Morgunblaðið - 22.10.1977, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 1977
21
öryggi í flug-
málum rætt á
Allsherjarþingi
New York, 21. október.
Heuter.
FULLTRUAR ríkja úr öllum
heimsáflum samþvkktu í dag að
leggja til að öryggi í alþjóðaflug-
málum yrði tekið til umræðu á
Allsherjarþinginu. Jafnframt
verður Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna kallað saman á mánu-
dag til að ræða aðgerðir Suður-
Afríkustjórnar gegn andstæðing-
um apartheid-stefnunnar.
Altijóðasamtök flugmanna
höfðu hótað að boða tveggja sólar-
hringa verkfall ef flugrán yrðu
ekki tekin fyrir á Allsherjarþing-
inu, en nú er búizt við að þau
aflýsi verkfallinu sem átti að hefj-
ast á hádegi á þriðjudag.
Ríkin sem leggja til að málið
verði tekið fyrir munu afhenda
Kurt - Waldheim framkvæmda-
stjóra bréf þar að lútandi. Þar
verður farið fram á að málið verði
látið sitja í fyrirrúmi, látinn í ljós
„alvarlegur uggur“ vegna nýlegra
flugrána og sagt að „brýna nauð-
syn“ beri til að Allsherjarþingið
láti til skarar skríða í málinu.
Flugræningi
fyrirfór sér
Atlanta. Georgia.
21. október. Keuter.
RÆNINGI farþegaþotu af gerð-
inni Boeing 737 skaut sig til bana
Rokkarar
farast í
flugslysi
McComb. Mississippi.
21. október. Reuter.
ÞRÍR af nlu meðlimum upprennandi
rokksveitar. Lynyrd Skynryd, voru
meðal sex sem biðu bana þegar
tveggja hreyfla leiguftugvél af gerð-
inni Convair með 26 manns um borð
steyptist til jarðar i Mississippi i
nótt.
Stjórnandi sveitarinnar,. Ronnie
Van Zant, systir hans Cassie Van
Zant og gítarleikarinn Steve Ganines
voru meðal þeirra sem fórust. Bassa-
leikarinn Leon Wilkinson særðist
hættulega. Hljómsveitin varð ekki
verulega vinsæl fyrr en á þessu ári
þótt hún sé 10 ára gömul.
í Atlanta, Georgia, snemma í dag
skömmu eftir að hann hafði
sleppt síðustu 11 gíslum sínum.
Ræninginn, Thomas Hannon,
hafði tekið þotuna traustataki 14
tímum áður i Grand Island, Ne-
braska, þar sem hann hafði verið
ákærður fyrir bankarán en látinn
laus gegn tryggingu.
Hann krafðist þess að maður að
nafni George Stewart, sem var
ákærður um leið og hann, yrði
látinn laus úr fangelsi í Atlanta.
Stewart var fluttur með þyrlu
til flugvallarins og færður í hand-
járnum til flugvélarinnar sem
Hannon rændi. Hann skoraði á
Hannon að sleppa gislunum, að
sögn talsmanns FBI.
Talsmaðurinn sagði að alríkis-
lögreglan hefði ekki látið undan
öðrum kröfum Hannons. Hann
krafðist þess einnig að fá þriggja
milljón dollara lausnargjald, tvær
fallhlífar og tvær vélbyssur.
Belgradráðstefnan:
_
Afram er ráðizt á
A-Evrópuríki fyrir
mannréttindabrot
Israel:
Verður ekkert af
samstarfi Likud og Um-
bótahreyfingarinnar?
Tel Aviv21. okt. Reuter.
VONIR Begins forsætisráðherra
Israels um að styrkja stjórn sfna
með þvi að fá til liðs við hana
fulltrúa úr Lýðræðislegu breyt-
ingar- og umbótahreyfingunni,
dvínuðu í kvöld þegar ljóst var að
mikill klofningur var kominn
upp innan hreyfingarinnar, DMC.
Leiðtogar áhrifamikilla afla í
hreyfingunni, sem stofnuð var
fyrir kosningarnar í maf sl„ neit-
uðu eindregið og af hinni mestu
gremju að fallast á ákvörðun
flokksstjórnarinnar um að ganga
til stjórnarsamvinnu við Begin.
Þrýstingur utanfrá, einkum
vegna skoðanaágreinings við
Bandaríkin, var m.a. gefinn sem
ástæða fyrir þeirri ákvörðun að
endurskipuleggja ríkisstjórnina
Komið upp um
fiugránsáform
Prag 21. okt. Reuter.
ÖRYGGISLÖGREGLA Kuwait komst
I kvöld á snoðir um flugrénséform og
var sá grunaSi handtakinn. Mun
hafa veriS ætlun hans a8 ræna tékk-
neskri vél sam var á laiS frá Prag til
Singapore me8 viðkomu I Kuwait.
Annar maBur var I vitorSi mo8 hon-
um, an akki ar vitaS hvort hann var
einnig handsamaBur.
að nokkru. Ammon Rubinstein
prófessor sagði við fréttamenn I
kvöld, að sá armur sem fylgdi
honum hefði greitt atkvæði gegn
stjórnarsamvinnunni og tæki af-
stöðu til þess á næstunni hvort
fulgismenn hans greiddu atkvæði
Framhald á bls. 24.
Belgrad, 21. okt. Reuter.
