Morgunblaðið - 27.11.1977, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. NÖVEMBER 1977
35
KOMIÐ - SJÁIÐ - SANNFÆRIST
rSHAR
not
m
trygg*r
beztu
lagæðin
og fær þannig
áreiðanlegri litaup
hefur einnig
fundið upp nýtt
f> phosfor lag
á skerminn, sem
HfBi hindrar að litir
renni saman, sem er stórkostl
uppfinning i heimi I
tækja.
sjónvarpst
eru meSal mest
seldu
I Bandarikunum
r I sjónvarpstaakni
SHARP
Hljómdeild
KARNABÆR
lAUGAVEGI 66, 1. HÆÐ Simi frá skiptiborði 28155
0
Ars ábyrgð
3ja ára ábyrgð
á myndlampa.
í augum Araba var versti
glæpur Irguns „fjöldamorðin"
á yfir 250 Palestínuaröbum, —
körlum, konum og börnum — i
Deir Yassin i april 1948. Harm-
leiksins hefur meðal Araba ver-
ið minnzt með útgáfu frí-
merkja, minningarsamkomum
og bókaútgáfu. Ekki einungis
voru það Arabar sem for-
dæmdu þetta mannfail, heldur
sögðu Haganah-menn og að eini
tilgangurinn með þessu hefði
verið slátrun og morð.
Begin hefur alitaf neitað þvi
að atburðurinn hafi verið ann-
að en óviljaverk. Þorpið var í
raun og veru vígi Araba, segir
hann, það varð ekki yfirunnið
fyrr en gengið hafði verið
kerfisbundið til verks i þvi að
eyðileggja það. Þorpsbúum
hafði verið gefinn kostur á að
yfirgefa það áður en ráðizt var
á það. Hann segir, að Irgun hafi
gefið út opinbera tilkynningu
daginn eftir árásina um að
hreyfingin harmaði að óbreytt-
ir borgarar hefðu látið lifið, —
þegar vitað var um mannfallið.
Enda þótt Begin lýsti yfir
stuðningi við hina opinberu
forystu þegar lýst var yfir
stofnun Israelsrikis — i maí
1948, hélt Irgun áfram að haga
sér eins og ríki í ríkinu — það
beitti sér fyrir sjálfstæðum
diplómatískum aðgerðum og
samskiptum við erlendar ríkis-
stjórnir. Keypti vopn og flug-
vélar og styrkti stöðu sina inn-
an ísraelska hersins.
Þegar Altalena nálgaðist Tel
Aviv með 900 þjálfaða Irgun-
liða og mikið vopnabúr, krafð-
ist Ben-Gurion þess að 90%
vopnanna yrðu afhent
Haganah.
Skipinu sökkt
Enn er mjög deilt um hvað
raunverulega hafi gerst i samn-
ingaviðræðum við Begin, en
afleiðingin varð eigi að siður sú
að Ben-Gurion fyrirskipaði að
skipinu skyldi sökkt, og var
Begin meðal þeirra sem síðast
yfirgáfu hið sökkvandi skip.
Ben-Gurion hélt þvi jafnan
fram að þessi atburður hefði
komið I veg fyrir borgarstyrjöld
í hinu nýja riki, en Begin hefur
ávallt mótmælt þessu af mikl-
um ákafa. Ailt þar til skömmu
fyrir andlát sitt neitaði Ben-
Gurion að taka sér nafn Begins
f munn þegar rætt var um
hann.
Begin hefur ætíð ásakað ísra-
elsk yfirvöld fyrir að hafa ekki
tekizt að koma á óumdeilanleg-
um landamærum Eretz ísraels
— það er bibliulandsins tsraels
— sem hann heldur fram að
feli i sér vinstri bakka Jórdan-
ar. Um tilslakanir sem máli
skipta af hálfu Begins verður
ekki að ræða fyrr en hann hef-
ur látið af þessari bjargföstu
skoðun sinni.
