Morgunblaðið - 22.10.1977, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 1977
29
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
2ja herb. íbúð óskast strax.
Má þarfnast viðgerðar.
Tvennt fullorðið í heimili.
Uppl. í síma 82736.
Til sölu glæsilegt, nýlegt ein-
býlishús, stór bílskúr. Frá-
gengin lóð. Ennfremur 3ja
herb. íbúð í smíðum. Allt sér,
til afhendingar strax.
Eigna- og verðbréfasalan,
Hringbraut 90, Keflavík,
sími 92-3222.
Vélstjóri með 3 ára starfs-
reynslu ásamt góðri mála-
kunnáttu i ensku og norður-
landamálum, óskar eftir starfi
í landi. Uppl. í síma 1 -34-1 2.
Ráðskona óskast
í sveit
Uppl. i sima 83114 eftir kl.
7.
Til sölu
er Volvo '71, teg. 145
station, ekinn 86 þús. km.
Uppl. i sima 43352.
Munið sérverzlunina
með ódýran fatnað.
Verðlistinn Laugarnesvegi
82. s. 31330.
□ GIMLI 597710247-1
Félag kaþólskra
leikmanna
efnir til fundar i Stigahlíð 63,
mánudaginn 24. okt. kl.
8.30. siðdegis.
Fundarefni:
Lourdes og för þangað i sum-
ar. Allir velkomnir.
Stjórnin.
KFUM - KFUK
Heimatrúboðið
Almenn samkoma að Óðins-
götu 6A á morgun kl. 20.30.
20.30.
Allir velkomnir.
Almenn samkoma i húsi
félaganna við Amtmannsstig,
sunnudagskvöld kl. 20.30.
Sigurður Árni Þórðarson
stud. theol. talar.
Allir velkomnir.
ÚTIVISTARFERÐIR
Fíladelfía
Sunnudagaskólarnir, Hátúni
2 og Herjólfsgötu 8, Hafnar-
firði byrja kl. 10.30.
Sunnudagaskólar Filadelfiu
Njarðvikurskóla kl. 11 f.h.
Grindavikurskóla kl. 14.
Munið svörtu börnin.
Öll börn hjartanlega velkom-
in.
Kristján Reykdal.
Sunnud. 23/10
kl. 10 Sog — Keilir.
Sjáið litadýrð Soganna og
finnið fallega steina. Farar-
stj.: Einar Þ. Guðjohnsen.
Verð: 1500 kr.
Kl. 13 Lónakot —
Kúagerði. Létt strand-
ganga. Fararstj.: Gisli Sig-
urðsson. Verð: 1 000 kr.
Útivist.
SIMAR. 11798 dg 19533.
Sunnudagur 23. okt.
Kl. 08.30.
Skarðsheiði (1053 m)
Fararstjóri: Tómas Einarsson.
Verð kr. 2000 gr. v/bilinn.
Reykjaborg — Hafra-
vatn
Létt ganga. Fararstjóri: Þór-
unn Þórðardóttir. Verð kr.
800 gr. v/ bílinn.
Ferðirnar eru farnar frá Um-
ferðamiðstöðinni að austan-
verðu.
Ferðafélag íslands.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Sjálfstæðisfélögin
Njarðvíkurbæ
Kjörnir fulltrúar fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna i Njarðvik.
Stofnfundur verður haldinn i fundarsal Steypustöðvar Suður-
nesja h.f., laugardaginn 22. okt. kl. 2 e.h.
Stjórnirnar.
Vörður FUS
Akureyri
Aðalfundur Varðar FUS verður haldinn að Kaupvangsstræti 4
laugardaginn 22. okt. kl. 14.00.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf
Inntaka nýrra félaga.
Starfsemi SUS.
Önnur mál. Stjórnin.
Keflavík
Heimir F.U.S. heldur aðalfund sinn laugardaginn 22. október
kl. 14 1 Sjálfstæðishúsinu.
Ungir Sjalfstæðismenn fjölmennið.
Þór,
félag sjálfstæðismanna
í launþegastétt
í Hafnarfirði
heldur aðalfund sinn laugardaginn 22. okt. kl. 13.30 i
Sjálfstæðishúsinu i Hafnarfirði.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf,
Nýir félagar velkomnir á fundinn. Stjórnin.
