Morgunblaðið - 13.11.1977, Side 31

Morgunblaðið - 13.11.1977, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1977 75 Luis Bunuel vinnur nú að nýrri mynd, sem nefnist á frönsku Cet obscur object du Desir eftir eigin handriti með Fernando Rey og Maria (Last Tango) Schneider. Ingmar Bergman vinnur nú í Ösló að myndinni Haustsónata, sem gerð er eftir hans eigin sögu og handriti. Ingrid Bergman (sem hér leikur fyrst á sænsku, eftir að hún flutti sig til Hollywood á fimmta tug aldarinnar) leikur móður Liv Ullman í þessari mynd. Claude Chabrol vinnur að mynd, sem nefnist á ensku Blood Relatives með Donald Suther-land og Stephane Audran. Gene Wilder (Sherlock Holmes Smarter Brother) er nú að gera The World’s Greatest Lover með sjálfum sér og Dom De Luise í aðalhlut- verkum og samtímis er fyrrverandi félagi hans Mel Brooks (Blazing Saddles) að gera High Anxiety með sjálfum sér og Madeline Kahn i höfuðrullunum. ANÆSTUNNI HASKÓLABÍÓ: TON PHINCIPLE KIN þeirra mynda sern slillt hcfur \crirt upp í lláskólahíúi »»r nxjasla m\nd hins Kamalrcynda lciksljnra ou framlpidanda Sianlc> Kramcrs. ,\ó þcssu sinni hcfui hann \alió scr myndofni skáidsoKuna TIIK DO>IINO PKINCIPLK. cflir Adam Kcnnpdy. I ni hana \ar sa«l á sinum líma, aó hún va»ri .samsærissauan st»m Kripur þi« slíkum hcljarlokum o« krcniur — uns ckkcrt vr cflir annaó cn óllinn..." Oskandi aó sama máli K<*Kni uni m\ ndina. >I«m) aóalhlutvcrk fara (icnc llackman. Candicc Hcr«cn oy Kichard Widmark. /návist hins ókunna Núna um helgina er verið að frumsýna í Banda- ríkjunum þá mynd sem tal- in er komast næst STAR WARS að vinsældum á þessu ári. Þetta er hin nýja mynd „undrabarns” bandaríska kvikmyndaiðn- aðarins, Steve Spielbergs. En sem kunnugt er gerði hann hina makalausu JAWS, sem á annað ár tröllreið svo heimsbyggð- inni að hún varð mestsótta mynd kvikmyndasögunnar (reyndar er reiknað með því að áðurnefnd STAR WARS slái það met áður en langt um liður). Núna, aðeins 29 ára að aldri, hefur Spielberg nýlokið við sina þriðju mynd (og þá næstu á eftir JAWS), 18 millj. dala ævintýramynd sem fjallar um UFO (fljúg- andi furðuhluti) og heim- sókn ókunnra vera útanúr geiminum, og nefnist CLOSE ENCOUNTERS OF THE THIRD KIND. sem mætti lauslega þýða: „I návist hins ókunna”. Það væri ósanngjarnt að gagnrýna leikstjórann þótt hann sé kannski háf- taugaslappur þessa dag- ana: því þegar myndin verður frumsýnd verður Spielberg óhjákvæmilega dæmdur eftir þeim gæða- standard sem einkenndi JAWS. Þár að auki verður Spiel- berg að keppa við hala- stjörnuna miklu, STAR WARS, þar sem að báðar eru byggðar á vísinda- skáldsögulegu tema, sem fjallar um ekki mjög óskylda hluti. Þar sem kvikmynd Spielbergs er næstum tvöfalt dýrari, þá hefur framleiðendinn, Columbia Pictures Industries, gengið óvenju- langt í því að halda leyndu fyrir almenningi efni myndarinnar. Kvikmynda- gerðarmönnum og leikur- um hefur verið fyrirskipað að ljóstra