En hvernig getur Begin talað
i nafni allra ísraelsmanna þeg-
ar um er að ræða framtfð
vinstribakkans?
Moshe Dayan sagði þegar
hann þáði boð Begins um að
taka við embætti utanrikisráð-
herra, að svo lengi sem Arabar
höfnuðu öllum tilboðum Isra-
elsmanna um framtíð vinstri-
bakkans væri ekki um neinn
skoðanamun að ræða meðal
Israelsmanna.
„En,“ bætti hann við, „þegar
málið er komið á það stig að
Arabaríki er reiðubúið til að
samþykkja þessa tillögu (um
skiptingu vinstri bakkans) fá-
um við nægileg tækifæri til
deilna okkar í milli.“
Svo lengi sem Begin heldur
því fram að vinstribakkinn til-
heyri Israel skilyrðislaust er al-
gjörlega útilokað að deila
Araba og Israelsmanna leysist
við samningaborðið i Genf þeg-
ar ráðstefnan sem enn er ráð-
gerð þar í des. n.k. kemur sam-
an.
Leiklistarþingi
í Reykjavík lokið
NYLEGA lauk í Reykjavlk leik-
listarþingi þar sem 90 fulltrúar
frá 10 aðilum sem hafa með leik-
list að gera reifuðu ýmsar hliðar
leiklistar á íslandi og settu síðan
fram helztu niðurstöður í formi
ályktana. Voru þátttakendur
ánægðir með störf þingsins og
ákveðið var að kalla saman annað
þing að ári.
Fyrri dag þingsins, er tók tvo
daga, fóru fram umræður i hóp-
um um verkefnaval og voru frum-
mælendur Örnólfur Árnason og
Arnar Jónsson. Síðari daginn var
hins vegar rætt um „ræktun lista-
mannsins" og höfðu þá framsögu
Guðmundur Steinsson og Margrét
Guðmundsdóttir. Einnig flutti
Ævar R. Kvaran erindi um efnið
„Hvers á mælt mál að gjalda?" og
fóru siðan fram umræður í hóp-
um.
Helztu ályktanir þingsins voru
eftirfarandi: Nauðsynlegt þykir
að bæta kjör höfunda og lagt er til
að leikhúsum verði gert kleift að
ráða höfunda til starfa. Leiklistar-
þing telur brýnt að leiklistarlögin
frá 1977 verði endurskoðuð sem
fyrst. Þingið ályktar, að æskilegt
sé að sem flest starfsfólk leiklist-
arstofnana taki þátt í verkefna-
vali og stefnumótun þeirra i heid.
Krafist er þess að komið verði á
fót leikritavalsnefnd við sjónvarp
og útvarp sem skipuð verði full-
trúum listamanna. Þykir óhæfa
að enginn maður með leiklistar-
menntun skuli fjalla um leikrita-
val sjónvarps og krefst þingið
þess að komið verði á fót embætti
leiklistarstjóra. Þá er skorað á
fo'rráðamenn sjónvarps að veita
Leiklistarskólanum sem bezta að-
stöðu til þjálfunar við sjónvarp og
að efnt verði til námskeiða fyrir
annað leiklistarfólk við sama mið-
il. Einnig er mælst til þess að
sjónvarp og útvarp gæti þess að
dreifa leiklistarverkefnum þann-
ig að ekki sé of oft leitað til
þeirra, sem þegar eru störfum
hlaðnir. Atvinnuleikhúsin í land-
inu ættu, að því er þingið telur að
fá heimild og fjárveitingu til að
ráða nýútskrifaða leikara á samn-
ing. Leiklistarskóla Islands ber að
mennta allar starfsgreinar leik-
hússins og þingið skorar á stjórn-
völd að bæta úr fjárþörf áhuga-
mannaleikfélaga. Eitt af brýnustu
verkefnum islenzks leikhússlifs
telur þingið vera að greiða fjár-
hagslega fyrir sjálfstæðum at-
vinnuhópum, en jafnframt er það
krafa þingsins að þessar fjárveit-
ingar skerði ekki fjárveitingar til
annarra þátta leiklistarstarfsem-
innar. Alyktanir þessar koma
fram í fréttatilkynningu Helga
Hjörvar frá leiklistarþingínu.
