Morgunblaðið - 13.11.1977, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÖVEMBER 1977
61
Ræöan sem ég flutti á Lög-
gjafardaginn (The Law Day) var
með öllu óundirbúin. 1 raun og
veru haföi ég ekki hugmynd um
aö hún var tekin upp á band.
Hunter Thompson fann upptök-
una af ræðunni. Ég held að þau
sjónarmið sem ég setti fram í
þeirri ræðu, hafi orðið mér, lífi
mínu og meðvitund, þýðingar-
meiri með hverju árinu sem líður
og ég held að enginn geti fundið
bók, jafnvel ævisöguna, sem lýsir
betur lífskoðun minni.
Það er undarlegt, að maður
skuli geta gengið i gegnum bar-
áttu til forsetakjörs og átt sér
sérstaka lífsskoðun, látið hana i
ljós í endurteknum 10—15 min-
útna ræðum, og fréttamenn —
sem jafnvel hlusta 100 í einu —
skýra aldrei frá henni í fjölmiðl-
um. Rammi sjónarmiðanna
verður að fyrirsögnum, en kjarn-
inn, þ.e. hver þú sjálfur ert, hvaða
lifskoðanir þú hefur og hverju þú
vonast til að geta komið til leiðar
er aldrei fréttaefni.
Sp.: Það getur verið vegna þess,
að þeir hafi sagt frá þessu í frétt-
um eftir fyrstu skiptin sem þú
komst þeim á framfæri.
C.: Nei, það er ekki rétt. Þeir
hafa aldrei skýrt frá þeim.
Sp.: Það er sem mig minni að ég
hafi lesið um tilvitnanirnar í
ræðum þínum í blöðunum.
C.: Ég efast um að það hafi
verið eftir aðal framboðsræðuna.
Sp.: Þú segir að sumar ræðurn-
ar hafi verið óundirbúnar með
öllu, en aðrar hafir þú undirbúið
vandlega. Ég veit að Pat Ander-
son vann að nokkrum ræðum
fyrir þig i kosningarbaráttunni.
Og aó nú starfar Jim Éallows fyrir
þig við það sama.
C.: Það er rétt.
Sp.: Þú virðist skipuleggja tíma
þinn vel yfirleitt. Hafðirðu ein-
hverja fyrirmynd að ræðunum,
einhverja ræðusnillinga eða
merkar ræður frá fortiðinni.
C.: Ég á safn ræðubóka. Til
dæmis á ég bók sem inniheldur
flest allar viðhafnarræður sem
fluttar hafa verið frá byggð þessa
lands. Formið á bókinni er þannig
að við hverja ræðu er stutt frá-
sögn af öllum sögulegum stað-
reyndum þess tima er ræðan er
skipta mín sjónarmið sem forseta
Bandaríkjanna um hvernig greiða
eigi úr málefnum mið-
Austurlanda miklu máli.
Sp.: Er þáttum Jim Fallows
mikill við endanlegan frágang
ræðu sem þú ætlar að flytja?
C.: Já. Jim safnar á ákveðinn
hátt hugmyndum frá öllum, m.a.
mínum og myndar ramma að
ræðu og afhendir mér hann síðan.
Ég kanna hann og strika það út
sem mér fellur ekki og bæti því
inn í sem ég vil að komi fram og
afhendi Fallow siðan blöAin aftur.
Hann les þau gaumgæfilega yfir
ásamt öðrum. Þegar Notre Dame-
ræðan var samin, tók ég hana með
mér heim eftir að ég fékk hana
frá Fallows aftur og eyddi löngum
tíma í að stytta hana og skrifa upp
aftur og sendi hana síðan í vélrit-
un. I flugvélinni las ég hana yfir
og þótti hún 10 til 15% of löng og
stytti hana þvi enn, áður en ég var
ánægður. ^
Sp.: Er það réttur skilningur
hjá mér, að meginboðskapurinn i
ræðum þínum, eins og fram kem-
ur á bókartitlinum ,,A .Govern-
ment as Good as Its People“, sé að
Bandaríkjamenn almennt eigi að
sýna af sér kærleik, miskunnsemi
og heiðarleik? Arthur Sehlesing-
er yngri benti á það í þessu blaði i
júni s.I. að boðskapurinn sé að
nokkru í mótsögn við t.d. sentingu
Niebuhrs sem við töluðum-um
áðan, ,,The sad duty of politics is
to establish justice in a sinful
world“. Og hann er einnig i ósam-
ræmi við kenningar nokkurra
bestu rithöfunda Suðurríkjanna
frá heimsstyrjöldinni síðari, t.d.
Allen Tate, Ransom, Warren,
Faulkner og siðar Flannery
O’Connor, Carson McCullers og
Walker Percy. Álítur þú að hér sé
um andstæður að ræða?
C.: Nei, ég er ekki þeirrar
skoðunar.
