Morgunblaðið - 22.10.1977, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. OKTÖBER 1977
Guðni Bjarnason, umsjónarmaður, við kerin, en krakkarnir njóta þeirra ekki síður en fullorðna
fðlkið.
Hafnfírðingar geta nú slapp-
að af í heitum ker jum
I GÆR voru í Sundhöll Hafnar-
fjarðar tekin í notkun tvö heit
ker fyrir sundlaugargesti.
Að sögn Guðna Bjarnasonar
umsjónarmanns Sundhallar-
innar hafa Hafnfirðingar beðið
nokkuð lengi eftir slíkum
kerjum, sem væru mjög vinsæl
og baðgestir teldu raunar sjálf-
sagðan hlut. Guðni sagði að i
öðru kerinu væri um 42
gráðaheitt vatn en hinu 39
gráða heitt. Þau væru úr trefja-
plasti og framleidd á Blöndu-
ósi, og þau fyrstu sinnar
tegundar sem tekin eru í
notkun hér á landi. Hann var
mjög ánægður með allan
hreinsitækjaútbúnað sem
kerjunum fylgir.
I sumar og haust hefur einnig
verið unnið við að steypa palla
við kerin, sem ætlaðir eru fyrir
sólböð.
Sundhöllin í Hafnarfrrði var
tekin i notkun sem útisundlaug
árið 1943 og síðan byggt yfir
hana 1953. Guði i sagði að laug-
in væri mikið notuð, sérstak-
léga á morgnana og sagðist
vona að aðsóknin ykist enn með
tilkomu þessara heitu kerja.
Fargjaldið til
Hafnarfjarðar
kostar 170 kr.
1 Morgunblaðinu í fyrradag var
sagt, að venjulegt fargjald með
Landleiðum frá Reykjavík til
Hafnarfjarðar kostaði nú 167 kr.,
það er ekki rétt, farið kostar nú
170 kr.
Agúst Hafberg, forstjóri Land-
leiða, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi, að þegar fjar-
gjaldahækkanir væru reiknaðar
út, þá væri ávallt miðað við vissan
grunn og síðan væri hækkunar-
talan hækkuð eða lækkuð þannig
að stæði á 5 kr. Þegar fargjalda-
hækkun hefði síðast fengizt hefði
farið mátt kosta 147 kr. en miðað
við 5 kr. regluna hefði það verið
145 kr. Samkvæmt þeirri
hækkun, sem nú hefi orðið mætti
fargjaldið kosta í raun kr. 169.80,
en verið hækkað upp i 170 kr.
Gjafir til
Hjartaverndar
I fréttatilkynningu, sem Morg-
unblaðinu barst í gær frá Hjarta-
vernd segir að maður sem vill
ekki láta nafns síns getið hafi
nýlega gefió samtökunum 125.000
kr. og ennfremur hafi tvenn syst-
kini fært samtökunum 9.070 kr.
sem þau öfluóu í hlutaveltu,
Færir Hjartavernd þessu fólki
hinar beztu þakkir.
Lítið að gera hjá verka-
mönnum Eimskipafélagsins
LlTIÐ er nú orðið um verkefni
hjá hafnarverkamönnum í þjón-
ustu Eimskipafélags Islands, þar
sem engu hefur verið skipað upp
úr skipum félagsins frá því að
verkfall opinberra starfsmanna
hófst fyrir einni og hálfri viku.
Að sögn Siurlaugs Þorkelssonar,
blaðafulltrúa Eimskips, hafa
verkamennirnir misst alla eftir-
vinnu, sem er nokkuð stöðug hjá
þeim og væru því launagreiðslur
til þeirra minni en venjulega
þessa dagana.
Arni Steinsson fulltrúi hjá Eim-
skipafélaginu sagði í gær, að tvö
Eimskipafélagsskip væru væntan-
leg á ytrihöfnina um helgina,
Ljósafoss og Fjallfoss, þannig að
ennþá þrengist að skipum þar.
Þá sagði Arni að Brúarfoss lægi
nú fulllestaður í Sundahöfn, og
biði eftir því að hægt væri að
ganga frá siglingaskjölum
skipsins, en það væri u.þ.b. 30
mínútna verk. Er Brúarfoss full-
lestaður freðfiski, sem á að fara á
Bandaríkjamarkað.
Byggt við kirkj-
una í Grundarfirði
Hér eru telpur, sem lagt hafa lið við framkvæmdirnar: Aftari röð
frá vinstri: Anna Marfa Reynisdóttir, Svava Einarsdöttir, Ragnhild-
ur Högnadóttir, Guðbjörg Ingibjörg Gunnarsdóttir, Kristín Hrönn
Pálsdóttir og Sævör Þorvarðardóttir. Fremri röð frá vinstri: Guðný
Lóa Oddsdóttir, Bergþóra Sigurðardóttir, Edda Sigurdórsdóttir,
Valdís Kjartansdóttir og Sigrún Þórólfsdóttir.
Aðalfundur Týs,
HANNES H. Gissurarson var kos-
inn formaður Týs, félags ungra
sjálfstæðismanna í Kópavogi, á
aðalfundi félagsins sl. fimmtu-
dag, 20. október. Var hann sjálf-
kjörinn. Aðrir í stjórn voru
kjörnir Jóhanna Thorsteinsson
varaformaður, Ársæll Hauksson
ritari, Halldór Hilmarsson gjald-
keri og Magnús Páisson með-
stjórnandi. Fundurinn var fjöl-
sóttur, og og gengu nokkrir menn
í félagið á honum. f ræðu, sem
nýkjörinn formaður flutti að lok-
Grundarfirði 16. okt. 1977.
