Morgunblaðið - 22.10.1977, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.10.1977, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 1977 Menn verða að halda vöku sinni í umf erðinni Slysaalda gengur nú yfir og enginn veit á hvers húsi hún brotnar á næsta degi. Furðu gegn- ir hvað fólk virðist gefa þessum hörmungum lítinn gaum, allt of margir virðast álíta að aldan muni aðeins brotna á húsi nágrannans, en ekki á þeirra eigin dyrum. Frásagnir af dauða og limlest- ingum á fólki, er næstum daglegt brauð í fjölmiðlum (Mætti þar gæta oft meiri nærgætni í frá- sögnum.) Nefndar eru 100 mill- jónir króna í sektagreiðslur, fyrir að fara ekki eftir lögboðnum ör- yggisreglum. Svimháar tölur nefndar vegna skemmdra og eyði- lagðra ökutækja. Hvað þarf til, svo að fólk rumski, bæði akandi og gangandi, og geri sér Ijóst að það þarf að vera fullkomlega vakandi á um- ferðaræðum, þarf að beita allri athygli sinni hæfni og skynsemi til að geta komist með mannleg- um hætti leiðar sinnar ef vel á að fara. Það verður einnig að hafa Sími27210 Opið laugardag 1—6. Skipasund 2 hb. 60 fm kjallaraibúð Verð 6 millj. Útb. 4 millj. Hverfisgata — risibúð Snotur 2ja herb. risíbúð við Hverfisgötu. Verð aðeins 4 millj. Útb 3 mtllj Gaukshólar 5—6 hb. Glæsileg endaíbúð. Bílskúr. Skipti á raðhúsi i sama hverfi æskileg Arahólar 4 hb. íbúð á 7. hæð. Bílskúrssökklar. íbúðin er með óvenju skemmti- legum innréttmgum Mikið út- sýni. Verð 1 2,5 millj Asparfell 3ja herb. ibúðir. Fellsmúli 4 hb. Endaíbúð á 4. hæð. Verð um 1 3 millj. Brekkuhvammur — sérhæð Um 90. fm. Stór bílskúr. Sér inngangur. Fallegur garður Verð um 1 1 millj. Mosfellssveit Fokhelt einbýlishús. Fullgert ein- býlishús við Byggðaholt. Stór bílskúr. Verð um 20 millj. Snorrabraut 3 hb. íbúð á 2. hæð. Stórar stofur, aukaherb. i kjallara. (búðin er öll endurnýjuð. Góðteppi. Snyrtileg sameign. Verð 9 til 10 millj. Æskileg skipti á 2ja herb. íbúð helst i vesturbæ. Hraunbær 2 hb. 2ja herb. ibúð við Hraunbæ Fálkagata 4 hb. Ibúð á 2. hæð. Verð 1 3 millj. Vesturberg 4ra herb ibúð á jarðhæð. Skipt- anlegar greiðslur. Laus 1 5. mai 1978. Dúfnahólar 3 hb. 75 fm ibúð á 3. hæð. íbúðin þarfnast að nokkru standsetning- ar/Verð aðeins 8,2 millj. i smíðum 2ja herb. íbúð við Hlíðarveg Kópavogi. Aðeins 3 íbúðir í hús- mu. íbúðin er með suður svölum og sér inngangi. Teikningar i skrifstofunni. Kjartansgata 4 hb. Litið niðurgrafin kjallaraíbúð. Ný eldhúsinnrétting og teppi. Tvö- falt gler. Skipti æskileg á 2ja herb. íbúð. Seltjarnarnes 60 fm íbúð í tvíbýlishúsi. Eignar- lóð Útb. um 5' millj. EIQNAVER Sr LAUGAVEGI 178 isoch<xisuío.i.i SIMI27210 hugfast að samferðafólkið i um- ferðinni þarf líka að komast leið- ar sinnar. Það er hættulegt að togast á um forgang i umferðinni. Hagi samferðafólkið sér ógæti- lega er þörfin enn brýnni að halda vöku sinni og reyna að bjarga því sem bjargað verður. Minútubrot mega ekki skipta máli i því að komast á áfangastað hverju sinni, án þess að valda öðrum eða sjálfum sér tjóni. Margir halda því fram að ástandið i umferðinni nú og oft áður sé spegilmynd af samskipt- um manna i dag. Ómennsk frekja og ósvifni sitji i hásæti hjá allt of mörgum. Valdniðsla