Morgunblaðið - 13.11.1977, Síða 19

Morgunblaðið - 13.11.1977, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1977 63 Hann kvæntist seint á nútima visu L:ru Sigurhjartardóttur frá Skeiði í Svarfaðardal, góðri konu sem latti hann ekki í lifinu. Lára andaðist 17.6. 1956. Jóhanna einkadóttir þeirra var þá 14 ára gömul. Þau mæðginin héldu eftir það heimili og þegar Jóhanna giftist naut Jói umhyggju dóttur sinnar og manns hennar, Antons Gunnlaugssonar útgm., eftir að hann bilaði í fótum, þar til fyrir tveimur árum að sjúkrahús var ekki umflúið. Jói varð dálitið stúrinn undir það siðasta en hver getur láð gleðimanninum. Nú er hann farinn og leikur sitt æðsta hlutverk og fer á kostum undir stjórn höfundar og leikstjórans mikla. Þegar sýningu er lokið að kvöldi dags fyrir fullu húsi í himnarann og englaskarinn hefur klappað lengi, þykir mér líklegt að einhver höfðingi lyfti sér úr sæti á þriðja bekk og kalli bravó fyrir Jóa, það eru launin i leikslok svo á himni sem á jörðu. Ég kveð þennan góða kunningja og vonast eftir endurfundum þegar Guði þóknast. H.Júl. Dalvík. — Veröld Framhald af bls. 51 ir, þegar ekkert varð úr skipulfeg- um hjálparaðgerðum og uppbygg- ingu. Svo varð olíukreppan árið eftir Þá lækkaði efnahagur um heim allan og máttu Nicaraguamenn sízt við þvi. Og loks er að telja hjartaáfallið, sem Somoza fékk snemma á þessu ári og olli því að hann hefur verið frá stjórn síðan. Allt hefur þetta rýrt traustið á stjórninni jafnt og þétt. Kaup- sýslu- og fjármálamenn eru t.d. farnir að ugga mjög um sinn hag og þykjast sjá, að Somoza muni ekki geta tryggt hagsmuni þeirra lengi úr þessu. Margir í Nicaragua óttast, að Somoza kunni að leita hernaðar- aðstoðar erlendra ríkja til að berja skæruliða niður og koma aftur á ró i landinu. En það er ekki fljótséð hvaðan sú aðstoð ætti að koma. Ekki koma Banda- ríkjamenn til hjálpar. Somoza hefur verið í litlum metum hjá þeim undanfarin ár, og þó aldrei minni en nú, eftir að Carter kom til valda. Og ótrúlegt þykir, að nágrannaríki Nicaragua kæri sig um að flækjast i innanlandsdeilur þar. Það horfir þvi ekki vel fyrir Somoza. Trúlega verður stjórn ættarinnar á enda senn hvað líður. Og er kominn tími til. — JOHN RETTIE. Sigríður Jónsdótt- ir —Minningarorð Jóhannes Jóhannes- son Dalvík - Minning 8. október s.l. lést á Hafnistu frú Sigríður Jónsdóttir og fór jarðarför hennar fram frá Þing- eyrarkirkju 15. október. Sigriður var fædd á býlinu Mýri i Reykjavík 28.12 1888. Foreldrar hennar voru Jónea Jónasdóttir og Jón Eiríksson gull- smiður og vert i Stykkishólmi. Sigríður fylgdi móður sinni i uppvexti sinum, en árið 1896 flytjast þær mæðgur til Þingeyrar í Dýrafirði. Snemma fór Sigríður að vinna fyrir sér eins og þá var siður, og vann hún sem barnfóstra og síðar þjónustustúlka hjá Vendel verzlunarstjóra á Þingeyri. Arið 1908 fór Sigríður í Kvennaskól- ann á Akureyri og 1909 giftist hún unnusta sinum Sigurjóni Péturssyni skipasmið á Þingeyri. Hafði þá Sigurjón starfað sem húsa- og skipasmiður við hval- veiðistöðina í Framnesi í Dýra- firði, sem þá var rekin af Norð- mönnum eins og kunnugt er. Sigurjón fluttist til Þingeyrar og vann hann þar á eigin vegum við skipasmíðar alla tið. Sigurjón var ættaður frá Brekku í Vogum á Vatnsleysu- strönd. Þau hjónin eignuðust tvo syni, Baldur sem nú býr á Akra- nesi, og Pétur, sem búsettur er i Reykjavik. Þá tóku þau i fóstur Braga Guðmundsson, en hann er sonur hjónanna Guðmundar Jóhannssonar og Júliönnu Guðmundsdóttur sem þá bjuggu á Þingeyri. Margs er að minnast þegar aldamótafólkið, sem svo er oft nefnt, kveður okkur sem fædd erum á öðrum tug aldarinnar og ólumst upp í návist þess. Oft var glatt á hjalla í Sigurjónshúsi er við unglingarnir komum þar sam- an til að syngja. Skorti þá sjáldan góðgerðirnar. Voru þau hjónin Sigríður og Sigurjón með afbrigðum gestris- in. Fátæktin var fylginautur smá- þorpanna í þá daga. Mörg heimili voru barnmörg og vinnan stopul yfir vetrarmánuðina. Mun Sigrið- ur oft hafa hlúð að þeim sem minna máttu sín við það að sjá fyrir sér og sínum. i Sigríður var fríð kona, hlý og elskuleg við alla og mun hún seint gleymast þeim sem henni kynnt- ust. Bið