ekki neinu upp um innihaldið — fyrr en eftir frumsýningu. Örygg- isverðir hafa staðið vörð yfir leiktjöldum og upp- tökusölum allan sólar- hringinn. Að áliti blaðamanna TIME magazine er leynd- armálið talið þess virði. Þrátt fyrir að myndin sé ekki örugg metaðsóknar- mynd, þá er talið víst að hún eigi eftir að gleðja hjörtu hluthafa Columbia. Og það sem meira er, þá sannar hún að orðstir Spielbergs er engin tilvilj- un. Hin nýja mynd hans er talin mun fyllri og met- orðagjarnari. Myndin er fjarri fullkomnun, en likt og með hina ekki ósvipuð mynd Stanley Kubricks, 2001 :A SPACE ODDYSSEY, þá seiðir hún áhorfandann til þess að álita himinhvolfið yfirskil- vitlegt. CLOSE EN- COUNTERS er jafnframt mjög ákveðið, persónulegt álit höfundar á næstu framvindu mannsins i þessa átt. CLOSE ENCOUNTERS var erfið mynd að allri gerð. Hún var tekin á fimm mánaða tímabili fyrri hluta ársins 1976, en klipp- ingin stóð síðan yfir í röskt ár. Kvikmyndatakan fór fram víða um heim, allt frá Káliforníu til Indlands. Spielberg vann eins og ber- serkur að gerð myndarinn- ar, lagði oftast nótt við dag. Af og til renndi hann 2001 í gegnum sýningarvélina, sem var komið fyrir í þar til gerðum vagni. Francois Truffaut, hin kunni, franski leikstjóri, en Spiel- berg heppnaðist að fá hann til að leika stjórt hlutverk í myndinni, furðar sig á út- haldi þessa unga leik- IWI 7*. ’. Spielberg og Truffaut við kvikmyndatökuna. stjóra, en botnar þó ekki fyllilega í myndinni. Nokkur óvænt og óvel- komin atvik gerðust meðan á myndatökunni stóð. Aðal- leikarinn, Richard Dreyf- uss, fékk bréf frá Ku Klux Klan samtökunum, þegar unnið var að gerð myndar- innar í Alabama. I því var honum hótað lifláti, en þá hafði hann nýlega gagn- rýnt opinberlega starfsemi þessara öfgasamtaka. Þá var hótað að ræna syni að- alleikkonunnar, Melindu Dillon, og varð það til þess að FBI var löngum á hæl- um kvikmyndagerðar- mannanna. Þrátt fyrir þann mikla áhuga Spielbergs á UFO, sem fram kemur í CLOSE ENCOUNTER, þá vill hann samt ’ ekki flokka myndina sem vísinda- skáldsögu heldur ævin- týra-hroilvekju. Ogþar virðist hann hafa á réttu að standa. Efniviður myndar- innar er i anda Hitchcoek — á alheimslegu sviði. Söguhetjan, Roy Neary (Dreyfuss), er ættuð frá Miðríkjum Bandaríkjanna með ekki ósvípaðan bak- grunn og þeir Cary Grant og James Stewart í mynd- unum NORTH BY NORTHWEST og VERTI- GO. Hann vinnur hjá orku- stofnun, og býr ásamt komi sinni (Teri Garr) og þrem- ur börnum í Muneie, Indi- ana. Kvöld nokkurt þegar Roy er á leið heim úr vinn- unni, upplifir hann við- burð sem hann botnar ekk- ert í: brennandi Ijós streymir. á hann að ofan, umferðarmerki hristist og skeflur, farangurinn í bíl hans fer á fleygiferð, eins nálarnir i mælaborðinu. Roy er þess fullviss siðan að hann hefur komist i ná- vist geimbúa, en að sjálf- sögðu trúir honum enginn. Framhald söguþráðar CLOSE ENCOUNTER fjallar svo urn Roy og fleiri sem