og marg- slunginn ódrengskapur sé ekkert óvenjulegt fyrirbæri. Virðingar- leysi riði fyrir verðmætum ekki sist í almanna eign, böðlast sé áfram i hamslausri lifskjara- græðgi og hver reyni að hrifsa til sin sem mest án tillits til annarra en sjálfs sín. Kátbrosleg yfirborðs og sýndarmennska tölti þar með á götunni. Hér verður enginn dómur á það lagður, hvað þeir sem þessu halda fram hafa mikið til síns máls. Eg vil benda á það, að þótt hópurinn sé allt of stór sem vand- ræðum veldur, þá er hinn miklu stærri, sem öryggisreglum fylgir og sannar að hægt er að komast árum saman leiðar sinnar óhappa- laust i umferðinni og hagar sér eftir aðstæðum hverju sinni. Það eru ekki langar frásagnir í fjölmiðlum um prúðmennin i um- ferðinni, þótt hver og einn mæti þeim daglega. I Arni Einarsson lögfr Ólafur Thoroddsen lögfr. J OPIÐ í DAG 9 — 7 ÆSUFELL 95 fm. íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi. Mikil sameign. Verð 8.5 millj. Útb. 6.5 millj. HELGALAND MOSFELLSSVEIT Parhús á tveimur hæðum ca 140 fm. Innbyggður bílskúr 30 fm. Afhendist tilbúið undir tré- verk og málningu. Verð ca. 16 millj. IÐNAÐARHÚSNÆÐI BÚÐARGERÐI Hæð og kjallari. grunnflötur ca. 40 fm. Nánari upplýsingar á skrifstofunni. FÝFUSEL — RAÐHÚS 227 fm. endaraðhús á þrem hæðum Afhendist fullfrágengið. Unnt að hafa 2ja herb. íbúð á jarðhæð. Skipti á fokheldu ein- býlishúsi eða sérhæð koma til greina. FLÚÐASEL — RAÐHÚS Tvær hæðir og kjallari, grunn- flötur 76 fm. Afhendist ýmist fokhelt eða tilbúið undir tréverk og málningu. Verð' 9.5 millj. fokhelt en 13—13.5 millj. til- búið undir tréverk og málningu. GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS á einni hæð 180 fm. Tvöfladur bilskúr. Teikningar á skrifstof- unni. SÆVIÐARSUND 3ja herb. ibúð á jarðhæð. Sér inngangur, sér hiti, 95 fm. Verð ca. 9 millj. SAFAMÝRI Stór 2ja herb. íbúð i kjallara. Sér inngangur. SPORÐAGRUNN 4ra herb. íbúð 110 fm. Sér inngangur, sér hiti. Glæsileg ibúð. Uppl. á skrifstofunni. Skipti á stærri eign koma til greina. SKIPASUND 80 fm. íbúð á 1. hæð í tvíbýlis- húsi. Útb. ca 5 millj. . Pétur Gunnlaugsson, lögfr Laugavegi 24, símar 28370 og 28040. Samvinnutryggingar eiga mikl- ar þakkir skilið fyrir að meta réttilega þá sem komast í ótaminni umferð óhappalaust leiðar sinnar. Veita þeim viður- kenningar og verðlaun. Halda uppi starfsemi Klúbbanna örugg- ur akstur, sem dreifðir eru um allt land og hafa komið mörgu góðu til leiðar. Rekið áróður fyrir bættri umferðarmenningu og hvatt alla til að fara eftir lögboðn- um öryggisreglum og á þann hátt stutt við bakið á lögregluyfirvöld- um sem við umferðarvandann glíma og umferðarráði. Hinir árlegu fundir klúbbanna um umferðarmál eru nú hafnir, vonandi verða þeir vel sóttir og þátttakendur komi á framfæri við fulltrúa landssambandsins, sem verða frummælendur á fundun- um, ábendingum um það sem þeir telja að verða mætti til úrbóta i umferðinni. Það verður þakksam- lega þegið og komið á framfæri við rétta aðila. Klúbbfundirnir eru einu fundirnir sem haldnir eru árlega um allt land um um- ferðarmál, ættu allir sem því við koma að sækja þá og vera virkir þátttakendur í þeim. Reykvíkingar hafa á siðari ár- um alltaf