Morgunblaðið - 22.10.1977, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. OKT0BER 1977
Vilhjájftilir Einarsson skólaMfóri, Reykholti:
Ja svart er það!
Vissulega er það gleðiefni, ef
þjóðín er að vakna til meðvitund-
ar um það, hversu mikilvægt það
er að skólastarf farsælist sem
best. Umræður eins og þær, sem
fóru fram í hinum tveim þáttum
íslenska sjónvarpsins, eru því
gagnlegar, hvort sem menn eru
sammála þvf, sem þar kemur
fram, eða ekki. Mér fannst heild-
armyndin svo svört, að ef hún er
hinn sanni veruleiki f skólum
landsins, þarf að spyrna fast við
fótum. Að vfsu voru þeir, sem
fram komu, allir fulltrúar stórra
skóla í þéttbýli, en f slíkum skól-
um er líka langt yfir helmingur
allra nemenda landsins.
Stjórnandinn har stundum
fram leiðandi spurningar, þ.e.
spurningar, sem juku Ifkurnar á
tilteknu svari (sem væntanlega
vakti fyrir stjórnanda að fá
fram). Skulu tilfærð orðrétt
dæmi þar um hér á eftir. Þátttak-
endur skelltu skuldinni á
„kerfið“ og bekkjarstærð og
höfðu fátt jákvætt til málanna að
leggja. Hér á ég við, þegar vikið
var að íslenskum hliðstæðum við
ýmislegt það, sem fram kom f
sænska myndafiokknum. Skulu
einnig tilfærð orðrétt dæmi um
slfkt.
Fyrst skulum við líta á megin-
markmið grunnskólans (hluti
2.gr. laga um grunnskóla)
„ ... starfshættir skólans
skulu því mótast af umburð-
arlyndi, kristilegu siðgæði og
lýðræðislegu samstarfi. Skól-
inn skal kenna nemendum
víðsýni og auka skilning
þeirra á mannlegum'kjörum
og umhverfi, á íslensku þjóð-
félagi, sögu þess og sérkenn-
um og skyldum einstaklings-
ins við samfélagið. Grunn-
skólinn skal leitast við að
haga störfum sínum i sem
fyllstu samræmi við eðli og
þarfir nemenda og stuðla að
alhliða þroska, heilbrigði og
menntun hvers og eins.
Grunnskólinn skal veita nem-
endum tækifæri til að afla
sér þekkingar og leikni og
temja sér vinnubrögð er
stuðli að stöðugri viðleitni til
menntumy og þroska. Skóla-
stjóri skal því leggja grund-
völl að sjálfstæðri hugsun
nemenda og þjálfa hæfni
þeirra til samstarfs við aðra.“
Stjórnandi: „Á skólinn að vera
uppeldisstofnun? Þátttakendur
voru sammála um mikilvægi upp-
eldishlutverks skólanna, sem færi
vaxandi vegna þeirrar þróunar í
þjóðfélaginu að „foreldrar sinna
uppeldi barnanna æ minna.
Skólaveran lengist á sama tíma,
bæði í árum og í vikum á hverju
ári, skólinn verður að taka að sér
æ stærra hlutverk í uppeldi barn-
anna og hann gerir það. Hitt er
svo annað mál hvernig það tekst
hjá skólanum".
Framhaldsskólakennarinn:
....Það er staðreynd að til
skamms tíma hefur hið félagslega
uppeldi verið afar takmarkað i
skólum. Það hefur þótt vera starf,
sem tilheyrði ekki hinu eiginlega
skólastarfi...“
Sálfræðingurinn:....ég tel að
kennaramenntun hér á landi sé
alls ekki nógu góð . . . ef kennara-
menntun á að komast í verulega
gott form verður Kennaraháskól-
inn að vera algerlega gott form
verður Kennaraháskólinn að vera
algerlega til fyrirmyndar að öllu
leyti, ekki sist i sambandi við alla
framkvæmd starfanna,... þ.e.a.s.
hvernig unnið er í Kennarahá-
skólanum ... við, sem kennum
þarna gefum kennaraefnunum
tvöföld skilaboð: annars vegar
segjum við: „Þið eigið að kenna,
þegar þið komið út í starf þannig
að þiö virkjið ykkar nemendur
svo að allir fái að læra að tjá sig
o.s.frv., og við segjum þetta uppi í
pontu fyrir framan 30 nemendur
kennaranema, sem meíra og
minna eru daufir og alls óvirkir.
