Morgunblaðið - 22.10.1977, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 22.10.1977, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 1977 Hlutur þroskaheftra hefur verið fyrir borð borinn — sagði Gunnar Thoroddsen, félagsmálaráðherra á stofnþingi Landssamtakanna Þroskahjálpar Hér fer á eftir ræða Gunnars Thoroddsens, félagsmálaráðherra, á stofnþingi Þroska- hjálpar. Það er alkunn staðreynd að i þjóðfélögum, sem jafnvel standa á háu stigi þróunar al- mennt í félagsmálum og sam- hjálp, verða oft einhverjir hóp- ar útundan. Samfélagið hefur fyrr og síðar ekki sinnt nægjan- lega skyldum sínum við þá, sem eru afbrigðilegir á einhvern hátt eða uppfylla ekki þær kröfur, sem almennt eru gerðar til þegna þjóðfélagsins. Einn slíkur hópur er það fólk, sem við nú tölum um sem vangefið eða þroskaheft. Hlut- ur þessa fólks og vandamanna þess hefur verið fyrir borð bor- inn og það hefur ekki hlotið stuðning samfélagsins í þeim mæli sem skyldi. t sögu mannkyns hafa ávailt fæðst einhver börn, sem sköpuð voru þau örlög að ná ekki eðli- legum andlegum þroska. Þessi börn voru tíðum höfð sem eins- konar huldubörn; er litið væri hægt að gera fyrir og best bæru geymd þar sem minnst bæri á þeim. Á síðustu áratugum taka við- horf í þessum málum að breyt- ast. Menn fara að gera sér grein fyrir því, að þjóðfélaginu beri skylda til að sinna betur þess- um bræðrum okkar og systrum, gera eitthvað meira fyrir þetta fólk, í því skyni að það megí ná þeim þroska, sem er möguleg- ur, og geti lifað sem eðlilegustu lífi. Þetta á ekki aðeins við hér á landi heldur víðast hvar annars staðar. Tvennt er nauðsynlegt til þess að úr rætist: Áhugi á mál- efninu og fjármagn tii fram- kvæmda. Það markaði spor, þegar nokkrir áhugamenn stofnuðu Styrktarfélag vangefinna. Þar var að verki fólk með brenn- andi áhuga á málefninu, fólk, sem þekkti vandann, er við var að glíma og var þess albúið að ieggja fram krafta sína. Þetta félag hefur unnið mikið og markvert brautryðjendastarf og það er ærin ástæða til að minnast þessa framtaks for- vígisnrannanna og þakka það. Síðar hafa komið önnur félög, sem af ósérplægni vinna að bættum hag vangefinna eða þroskaheftra og vandamanna þeirra. Þegar þessi félög stofna nú með sér samtök, Landssam- tökin Þroskahjáip, og sameina afl til átaka, vil ég óska þessum samtökum gæfu og gengis og vænti góðrar samvinnu við þau eins og verið hefur við hin ein- stöku félög til þessa. Að frumkvæði stjórnar fyrsta styrktarfélags vangefinna var lagt fyrir Aiþingi frumvarp til laga um aðstoö við vangefið fólk. Frumvarp þetta var sam- þykkt sem lög árið 1958. Með þessum lögum var stofnaður Styrktarsjóður vangefinna og skyldi fé hans varið til að reisa og endurbæta stofnanir fyrir vangefið fólk. Frá gildistöku þessara laga hefur sjóðurinn haft tekjur af sérstöku gjaldi, sem greitt er af öli og gos- drykkjum. Tekjustofn þessi hefur verið tímabundinn við fimm ár í senn þar til nú á siðasta ári, að hann var fram- lengdur um aðeins eitt ár. I byr.jun.var gjaldið til sjóðsins 10 aurar á hverja flösku öls og gosdrykkja en er nú sjö krónur á litra. Þessi markaði tekjustofn hef- ur reynst mikil lyftistöng fyrir framkvæmdir til hagsbóta fyrir vangefið fólk. Styrkjum úr sjóðnum hefur jafnan verið út- hlutað i samráði við Styrktarfé- lag vangefinna, en væntaniega koma nú Landssamtökin Þorskahjálp í þess stað í þessu efni. Til þessa dags hafa verið greiddir styrkir úr sjóðnum að fjárhæð samtals um 330 milljón kr. Það er kunnugt, að ýmsir eru andvígir þessum svo-nefndu mörkuðu tekjustofnum og vilja afnema þá. Það má færa rök fyrir þeirri afstöðu frá sjónar- miði stjórnsýslu og ríkisfjár- mála. En ég tel önnur rök sterk- ari. Ég þekki það af langri reynslu að með mörkuðum tekjustofnum hefur tekist að koma fram mörgum mannúðar- og framfaramálum, sem illa gekk eða ógerlegt reyndist aó þoka áleiðis með fjárveitingum í fjárlögum einum saman. Það væri miður farið, ef þessi sér- legi tekjustofn yrði niður felld- ur og ég vil eindregið stuðla að því