Morgunblaðið - 27.11.1977, Side 14
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. NÖVEMBER 1977
AÐVENTA
ORÐIÐ aðventa þýðir eiginlega „koma“.
Það er notað um jólaföstuna, þegar fjórir
sunnudagar eru til jólahátíðarinnar og við
búum okkur undir „komu“ konungsins
Jesú Krists. Margir eiga bundnar fagrar
og góðar minningar við jólahátíðina og
undirbúning hennar. Og margir hafa frá
miklu að segja, ef þeir vildu rifja upp
góðar og lærdómsríkar minningar fyrri
ára. Það væri því ef til vill ekki úr vegi, að
fullorðna fólkið gæfi sér góöan tíma á
aðventunni til þess að segja börnum
sínum eða barnabörnum — eða barna-
barnabörnum — sögur eóa atvik, sem
þeim eru minnisstæð frá æsku sinni. Fátt
þykir börnum jafn gott að heyra eins og
frá raunveruleika annarra, sérstaklega
þeim, sem eru þeim skyld eða tengd á
einhvern hátt. Það tengir kynslóðirnar
saman og veitir þeim sýn inn í heim „sem
var“ og gefur þeim tækifæri til þess að
bera saman og tengja raunveruleikann í
þjóðfélaginu og þær breytingar, sem hafa
orðið á mörgum sviðum.
Jólin og jóladagarnir, aðventan eða jóla-
fastan hefur þó ætíð skipað fastan sess hjá
þjóð okkar um aldir og margir siðir orðið
til í sambandi við jólaföstuna. Einn
þessara siða er að kveikja á aðventukrans-
inum eða aðventukertunum fjórum, einu
kerti á hverjum sunnudegi aðventunnar.
Þegar kveikt er á hverju kertanna
fjögurra gefst einmitt gott tækifæri fyrir
fjölskylduna til þess að setjast saman í
friði og ró, rifja upp eða segja frá ein-
hverju atviki eða atburðum, sem tengd
eru jólahátíðinni á einhvern hátt.
„Einu sinni f ættborg Davíðs
Ofur hrörlegt f járhús var.
Fátæk móðir litverp lagði
lftið barn í jötu þar.
Móðir sú var meyja hrein,
mjúkhent reifum varði svein.
Kom frá hæðum hingað niður
hann, sem Guð og Drottinn er.
Jatan varð hans vaggan fyrsta,
vesælt skýli kaus hann sér.
Snauðra gekk hann meðal
manna,
myrkrið þekkti ei ljósið
sanna.“
C.F. Alexander.
Friðrik Friðriksson.
Frœga tréö
1 Skýrisskógi, þar sem Hrói höttur
var og félagar hans, heitir frægasta
tréð „Eikar-foringinn“. Samkvæmt
þjóðsögunni hitti Hrói höttur menn
sína alltaf við þetta tré og er álitið,
að það sé yfir 1500 ára. Það hfýtur
þvf að hafa verið ail álitlegt tré,
þegar þeir kappar héldu ráðstefnur
sfnar þar.
aóventukransar
kerti
jólaskraul
adven t u skreyting^r
,;v
jólastemningin kemuT með
cyiðventukgönsunum frá
^VU\3K7\ v/Miklatorg, ALA3KA
BREIÐHO LTI
1927
1977
Sunddeild Ármanns
50
Afmælisfagnaðurinn, verður í Snorrabæ, í
kvöld og hefst kl 19
liPUNNYQi
QÐESIGNð*
SKRA UTPOSTUUN
*
Komið aftur.
Gullfalleg gjafavara í fallegum gjafapakkningum.
LkirkjufellJ
Ingólfsstræti 6.