fyllt sali Hótel-Borgar er klúbbfundurinn í Reykjavík hefur verið haldinn þar og sýnt með því lofsverðan áhuga. Eitt af áhugamálum stjórnar klúbbsins i Reykjavik, eru endur- bætur á merkingum gatna og húsa i borginni. Hér er um mikið og fjárfrekt verk að ræða, ber að færa þeim ráðamönnum borgar- innar sem að þessum málum vinna þakkir fyrir það átak sem gert hefur verið. Vonandi verður fjárframlagið aukið verulega til þessa nauðsynja verks svo enn stærri áföngum verði náð sem fyrst. Þörf er á að veruleg fjölgun verði i lögregluliði borgarinnar frá þvá sem nú er, svo þeir ágætu menn sem við umferðarvandann glíma geti stóraukið gangandi lög- gæslu. Sivökul og leiðbeinandi löggæsla mun skila meiri árangri en sektir, þó þeim verði að beita við þá sem engum leiðbeiningum geta tekið og hunsa allar öryggis- reglur. Spurning er hvort ekki ætti að beita ökuleyfissviptingum meira en nú er gert við slíka ökumenn. Þó okkar ágætu læknar á Slysa- deild Borgarspítalans og á öðrum spítölum vinni mörgum sinnum ótrúleg afrek við að bjarga lífi stórslasaðs fólks, sem flutt er til þeirra af blóðvöllum akbrautanna og koma því aftur til vinnufærs bata, þá er hópurinn of stór sem aldrei nær sér að fullu og sumir i blóma lífsins, verða örkumla- menn ævilangt, þött allt sé gert, sem mannleg þekking og geta nær til. Það er skylda hvers einasta þjóðfélagsþegns, hvert sem hann er gangandi eða akandi i umferð- inni að skipa sér i hóp góðra veg- farenda, geri hver og einn það, er lausn umferðarvandans á næsta leiti. Við í stjórn klúbbsins i Reykja- vák höldum því fram, að aldrei sé svo þröngt í bifreiðinni að ekki sé rúm fyrir systurnar þrjár kurt- eisi, varúð og tiliitssemi. Kristmundur J. Sigurðsson. MMH Óskast Æsufell — Asparfell Höfum kaupanda að 2ja—3ja herb. íbúð í Æsufelli — Asparfelli eða annarsstaðar í Breið- holti íbúðirnar þurfa ekki að losna fyrr en næsta vor. Óskast raðhús Höfum kaupendur að raðhúsum í Breiðholti, skipti á fullbúnum eignum með milligjöf möguleg. OPIÐ KL. 1—6 LAUGARDAG. |fó|CIGNAVCR SC II—Zí—II LAUGAVEGI 178 (bolholtsmegin) SÍMI 27210 Einbýlishús á Seltjarnarnesi Vorum að fá í sölu einbýlishús við Lindarbraut. I húsinu, sem er 145 fm að grunnfleti á einni hæð, eru fjögur svefnherb., húsbóndaherb, dagstofa, borðstofa, sjónvarpsherb., eldhús með búri, þvottaherb, og geymsla, auk þess er 35 fm bílskúr, lóð er fullfrágengin. Fasteignasalan Norðurveri Hátúni 4a Símar: 21870 og 20998. Hilmar Valdimarsson, fasteignaviðskipti Jón Bjarnason hrl. Hafnarfjörður: Atvinnuleysis- skráning og bótagreiðsla féll niður í verkfallinu „STARFSMENN bæjarins mættu allir til vinnu í morgun og allt gengur nú sinn eðlilega gang,‘‘ sagði Kristinn Ó, Guðmundsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, i sam- tali við Mbl. í gærkvöldi. Aðspurð- ur um það hvort einhver vanda- mál hefðu safnast fyrir í verkfall- inu sagði Kristinn að það væri helzt að atvinnuleysisskráning hefði fallið niður og atvinnulaust fólk því ekki fengið bætur á með- an, en verkfallsnefnd BSRB hefði ekki veitt undanþágu til atvinnu- leysisskráningar fyrr en á siðasta degi verkfalisins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.