Morgunblaðið - 22.10.1977, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 22.10.1977, Blaðsíða 44
Al'GLYSrNGASIMINN EH: 22480 JRflrfliwbla&ití LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 1977 Fjármálarádherra: Staðan í samningavið- ræðunum enn erfið VERKFALLSVERÐIR BSRB hópuðust suöur í Straumsvík í gær þegar súrálsskipið gerði tilraun til að leggjast að óryggjunni þar, en að lokum varð það frá að hverfa. Myndin var tekin þegar verkfallsverðir voru að ræða við fulltrúa ál- versins. - Ekki ástæða til bjartsýni eftir síðasta fund — segir Haraldur Steinþórsson Ljósm.Mbl.: Frióþjófur MATTHlAS A. Mathiesen, fjármálaráóherra, safídi í viðtali við Morgunblaðið í gærkveldi, að staðan í samningaviðræðunum væri enn erfið. Samkomu- lafí hefði enn tekizt um ýmis sérmál, sem skiptu stóra hópa ríkisstarfs- manna verulegu máli, en hins vef?ar hefði samkomu- lag ekki tekizt um launa- stigann. — Og viö það situr, sagði fjármálaráð- herra. Haraldur Steinþórsson, varafor- maður BSRB og framkvæmda- Uraþjófam- ir fundnir RANNSÓKNARLÖGREGLA rík- isins hefur handtekið tvo menn, 32 og 42 ára gamla, sem hafa játað innbrotið í l'raver/lun Helga Sigurðssonar á Skólavöröu- stíg 3 um fyrri helgi. Sá fyrri var handtekinn í fyrra- dag og sá síðari í gær. Fyrrnefndi maðurinn var í gær úrskurðaður í allt að 12 daga gæzluvarðhald en hinn var í haldi hjá lögreglunni. Mest allt af þýfinu mun hafa fundizt i fórum þjófanna. Sölu- verðmæti úranna var rúmlega ein milljón króna. stjóri þess, sagði í gær á fundi með fréttamönnum, að hann væri ekki bjartsýnn eftir síðasta fund. ,,Það er ekki eðlilegt, að menn séu bjartsýnir, þegar samningafundi er frestað vegna ágreinings," sagði Haraldur. Hann kvað þó ekki ýkja mikið skilja á milli að því er varðaði launastigann sjálfan, en ríkið hefði þö ekki tekið í mál annað en semja upp á þann launastiga, sem samþykktur hefði verið í Reykjavík. Haraldur kvað nú helzt deilt um desember- upphótina, að fá laugardaga í or- lof, kaffitíma klukkan 17 hjá þeim, sem vinna lengur og síðan míkla ágreiningsefnið — endur- skoðunarréttinn. Hann kvaö fleiri atriði hægt að nefna, en i sam- bandi við endurskoðunarréttinn hefðu ýmsar hugmyndir komið fram, en ekki verið mikið ræddar. ,,Við höfum teygt okkur langt í þessum samningum, eiginlega of langt,“ sagði Haraldur Steinþórs- son. „Við teljum að það sé víðs fjarri, að við höfum náð fram þeim kjarabótum, sem við teljum okkur eiga inni og önnur verka- lýðsfélög fá fyrirsömu vinnu. Það ætlar að verða langsótt að ná þessu, en engir úrslitakostir hafa verið settir af deiluaðilum og klukkan 16 á morgun, iaugardag, verður að nýju setzt við samningaborðið," sagði Haraldur, og bætti við að samningamálin yrðu viðruð í félögunum fram að samningafundi. Myndi samninga- nefnd BSRB hittast áður en fund- ir hæfust með fulltrúum ríkis- valdsins. Framhald á bls. 24. Súrálskipi snúið frá bryggju í Straumsvík SURÁLSKIPIÐ Radiant Ventura frá Monroviu, sem legið hefur fyrir utan Hafnarfjröð undanfarna daga vegna verkfalls bæjarstarfsmanna, gerði í gær tilraun til að leggjast að bryggju í Straumsvík, Flugleidir: 900 manns bíða eftir flugi á morg- un ef ekki fást frekari undanþágur EF ekki fást frekari undanþágur til flugs um helgina, þá er ljóst að á sunnudag munu bíða 900 manns eftir fari með vélum Flugleiða, annað- hvort til íslands eða frá landinu. Sveinn Sæmundsson, hlaðafulltrúi Flugleiða, sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær, að í gær- morgun hefðu 129 manns beðið eftir flugi til Bret- Iands og