Morgunblaðið - 22.10.1977, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 22.10.1977, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 1977 35 En hvaða virðingar naut þessi látna kona í lifenda lifi. Ekki trónaði hún í nefndum eða stjórn- um. Ekki hlaut hún viðurkenn- ingar þess opinbera, slika krossa bar hún aldrei. Hún átti i hjarta sínu þann kross er ber þann Ijóma er verður okkur lýsandi tákn um kærleika og ómælanlega fórnfýsi um aldur og ævi. Þótt Árný hafi ekki verið tengd mér blóðböndum er við fráfall hennar höggið það skarð í fjöl- skyldu mína er séint eða aldrei verður að marki fyllt. Megi góður Guð blessa minn- ingu þessarar mætu konu er var mér, börnum mínum og svo mörg- um öðrum ntóðir í mæðra stað. Sigfús J. Johnsen. „tslands óhamingju verður allt að vopni." Þessi orð lét Bjarni Thorarensen falla um hinn unga íslandsvin Baldvin Einarsson er hann hafði látist með sviplegum hætti. Enn eiga þessi orð við um hana Nýju okkar, sem lifað hafði sína löngu tið í Suðurgarði. Hún var ekki kona sem stóð rígsperrt í baráttumálum bæjarbúa eða lét mikið að sér kveða út í frá^Jíenn- ar heimur var Suðurgarður, börn- in, hænsnaskúrinn og þvottasnúr- urnar. Þannig kynntumst við bræðurnir henni sem litlir snáðar á hlaupum út og inn um Suður- garð. Nýja var fastur viðmiðunar- punktur í lífi okkar. Yngri bróðir- inn mældi stærð sína við hana, þar sem hún var svo lágvaxin að snemma setti í hann kapp til þess að vaxa henni yfir höfuð. í and- legri merkingu þess orðs gátu fáir gert það. Flesta skorti þá fórnfýsi og virðingu fyrir sínum nánustu til þess að koma fram eins og hún gerði. Það er einmitt þannig sem hin fleygu orð um Baldvin Einars- son eiga hér heima. Hún átti sínar sorgir en bar þær þögul. Hún átti sína gleði sem hún naut aldrei ein heldur sameiginlega með fólkinu. Hún var einstæðingur sem gaf sig alla fram, ekki aðeins hugmytidir sínar heldur líf allt og störf. Við bræðurnir og reyndar syst- kini öll viljum þakka fyrir að hafa fengið að njóta elsku Nýjú og fórnfýsi. Nú er hún komin til son- ar síns og vina eftir langan að- skilnað. Aðrir vinir kveðja hana með söknuði. Megi Guð vera með henni um ókomna tíð. Þorsteinii og Arni Sigfússynir. Hallveig fór margar erfiðar ferðir þarna á milli, jafnt á nótt sem degi. I fimmtán ár var hún starfandi ljósmóðir og tók á móti 400 börnum á' þessum slóðum, elskuð og dáð af öllum er nutu hennar hlýju og happadrjúgu handa. Mörg voru sporin hennar í Ólafsvík þessi ár, þvi oft var hennar leitað í sambandi við fleira en fæðingar væri um veik- indi að ræða. Ég sem þessar línur rita á margar minningar um Hall- veigu og störf hennar, í sorg og gleði. Eina nótt vöktum við saman yf- ir deyjandi konu. Þá varð mér fyrst Ijóst hve innilega trúuð hún var, og hjartahlý gagnvart þeim er áttu um sárt að binda. Hallveig var virkur þátttakandi í Kvenfélagi Ólafsvíkur. Ég minn- ist fallegu munanna sem hún gaf Siguröur Gestsson Hvammi-Minning F. 12. desember 1884. D. 11. október 1977. I þessum örfáu línum viljum við hjónin aðeins þakka Sigurði Gestssyni fyrir margar ánægju- stundir sem við áttum með hon- um á heimili Katrínar dóttur hans og Olivers hér í bænum. Ánægju- legt var jafnan að hitta Sigurð og rabba við hann. Oft minntist hann þá á uppvaxtarárin heinia í sveit- inni, er drengir vöndust á það ungir að árum að taka til hendi. Þá unnu nienn frá því eldsnemma á morgnana og langt fram á kvöld. Þá var það ekki klukkan sem allt var miðað við. Var augljóst að Sigurður hefur verið ósérhlífinn maður til vinnu og gert strangar kröfur til hjúa sinna, þegar hon- um þótti mikið liggja