Morgunblaðið - 22.10.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 1977
5
A veturnóttum
V eturnóttasp j all
1 veturnóttaspjalli að
þessu sinni hefur verið
brugðið á það ráð að
kynna lítið eitt Garð-
yrkjufélag íslands, félag-
ið sem stendur að baki
greinaflokksins „Blóm
vikunnar“ og farast for-
manni félagsins svo orð:
„Vegna þessara greina
G. I. hafa ýmsir spurt um
félagið og finnst að það
mætti gjarnan auglýsa
sig svo sem nú er í tísku
hjá ýmsum menningar-
félögum.
Garðyrkjufélag íslands
var stofnað árið 1885 og
er því meðal elstu félaga
í landinu. Það var stofn-
aö til þess að auka og
bæta garðmenningu í
landinu á allan hátt og er
ekki minnsti vafi á að það
hefur haft mikil áhrif í
þá átt.
G. í. er fyrst og fremst
áhugamannafélag, og
störf félagsmanna í þágu
félagsins öll unnin í sjálf-
boðavinnu. Er með ólík-
indum hversu margir
fórna vinnu sinni í þágu
félagsins og þar með
garðyrkjunnar í landinu.
Við reynum eftir megni
að styðja við bakið hvert
á öðru og hafa örvandi
áhrif á allt sem má verða
til gagns og bóta fyrir
garðyrkjuna og gróður-
inn í landinu, hvort sem
það er til augnayndis eða
nytja.
G. I. gefur út ársrit —
Garðyrkjuritið — stórt
og vandað og auk þess
fréttabréfið Garðurinn
5—6 sinnum á ári með
ýmsum tímabærum upp-
lýsingum hverju sinni.
Ýmsa aðra þjónustu
lætur G. í. félögum sín-
um í té og má t.d. nefna
hina vinsælu „frædreif-
ingu“, en hún er fólgin í
því að ýmsir félagar
hvaðanæva að af landinu
safna fræi og senda félag-
inu og myndast við það
eins konar fræbanki.
Frænefnd undir hand-
leiðslu „fræmeistara" sér
um flokkun á fræinu og
gerir lista yfir inneign-
ina. Félagsmönnum er
síðan sendur þessi listi og
geta þeir þá gegn vægu
gjaldi pantað sér það fræ
sem þeir mest girnast.
Þá hefur félagið gefið
út bækur: Matjurtabók-
ina, sem nú er uppseld,
og Skrúðgarðabókina,
sem kom út í annarri út-
gáfu árið 1976, góð og
ódýr bók sem enn er
fáanleg.
Þá má geta um fræðslu-
fundi, sem haldnir eru
öðru hverju. Árgjald til
félagsins er á þessu ári
kr. 1200 og er skuldlaus-
um félögum sendur Garð-
urinn og Garðyrkjuritið.
Skrifstofa félagsins er
á Amtmannsstíg 2,
Reykjavík, opin mánu-
daga og fimmtudaga kl.
2—6, ennfremur á
fimmtudagskvöldum kl.
8—10.
Póstgírónúmer félags-
ins er 20900. Pósthólf
209.
Við hvetjum þá sem
gróðri og ræktun unna til
að ganga í Garðyrkju-
félag Islands. Þangað eru
allir velkomnir án tillits
til starfs eða þekkingar
sem þeir hafa til að bera í
garðyrkjunni.
Jón Pálsson.
Frá hófinu
Ljósin. Nilli.
Sjálfstæðisfélag
Hveragerðis 30 ára
IIveraKerdi. 19. oklóber.
StÐASTLIÐINN laugardag
hélt Sjálfstæðisfélag Hvera-
gerðis 30 ára afmælishátíð í
Hótel Hveragerði.
Formaður félagsins, Sigrún
Sígfúsdóttir, setti og stjórnaói
afmælishátíðinni af mikilli
prýði. Mikið fjölmenni var á
hátíðinni og margt sjálfstæðis-
fólk úr nærliggjandi héruðum
heiðraði afmælisbarnið með
nærveru sinni.
Þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins í Suðurlandskjördæmi voru
viðstaddir. Komið hefur fram
að Ingólfur Jónsson alþingis-
maöur mun ekki gefa kost á sér
til framboðs í næstu kosning-
um. Formaðurinn þakkaði
Ingólfi störf hans með ræðu og
afhenti honum gjöf. Það kom
greinilega fram á fundinum að
Ingólfur nýtur mikilla vin-
sælda og virðingar og verður
hans saknað af þingi.
Félaginu bárust fallegar
blómakörfur á afmælinu frá fé-
lögum á Stokkseyri og mið-
stjórn Sjálfstæðisflokksins.
Einnig barst persónuleg kveðja
frá Geir Hallgrímssyni forsæt-
isráðherra. Afmælishófið fór
mjög vel fram og skemmtu
menn sér fram eftir nóttu við
söng og dans.
— Georg.
" Vantar þig
blómaskreytingu
Látið okkar frábæra v-þýzka
skreytingarmann Burkhard
' Naedge sjá um skreytinguna.
Nú um helgina skreytir Burkhard Naedge
á staðnum allskonar blómaskreytingar s.s.
Brúðarskreytingar
Afmælisskreytingar
Gj afaskrey tingar
°g þær skreytingar
sem þú óskar.
Komið í Blómaval um helgina
Þú sérð
ekki eftir því