Morgunblaðið - 13.11.1977, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1977
57
Kvikmynd um Ellington
og , ^ireinræktaður’ ’ jazz
Slagbrandi hefur borizt eftirfarandi
fréttatilkvnning frá Jazzvakningu:
..Jazzkjallarinn á Fríkirkjuvegi 11 hef-
ur starfad óslitid sídan í júni á liðnu
sumri. Á hverju mánudagskvöldi safnast
þar saman spilandi og hlustandi jazz-
áhugamenn til aó njóta tónlistarinnar.
Sumt fiokkast ótvfrætt undir jazz, annað
eru fyrstu skref leitandi bvrjenda eða
framúrstefna. sem brýtur allar reglur
flokkunar.
Næstkomandi mánudagskvöld, 14.
nóvember, verður „hreinræktaðurM jazz
hafður { hávegum. Ætlunin er að bvrja
klukkan hálf nfu (í stað níu eins og venju-
lega) með kvikmvnd um snillinginn Duke
heitinn Ellington. Sýningín varir í u.þ.b.
klukkutfma, en að henni lokinni taka
Kristján Magnússon og félagar upp sveifl-
una og prjóna við hana.
Krist ján er sfgildur jazzpíanisti. eins og
þeir gerast beztir og ekki eru félagar
hans, þeir Alfreð Alfreðsson trommuleik-
ari og Helgi Kristjánsson bassaleikari. af
verri endanum."
„Hvorugt held ég Ég lit á
mig fyrst og fremst sem
flautuleikara. Þjóðernið skipt-
ir svo litlu máli. Þvi er þó ekki
að neita að dvöl min hér á
landi hefur breytt mér".
— Á hvern hátt?
„Hún hefur styrkt mig. í
Austurríki er dálitil hætta á
að maður verði væminn i
túlkun. Það er allt svo mjúkt
þar. Landslagið, loftslagið og
fólkið. Hér eru þessi stór-
brotnu fjöll og engin tré, og
svo sjórinn. Þegar ég geng út
á Granda og horfi út á sjóinn
þá finnst mér ég styrkjast af
því að sjá hvað hann er stór
og mikill —
Allt kemur þetta fram i
spilamennskunni og hefur
áhrif á túlkunina. Það er ekk-
ert svo lítið að það hafi enga
þýðingu."
— Hvernig tekst þér að
sameilisstörf og tónlistar-
iðkunina?
„Það gengur nú fremur
illa. Á kvöldin er ég oft að-
eins búin að gera helminginn
af því sem ég ætlaði mér yfir
daginn. Ég reyni þó að hafa
það fyrir fasta reglu að æfa
mig a.m.k. fjóra tima á dag."
— Nú talið þið þýzku hér
innan heimilisins, af hverju
er það, fyrst þú talar is-
lenzku?
„Þegar við Sigurður kynnt-
umst úti i Vin töluðum við að
sjálfsögðu þýzku og mér
finnst að ef við myndum
skipta um tungumál hefði
það áhrif á samband okkar
og myndi breyta þvi
Strákarnir okkar læra islenzk-
una þegar þeir eru að leika
sér úti með öðrum börnum
En við höfum ekkert hugsað
okkur að flytja til útlanda. Við
förum oft út svona í stuttar
ferðir og látum það nægja."
— Er munur á því að spila
fyrir Austurrikismenn og ís-
lendinga?
„Það er enginn munur á
heilum þjóðum sem áheyr-
endum, en fólk er náttúru-
lega misjafnt. Stundum er
stemmning i salnum og
stundum er allt dautt. Hitt er
svo annað mál að það er
erfiðara fyrir hljómlistarmann
að gleyma sér í svona litlu
samfélagi þar sem margir
vita svo margt um svo
marga "
— Hvers konar tónlist
hefurðu mest yndi af?
„Þetta er nú alltaf að breyt-
ast hjá mér, þó hefur Mozart
verið í uppáhaldi hj^ mér alla
tíð. Eins hef ég mjög gaman
af góðri nútimatónlist, en
hún er afskapiega misjöfn að
gæðum Ég spila ekki nema
fimmta eða sjötta hvert nú-
timaverk sem mér berst".
— Nú er það svo að
nútimatónlist virðist höfða til
tiltölulega fámenns hóps, en
ekki til almennings, hvað
viltu segja um þetta atriði?
„Það er til nútímatónlist
sem hjálpar manni til að ná
til almennings, en hitt er
vissulega algengara. Einmitt
núna er hreyfing á þessum
málum í þá átt að kompónist-
ar semji aðgengilegri tónlist
sem höfði til fleiri. Ég er
eindregið fylgjandi þessu. Ef
enginn vildi hlusta á mig,
hefði þetta enga þýðingu."
— Hlustarðu eitthvað á
lettari tónlist, eins og popp
og djass?