við. En þó hann kunni að hafa virzt á stundum nokkuð strangur hús- bóndi, var hjartalag þessa horfna vinar okkar einstaklega gott. Það var oft gaman að heyra Sigurð ræða almenn mál, sem ofarlega voru á baugi þá og þá stundina. Hann hafði ákveðnar skoðanir, sem voru mótaðar af mikilli lífs- reynslu og áhuga á samtíðinni. Fyrir þá sem ljóðelskir eru var Sigurður sem heill hafsjór, svo mikið kunni hann af hvers konar kveðskap. Þegar þessi aldurhnigni vinur okkar er nú horfinn af sjónarsvið- inu þökkum við honum hlýju hans og óskum honum blessunar Guðs. Anna og Tryggve. í dag er til moldar borinn við Grafarkirkju Sigurður Gestsson fyrrum bóndi í Hvammi í Skaftár- tungu. Hann andaðist á Borgar- sjúkrahúsinu í Reykjavik að kvöldi 11 þ.m. eftir skamma sjúkrahúsvist. Sigurður var fæddur á Ljótar- stöðum í Skaftártungu hinn 12. desember árið 1884, sonur hjón- anna Þuríðar Vigfúsdóttur frá Flögu og Gests Bárðarsonar frá Borgarfelli. Hann ólst upp í for- eldrahúsum ásamt stórum hópi systkina, en þau eru í þessari aldursröð: Bárður, f. 1878; Vig- fús, f. 1880; Sigríður, f. 1882, d. á basara félagsins. Þar skartaði hið fagra handbragð hennar. Hall- veig var i mörg ár í Kirkjukór Ölafsvikur, þar söng hún guði sin- um dýrð. öll þessi ár átti hún heima i Hjarðarholti, umvafin kærleika hinnar góðu fjölskyldu. Og enn var sorgin á ferð. Nú stóð Hallveig sem þroskuð kona við hlið vina sinna, er elsti sonurinn, Hörður, fórst af slysförum, og rúmu ári síðar andast heimilisfað- irinn, Jón Gíslason. Þá studdu þær hvor aðra Hallveig og Lára. Þar var kærleikurinn og dyggðin söm við sig. Lára móðir Hallveig- ar átti síðast heima hjá Helgu dóttur sinni i Jakobsbæ, andaðist hún árið 1958. Nú verða algjör þáttaskil i lífi Hallveigar. Hún flytur nú burt úr Ólafsvík til Reykjavikur og giftist eftirlifandi manni sínum, Theó- dór Daníelssyni kennara, 1961. Stofna þau sitt heimili, er varð þeirra hamingjureitur. Þann 27. ágúst 1962 fæðist þeim hjónum dóttir sem hlaut nafnið Lára María. Þessi litla stúlka varð þeim sannur sólargeisli og gleðigjafi. Nú fyrst brosti lífið við þeim hjónum. En ský dró á himin. Heilsa Theódórs bilaði, og var hann lengi sjúkur maður. Voru það erfiðir tímar hjá Hallveigu, en hún taldi aldrei spor sín við hjúkrun og sizt þegar hennar góði eiginmaður átti í hlut. Fyrir ári síðan fór Hallveig að vinna á Fæðingarheimili Reykja- víkur, kom henni þá að góðum notum Ijósmóðurþekkingin og starfsreynslan frá fyrri árum. Naut hún sín við að sinna litlu börnunum og finna þeirra sak- leysi í örmum sinum. En skyndi- Framhald á bls. 29. ar en Eldvatnið og Eldhraunið á hina. Á sama stað bjuggu þau öll sin búskaparár, eða þar til ársins 1957 er Sigríður lézt. Hvammur er góð bújörð og bún- aðist þeim þar vel. Þau voru með gildari búendum í Skaftártungu. Heimilinu var aflað vista af for- sjálni og öll umgengni bar vott frábærra snyrtimennsku utan húss sent innan. Eftir lát konu sinnar bjó Sig- urður i félagi við syni sína i Hvammi þar til hann hætti bú- skap upp úr 1960. Börn þeirra Sigríðar eru: Bárð- ur. Tyrrverandi bóndi í Hvammi, kvæntur Sigurrósu Hannesdótt- ur, búa í Reykjavík, Katrín Hild- ur. gift Olivert Thorstensen. vél- smiðameistara. búa í Reykjavík. Sigurjón. bóndi á Borgarfelli, kvæntur Sigurbjörgu Vigfúsdótt- ur, Björn, húsasmíðameistari. kvæntur Unni Tryggvadóttur, búa i Kópavogi. Sigurður Gestsson var i hærra meðallagi á vöxt, iturvaxinn. sterkur og fylginn sér. ljós yfirlit- um og lét skegg sitt stundum hylja efri vör. Röddin var sterk og allbreytileg og bar vott um skap- hita. Hann var í góðra vina hópi hrókur alls