Morgunblaðið - 22.10.1977, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 1977
3
Símasambandið milli Reykjavíkur
og Hornafjarðar:
Talað norður um
land vegna bilana
SlMAKERFIÐ hefur
staðið sig allvel í verkfall-
inu, þrátt fyrir mikið álag,
sem t.d. hefur verið á sjálf-
virka símasambandinu út
á land. Hornfirðingar og
nágrannar þeirra hafa þó
að miklu leyti verið síma-
sambandslausir við önnur
símasvæði og til að geta
náð sambandi við Reykja-
vík eða öfugt hafa símtölin
þurft að fara eftir síma-
Tugir
innbrota
upplýsast
UNDANFARNAR þrjár vikur
hefur Rannsóknarlögregla ríkis-
ins upplýst tugi innhrota í fyrir-
tæki og bíla, sem framin hafa
verið frá maí í sumar fram til
dagsins í dag.
Hér er um að ræða á fimmta tug
innbrota. fm 30 þeirra hafa sjö
ungir menn viðurkennt að hafa
framið í sumar og haust i fyrir-
tæki og bíla víðs vegar um borg-
ina. Fóru þeir yfirleitt 2—3
saman í innbrotin. I fórum þeirra
fannst mikið af þýfi.
Þá hafa verið upplýst 9 innbrot
í fyrirtæki á Ártúnshöfða í und-
anförnum vikum og reyndust
tveir piltar hafa verið að þar að
verki. Lokst hafa verið upplýst
fimm innbrot í fyrirtæki í verzl-
anir í miðborg Reykjavíkur í þess-
ari viku.
kerfinu norður fyrir, en
ekki stytztu leið á milli
þessara staða. Gengur það
mjög erfiðlega. Varð bilun
í kerfinu þarna fljótlega í
verkfallinu og að sögn
Jóns Skúlasonar, póst- og
símamálastjóra, hefur
kjaradeilunefnd ekki gefið
leyfi til að gert yrði við
þessa bilun.
Að sögn Jóns Skúlasonar hefur
sjálfvirka simakerfið staðið sig
með sóma í verkfallinu. Hefur
það að langmestu leyti annað því
mikla álagi, sem fylgt hefur verk-
fallinu og lokun símstöðvanna.
Um bilanir sagði Jón að stærsta
biiunin hefði orðið á línunni milfi
Reykjavíkur og Hornafjarðar og
hefði það haft erfiðleika í för með
sér fyrir suðurfirði Austfjarða.
Þar sem bilanasími Landssímans
hefur verið lokaður í verkfallinu
kunna þó að hafa orðið fleiri
bilanir en nú er vitað um, þó ekki
hafi verið tilkynnt um þær til
símans eða annarra aðila í verk-
fallinu.
Aðspurður um telexnotkun Is-
lendinga þessa dagana og greiðslu
fyrir hana, sagði Jón að leyfi
hefði ekki fengizt til að skipta um
spjöld í gjaldmælitækjum telex-
stöðvarinnar í Reykjavík. Það
þýddi þó ekki að telex væri
notaður ókeypis á kostnað
ríkisins. Að verkfalli loknu yrði
setzt niður og notkun telextækja
reiknuð út eftir Öðrum leiðum. Er
trúlegt að við þann útreikning
verði miðað við meðalnotkun
þeirra, sem hafa telexnúmer hjá
Pósti og síma.
Björgun h.f. kaupir
Perlu (áður Grjótjötun)
Morgunblaðið frétti í
gær að nú stæðu yfir samn-
ingar um að Björgun h.f.
keypti hið fræga sanddælu-
skip Perlu, sem áður hét
Grjótjötunn og hefur
mikið komið við sögu á
undanförnum árum. Perla
er nú í eigu Námunnar h.f.
í Reykjavík og hefur verið
í nokkurn tíma. Síðustu
mánuði, eða eftir að dælu-
búnaður skipsins komst í
lag, hefur skipið verið í
efnisdælingu fyrir Steypu-
stöðina og fleiri aðila.