... annars vegar segja fræðin
þetta og hins vegar gerum við
SKÖifNW A AÞ BÚA NEMAMDANN tlWDK? L'IFie, E/V HVERNIG L\FI VlLJUM
VltAb LIFAt) kf/?p/ 'A ISLANDt / FRAttTÍDIIiHI* UMRÆÞUI? UH SFÓLAttAL
06 SK'OLAtERFI E/fU NmsjA FÁrJrrAÍ?. £F ÞFTTA .KSKft’ ER £/VAF<rtAt> FAÁ
ÖpeuM MÓf>F£LA6-SK£RFUH. þARF ISLAUD FÞAMTÍÞARIHVAF Þ.T.V. MEST
'A At) HAlbA UFNTUiUM (/lU(SUvAltLAUSUM) l/IMUUKAAFTI I/ID FAMBA1
svona. Og hvað gera kennaraefn-
in? Þau fara auðvitað meira eftir
því, sem við gerum en því, sem
við segjum. Þá verður reyndin sú,
að 80—90% af kennurum fara að
kenna eins og þeim var kennt, en
ekki eins og þeim var sagt að þeir
ættu að kenna."
Samvinna kennara
Stjórnandinn spyr um fslenskar hliðstæður
við það, sem fram kom í „Skóladögum” um
samvinnu kennara.
Fjölbrautaskólakennarinn:
„ ... ég held að það, sem einkenni
fyrst og fremst samspil milli
kennara, er það sama og samspil
milli nemenda, þ.e.a.s. sam-
keppni. Skólinn er ekki byggður
upp á samstarfi, heldur sam-
keppni . .. (þess vegna) ... vant-
ar oft mjög mikið á samstarf
kennara, því miður“.
Grunnskólakennarinn: ... sam-
vinna milli kennara þyrfti að auk-
ast, sérstaklega til samræmingar
á vinnuálagi nemenda . . . þarna
er brotalöm. Kennarar eru margir
í hverrri bekkjardeild, miklu
fleiri þegar ofar dregur, .. .taka
ekki tillit til vinnuálags nemenda,
sem óhjákvæmilega hlýtur að
vera meira þegar samvinna er
ekki um starfið.
Stjórnandi: ,,... hvaða aðstöðu
hafa foreldrar í raun og
veru ... til að fylgjast meö því
hvort börn þeirra fái kennara sem
eru hæfir til starfsins?“ (lleið-
andi spurning).
Sálfræðingurinn: ....ég held
að flestir foreldrar viti raunveru-
lega ekki hvað þeir geta gert eða
hvort þeir geta gert nokk-
uð. . . foreldrar eru jafnvel
hræddir um að það komi niður á
börnunum ef þeir eru of mikið að
blanda sér i málin,.. foreldrum
líður ekkert sérlega vel, þegar
þeir koma á foreldrafund ... ég
held að skipulag skólastarfsins
hafi veruleg áhrif á það, hvað lftil
samvinna hefur komist í gang
milli kennara ... þar sem farið er
að gera tilraunir með opinn skóla
eykst samstarfið hröðum skref-
um.“
Og enn versnar það
Fjölbrautarskólakennarinn:
.. Hver er tilgangurinn með
þessari kennslu? Mér finnst við
vera að kenna til prófa en ekki til
þroska. Mér finnst skólastarf ein-
kennast æ meir af þessu, eftir því
sem ofar kemur. í skólan-
um... Hvaða skoðanir hafa
krakkarnir á því námi, sem þau
eru að nema? . Námsefnið virðist
ekki skírskota til nemend-
anna. .. Kennarinn er kannski
ekki sannfærður um að þetta sé
það, sem hann ætti kenna, og
hann er ekki sannfærður um að
þetta sé það, sem nemendurnir
þurfi að vita. Hann er bundinn af
vissu námsefni og tiltekinni yfir-
ferð ... (námsskráin) ... mér
finnst stundum að við séum að
kenna i keppni og kenna til prófa
en ekki til þroska.