hafa upplifað að sjá fljúgandi furðuhluti, þeirra á meóal leyndar- dómsfullan vísindamann (Truffaut) og nágranna- konu (Dillon), er þau um- turna lífi sinu í brjálæðis- legri tilraun til þess að koma á stefnumóti við ver- ur utan úr geimnum. Þeg- ar jarðarbúi nær raunveru- legu sambandi við veru ut- an úr geimnum er það ná- inn fundur á þriðja stigi — CLOSE ENCOUNTER OF THE THIRD KIND. Fyrsta stigið er að sjá fljúgandi furðufyrirbæri; annað er likamleg sönnun. Sér til aðstoðar hefur Spielberg töframanninn Douglas Trumbull, en hann sá um allar tækni- brellurnar i 2001. Isabelle Adjani sem póker- spilari í sinni fyrstu Holly- wood-kvikmynd, THE DRIVER. nokkrar af bestu myndurn hans, er af nógu að taka), Howard Hawks, John Hust- on, Orson Wells, ofl. ofl. skýtur upp í hugann. 0 Fyrsta mynd rit- höfundarins Walter Hill. THE STREETFIGHTER, vakti mikla athygli erlend- is á sinum tíma og að undanförnu hefur hún gengið fyrir fullu húsi i Stjórnubíói. Það leið held- ur ekki á löngu uns Hill fékk sitt annað verkefni sem leikstjóri. Það er 20th Century — Fox mýndin THE DRIVER. Hún fjallar um harójaxla sem lifa á ýmiss konar glæpastarf- semi. THE DRIVER verð- ur fyrsta Hollywood- kvikmyndin sem hin undurfagra, franska leik- kona Isabelle Adjani (THE STORY OF ADÉLE H„ THE TENANT) leikur í. Vinur hennar og leik- stjóri myndarinnar ADELE H., Francois Truffaut, spáir henni glæsilegri framtíð vestan hafsins, en hann hefur ein- mitt látið þessi orð falla um leikkonuna: „Hún er fædd til að starfa í banda- Frétta- punktar Hápunktur myndarinnar CLOSE ENCOUNTER .. . verur utanúr geimnum. Leynilegur hópur vlsindamanna bfður eftir því að heilsa upp á 0 Þaó var vel til fundið hjá forráðamönnum Háskólabíós að bjóða almenningi upp á nokkrar gamlar og góóar Hitchcock myndir. Þeir aldursflokkar sem standa undir tilveru kvikmyndahúsanna í dag fá þarna gott tækifæri til að sjá verk sem annars stæði þeim líklega seint til boða. Og samtíðin þekkir Hitchcock, sem enn er i fullu fjöri á bak við myndavélina. Og ekki var síður ánægjulegt að sjá eldri borgarana innan veggja Hákólabíós, jafnvel langömmur með skotthúf- ur. Hreint stórkostlegt! Það væri ánægjulegt ef þessi Hitchcock-sería ætti eftir að ala af sér fleiri slíkar. Nöfnunt eins og John Ford (þó að sjónvarp- ið hafi að undanförnu sýnt rískum kvikmyndum. Frakkland er of litið fyrir hana." í myndinni leika einnig Bruce Dern og Ryan O'Neal. 0 Einn virtasti og besti „stórmyndasmiður" í kvik- myndasögunni. David Lean (BRIDGE ON THE RIVER KWAI. LAWRENCE OF ARABIA, DOCTOR ZHIVAGO, RYAN'S DAUGHTER), er nú enn á ný sestur á bak við kvikmyndavélina. Og ekki ber á öðru en að enn sé þaö stórmynd sem er á ferðinni, þar sem nafn hennar er CAPTAIN BLIGH AND MISTER CRISTIAN Robert Bolt er að skrifa handritið og John Box er yfirhönnuður myndarinnar. Báðir hafa þeir unnið mikið fyrir Lean.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.