Skipstjórar á Eimskipafélagsskipunum sem nú eru á ytri höfninni talið frá hægri: Finnbogi
Finnbogason Kljáfossi, Asgeir Sigurðsson Dettifossi, Björn Kjaran Háafossi, Gústaf Magnús Siemsen
Múlafossi, Þórhallur Dan Mánafossi, Kristján Guðmundsson Úðafossi og Haukur Dan Þórhallsson
Skógafossi. Myndina tók Ólafur K. Magnússon.
Skipstjórar Eimskipafélagsins;
Mótmæla fram-
kvæmd verkfalls
SKIPSTJÖRAR á nokkrum
skipum Eimskipafélags
lslands, sem nú liggja á ytri
höfninni í Reykjavík, hafa sent
frá sér yfirlýsingu þar sem þeir
mótmæla framkvæmd verk-
fallsins „að halda skipunum á
ytri höfninni og ítrekum þá
slysahættu, sem það hefur í för
með sér“.
I fær voru 7 skip E.Í. á ytri
höfninni auk þriggja annarra
og í kvöld er von á fleiri skipum
og verða þau því væntanlega
orðin 12 eða 13 að sögn skip-
stjóranna, en blm. hitti nokkra
þeirra að máli i gær. Þeir sögðu
að mikil slysahætta væri sam-
fara siglingum milli lands og
skipanna, konur og börn væru
óvön þess konar ferðalögum,
stafaði af þeim hætta og sögðu
þeir að veðrið hefði bjargað
því, jafnvel þótt einhverjir
hefðu blotnað í þessum ferðum,
hefðu ekki alvarleg mál komið
upp enn.
Skipstjorarnir bentu á það,
að tvö skipanna hefðu færst úr
stað i fyrradag er vind- hreyfði
og náði 4—5 vindstigum og
„hvað myndi þá gerast ef vind-
stigin yrðu 10 eða 12?“ spurðu
þeir. Botninn sögðu þeir vera
orðinn þannig að lítil festa væri
i honum fyrir akkerin, nema á
stöku stað.
A þessum 7 skipum E.I. eru
nú 118 skipverjar samtals og
eru áhafnirnar á vök'tum, nema
hvað skipstjórar og yfirvélstjór-
ar eru um borð allan sólar-
hringinn, nema er þeir fara í
land með orðsendingar eða
annað þess háttar.
Skipverjarnir tóku fram að
öruggara væri að skipin lægju
t.d. i Hvalfirði, en þar með væri
útilokað að skipverjar gætu
skroppið í land. — Við erum
ábyrgir fyrir öryggi skipanna
og áhafna þeirra og við vitum
ekki hvenær upp úr getur soðið
hjá okkur, sögðu þeir
ennfremur.
Hér fer á eftir yfirlýsing
skipstjóranna á 7 skipum Eim-
skipafélagsins er þeir sömdu i
gær vegna skipanna, er nú eru
á ytri höfninni:
Við mótmælum eindregið
þeirri tilhögun á framkvæmd
verkfallsins að halda skipunum
á ytri höfninni og ítrekum þá
slysahættu sem það hefur í för
með sér.
Við teljum okkur bezt
dómbæra um það.
Við fáum engan veginn séð,
að það geti haft áhrif á gang
verkfallsins og samningagerð
BSRB þótt skipunum verði
leyft að leggjast í örugga höfn
og að losuð verði í land eldfim
efni úr farmi skipanna. Eins og
framkvæmd verkfallsins ér
háttað þá má álíta að verk-
fallinu sé beint gegn áhöfnum
skipanna og fjölskyldum
þeirra.
„Framkoma BSRB gagn-
vart sjómönnum er fráleit
INNLENT
— segir Óskar Vigfússon formaður Sjómannasambands Islands
fært aö hcimila flutninga-
skipunum aö lcggjast aö
bryggju í þcssu verkfalli.