Próf eða
ekki próf
Stjórnandinn: Vitnar í sænsku
myndina: „ ... þarna var á ferð-
inni kona sem kenndi til prófs og
miðaði við einkunnirnar. Ef ég
man rétt þá taldi hún þær vera
það eina keyri, sem um væri að
ræða, það eina sem þetta fólk
væri hrætt við. Eru einkunnir
þetta vopn (leiðandi spurning)
Grunnskólakennarinn: „Það á
að draga úr prófum, svo mikið
sem unnt er .. . hinir (þeir, sem
fá lágar einkunnir) eru alltaf að
fá hryggbrot... þar af auki hindr-
ar þessi prófkennska að miklu
leyti frjótt og skapandi
starf ... við eigum að undirbúa
nemendurna undir líf og starf í
lýðræðisþjóðfélagi og það gerum
við ekki ef við ætlum að prófa
nemendur stöðugt í þekkingar-
atriðum. Við verðum þá allavega
að breyta prófunum, þannig að
það verði metnir fleiri þætt-
ir... meta það framlag, sem
nemandfnn leggur fram í skóla-
starfinu, áhuga og iðni.“ Fjöl-
brautaskólakennarinn: „.. . góður
skóli þarf ekki að hafa nein próf
og engar einkunnir ..
Stjórnandinn: ... kennarar
hafa eina hugmynd um aga,
nemendur aðra og foreldrar hafa
mjög ákveðnar hugmyndir um
það, hvernig aga þeir telja að eigi
að halda uppi i skólanum ...“
(gróf alhæfing) Sálfræðingurinn:
....ef verkefnin, sem nemendur
eru að fást við, höfða til þeirra,
minnka agavandamálin stórlega
og flest þeirra hverfa. .. .kennar-
inn er líka ósáttur við það, sem
hann er að gera og nemendur
finna það glögglega ... ég tel próf
allt of mikinn þátt í íslensku
skólastarfi... mætti fella niður
nema þá kannski i 9. bekk, vegna
þess að þar þurfa bæði framhalds-
skólar og atvinnuvegirnir og aðrir
á þessu að halda ... visst náms-
mat er nauðsynlegt...“ (fyrir
kennarann, svo hann viti hvar
nemandinn stendur) . .. Fram-
haldsskólakennarinn: ... það má
aldrei um of loka það, sem vel er
gert, það má helst ekki minnast á
þá nemendur, sem verulega skara
fram úr. Ég held að við ættum að
fara varlega í það að reyna að
draga alla i sama dilkinn ... við
erum ólík ... (tekið var fram, að
verið væri að vitna til framhalds-
skóla) ... annars vegar höfum við
nemendur, sem vita nákVæmiega
hvað er að gerast, og hins vegar
nemendur, sem vita það ekki. Þar
geta komið upp vandamál, vegna
þess að þeir, sem ekki fylgjast
með, finna það að þeir eru ekki
þessum vanda vaxnir og hinum
leiðist.
I tilefni af þessum ummæium get ég ekki
stillt mÍK um ad geta reynslu minnar I Svið-
þjód. Allir þeir kennarar, sem ég ræddi við,
töldu þetta eitt mesta vandamál sænska
grunnskölans. I»á vil ég minna á „skosku
lausnina" sem ég gat um f sfðasta þætti <Mbl.
fí. okt.), þar sem mér virðist vandinn leystur
á skvnsamlegan hátt án þess að myndaðir
væru gáfnaljósabekkir eða tossabekkir.
Stjórnandinn:......við vitum að
þó að við séum fædd jöfn þá erum
við misjafnlega jöfn(?!) .. . Það
er mismunur á fólki.. . er það
óraunhæft að láta nemendur í
skóla finna þetta til dæmis með
einkunnagjöf eins og gert hefur
verið? (leiðandi spurning.
Skólakerfið kostar rúmlega 1/5 ríkistekna eða
13460 millj. króna skv. fjárlögum 1977. Það
bindur u.þ.b. fimmta hvern landsmann við kennslu
eða nám mestan hluta ársins.
Það varðar hvern einasta þjóðfélagsþegn.
Starf kennara með nem.
utan kennslustunda.
