleði og sízt mætti gleyma
handavinnunni, sem frú Magda-
lena Sigurþórsdóttir stýrir af al-
kunnri leikni. Og þá hafa veiting-
ar kvenfélagskvennanna verið
einstaklega vel þegnar.
I dag bætist einn liður enn við
starfsemina, en þá koma bóka-
vag'nar frá Borgarbókasafninu,
útibúinu Bústaðakirkju upp á efri
hæðina, og starfsfólkið kynnir
bækur sínar, starfsemi safnsins
og aðstoðar fólkið við að fá lánað-
ar bækur. Er ekki að efa, að þessi
þjónusta verður vel þegin.
Félagsstarf þetta er öllum þeim
opið, sem eru orðnir 67 ára gaml-
ir, eða hafa hætt starfi, og eigi
einhverjir erfitt með að komast,
er hægt að tala við frú Aslaugu
Gisladóttur, formann safnaðar-
ráðs kirkjunnar i sima 32855 og
reynir hún þá að leysa úr þeim
vandkvæðum sem öðrum.
Öl.Sk.
AUGI.YSINGASIMINN ER:
22480
Krakkar styrkja líknar-
starf með hlutaveltum
-
Nýtt - Nýtt
ÞESSAR vinkonur Kristbjörg Gfsladóttir og Margrét Adolfsdóttir,
báðar í Melaskólanum, efndu til hlutaveltu til ágóða fyrir Kristniboðs-
samband K.F.U.M & K.F.U.K. Söfnuðu þær alls um 20.000 krónum.
ÞESSIR ungu Hafnfirðingar, Snorri Jósefsson og Ingólfur Einarsson,
söfnuðu fyrir nokkru rúmlega 12.800 krónum með hlutaveltu, til ágóða
fyrir Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra.
GLÆSILEG
BAÐSETT
FRÁ ÍTALÍU
SÉRSTAKUR
KYNNINGAR-
AFSLÁTTUR
TIL MÁNAÐAR-
MÓTA
Pantiö
tímanlega
OPIO
LAUGARDAG
10-4
BYGGINGAMARKAÐURINNhf
VERZLANAHÖLLINNI GRETTISG. / LAUGAV. Sími 13285
V
Bók kvikmyndaleikkonunnar
Liv Ullmann
Umbreytingin
komin út.
Mest umtalaða bók í vestrænum heimi.
Metsölubók í þremur heimsálfum.
Liv vill sýna manneskjuna án grímu.
HELGAFELLSBÓK