Morgunblaðið - 22.10.1977, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 1977
Verkfallsvörzlu hætt vid Tollstöðina:
Verkfallsverðir
vildu sjá í bréf fólks
VERKFFALLSVERÐIR hættu í
gær verkfallsvörzlu við skrifstofu
tollstjóraembættisins og í gær gat
fólk gengið óhindrað að póstlúgu
embættisins og lagt þar inn bréf
að vild.
Björn Hermannsson tollstjóri
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær, að þar sem stöðug varzla
hefði verið við póstlúguna, hefði
hann tekið þá ákvörðun í gær-
morgun að opna sjálfa skrif-
stofuna, vegna þess að þá og eins
á mánudag væri von á fjölda
manna, sem þyrfti að skila inn
söluskatti mánaðarins.
„Verkfallsverðir voru einnig
búnir að krefjast þess af fólki,
sem kom með bréf til embættis-
ins, að það opnaði umslögin,
þannig að þeir gætu séð inníhald
þeirra, og var ég ekki alveg sáttur
við það. Okkur tókst að ná sam-
komulagi að lokum, þannig að nú
er verkfallsvörzlu hætt og allir
geta lagt bréf óhindrað inn í
gegnum póstlúguna, en skrif-
stofan sjálf er aftur lokuð,“ sagði
Björn.
Á fundi fréttamanna með verk-
Valur 23
Kyndill 15
Valur sigraði færeyska hand-
knattleiksliðið Kyndil frá Þórs-
höfn í gærkvöldi með 23 mörkum
gegn 15 í fyrri leik liðanna i
Evrópukeppninni. Leikurinn var
háður í Þórshöfn. Staðan í hálf-
leik var 8:7 fyrir Val.
Godinn fór upp
aö á Akranesi
ekki í Reykjavík
SKIPASMIÐASTÖÐ Þorgeirs og
Ellerts á Akranesi fékk í gær
undanþágu til að björgunarskipið
Goði fengi að koma að bryggju á
Akranesi með skipsskrokk, sem
skipið kom með frá útlöndum.
Var skipið þó ekki tollafgreitt og
fékk ekki að fara inn á höfnina í
Reykjavík og liggur því ásamt
öðrum ótoliafgreiddum skipum á
ytri höfninni.
fallsnefndarmönnum BSRB kom
fram að þerr hefðu i gær frétt að
tollstjóri hefði þegar fengið alla
tollpappira frá skipunum á ytri
höfninni í hendur. Þetta hefðu
verið BSRB sár vonbrigði, en
pappírunum hefði trúlega verið
komið heim til einhvers starfs-
Framhald á bls. 24.
Verður verk-
falli frestað
ef samkomu-
lag næst?
HVAÐ gerist ef samn-
ingar nást á fundum
BSRB og fulltrúa fjár-
málaráðuneytisins um
helgina? Verður verk-
falli frestað og fer sú
starfsemi, sem hefur
verið meira og minna
lömuð í verkfallinu, um
leið af stað.
Haraldur Steinþórsson var
spurður að þessu á fundi með
fréttamönnum í gær og sagði
hann að ef samkomulag hefði
tekizt á síðasta fundi deilu-
aðilja hefði verkfalli trúlega
verið frestað. Atkvæðagreiðsla
hefði síðan farið fram í félög-
um og ef samkomulagið hefði
verið fellt þar, þá hefði verk-
fallið að sjálfu sér byrjað aft-
ur.
Komi til þess að sáttasemjari
Framhald á bls. 24.
Kosningaundirbúningur stóð sem hæst hjá Vökumönnum f gær.
1. desember kosningar í dag:
Kosiö um menntun og
mannréttindi annars vegar
og kvenfrelsi hins vegar
Kjörfundur í Sigtúni frá kl. 15 — 17
GENGIÐ verð.ur til 1. desember
kosninga innan Háskólans í dag,
laugardag. Tveir listar eru í kjöri,
listi Vöku, félags lýðræðissinn-
aðra stúdenta, og listi Verðandi,
félags róttækra stúdenta. Vaka
býður upp á umræðuefnið
„Menntun og mannréttindi" en
Verðandi upp á efnið „Kvenfrels-
isbaráttan".