Tengsl skóla — nem-
enda — foreldra
Fjölbrautaskólakennarinn:
... tengslin milli kennara og
nemenda eru afskaplega lítil utan
hinnar beinu kennslu ... bekkirn-
ir allt of stórir, kennarinn þekkir
nemandann allt of litið. Við höf-
um allt of stóra bekki og við höf-
um allt of stóra skóla.“
Spurt var um gildi starfs kennara með
nemendum utan kennslustunda:
Sálfræðingurinn: ,,.. . ég tel að
margt, sem gert er utan skóla og
kennslustunda, geti skapað mjög
góð tengsl milli nemenda og kenn-
ara.. .í almennri námsskrá
grunnskóla er lögð mikil áhersla á
það, að kennarar fari meira með
nemendum í vettvangsathuganir,
ferðalög og heimsóknir á vinnu-
staði og í stofnanir, söfn og allt
mögulegt slíkt. . .gert er ráð fyrir
því að þetta sé hluti af skólastarf-
inu. Hins vegar hafa skólastjórar
og aðrir sagt mér að það sé sköpuð
mjög lítil aðstaða til að fram-
kvæma þetta...við gerum ráð
fyrir því að þetta sé alveg utan við
námið sjálft. Þetta þarf að tengja
miklu meira saman og ég veit líka
fleiri dæmi þess að kennarar eru
farnir að gera það . . .“
Spurt var hvort kennarar væru fúsir art
taka þátt í svona starfi og fram kom aó
áhugasamir kennarar væru þaó.
Stjórnandi: „Hefur vinnutimi
ekki eitthvað að segja í þessu
sambandi? (stutt, góð, ekki leið-
andi spurning)
Grunnskólakennarinn:......það
er bagalegt að vera með reglu-
gerðir og tilskipanir um ákveðinn
fjölda daga, sem megi verja til
annarra starfa í þágu skóla en
kennslu ... 9—14 dagar og þar er
innifalin t.d. kynning atvinnulífs-
ins ... við eigum ekki að þurfa að
vera svona miðstýrð, mér fyndist
afskaplega mikilvægt að skólarnir
gætu orðið sjálfstæðari í þessu
máli og bara alveg iifsnauðsyn-
legt.
Framhaldsskólakennarinn:
(viðkomandi tengslum foreldra,
nemenda og kennara) ... víðast
hvar er ekki nokkurt einasta her-
bergi, þ^r sem kennarar geta haft
viðtöl, og þegar kennarar eru
svona hlaðnir kennslu er spurn-
ing hversu mikið þeir geta á sig
lagt utan vinnunnar ... foreldrar
koma yfirleitt ekki að fyrrabragði
og kennarar heldur ekki til for-
eldra,... það er ekki ætlaður
nokkur timi til tengsla utan skóla-
stofunnar.
Meðaltalskennslan
Stjórnandinn, eftir nokkurn
formála, þar sem vitnað var i
sænsku myndina: „Konan leggur
fram þá frómu spurningu: „Þið
ráðið ekki við þá, sem eru best
gefnir og þið ráðið ekki við þá,
sem lakast eru gefnir. Hverjum
ráðið þið við að kenna?" Höfum
við hliðstæður við þetta?
Sálfræðingurinn: „Já, það er
held ég ekki nokkur vafi á því.
Þetta kemur inn á spurninguna
um það, hvort við eigum að hafa
blandaða bekki eða raða nemend-
um í bekki. Það er nokkurn veg-
inn augljóst að það getur skapað
vissa erfiðleika fyrir kennara að
kenna í blönduðum bekkj-
um .. .blöndun i bekki er tví-
mælalaust til góðs fyrir bæði lé-
lega nemendur og meðalduglega
nemendur og það skiptir engu
máli fyrir duglegu nemend-
urna...
Margir kennarar, sem nota
hcfðbundnar aðferðir velja það
að sjálfsögðu að kenna meðaltal-
inu. Þá fer þeim duglegu að leið-
ast og þeir lélegu geta ekki fylgst
með .. . þetta er mjög algengt
fyrirbæri hérna hjá okkur, þessi
meðaltalskennsla.
Fjölbrautaskólakennarinn:
....við leggjum afskaplega ein-
hliða mælikvarða á það, (hæfni
nemenda) ... við leggjum getuna
til að læra af bókinni eingöngu
sem mælikvarða og gleymum öll-
um öðrum þáttum. Við þurfum að
þroska nemendur ... gefa þeim
sjálfstæði. .. venja þá við éagn-
rýni eða ,,kritíska“ hugsun. Ger-
um við þetta? Ég held ekki. Við
keyrum okkar námsefni eftir
námsskrá, sem við fáum að ofan,
kennárarnir hafa afskaplega lítið
í það að rembast við að komast