fagnaðar. hafði söng- rödd ágæta og kvað svo vel að til var tekið. Ef hann beitti brandi tungunnar vildi fár fyrir verða. Yfirbragð hans og framganga öll bar vott um karlmennsku og drenglund. Ég bið þes.sum háaldraða frænda mínum blessunar og handleiðslu hins æósta máttar um öfarinn veg. Arni Vigfússon. sama ár; Guðjón, f. 1883; Sigurð- ur, sem hér er minnst, f. 1884, Steinunn, f. 1889; Gunnarína, f. 1891; Vigfús, f. 1896, sem einn er eftir á lífi. Á uppvaxtarárum Sigurðar var tvíbýli á Ljótarstöðum. Mótbýlis- fólkið var ámóta stór fjölskylda og mun láta nærri að Ljótarstaðir hafi fóstrað um tuttugu ntanns á þeim tíma. Harðbýlt var I Skaftár- tungu sem víðar á þeirri tíð og fóru Ljótarstaðir, þessi „hásalur undir heiði", ekki varhluta af því. Það er augljóst að lífsbaráttan hefir útheimt manndóm, þrek og rétt hugarþel svo að vel farnaðist, en langt hefir oft verið að þreyja þorrann og góuna. Sigurður fór ungur úr foreldra- húsum. Árið 1896 fór hann í vist til frændfólks síns á Flögu og dvaldist þar til ársins 1902 að hann gerðist „lausamaður". Á þessum árum fór hann í útver til sjóróðra í Vík í Mýrdal, Vest- mannaeyjum og Sandgerði, svo sem titt var um unga menn. Þá var farið fótgangandi um sanda og stórfljót með k°st °g klæði á baki. Þessar mannraunir heyra nú sögunni til. Sigurður var þegar á unga aldri harðduglegur að hverju sem hann gekk og ávann sér traust og virð- ingu bæði húsbænda og sam- verkamanna. Trúmennsku hans og orðheldni var við brugðið og var rúm hans vel skipað hvar sem hann fór. ' Arið 1915 kvæntist hann Sigríði Sigurðardóttur í Hvammi, hinni ágætustu konu, og hófu þau bú- skap á móti foreldrum hennar, þeim hjónum Katrinu Þorláks- dóttur og Sigurði Árnasyni bónda þar. Sigríður var einkadótir þeirra hjóna. 1 Hvammi er sérkennilega hlý- legt og fagurt bæjarstæði, brekk- ur og giljadrög til annarrar hand- Einar Einarsson frá Merki -Minning Kveðja frá Staðhverfinga- félaginu. .Jiarnit) í hjarta mínu hlessar þa<) Hverfi. sem var ... ‘* Kristinn Keyr. Laugardaginn 15. þ.m. andaðist I Borgarspítalanum Einar Einars- son frá Merki, bifreiðastjóri í Keflavík. I dag verður hann lagð- ur til hinXtu hvilu á bernskuslóð- um — í kirkjugarðinum á Stað í Grindavík. Einar var fæddur að Merki í Staðarhverfi 26. september 1913. Foreldrar hans voru Einar Einarsson, Jónssonar hins eldra frá Húsatóftum og Guðrúnar Ingvarsdóttur frá Bergskoti í Staðarhverfi. Þau gengu í hjóna- band 10. nóbember 1908, en höfðu þá fengið leyfi til að byggja sér bæ, grasbýli á svonefndum Hvirflum, utan við Arfadalsvik- ina og nefndu að Merki. Enda stóð húsið við landamerkin milli jarðanna Staðar og Húsatófta. Þau Einar og Guðrún eignuðust fjögur börn: Þórunni, Eydísi, Ein- ar og Ingvarínu. Árið 1918 andað- ist Einar frá konu og börnum sínum ungum, en Guðrún hélt áfram búskap í Merki og bjargað- ist furðu vel af eigin dugnaði með ágætri hjálp nágrannanna í Staðarhverfi og á Húsatóftum. l^imm árum eftir að Einar dó, fluttist að Merki til Guðrúnar Jón Gíslason frá Bergskoti, hjálpfús maður og hinn bezti drengur. Var hann í heimili með Guðrúnu og börnum hennar upp frá því. Þau fluttust frá Merki til Keflavíkur 1943, þar sem Guðrún andaðist 24. nóvember 1961. Guðrún var ein- stök kona að dugnaði, mannkost- um og hjartahlýju. Þess minntust Staðhverfingar með þvi að reisa þeim hjónum minnisvarða í Stað- arkirkjugarði. Einar frá Merki vai' ættaður og upprunninn úr Staðarhverfi, ólst þar upp og vandist öllum venju- legum störfum til lands og þó ekki síður til sjós, þvi að sjávar- aflinn var aðal lifibrauð Stað- hverfinga eins og annarra Suður- nesjamanna