VESTUR-Þjóðverjar voru I
broddi fylkingar nýrra árása vest-
rænna ríkja á ríkin austan járn-
tjaldsins vegna brota þeirra gegn
mannréttindum á ráðstefnunni I
dag. Sovétmenn lýstu því þá yfir,
að þeir skelltu skollaeyrum við
slíkum afskiptum vestrænna
þjóða af innanríkismálum komm-
únistaríkjanna.
Aðalfulltrúi Vestur-Þjóðverja
deildi í ræðu sinni á takmarkanir
á leyfum til flutnings úr landi,
illa meðferð á andófsmönnum og
brot gegn trúfrelsi. Hann vitnaði
sérstakiega til ástandsins i Sovét-
rikjunum og Austur-Þýzkalandi í
þessari gagnrýni sinni og fékk
góðar undirtektir fulltrúa ann-
arra vestrænna þjóða.
Aðalfulltrúi Sovétríkjanna Yuli
Vorontsov, sagði i reiði sinni yfir
orðum Goldbergs, fulltrúa Banda-
rikjanna i gær á þinginu um inn-
rásina í Tékkóslóvakíu 1968 þar
sem hann fordæmdi hana af-
Jóhannesarborg,
21. október. Reuter.
JOHN Vorster forsætisráðherra
hefur svarað fullum hálsi gagn-
rýni sem ríkisstjórn hans hefur
sætt fyrir að banna starfsemi
samtakanna blökkumanna.
Hann sagðist engan áhuga hafa
á þessari gagnrýni og kvaðst ekki
telja hana skipta nokkru máli.
Hann hefur oft sagt að hann muni
ekki láta viðgangast að utanað-
komandi ríki skipti sér af ástand-
inu í Suður-Afríku.
Vorster veittist einkum að
Bandaríkjamönnum og sagði:
„Carter-stjórnin hefur reynt í 10
mánuði að móta stefnuna fyrir
okkur. Það væri skemmtileg til-
breýting ef hún mótaði sína eigin
stefnu."
Bandariska stjórnin segir að
samskipti hennar við suður-
afrísku stjórnina séu í endurskoð-
un vegna aðgerða stjórnvalda í
Suður-Afriku gegn andstæðing-
um apartheid-stefnunnar. Stjórn-
in bannaði 18 samtök, lokaði
tveimur helztu blöðum blökku-
manna og handtók tugi manna
þannig að hún hefur þaggað niður
dráttarlaust að aldrei myndu
Sovétmenn þola afskipti erlendra
þjóða af sínum innanríkismálum.
vilji fólksins væri heilög lög fyrir
ríkisstjórninni.
Austur-Þjóðverjar réðust á
Vestur-Þjóðverja í ræðum sinum,
Framhald á bls. 24.
i helztu andstæðingum sínum,
svörtum jafnt sem hvítum.
Vorster lýsti yfir fullum stuðn-
ingi við aðgerðirnar og sagði að
stjórn sem yrði að gera ráðstafan-
ir til að tryggja framtið Suður-
Afríku og lög og reglu og vernda
líf fólks og eignir þess hugsaói
ekki um atkvæði. Hann sagði að
menn vildu ríkisstjórn sem hugs-
aði um öryggi Suður-Afríku.
Kosningar fara bráólega fram í
Suður-Afríku.
Mikill fjöldi lögreglumanna var
á verði í gær i blökkumannabæn-
um Soweto skammt frá Jóhannes-
arborg þar sem fyrst kom til blóð-
ugra átaka fyrir 16 mánuðum.
Flestir skólar voru auðir þar sem
nemendur eru i verkfalli en í
odda skarst ekki.
A það er bent að Vorster veitist
að Bandaríkjamönnum á sama
tima og þeir láti sig málefni sunn-
anverðrar Afríku meira skipta en
nokkru sinni fyrr. Stjörn Carters
hefur reynt að fá hjálp frá Suður-
Afríkustjórn til að fá því fram-
gengt að meirihlutastjórnir
blökkumanna verði myndaðar i
Rhódesiu og Suðvestur-Afríku
(Namibíu).
Daimler—Benz
syrgir Schleyer
MORGUNBLAÐINU barst í
gær eftirfarandi telex-skeyti
frá Daimler-Benz-fyrirtækinu í
Vestur-Þýzkalandi.
Daimler-Benz syrgir dr.
Hanns Martin Schleyer full-
trúa i framkvæmdastjórn.
Hann varð fórnarlamb rudda-
legra moröingja sem höfðu það
markmið að grafa undan
trúnaðartrausti og leggja að
velli mannleg verðmæti.
Með skapst.vrk sínum I starfi
hafði hann drjúg áhrif á vöxt
og viðgang Daimler-
Benz-fyrirtækisins á undan-
förnum 26 árum. Hann var
hreykinn af því að tilhe.vra
fyrirtæki okkar og honum
fannst hann vera þvf tengdur
mjög nánum böndum.
Við eigum honum mikla
skuld að gjalda.
Hanns Martin Schleyer
ávann sér traust.
Félagsleg ábyrgðartilfinning
mótaði hugsanir hans og Iffs-
hætti á grundvelli vinnu og
afreka.
Við samhryggjumst fjöl-
skyldu hans við fráfall þessa
mæta manns.
Eftirlitsstjórn, Frani-
kvæmdastjórn, Verkamanna-
ráð og allir starfsmenn
Daimler-Benz Aktiengesell-
schaft. Einnig fyrir hönd allra
annarra fyrirtækja innan sam-
steypunnar.
V orster veitist að
Bandarík j ast j órn