Þá stafar mikil hætta af
því aö láta skipin liggja á
„FRAMKOMA BSRB
gagnvart sjómönnum cr
vægast sagt fráleit, og maó-
ur hcfði haldiö aó forráða-
mcnn BSRB gætu scð sér
Skaftafell fær ekki undan-
þágu frekar en önnur skip
svo til haldlausum botni og
þaó cr ckki aö þakka BSRB
hvc vcður hcfur vcrið gott
aó undanförnu," sagöi Ósk-
ar Vigfússon, forseti Sjó-
mannasambands íslands, í
samtali viö Morgunblaóið í
gær, en Óskar var þá spurð-
ur hvort Sjómannasam-
bandió hefói beitt sér fyrir
því aó flutningaskipin
fcngju aö lcggjast aö
bryggju.
Oskar Vigfússon.
an fjarri fjölskyldum sinum
sjálfu sér hef ég svo sem ekk
BEIÐNI Sambandsins um að
Skaftafell fái að lesta 135 tonn af
freðfiski í Keflavík og halda síð-
an til Bandarikjanna var I gær
synjað af Verkfallsnefnd BSRB.
Er töluvert af freðfiski komið I
skipið, en 15. október stöðvaðist
það vegna verkfailsins og átti þá
eftir að lesta fyrrgreint magn af
freðfiski fyrir Bandaríkjamark-
að.
Guðni Jónsson, formaður Verk-
fallsnefndar BSRB, sagði í gær að
ástæðan fyrir því að beiðni þess-
ari hefði verið synjað væri sú að
ef einu skipanna hefði verið leyft
að fá tollafgreiðslu hefði verið
erfitt að standa á neitunum gagn-
vart öðrum skipum, sem ættu i
erfiðleikum vegna verkfallsins.
Beiðnir hefðu legið fyrir hjá
BSRB um afgreiðslu á mörgum
skipum og ef þessi undanþága
hefði verið veitt hefðu 5—6
undanþágur fylgt í kjölfarið.
I erindi Skipadeildar Sambands
íslenzkra samvinnufélaga frá i
gær segir svo m.a.:
„Undirritaður fer þess hér með
á leit við verkfallsnefnd BSRB að
undanþága verði veitt til að ljúka
lestun á freðfiski í m.s. Skaftafell
og að skipið verði tollafgreitt og
því leyft að sigla frá landinu að
lestun lokinni.
Skipið hefur nú þegar táfist frá
því 15. þ.m. en þá var eftir að
lesta 135 tonn í Keflavíkurhöfn.
Eins og fram hefur komið í fjöl-
miðlum er nú yfirvofandi skortur
á ferðfiski hjá Iceland Products
Inc., sem sér um sölu á frosnum
fiski fyrir um 30 islenzk frysti-
hús. Komi upp sú staða að fyrir-
tækið geti ekki af þessum sökum
staðið við skuldbindingar sínar er
dýrmæt markarðshlutdeild þess i
verulegri hættu, en slíkt gæti haft
hinar alvarlegustu afleiðingar
fyrir framtíðarsölu á þessum þýð-
ingarmesta ferðfiskmarkaði Is-
lendinga."
Að því er Öskar sagði, fer Sjó-
mannafélag Reykjavíkur að
mestu með málefni sjómanna á
flutningaskipunum, og heföu fuli-
trúar þess ásamt fulltrúum Far-
rnanna- og fiskimannasambands
Islands gengið á fund verkfalls-
nefndar og farið þess á leit að
skipunum yrði hleypt upp að, en
svarið hefði verið blákalt nei.
„Það er enn fráleitara að láta
þetta verkfall bitna á sjómönnum,
sem eiga engan þátt í því, en
sjómennirnir eru langtimum sam-
vont um verkfallsmenn að segja,
það verður að líta á að þetta er i
fyrsta sinn, sem opinberir starfs-
menn fara i verkfall," sagði Ósk-
ar.
Þá hafði Morgunblaðið sam-
band við Ingólf Stefánsson fram-
kvæmdastjóra Farmanna- og
fiskimannasambandsins og spurði
hann hvort hann teldi möguleika
á að skipin fengju að leggjast að
bryggju. „Við höfum reynt allar
hugsanlegar leiðir til að fá skipin
upp að bryggju, en ekkert hefur
gengið enn," sagði Ingólfur.