í fyrri daga. Hann var um tíma formaður á bát þeirra Jóns Gíslasonar og farnað- ist vel. Eftir að til Keflavíkur kom, stundaði Einar bílaakstur, meðan kraftar leyfðu, en hin síð- ari ár fór heilsu hans mjög hnign- andi. Ber þá að minnast þess, hve ágætrar aðhlynningar hann naut hjá eftirlifandi konu sinni, Jó- hönnu Akadóttur, en þau gengu í hjónaband 23. marz 1967. Við, vin- ir Einars, sendum henni nú sam- úðarkveðjut' með þökk og virð- ingu fyrir hennar göfuga lífs- starf. Einar frá Merki var mikill unn- andi æskustöðva sinna, Staðar- hverfisins. Eftir að hann fluttist þaðan og Hverfið var autt orðið. dvaldist hann þar jafnan ein- hvern tima að sumrinu meðan heilsa og kraftar leyfðu. Hann var einn af aðalforgöngu- Framhald á bls. 29. Vigdís Sigríður Guð- mundsdóttir - Minning Fædd 26. október 1895 Dáin 13. október 1977 Hún verður lögð til hinstu hvílu í grafreit Hólmavikurkirkju þann 22. október. Hún andaðist á sjúkrahúsi Hólmavíkur þann þrettánda sama mánaðar eftir margra ára legu, fyrst á sínu heimili og siðar á sjukrahúsi Hólmavíkur, þar sem hún naut hinnar bestu aðbúðar sem völ var á. Vigdís var elst af þréttán syst- kinum sem lifðu. Hún var dóttir hjónanna Ragnheiðar Halldórs- dóttur og Guðmundar Guðmunds- sonar. Bjuggu þau á Bæ á Sel- strönd, og síðan kennd við þann stað, s.b. Bæjarættin. Vigdís er sú fjórða sem burtkallast til annarr- ar tilveru. Aður kvaddir tveir bændurnir frá Bæ, Guðmundur og Halldór, og siðar Gunnar skip- stjóri og útgerðarmaður hér í borg síðustu árin. Saga Vigdísar er ekki svo frá- brugðin þess tima fólks. AUflestir byrja með tvær höndur tómar. Ung að árum lærði hún karl- mannafatasaum hjá Þorsteini skreðara á Isafirði og mun sá lær- dómur hafa fleytt henni óg henn- ar áfram fyrstu árin. Hún var gift Guðmundi Magnússyni frá Hala- koti í Hraungerðishreppi. Guð- mundur varð fyrsti vitavörður við hinn fyrsta vita sem reistur var á Grimsey á Steingrimsfirði. Þá voru þau búsett tvö ár í Grímsey, en síðar í Bæ, þar til þau flytjast til Hólmavíkur 1923. þar sem Guð- mundur varð vélamaöur og síðar kjötmatsmaður. Þar dvöldu þau allan sinn búskap. Með Vigdisi er gengin dugmikil og stórbrotin persóna, og þótt gleymdur sé genginn hver, af oss almúgafólki, þá mun hennar lengi minnst af hennar samtíðarfólki og þess niðjum. Hennar heimili stóð öllum opið sem þurftu að- hlynningar með. Þá var ekkert gistihús á Hólmavik og æði oft mun það hafa komið í hlut þeirra hjóna að hýsa kalda og lnakta sjómenn, og þá sent komu úr fjár- rekstrum á haustin. Það var ekki mikið pláss, en þröngt mega sáttir sitja. Og allir fengu yl og skjól. Þar bar hæst þeirra hjartahlýju. þar voru þau bæði samhent og samhuga að hlynna að þeim sent voru verst settir. Vigdís og Guðmundur eignuð- ust níu börn. flest búsett á Hólma- vik, all.t dugmikið kjarkfólk. mik- ill ættbálkur er frá þeim kominn. Aður en móðir okkar dó. var að henni meðtalinni á mynd finnn ættliðir frá Vigdísi. Ég bið nánustu ættingja Vigdis- ar velvirðingar á hvaö þetta er lítið sem hér er rakið af öllu því sem mætti segja um þessa dug- miklu og stórbrotnu konu. sem vann sig með hjálp bónda og barna frá örbirgð til allsnægta. Með þessum orðum kveðjum við hana öll systkinin með hjartans þökk og virðingu. Hennar þján- ingarferill var orðinn æöi langur. henni hefur verið kær hvíldin. Og í birtu frá eilifðarsól veit ég að Vigdís hittir aftur ástvini og þá sem hún gott gerði i þessu lífi. Eitis og þú sáir muntu og upp- skera. Friöur Guðs hana blessi. Með systurlegri kveðju. frá Þuríði Guðmundsdóttur frá Bæ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.