að svo verði ekki, heldur verði hann framlengdur og aukinn. Á síðustu árum hafa menn vakið máls á því, að nauðsyn bæri til þess að setja heildarlög- gjöf um málefni vangefinna. I fyrra var skipuð þriggja manna nefnd til þess að fjalla um þetta mál. Nefndin samdi frumvarp til iaga um vangefna, sem nú er til athugunar hjá rikisstjórn. Ég ætla ekki að ræða efni þessa frumvarps hér. Um það verður fjallað á þessu þingi Þroska- hjálpar. En eitt vil ég undir- strika: Ekkert verður afgreitt í þessu máli án þess að áður verði haft samráð við samtök ykkar. Ég flyt þessum nýju samtök- um, Landssamtökunum Þorska- hjálp, árnaðaróskir. Ég vona, að störf ykkar á þessu þingi og í framtíðinni verði til blessunar og hagsbóta fyrir það van- megna fólk, sem þið hafið sam- einast um að Iiðsinna og vinna fyrir. Þorvardur Elíasson: V extir og frjáls gjaldeyriseign I fréttatilkynningu Seðla- banka íslands um miðjan júlí s.l. var kunngert að vextir yrðu framvegis í tvennu lagi. Grunn- vextir 3—9%, breytilegir eftir tegundum lána og Verðbóta- þáttur, sem þá var ákveðinn 8% fyrir öll lán. Þá segir í tilkynningunni að Seðlabank- inn muni fyrst um sinn endur- skoða verðbótaþáttinn, að jafn- aði ekki sjaldnar en á 3ja mán- aða fresti, þannig að hann hækki um 60% af því sem verð- bólgan kann aö verða umfram 26% á ársgundvelli. Þess er þvi að vænta að vextir verði hækkaðir næstu daga. 30% vextir Verðbóiga á ársgrundvelli er nokkuð óljóst orðalag, en hvað getur það táknað? Af fréttatil- kynningu Seðlabankans virðist mega ráða að bankinn telur verðgólguna þá vera 26%. Sé litið í ' ___ „ visiioiu framfærslu- kostnaðar kemur í ljós að á þessum tíma hefur hún einmitt hækkað um 26% frá júlímánuði árið áður. Það er því nærtækt að ætla að verðbólga á árs- grundvelli merki hækkun framfærsluvisitölu siðustu 12 mánuði. Þann 1. nóvember n.k. verður bírt ný framfærsiuvititala og er fyrirsjáanlegt að hún verður ekki undir 835 stigum, en lík- lega nær 840 stigum, sem þýðir 29—30% hækkun frá fyrra ári. Þannig reiknað ætti verðbóta- þáttur vaxta að ákvarðast 10% og ársvextir vaxtaaukalána að hækka úr 27% í 29%. Vitað er að verðbólgan tekur mikinn fjörkipp í desember. Þess er ekki að vænta að hækk- un framfærsluvísitölu frá árs- byrjun til ársloka verði undir 35%, nema einhverjar sérstak- ar ráðstafanir komi til. Þannig hefur Jón Sigurðsson forstjóri Þjóðhagsstofnunar, sem lita má á sem löggiltan verðbólgu spá- mann, látið hafa eftir sér að verðbólgan í ár fari í 34—35%. Sé sú tala lögð til grundvallar ætti verðbótaþáttur vaxta að hækka um 5 stig og verða 13%. Arsvextir vaxtaaukalána færu þá í 32 %. Ekki er óeðlilegt að ætla að hin uifræðilegu áhrif hækkun- ar ársvaxta úr 29% í 30% séu meiri en hin peningalegu áhrif þess að hækka vexti úr 27% í 29%. Það er þvf raunhæft að gera ráð fyrir að Seðlabankinn tilkynni fljótlega um hækkun verðbótaþáttar vaxta úr 8% í 11%, sem myndi færa ársvexti vaxtaaukalána upp í 30%. Lágmarkskröfur Fyrir atvinnurekstur og al- menning eru 30% vextir ill- bærilegir, ef ekki óbærilegir. Engu að síður þýðir ekki að mótmæla slíkum vöxtum. Ef einhveru á að mótmæla er það verðbólgunni og vaxta misræmi hinna einstöku Iánsforma og mismunun atvinnugreinanna. Ef fyrirtæki geta ekki greitt 30% vexti, þá er það einungis staðfesting á því, sem marga hefur grunað, að ekki sé hægt að reka þjóðfélag með 30% verðgólgu og þaðan af meira. Seðlabankastjóri orðaði kjarna málsins vel þegar hann eitt sinn sagði: „Lágmarkskröfur sem gera verður til banka er að þar sé hægt að fá geymt sparifé sitt“. Til þess að uppfylla þess- ar lágmarkskröfur, sem Seðla- bankastjórinn talar þarna um, þannig að menn bæru fullt traust til, þyrfti að hækka inn- lánsvexti í 40%, svo slæmt er ástandið. Vísitölutrygging Margir benda á að háir vextir séu ekki lausn á verðbólgu- vandanum. Það verður líka að viðurkennast að vaxtahækkun ein sér, stöðvar ekki verðbólg- una, hún er aðeins viðurkenn- ing á tilveru hennar. Það er engin lausn á umferðarvandan- um að flytja allt slasað