Skandinavíu og 121 beðið eftir fari heim frá þessum löndum. Þá sagði hann, að það bættist í þennan hóp á hverjum degi og á sunnudag væru 335 á skrá frá landinu og 187 heim, þannig að 520 manns biðu eftir fari á þessum leiðum. — Hér við bætist, sagði Sveinn, að ekki fékkst leyfi fyrir milli- lendingu þotu frá Ameríku eða til Ameriku og í New York bíða nú 262 eftir fari heim og hér bíða 85 eftir fari til New York og eins og dæmið er nú, verða um 900 manns, sem bíða eftir að komast með vélum félagsins á sunnudag til og frá landinu, ef ekki fást frekari undanþágur til flugs. Sveinn sagði, að Flugleiðir hefðu nú ráðið 7 eldri flugfreyjur til starfa á ný fyrst og fremst vegna pílagrímaflugsins og væru þær komnar til starfa. Þá sagði hann, að Flugleiða- menn væru ánægðir með það sam- starf sem tekizt hefði við verk- fallsnefnd BSRB um að leysa mörg þau vandamál, sem upp hefðu komið síðustu daga og nú hefð.u margir komizt utan, sem lengi hefðu beðið eftir flugferð. eftir að leyfi bæjarfóget- ans í Hafnarfirði lá f.vrir, en fjölmennt lið verkfalls- varða BSRB kom í veg fvr- ir að það yrði bundið við bryggju svo það varð að sigla út aftur eftir skamma stund. Töldu verkfallsverð- ir að það væri algert verk- falsbrot að skipið legðist að. Morgunblaðið leitaði álits. Einars Ingimundarsonar bæjar- fógeta i Hafnarfirði á þessu máli. — Eftir að öll aðflutningsskjöl voru komin í minar hendur taldi ég ekkert í vegi fyrir því að gefa út leyfi, þar sem korn fram, að frá embættisins hálfu stæði ekkert i vegi fyrir því að skipið legðist að bryggju. En um þetta hafði ég fullt samráð við fjármálaráðu- neytið. Það sem hefur gerzt i mál- inu siðan er, að ISAL hefur lagt fram kröfu um lögbann á verk- fallsvörzluna, en það mun að öll- um likindum ekki verða fullaf- greitt fyrr en eftir helgi sagði Einar að lokum. Þá hafði Morgunblaðið sam- band við Ragnar Halldórsson for- stjóra ISALS. — Þannig er mái með vexti að til Hafnarfjarðar kom súrálskipið Radiant Ventura á miðvikudag. Þá stóð ennþá yfir verkfall hjá starfsmönnum Hafn- arfjarðarbæjar svo við urðum þvi að biða eftir úrslitum þess. Eftir að það leystist höfðum við sam- dægurs samband við ráðuneytið með ösk um að taka skipið inn til hafnar til að koma í veg fyrir tjón enda væri þarna um tollfrjálsan farm að ræða. Þau svör fengust að þetta væri algjörlega i valdi fógeta í Hafnarfirði. Við höfðum þvi samband við fógeta og báðum um tollaf- greiðslu á skipinu. Þegar að leyfi var fengið, var ákveðið að taka Framhald á bls. 24. Kópavogur samdi í gær Þessi m.vnd var tekin á Keflavlkurflugvelli þegar farþegar voru á leið inn í fríhöfnina í gærmorgun, en þá fóru nokkrar vélar utan. Ljósm. Mhl. Oi.K.M. SAMNINGANEFND Kópavogs- kaupstaðar og samninganefnd Starfsmannafélags Kópavogs undirrituðu í gær samkomulag um kaup og kjör starfsmannanna næstu tvö árin. Hafa þar með tek- izt samningar í öllum sveitarfé- lögum á landinu, en Kópavogur var síðasti kaupstaðurinn til að ganga frá kjarasamningum. Starfsmannafélag Kópavogs sam- þykkti samningana í gærkveldi ineð 77 atkvæðum gegn 12. Einn seðill var auður. Fyrir nokkrum dögum hafði náðst samkomulag um kjara- samninginn í heild að undan- skildu einu ákvæði um endur- skoðunarrétt, ef ríkisvald hreyfði við verðbótaákvæðum samnings- ins. Þar vildu starfsmennirnir hafa verkfallsrétt á miðjum samningstíma, en bæjarstjórnin taldi sig ekki hafa lagaheimild til þess að samþykkja verkfallsheim- ildina. Svipuð staða kom upp á Framhald á bls. 24.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.