Kosið verður í Sigtúni við
Suðurlandsbraut og hefst kjör-
fundur kl. 14 með framsöguræð-
um og standa þær til kl. 15 en þá
hefst kosning og er húsinu lokað
kl. 17 stundvíslega.
Framboðslista Vöku skipa
Anna Sverrisdóttir, Auðunn
Svavar Sigurðsson, Einar Örn
Thorlacius, Kristinn Árnason,
Af skífu „umferðar-
klukkunnar”má lésa
hvenaer hættan er mest
17—18 síðdegis, eða rétt
liðlega 10% allra óhappa
og slysa hvort árið. Næst
flest slysin verða milli
klukkan 13 og 14 eða
8,2%. Að öðru leyti vísast
til meðfylgjandi
„klukku“.
Á henni má sjá, að
óhöpp og slys eru í lág-
marki yfir blánóttina,
þegar umferð er alla
jafna minnst. Upp úr
klukkan 7 snareykst
slysatíðnin og hámarki
nær hún síðde^is. Öku-
menn ættu að kynna sér
vel „umferðarklukku“
lögreglunnar. Af skífu
hennar má lesa hvenær
hættan er mest í um-
ferðinni og hvenær þörf
er á sérstakri aðgæzlu.
SLYSADEILD lögregl-
unnar í Reykjavík hefur
útbúið nokkurs konar
„umferðarklukku“ fyrir
árið 1976 og er mjög
fróðlegt að skoða hana.
Umferðarslys og óhöpp
voru 2950 að tölu í fyrra,
en árið á undan voru þau
3422 að tölu. Á
meðfylgjandi „klukku“
hefur verið reiknað út á
hvaða tímum sólar-
hringsins flest slysin og
óhöppin verða. Svörtu
súlurnar eru fyrir árið
1976 en þær strikuðu
fyrir árið 1975. Ut frá
þeim standa prósentu-
tölur fyrir hvort árið.
Samkvæmt „klukk-
unni“ verða flest óhöpp
og slys átímabilinu
Ottó Guðjónsson, Stefán Jónsson
og Sveinn Geir Einarsson.
Að sögn Vökumannaer ástæðan
fyrir valinu á umræðuefni því,
sem að framan er getið, sú, að á
viðsjárverðum timum á frelsi
mannsandans undir högg að
sækja og brýn þörf á að standa
vörð um þetta frelsi, eins og dæm-
in sanni. Vökumenn vilja hins
vegar leggja áherizu á í þessu
sambandi, að ekki sé unnt að tala
um full mannréttindi i löndum,
þar sem mönnum er ekki frjálst
að stunda það nám sem hugur og
Framhald á bls. 24.
Hæstiréttur:
JLögbannsmálið
tekið fyrir í
næsta mánuði
LÖGBANNSMÁLIÐ vegna verk-
fallsvörzlu BSRB við rannsókna-
skipið Arna Friðriksson verður
ekki tekið til meðferðar hjá
Hæstarétti fyrr en í næsta mán-
uði, að því er Björn Helgason
hæstaréttaritari tjáði Mbl. í gær.
Björn sagði að sjávarútvegs-
ráðuneytið hefði áfrýjað málinu
til Hæstaréttar en ekki kært
fógetaúrskurðinn og fengi málið
þvi ekki forgangsafgreiðslu eins
og venjan væri með kærða úr-
skurði.
Arnarflug
fékk þrjár
undanþágur
ARNARFLUG fékk í fyrradag
tvær undanþágur til flugs í gær.
Var annars vegar um að ræða flug
til Spánar fyrir Ferðaskrifstof-
una Sunnu með 124 farþega og
þar á maðal voru um 50 ellilíf-
eyrisþegar og sjúklingar, sem
ætla að dvelja I tvo mánuði á
Spáni. Átti vélin að koma heim
með um 90 farþega frá Spáni, sem
undanþága var reyndar gefin til
að sækja um slðustu helgi. Hins
vegar var gefin undanþága til að
fara með 49 Islendinga til Eng-
lands á vegum Ferðamiðstöðvar-
innar, en sú vél átti að koma tóm
heim.
I dag hefur Arnarflug undan-
þágu til flugs til Gautab'orgar
fyrir Braathens flugfélagið. 1 til-
kynningu frá Verkfallsnefnd
BSRB segir að komufarþegum
verði heimiluð landganga og eðli-
leg tollmeðferð.