Sp.: Þetta er aðalstefið í þínum
boðskap?
C.: Já. Þegar þú gerir hér
samanburð t.d. með hvað Thomas
Jefferson gat látið af sér leiða
fyrir Bandaríkin — sjálfa
stjórnarskrána — þá var ríkis-
stjórnin full andagiftar. Hvernig
ríkisstjórnin á að vera, held ég
hafi sitt að segja ekki aðeins fyrir
HVERJAR LIFSSKOÐAN-
til að hitta hann. Ég hef skrifast á
við eiginkonu hans nokkrum sinn-
um og ég hef kynnst June Bing-
ham, sem skrifaði stórkostlegar
skýringar á kennisetningum
Niebuhrs. Ég varð mjög miður
min þegar ég frétti um lát hans
fyrir þrem eða fjórum árum, því
hann var einn þeirra bandaríkja-
manna sem ég óskaði heitt að
kynnast.
Sp.: Fyrir flestum rithöfundum
eru skrifin þáttur í einskonar
sjálfsuppgötvun. Öðlaðist þú ein-
hverja vitneskju um sjálfan þig
við að færa sjálfsævisögu þina í
letur.
C.: Já, það verð ég að segja. Þó
held ég að það sé erfitt að lýsa þvi
nákvæmlega hvað það var. Ég
held að aðaluppgötvunin hafi ver-
ið hvað fyrri hluti ævi minnar er
djúpt greyptur í meðvitund mina,
einnig staða min i samfélaginu og
búskapurinn í sveitinni, hugsjón-
ir mínar sem barns, hvernig þær
fylgdu mér á síðara lífsskeiði sem
vélfræðingi, flotaforingja, kaup-
sýslumanni og stjórnmálamanni.
Ég hef ekki lesið bókina í gegn
frá byrjun til enda.
Ég flutti mjög sjaldan skrifaðar
ræður. Ég átti það til að tala án
blaða, með eigin orðum, stundum
fálmandi og síðar þegar ég var
orðinn ríkisstjóri tók lífvörðurinn
sem fylgdi mér á ferðalögum
SkáldiS Dylan Thomas.
stundum með sér segulband og
tók upp ræðurnar þegar ég flutti
þær og afhenti einkaritara síðan
bandið til að skrifa þær niður. Ég
held að þessi ræðubók hafi einn-
ig, á líkan hátt og sjálfsævisagan,
hjálpað mér til að gera mér ljóst,
hvernig þær grundvallar kenn-
íngar, sem ég aðhyllist, en hafa
þróast í byrjun stjórnmálaferils
míns. Bókin dregur upp mun
skýrari mynd af þvi hverni@ég er
gerður, hverjar skoðanir ég hef
og hvaða skjldum ég er bundinn
sem stjórnmálaleiðtogi, heldur en
frásagnir fjölmiðla í kosningabar-
áttunni eða af stjórnun minni sem
ríkisstjöra Georgíu.
flutt. Ennfremur á ég safn ræðna
sem Adlai Stevenson flutti og
einnig ræður John F. Kennedy,
sem ég hef lesið mjög vandlega.
En ég reyni ekki að keppa við
neinn ákveðinn mann.
Sp.: Hvernig undirbýrðu
ræðurnar þinar núna? T.d. ræð-
una sem þú fluttir i Notre Dame i
heimsókn þinni til Frakklands.
C.: Ég skrifa niður þá punkta
sem ég vil nefna, samhengislaust.
Ég hugleiði lengi 30 til 35 mis-
munandi atriði, sem ég reyni sið-
an að setja saman i fjóra til fimm
þætti. Ég les niður listann með
punktunum og merki A,B,C,D, og
E við þá. Ég skipulegg röðina og
skrifa síðan einstakar setningar
sem ræðan á að byggjast upp á.
Sp.: Þá taka starfsmennirnir
við?
C.: Einmitt. Starfsliðið er mjög
gott. En þegar um utanríkismál er
að ræða, þá fæ ég einnig hug-
myndir frá dr. Brzezinski og öðr-
um sem eru sérfróðir á viðkom-
andi sviði. Að sjálfsögðu hafa
punktar sem koma á að í ræðu
verið ræddir aftur á bak og áfram
I þessari skrifstofu i margar
klukkustundir og ýmis ágreining-
ur komið upp í því sambandi,
áður en efni ræðunnar er s«m-
þykkt, eins og t.d. átti sér stað um
ræðuna í Notre Dame. Því þegar
ég held á fund einhvers valda-
manns eins og t.d. Fahd prins
okkar eigin þjóð heldur fyrir all-
an heiminn. Þannig liggur landið
og ég held að þjóðin þrái rikis-
stjórn, sem hún getur virt og
treyst og sem fyllir hana andagift.
Undanfarin ár hefur fallið skuggi
Jimmy Carter.