„Já, stundum. Mér finnst
hægt að læra mikið af góðum
poppurum og djassleikurum
Klassískir hljófæraleikarar
eru oft svo lokaðir og eiga
bágt með að koma út úr
skelinni Ég hef t d hlustað
mikið á flautuleikarann
Herbie Mann."
— En hvað er á döfinni
hjá þér á næstunni?
„Ég er að fara út til Sviss til
að læra hjá James Galway.
Ég var á námskeiði hjá hon-
um í sumar og hann bauð
mér að koma til sín aftur.
Svo er ég að búa mig undir
mjög erfiða keppni i Paris i
janúar og þar mun ég líka
heilsa upp á gamlan kennara
minn sem kenndi mér þar i
eitt ár eftir að ég útskrifaðist
frá Vin. Einnig mun ég i
þessari ferð gera útvarpsupp-
töku fyrir austurríska útvarp-
ið Við Helga Ingólfsdóttir
ætlum að halda hljómleika
um jólaleitið og ég, Halldór
Haraldsson og Karl Sighvats-
son erum i plötuhugleiðing-
um. Næsta vetur hyggst ég
svo halda einleikstónleika í
Wigmore Hall i London Það
getur haft mikið að segja, ef
vel gengur Það má segja að
þar byrji allir, og þvi miður
eru margir sem ekki fara
lengra."
Eftir spjallið kvaddi ég
þessa miklu ungu listakonu
og húsmóður á Bárugötunni
og tiplaði af stað eftir
svellaðri gangstéttinni við
flautuundirleik ofan af efstu
hæð — SIB
Síðbúin kveðja:
Kjartan R. Guðmunds-
son lœknir - Minninp
D. 5. október 1977
Haustið 1925 gengu fimm sunn-
lenzkir piltar inn í 3. bekk Gagn-
fræðaskólans á Akureyri (er siðar
varð menntaskóli) og tóku gagn-
fræðapróf á næsta vori, eftir eins
vetrar dvöl i skólanum. I þessum
hópi var Kjartan R. Guðmundsson
frá Ytri-Skógum undir Eyjafjöll-
um. Þetta haust lágu leiðir okkar
Kjartans saman i skólanum i
fyrsta sinn. Fljótlega urðum við
nánir. félagar, er leiddi til ein-
lægrar vináttu, sem hélst óslitið
alla tíð. Mér er þungt um hjarta,
þegar hann er horfinn, minn Ijúfi
vinur, sem reyndist mér æ sem
besti bróðir, og svo mun um fleiri,
sem þekktu hann og reyndu hann,
hinn sviphreina, bjarta son Eyja-
fjalla.
— Margt leitar á hugann frá
liðnum árum. Ég staldra við
minningar frá vetrinum okkar á
Akureyri. Allar eru þær manni
kærar, enda jafnan á langri leið
borið yl I brjóstið, er horft var til
baka. Margar áttum við gleði-
stundirnar — bekkjarsystkinin í
3. bekk, og bjart var yfir þeim
friða hópi, er átti Ijúfa drauma
æskuáranna og vonglöð augu, er
horft var fram á veginn.
— Kjartan var fæddur 14. april
1906 i Ytri-Skógum og ólst þar
upp i föðurgarði, 2. að aldri í röð 5
systkina. Vaxinn var hann af
sterkum stofni merkra og mikilla
ætta gáfu- og atgervisfólks beggja
vegna. Foreldrar hans voru hjón-
in Margrét Bárðardóttir og Guð-
mundur Kjartansson, bóndi og
smiður, er bjuggu í Ytri-Skógum
langa tíð. Bæði voru þau Eyfell-
ingar, hún frá Ytri-Skógum, hann
frá Drangshliðardal. Margrét og
Guðmundur voru mikil mann-
kostahjón, er nutu að verðleikum
virðingar og trausts sveitunga
sinna og annarra, er af þeim
höfðu kynni. — Og — „eplið fell-
ur ekki langt frá eikinni". Þeir
góðu kostir, er prýddu foreldra
Kjartans, voru honum gefnir, og
um þann arf stóð hann trúan vörð
og ávaxtaði allt sitt líf.
— Eftir gagnfræðaskólaprófið
á Akureyri lá leiðin í Menntaskól-
ann i Reykjavik. Þar tók hann
stúdentspróf vorið 1930 með 1.
eink. Það er vist, að hvaða leið,
sem Kjartan hefði vaiið sér að
loknu stúdentsprófi, hefði orðið
honum greiðfær, svo mjög sem
hann var gæddur skörpum gáfum
og fjölþættum hæfileikum. Hann
valdi læknisfræðina, og aldrei
mun hann hafa iðrast þess. Hann
stundaði nám i læknadeild Há-
skóla Islands og lauk kandidats-
prófi i febr. 1936 með hárri 1.
eink. Á næstu árum var hann
settur héraðslæknir á nokkrum
stöðum úti á landsbyggðinni. m.a.
i Hornafjarðarhéraði og Hólma-
víkurhéraði jafnhliða Reykja-
fjarðarhéraði, auk þess gegndi
hann læknisstörfum tima og tima
í forföllum lækna. Kjartan valdi
sér geð- og taugasjúkdóma að sér-
grein og aflaði sér þekkingar á
því sviði við erlendar stofnanir
viðsvegar.