— KR — Fram
Framhald af bls. 42.
andi. Voru því margir sem töldu
sig illa svikna í Laugardalshöll-
inni í fyrrakvöld, en brúnin tók
að lyftast á mönnum þegar leikur
Fram og KR var kominn á fulla
ferð, og vist er að leikmenn þess-
ara liða gerðu sitt til þess að
áhorfendurnir fengu nokkuð
fyrir aurana sína.
—st.il.
— Viðskipti
Framhald af bls. 31.
lántökum umfram afborg-
anir, svo að horfur eru á að
greiðslujöfnuður ársins
verði hagstæður um svipað
og á fyrri hluta ársins, þ.e.
um 6000 milljónir króna og
batni gjaldeyrisstaða bank-
anna um þá fjárhæð.
— íþróttir
Framhald af bls.43
veraldar, jafnt smáum sem
stórum. Slíkur undirbúningur
kostar mikið fé, og þeim fjár-
munum er vel varið. Við eigum
nú mjög gott íþróttafólk, sem
gæti náð í fremstu röð, ef því
væri veitt tækifæri til þess.
Örn Eiðsson.
- Vextir og frjáls
gjaldeynseign
Framhald af bls. 18
fé liggja í bönkunum á vöxtum,
heldur en neyða eigendur þess
til þess að selja það utanförum
á svörtum markaði, eða flytja
það á annan hátt til útlanda.
Verulegt gagn yrði þó fyrst af
þessu fyrirkomulagi ef öllum
yrði gert frjálst að kaupa er-
lendan gjaldeyri og geyma
hann í innlendum banka. Fyrir
utan þann efnahagslega ávinn-
ing sem af slíku hlytist, þá er
fólk orðið leitt á slikum lifnað-
arhátta fyrirmælum stjórn-
valda og tekur enda lítið mark á
þeim. Þau samrýmast ekki lýð-
ræðis- og mannréttindahug-
myndum nútímans.
— Sambandið
fítnar
Framhald af bls. 13
verð — og að ekki verði talin þörf
á að draga úr framleiðslunni
heldur jafnvel auka hana, ekki
sízt með framgang ullar- og
skinnaiðnaðarins i huga. I kjölfar
þess kæmi aukin gjaldeyrisöflun
landsmönnum öllum til hagsbóta.
Meðan ekki er hróflað við til betri
vegar í framleiðslu — og sölumál-
um islenzka dilkakjötsins má
stöðugt búast við þvi að bænda-
stéttin sem er ein vinnusamasta
stétt landsins verði fyrir narti og
aðkasti manna sem ekki koma
auga á hversu þýðingarmikið er
að í þessum efnum sé ekki gefizt
upp. s
Bændastéttin verður einnig að
gera sér ljóst, að fyrst og fremst
er hún frumrót og undirbygging
samvinnuhreyfingarinnar og
bændur geta vel leyft sér að 1 fta á
„æðstu presta" SÍS sem þjóna
sína og vinnumenn en ekki öfugt
og gera sterkar kröfur til þeirra
um úrbætur i sölumálunum. Fái
einstaklingar að spreyta sig lika á
verkefninu verður að' gera sömu
kröfur til þeirra. Raunar hafa
einkafyrirtækin sannað í ullar- og
skinnaiðnaðinum, að þau standast
samkeppnina við Sambandið,
hvað vörugæði og markaðsöflun
snertir. En umfram allt: Upp-
gjafarstefna má ekki ná að gróa.
— Stjórnar-
frumvarp
Framhald af bls. 25 ,
% Mælt fyrir stjórn-
arfrumvörpum
Gunnar Thoroddsen, félags-
málaráðherra, mælti fyrir
stjórnarfrumvörpum til bygg-
ingar- og skipulagslaga í efri
deild Alþingis sl. miðvikudag;
og Matthias Bjarnason, heil-
brigðisráðherra, fyrir stjórnar-
frumvörpum um eftirlaun aldr-
aðra í stéttarfélögum og til
breytinga á almannatrygginga-
lögum (til samræmis við sam-
komulag við gerð síðustu ASt
samninga).