á þetta sjónarmið fólksins —
vegna stríðsins í Vietnam,
Kambódiu og málefna C.I.A. — og
fólkið missti það traust sem það
bar til rikisstjórnarinnar. Á með-
an á kosningabaráttunni stóð og
þessi mál voru i algleymingi,
greindi ég þörf og geri enn, á þvi
að ríkisstjórnin öðlaðist aftur
fyrri sess i hugum fólksins. Ég
álít að þjóðin hafi haldið uppi
þessum kröfum öll þessi ár og það
hafi dregið úr henni kjark þegar
hún fékk ekki vilja sínum fram-
gengt. Þess vegna „Ríkisstjórn
sem er í samræmi við kröfur
fólksins”.
Það eru vissir þættir í lífi okkar
eins og trúarskoðanir og skoðanir
um hvernig ríkinu skuli stjórnað,
sem verka sem mótvægi. Það gef-
ist á erfiðleikatímum að athygli
mannkynsins beinist af ofsa að
ákveðnum trúarlegum atriðum
eða að misfellum i ríkisstjórn,
sem sýnir ofur ljóslega veraldleg-
ar skyldur fólksins. En það er
jafnframt minnisvarði þess hvað
fólkið sjálft getur gert til bjargar
við slíkar aðstæður. Þannig get ég
ekki séð neitt ósamræmi.
Sp.: En í bókinni er dregin upp
mynd af fremur hamingjusamri
Ameriku, sem er í andstöðu við
sjónarmið margra Suðurríkjarit-
höfunda, sem álíta manninn í
afturför. Þessir rithöfundar upp-
hófu syndafallið. Og ef litið er á
rikisstjórn sem verkfæri til hjálp-
ar manninum til að verja sjálfan
sig gegn eigin grundvallar eðli,
syndum eigingirni sinnar, þá get
ég ekki séð að bókin þín endur-
spegli það.
C.: Nú það er nokkur munur
þarna á að minu áliti og hann er
sá að maðurinn eins og þú veist
hefur sína galla, sinar óttakennd-
ir og efasemdir, vonleysi og for-
dóma. En það sem við viljum að
maðurinn sé — eins og lögin gera
ráð fyrir, stjórnarskráin og rikis-
stjórnin — minnir okkur á að við
getum reist okkur aftur við, ef
hlutirnir fara úrskeiðis.
Stundum eru það trúarhug-
myndir sem hamla okkur. Stund-
um eru hömlurnar lögin, venjur
og siðgæðishugmyndir, i þvi sam-
bandi tel ég orð Niebuhrs eiga
við: „The sad duty of politics is to
establish justice in a sinful
world”. En hann heldur áfram og
segir að ríkisstjórn sé lagasetn-
ingur og að það sjónarmið sé
næstum fullkomið sem kemur
fram í siðfræði kristinna manna,
að fyrirmynd að rikisstjórn sé til,
en baráttan fyrir því að tileinka
sér hana mistakist alltaf. Fyrir-
myndarríkið getur maðurinn ekki
byggt, en við reynum þó. Ég held
að i kosningabaráttunni, þegar
þessar ræður voru fluttar, hafi
brestirnir í stjórn ríkisins verið
miklu meir en fólkið hafi búist
við, og ég álit að þeir hafi jafn-
framt verið miklu meiri en fólkið
átti skilið.
Sp.: I sjálfsævisögunni segirðu,
að þú lesir þrjár til fjórar bækur
á viku að meðaltali. Gerirðu það
enn ?
C.: Ekki lengur svo margar.
Ætli ég lesi ekki núna um tvær
bækur á viku. Það er svo margt
annað sem ég verð að lesáT Sem
stendur er ég að lesa þykkt hand-
rit með viðræðum Nixons, Kiss-
ingers, Mao Og Chou, sem ekki er
hægt að kalla bók, þar sem það er
ekki til sölu, en þetta er efni sem
ég verð að kynna mér.
Sp.: Hver er þáttur rithöfundar-
ins í bandarisku þjóðfélagi i dag,
að þinu áliti? Er hann skemmti-
kraftur, predikari, kennari.
draumóramaður?
C.: Að mínu átliti er hann þetta
allt i senn. Ég veit það. að þegar
ég skrifa eitthvað — og ég hef
aðeins skrifað eina bók sem
reyndar ber þess augljóslega vott
— en þegar ég vann að henni, þá
Iagði ég mig fram við að skýra
þannig frá efninu, að lesendur
hennar gætu verið hluttakendur i
þekkingu á þeini hlutum sem ég
hef reynslu af og að þeir fengju
einnig mynd af þvi hvernig þeir
eru. Og ég held að sú tilraun min
hafi verið þess virði, og ég held að
þetta sé dálítið sent hjálpaði mér
aö koma lagi á lif mitt. Það er eins
og með ljóð Dylans Thontas. sem
hann vann stundum að árum sam-
an án þess að verða nokkru sinni
ánægður.
AJR þýddi og tók saman.