Fullyrða má, að hann hafi verið
með lærðustu læknum hérlendis í
sérgrein sinni. Sem sérfræðingur
i taugasjúkdómum vann hann
bæði sjálfstætt og á sjúkrahúsum,
m.a. á Landspítalanum um árabil.
Jafnframt stundaði hann kennslu
í læknadeild Háskóla íslands og
lektor við háskólann var hann frá
1959, siðar prófessor. Kjartan R.
Guðmundsson var þeirrar gerðar,
að hann gaf sig allan og óskiptan
því, er hann tók sér fyrir hendur,
hvort heldur var í námi eða störf-
um. Það lætur þvi að likum, að
hann hafi gefið mikið í lifsstarfi
sinu af sinni fjölþættu þekkingu,
og það því fremur sem tilfinning-
ar hans sjálfs voru opnar og
næmar og löngunin mikil til að
hjálpa og likna.
— Öefað fylgja honum þakklát-
ir hugir hinna fjölmörgu sjúkl-
inga hans, sem mættu skilnings-
ríkum og hlýjum vini þar sem
Kjartan var. Kjartan var gæddur
mikilli lífsorku og viljastyrk átti
hann i miklum mæli. Sá styrkur
var honum sjálfum ómæld náðar-
gjöf i hinu mótdræga og þung-
bæra i lifinu, sem Kjartan fór
ekki varhluta af, frekar en flestir
aðrir. Kjartan var kvæntur Rut,
nuddkonu, danskrar ættar, en
missti hana snögglega eftir aðeins
13 ára sambúð. Sá missir var
Kjartani þungbær og skildi eftir
sig ógróið sár til hinsta dags.
— Ég votta systinum hans, vin-
um minum, innilega samúð mina.
..Yinar hurt. sem vikinn er.
veitisl jafnan Ijúfl að minnasl.
yndislegt aðóskasér
aftur mt'na sjást oj> finnast
J.lW.Guðj.
Mjólkurfram-
leiðsla eykst
MJÖLKURSAMLOGIN í landinu
tóku á móti alls 94,4 milljónum
kilóa mjólkur fyrstu 9 mánuði
þessa árs en á sama tíma i fyrra
var innvegin mjólk 89.5 milljónir
kg, að því er fram kemur í frétta-
bréfi frá Upplýsingaþjónustu
landbúnaðarins. Allt sl. ár tóku
samlögin á móti 112 millj. kg, en f
ár er útlit fyrir að innvegin mjólk
verði um 118 millj. kg.
Smávegis samdráttur varð i
sölu nýmjólkur eða um 2.7%, en
veruleg aukning i sölu undan-
rennu. Ef tekin er saman sala á
undanrennu og nýmjólk þá er um
nokkra aukningu að ræða eða um
tæp 2%. Framleitt var um 40 lest-
um minna af smjöri á þessu ári en
í fyrra. Birgðir i upphafi ársins
voru nú 558 lestir, en í fyrra 328
lestir. Nokkur samdráttur hefur
orðið i sölu á smjöri, i fyrra voru
seldar fyrstu 9 mánuði ársins
1265 lestir, en i ár 1035 lestir.
Birgðir 1. október s.l. voru 1080
lestir, en 1. okt. 1976 voru þær 649
lestir.
Nokkur aukning varð i sölu
osta, samtals voru seldar 893 lest-
ir af 45% og 30% ostum, en i
fyrra 877 lestir. Framleiddar voru
í ár 2116 lestir. í ár hafa verið
fluttar út 504 lestir, en í fyrra á
sama tímabili var útflutningurinn
aðeins 83 lestir. Birgðir af ostum
1. október s.l. voru 1351 lest en í
fyrra á sama tima voru birgðir
897 lestir.
Kniiaríetjjac
Silarth í sknimiide^inii
Næsta hmtttor:
s—nóv. 22 dagar
er að drífa sig
sta I Læt
Góðir
i‘gsta I
leynslan I veiöið I gististaðir
Reyndasta
starfsfólkið
FLUGFÉLAG LOFTLEIDIR URVAL LANDSÝN UTSYN
ISLAJVDS
Lækjargötu 2
Sími 25100
Eimskipafélags Skólavöröustig 16 Austurstræti 17
húsinu Slmi 28899 Simi 26611
Simi 26900
I.WWIrl44ÁíW«5.UU4«l44J.44.rJUl.l.*M«.W.if.I.I.Í.IJiílilJÍJU IJII IXUliIlISllI
iuununi
"