fólk í sjúkrahús, en það er forsenda þess að hægt sé að beita bestu aðíerðum við að lækna þá slös- uðu. Á sama háti er vaxíshæ.kk- uu lorsenua pess ao nægt se ao ráða niðurlögum verðbólgunn- ar eða búa við hana, hvort sem menn vilja heldur gera. Vaxtahækkun leysir þó ekki allan fjármálalegan vanda. Nægilee 1 1 Z -~o -uA.cinajKKun getur að vísu skapað jafnvægi þannig að ásókn í lán verði ekki meiri en það sparifé sem lagt er inn af fúsum og frjálsum vilja. Ef slíkt ástand skapaðist þyrftu bankarnir að fara að auglýsa eftir lántakendum og þá myndi vissulega margt í rekstri þeirra og starfsháttum breytast til batnaðar. En í 30% verðbólgu er ekki hægt að lána fé til langs tíma, nema með þvi að taka upp vísitöiutryggingu lána samfara lágum vöxtum. Ef ein milljón er lánuð til 10 ára með 30% vöxtum í jafn mikilli verð- bólgu, verða vextir og af- borganir fyrstu 2 árin kr. 770.000 og eftirstöðvar lánsins kr. 80.000. Verðgildi einnar milljónar er þá hins vegar kom- ið upp í kr. 1.690.000. Að verð- gildi eru eftirstöðvarnar því minna en helmingur upphaf- lega lánsins, þó aðeins séu liðin tvö ár og lánið hafi hugsast til 10 ára. Ef lánið er hins vegar vísitölubundið og engir vextir greiddir, nemur greiðsla vaxta og afborgana aðeins 299.000 krónum fyrstu 2 árin. Eftir- stöðvar lánsins eru þá kr. 1.352.000, lánið hefurþvi hækk- að en ekki lækkað. Hvort tveggja lánskjörin eru jafngóð fyrir lánveitanda ef vextir eru hafðir eðlilegir. Hagnaður hankanna Vísitölutrygging lánasjóða, sem lána fjárfestingarlán, hlýt- ur því að vera þeim og við- skiptavinum þeirra jafn mikil- væg og vextirnir. Vióskipta- bankarnir virðast aftur á móti ekki hafa mikinn áhuga á þeim markaði, þeir einbeita sér fremur að stuttum rekstrarlán- um og þá geta háir vextir komið í stað visitölutryggingar. Sú stefna hefur það þó óhjákvæmi- lega í för með sér að fyrirtækin verða á hverju ári að fá aukin og ný skammtímalán, til þess að geta fjármagnað verðbólguna og þá ekki síst hina háu banka- vexti. En til þess að geta veitt þessi nýju lán, verða viðskipta- bankarnir að eiga peninga til. Til þess er ekki nóg að afla spariinnlána, viðskipta- bankarnir verða einnig að verð- veita eigin fé sitt. E.t.v. hefði það tekist með núverandi tekju- stofnum bankanna, ef hægt hefði verið að halda verðbólg- unni niðri, en á meðan núver- andi verðgólgu aðstæður rikja, verður að stórauka munihn milli innláns- og útlánsvaxta. Að óbreyttu ástandi krefst það gífurlegs hagnaðar hjá bönkun- um, ef gera á þeim kleift að varðveita verðgildi eigin fjár síns. Spörum gjaldeyrinn Full ástæða er til að gefa auk- inn gaum að samspili vaxta, gengis og gjaldeyrisvarasjóðs okkar. Sú lágvaxtastefna sem hér er haldið uppi stuðlar að gengisfalli íslenzku krónunnar. Ef vextir væru hærri en verð- bólgan, myndi gengið styrkjast verulega, og sterkt gengi stuðl- ar meir en flest annað að stöð- ugu verðlagi. Saman hefur þetta svo úrslita áhrif á það hvort gjaldeyrissjóður okkar vex eða minnkar. Hvernig væri að reyna nú nýja leið til lausnar á gjaldeyris- og vaxtamálum Ckkar. Levfum almenningi að eiga gjaldeyrisvarasjóðinn. Leyfum hinum almenna borg- ara að opna gjaldeyrisreikn- 1322 I 'viuskiptabönkunum. Eðlilegt væri að vaxtagreiðslur bankanna inn á slíka innláhs- reikninga væru í samræmi við þá vexti sem almennt eru greiddir í viðkomandi löndum og hér á landi og Seðlabankinn hagi stjórn peningamála þann- ig að raunverulegar gjaldeyris- innistæður væru í samræmi við hreyfingu þessara reikninga. A þennan hátt mætti stórefla inn- lendan sparnað. Til að byrja með mætti leyfa þeim sem eiga erlendan gjald- eyri að leggja hann inn á slíka reikninga, og taka hann út aftur í sömu mynt eftir þeim reglum sem bankarnir settu. Það er ekkert leyndarmál að mikió magn erlends gjaldeyris streymir yfir landið án þess nokkru sinni að koma í við- skiptabankana. Varla getur um það verið ágreiningur að betra væri fyrir þjóðina að láta þetta Framhald á bls. 29.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.