ég Guð að blessa hana á þeim leiðum sem hún er nú og jafnframt sendi ég aðstandenum hennar mínar innilegustu samúðarkveðjur. Sæmundur Kr. Jónsson. F. 13. júníl896 D. 12. október 1977 Tjaldið er fallið, jarðlífsleikn- um er lokið, Jói leikari er allur. Kveðjuathöfn fór fram laugardag- inn 22. október sl. frá Dalvíkur- kirkju við fjölmenni svo sem vera bar í heiðskíru, haustblíðu veðri. Hann var jarðsettur í kirkjugarð- inum á Tjörn í Svarfaðardal, þar sem hann vann mörg sin mann- dómsár og var lengi kenndur við. Mér þykir hlýða að minnast þessa vinar míns nokkrum orðum hér. Hann hét Jóhannes Jóhannes- son fullu nafni, ætt hans kann ég þvi miður ekki, hann mun hafa fæðst og alist upp að nokkru á Harðbalakoti í Skíðadal sem löngu er komið í eyði. En þótt veraldlegu efnin væru af skorn- um skammti þóknaðist höfundi lifsins að lauma því veganesti að snáðanum sem gerði hann að sannkölluðu stórveldi sem ríkti langa ævi, hann var blysberi gleð- innar, söngsins og leiklistarinnar hér á Dalvík og vítt um sveitir. Mér er i barnsminni undrun okk- ar krakkanna þegar við hópuð- umst í kringum Jóa i gamla daga, hann hélt okkur stjörfum með sögum um skrítna karia og kerl- ingar og hermdi eftir öllum og var alveg eins, yfirdreif ekki, svo kannski sat hrafn á staur og hlakkaði eða krunkaði og sömu Tónlistarlækn- inganámskeið TÓNLISTARLÆKNINGAR verða á dagskrá á námskeiði sem haldið er um þessar mundir undir stjórn Geirs V. Vilhjálmssonar, sálfræðings, þar sem einkum verður fjallað um beitingu tónlist- ar til eflingar sjálfsþekkingu, sér- staklega til eflingar meðvitundar, um dýpri þætti tilfinninga og huga. Námskeið þetta er liður í röð námskeiða, alls 150 kennslutimar, þar sem leiðbeint er i beitingu tónlistar til sállækninga. Er þetta helgarnámskeið upphafsnám- skeið og er það bæði hugsað fyrir sérfræðinga, til udnirbúnings undir sérhæfðari námskeið, og eins fyrir aðra, sem efla vilja sjálfsþekkingu sina og sem kynn- ast vilja leiðum til þess að upplifa tónlist á nýjan og sterkari hátt. Nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku fyrirfram i síma 30755. hljóðin komu frá Jóa eða margir hundar að rífast, hann gat leikið allt með svo náttúrulegri ná- kvæmni, að undrun vakti. Þegar Skugga-Sveinn var sýndur hér á Dalvík i fyrsta skipti árið 1930 var Jóhannes upp á sitt besta, þá lék hann 3 hlutverk, sjálfa Guddu af þvilíkri innlifun og reisn sem frægt var og ekki nóg með það heldur lék hann skúrkana Galdra- Héðin og Hróbjart svo ólíka per- sónuleika og gerði þau skil að i fersku minni er. Ég minnist margra ólíkra hlutverka sem hann lék. Nefni ég aðeins örfá svo sem séra Sigvalda í Manni og konu, birkidómarann i Ævintýri á gönguför, Jeppa á Fjalli að ógleymdri Guddu sem fyrr er get- ið, allar þær manngerðir sem hann skóp á leiksviði eru eftir- minnilegar og skipta þær mörgum tungum, gaman hefói verió að ein- hver ritfær maður hefði skrifað um Jóa meðan hann lifði og var upp á sitt besta, en það er víst ekki til siðs að menn njóti sann- mælis fyrr en þeir eru farnir yfir lækinn, svo skemmtilegt sem það nú er. Það er oft sagt að maður komi í manns stað, en hver kemur í stað Jóa? Er það ekki pndursam- legt að einum manni skuli auðn- ast að stytta svartasta skammdegi norðursins langa tíð með þvi að dreifa um sig gleðinni sem lengir lifið. Hann sá alltaf björtu hliðina á hlutunum hann Jói, þar var ekkert kynslóðabil, allir hændust að honum, ungir og gamlir. Hann var dýravinur, einkum var honum annt um kindur og hesta, margir muna Jóa-Grána og Jarp, það voru kostagripir og gaman var að sjá og heyra þegar Jói var að slá með þeim höfðingjum. SKINN A BILS/ETIÐ Það er notalegt að setjast í hlýtt bílsæti á köldum vetrarmorgni. Öll þekkjum við hið gagnstæða. íslenska gceruáklceðið er snöggkiippt og meðhöndlað með betri einangrunareiginleika í huga. Það er hlýtt að vetri en svalt að sumri. Islenska gceruáklceðið fæst í sauða- litunum og er auðvelt í ásetningu. V-*- Islensk skinn á bílscetið, gjöf semyljar jafnt innra sem ytra. Sölustaðir: Framtíðin Laugavegi 45 og í Sútunarverksmiðja SS Grensásvegi 14

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.