FYRIR ellefu árum var góð ný
kirkja i Grundarfirði. Á herð-
um þáverandi sóknarprests,
séra Magnúsar Guðmundsson-
ar, hvíldi sú framkvæmd öðrum
fremur og munu Grundfirðing-
ar lengi minnast hans með
þakklæti og virðingu fyrir fórn-
fýsi hans og áhuga.
una fokhelda og liggur í augum
uppi, að þetta er stórt átak fyrir
ekki stærri söfnuð. Vel hefur
þó gengið að afla fjár til þessa
verks og mikill fjöldi einstakl-
inga og fyrirtækja hefur sýnt
velvilja sinn í verki með
rausnarlegum fjárframlögum.
Enn vantar þó mikið á, að end-
ar nái saman og eru ýmsar fjár-
öflunarleiðir reyndar.
Verið er að lengja kirkjuna I Grundarfirði og reisa turn. Myndirnar
tók Bæring Cecílsson, Grundarfirði.
F.U.S. í Kópavogi:
Hannes Gissur-
arson kosinn for-
maður
inni kosningu, þakkaði hann
traustið og sagði, að starf félags-
ins á vetri komandi myndi eink-
um miða að kosningum næsta vor.
En hin nýja kirkja var aldrei
reist að fullu, svo sem hún
hafði verið reiknuð i upphafi,
en s.l. vor var hafizt handa við
byggingu þess hluta, sem eftir
var. Er hér um að ræða leng-
ingu kirkjuskips um 7 metra og
20 metra háan turn. Hefur
byggingarframkvæmdum mið-
að vel áfram og vonir standa til
að takast megi að gera þessa
viðbyggingu fokhelda fyrir n.k.
jól. Aætlað er að það kosti um 8
millj. króna að gera bygging-
Fyrir rúmlega ári gáfu syst-
kinin Sigríður, Aðalheiður,
Þórunn og Karl minningargjöf
um foreldra sína, Maríu
Matthíasdóttur og Pétur Finns-
son, og bróður, Ragnar Þórarn.
Gjöfin var 500 þúsund krónur
og í samráði við gefendur var
þessu fé varið til kaupa á
skrautstólum i kirkjuna. Þetta
eru forkunnarfagrir gripir og'
sóma sér hið bezta.
Unga kynslóðin tekur virkan
þátt í byggingu kirkjunnar og
þessar telpur, sem myndin er
af, hafa haldið hlutaveltur og
selt lukkupakka og á þann hátt
safnað rösklega 50 þúsund
krónum. Þá hafa unglingar úr
æskulýðsfélagi kirkjunnar lagt
af mörkum drjúgan skerf með
sjálfboðavinnu við timbur-
hreinsun o.fl.
Keyptir hafa verið skraut-
stólar.
Og einmitt þessa dagana, þeg-
ar verkföll hamla skólaveru,
koma börnin upp að kirkju og
leggja hönd á plóginn, hvert
eftir sinni getu.
Emil.
Svar vid
athugasemd
Lítil og ljúf frétt í Morgunblað-
inu 19. október s.l. um inntöku-
beiðni Alberts Guðmundssonar
alþingismanns í Hvöt hefur orðið
Margréti S. Einarsdóttur varafor-
manni félagsins tilefni til að lýsa
vinnubrögð undirritaðs blaða-
manns „mjög ámælisverð og
ómerk“, eins og fram kom hér í
hlaðinu í gær. Þá telur Margrét að
í umræddri frétt séu sér gerðar
upp skoðanir, um leið og hún
kvartar yfir því að í „stuttu
spjalli" okkar um inntökubeiðni
Alberts hafi hvergi komið fram
ósk af minni hálfu um að eiga við
hana blaðaviðtal.
Til að lesandinn átti sig á því
hvað um er að ræða er ástæða til
að endurtaka hér þa máisgrein í
fréttinni þar sem Margrétar er
getið, en þar segir orðrétt:
„Margrét Einarsdóttir varafor-
maður Hvatar hafði það um málið
að segja er Mbl. innti hana eftir
viðbrögðum stjórnarinnar við um-
sókninni, að til þess að Albert
fengi inngöngu í félagið væri
v-
nauðsynlegt að breyta lögum þess
þar eð ákvæði væri um að félagar
skyldu vera konur. Hún vildi
engu spá um Iyktir málsins, en
sagði að persónulega litist sér vel
á að fá Albert Guðmundsson í
Hvöt.“
Ofangreinda ,,persónulega“
skoðun lét varaformaðurinn í ljós
við undirritaða í afmælisfagnaði
Hvatar hinn 14. október s.l. Sjálf-
sagt er að biðjast velvirðingar á
því að vitnað var til þessara um-
mæla i fréttinni án þess að fyrir-
fram hefði verið frá því gengið á
formlegan hátt að um „blaðavið-
tal“ væri að ræða. Mér láðist að
gæta þess að um svo viðkvæmt
mál gæti verið að ræða sem raun
ber vitni.
Leyfi ég mér að vona að næst
þegar við Margrét mætumst á rit-
vellinum verði erindið mikilvæg-
ara en að þessu sinni, og um leið
vil ég nota tækifærið til að óska
Margréti og Hvöt — með eða án
Alberts — gæfu og gengis.
Áslaug Ragnars.