Aðalfundur
Vinnumála-
sambands
samvinnu-
félaganna
AÐALFUNDUR Vinnumálasam-
bands samvinnufélaganna var
haldinn í Hamragörðum, félags-
heimili samvinnumanna í
Reykjavík, 24. nóvember s.l.
Á fundinum fluttu stjórnarfor-
maður Vinnumálasambandsins,
Skúli J. Pálmason, og fram-
kvæmdastjóri þess, Július Kr.
Valdimarsson, skýrslur sínar um
starfsemina á liónu starfsári.
Að því loknu urðu allmiklar
umræður um stöðu samvinnu-
hreyfingarinnar á vinnumarkað-
inum og ástand og horfur í kjara-
og atvinnumálum.
Á fundinum baðst stjórnarfor-
maður Skúli J. Pálmason hæsta-
réttarlögmaður undan endur-
kjöri, en hann hefur gengt for-
mannsstarfinu siðastliðin fimm
ár. Einnig baðst varaformaðurinn
Axel Gíslason framkvæmdastjóri
undan endurkjöri. I þeirra stað
voru kjörnir þeir Hallgrímur
Sigurðsson framkvæmdastjóri
Samvinnutrygginga, formaður, og
Ólafur Sverrisson kaupfélags-
stjóri, Borgarnesi, varaformaður.
Stjórn Vinnumálasambands
samvinnufélaganna er nú þannig
skipuð: Hallgrimur Sigurðsson,
framkvæmdastjóri, formaður,
Oddur Sigurbergsson, kaup-
félagsstjóri, Svavar Júliusson,
kaupfélgsstjóri, Valur Arnþórs-
son, kaupfélgsstjóri og Hjörtur
Guómundsson, kaupfélagsstjóri.
Ahugafélag
um nútíma
heilsurækt
FYRIR nokkru hófu áhugamenn
um nútíma heilsurækt undirbún-
ing að stofnun samtaka á því
sviði. Var svo stofnfundur þeirra
haldinn sunnudaginn 6. nóvem-
ber s.l. og hlutu þau nafnið
„Heilsuhringurinn“.
Markmiði sínu — alhliða heilsu-
rækt — hyggst félagið ná m.a.
með þvi að stuðla að aukinni úti-
vist og heilsusamlegri þjálfun og
vinna að því að íslendingar not-
færi sér sem best þær heislulind-
ir, sem íslenskur jarðvegur, lofts-
lag og landslag býr yfir. Með þvi
að koma stöðugt á framfæri rit-
uðu máli um þau efni, sem félagið
hyggst vinna að, og með því að
stuðla að fræðslu um heilsusam-
legri notkun fæðubótaefna, sem
viðurkennd eru og frjáls vestan
hafs og austan. Og loks hefur
félagið i undirbúningi samstarf
við hliðstæð félög og félagasam-
tök í Skandinavíu, Finnlandi og
Danmörku.
Aðalstjórn Heilsuhringsins
skipa Marteinn Skaftfells kenn-
ari, Helgi Tryggvason yfirkennari
og Kristinn Sigurjónsson prent-
smiðjustjóri, Elsa Vilmundardótt-
ir jarðfræðingur og Loftur
Guðmundsson rifhöfundur.
Stofnfélagar teljast allir, sem
ganga i félagið fyrir áramót.
Sjálfvirk birtustilling, stillir birtuna á skerminum eftir birtunni íherberginu.
100% einingarverk, auðveldar viðgerðir.
20" tæki verð kr. 295.800.-
18" tæki verð kr. 269.800.-