# Aiþjóða-
samningur
um ræðis-
mannasamband
Lagt hefur verið fram stjórn-
arfrumvarp um heimild fyrir
íslands hönd að gerast aðili að
alþjóðasamningi um ræðis-
mannasamband, sem gerður
var í Vínarborg í april 1963. Ef
frumvarp þetta verður að lög-
um fellur jafnframt niður kon-
ungsúrskurður um réttindi
ræðismanna annarra ríkja frá
25. april 1821 og konungsúr-
skurður um réttindi útlendra
ræðismanna frá5. ágúst 1834.
0 F.vrirspurnir
— Sigurlaug Bjarnadóttir
(S) spyr, hvenær sé að vænta
reglugerðar með fóstureyðing-
arlöggjöfinni — og hvað líði
framkvæmd lagaákvæða um
ráðgjöf og fræðslu í tengslum
við þá löggjöf.
— Karvel Pálmason (SFV)
spyr, hvenær vænta megi
ákvörðunar um tengingú Djúp-
vegar við aðalþjóðvegakerfi
landsins.
— Minning
Einar
Framhald af bls. 35
mönnum að stofnun Staðhverf-
ingafélagsins, 10. febrúar 1962.
t)g kosinn gjaldkeri i fvrstu
stjórn þess. Gegndi hann því
starfi árum saman af einstakri
skyldurækni og áhuga.
Sama var að segja um önnur
trúnaðarstörf, sem honum voru
falin í þágu félagsins. Alltaf boð-
inn og búinn, er til hans var leit-
að. Framan af árum var Einar
sjálfkjörinn veizlustjóri á árs-
hátíðum félagsins. Naut hann sin
þar hið bezta meðal þess fólks,
sem hann hafði alizt upp með frá
bernsku og starfað með framan af
ævi, bæði á sjó og í landi. Oft
flutti hann okkur frumsamið efni
á félagssamkomum í bundnu og
óbundnu máli. Fjallaði það öðru
fremur um mannlífið í Hverfinu á
fyrri tíð.
Þá beitti hann sér fyrir þvi, að
tekin var stutt kvikmynd í Staðar-
hverfi. Og lagði sitt af mörkum til
þess, að sumarferðir félagsins
mættu verða þátttakendum til
skemmtunar og fróðleiks.
Einar Einarsson frá Merki var
dagfarsprúður maður. Og hinn
bezti félagi í góðra vina hópi,
fórnfús, glaður og reifur og
áhugasamur i starfi meðan hann
naut sín og gekk heill til skógar.
Staðhverfingar þakka honum
góða samferð og marga sameigin-
lega gleðistund.
Hvili hann í friði. Blessuð sé
minning hans.
Staðhverfingáfélagið.
— Minning
Hallveig
Framhald af bls. 25
lega leið á hennar starfsdag. Hún
kenndi sjúkleika þéss er dró hana
til dauða, en hún andaðist sem
fyrr segir þann 12. október sl.
Ég þakka Hallveigu allar sam-
verustundirnar. Allan hlýleik og
gæðin sem hún var svo rík af. Ég
veit að ég tala þar fyrir munn
allra sveitunga og samferða-
manna er eiga henni skuld að
gjalda. Eg votta eftirlifandi eigin-
manni og dótturinni ungu er hafa
niisst svo mikið, einnig systrum
hennar, er voru henni svo sam-
hentar. innilega sainúð mina.
Far þú í friúi
Friúur ruús þij> blessi
llafúu þiikk fyrir alll alll.
Elínborg Ágústsdóttir.
frá Mávahlió.
Félag Sjálfstæðismanna
í Langholti
AÐALFUNDUR
Aðalfundur félagsins verður haldinn
mánudaginn 24. október kl. 20:30 að
Langholtsvegi 124.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Gestur fundarins verður Jónas Haralz,
bankastjóri, sem fjallar um nokkur viðhorf í
alþjóða efnahagsmálum.
Stjórnin.
Miðvikudagur 24. október
- Kl. 20:30 -
að Langholtsvegi 124