Morgunblaðið - 27.11.1977, Síða 19

Morgunblaðið - 27.11.1977, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. NÖVEMBER 1977 51 t Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför eiginmanns mins, GUÐJÓNS ARMANN, Skorrastað. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna Sóiveig Benediktsdóttir Ármann. Sigríður Guðmundína Ingvadóttir - Minning + Þökkum auðsýnda samúð við fráfall og útför móður okkar, tengdamóð- ur, ömmu og langömmu, HELGU ÞORKELSDÓTTUR, Austurgötu 6, Hafnarfirði. Börnin. Á morgun kl. 1.30 verður jarð- sett frá Fríkirkjunni frú Sigríður Guðmundina Ingadóttir, Hverfis- götu 121. Sigríður var fædd að Snæfoksstöðum í Grímsnesi 6. maí 1895. Hennar foreldrar voru Ingvi Þorsteinsson bóndi og Þór- dís Jónsdóttir kona hans. Eignuð- ust þau hjón þrjú börn sem öll eru nú látin og auk þess ólu þau upp einn dreng sem sitt eigið barn. Sigriður fluttist til Reykjavikur innan við tvítugt og nam hér klæðskeraiðn, að öðru leyti var skólaganga hennar ekki meiri en þá gerðist með unglinga af fá- tæku foreldri. - En þrátt fyrir það var hún bók- hneigt og víðlesin og var vel heima i mörgu. Þann 29. desember 1920 giftist Sigriður Gesti Magnússyni tré- smið og eignuðust þau þrjár dæt- ur en ein dó í fæðingu. Auk þess ólu þau upp tvær bróðurdætur Gests og dótturdóttur þeirra hjóna og komu þeim í foreldra- stað. Mann sinn missti Sigríður aö vori 1958 eftir mikið veikinda- stríð og var sár harmur kveðinn við andlát hans. En Sigríður hélt þó áfram búi sinu, og var eftir hjá henni dótturdóttirin og var hjá henni þangað til hún giftist undir- rituðum. Þegar ég kynntist Sigríði varð ég þess fljótt var að þar fór kona sem var mannkostum búin og höfðingi í lund. Sigríður spurði ekki um veraldarauð þegar hún tók á móti gestum sínum en gerði sér far um að gera gott og græða sár. Nú þegar leiðir skiija er margs að minnast en hvað sárastur er harmurinn hjá litlu barnabarna- börnunum sem þótti svo gott að koma til ömmu eins og þau köll- uóu hana og þá var þaó ekki ósjaldan sem þau fengu uppá- halds pönnukökurnar sínar eóa jafnvel hlýja vettlinga eða sokka, en alltaf var amma 'í'eiðubúin að gera eitthvað fyrir ungana sina. Að lokum vil ég fyrir hönd minnar fjölskyldu þakka Sigriði fyrir samveruna og trúi þvi aö við eigum eftir að hittast öll í landi framtiðarinnar. Guð blessi hana og veiti þeim styrk sem eftir lifa. Sigmar Pétursson. / 250 þúsund króna tæki á aðeins ^ 1 Ön búsund 'r IOU krónur Hvernig þetta mögulegt Við höfum náð verðinu svona niður með því að: ^ gera sérsamning við verksmiðjuna 4) torðast alla milliliði 0 panta venjulegt magn með árs fyrirvara O flytja vöruna beint frá Japan transistorar, 23 díóður. MAGNARI 6-IC, 33 wött. ÚTVARP Örbylgja: FM88-108 megarið. Lang- bylgja: 1 50—300 kílórið. Miðbylgja: 520—1605 kílórið Stuttbylgja: 6— 1 8 megarið SEGULBAND Hraði: 4,75 cm/s. Tíðnisvörun venju- legrar kasettu (snældu) er 40—8000 rið Tíðnisvörun Cr 02 kasettu er 40—12.111 rið Tónflökt og blakt (wow & flutter) betra en 0.3% RMS Tími hraðspólunar á 60 mín. spólu er 105 sek Upptökúkerfi AC bias, 4 rása stereo Afþurrkunarkerfi: AC afþurrkun. PLÖTUSPILARI Full stærð, allir hraðar, sjálfvirkur eða handstýrður Nákvæm þyngdarstilling á þunga nálar á plötu Mótskautun miðflóttans sem tryggir lítið slit á nál og plötum ásamt fullkominni upp- töku. Magnetískur tónhaus. HÁTALARAR Bassahátalári 20 cm. af kónískri gerð. Mið- og hátíðnihátalari 7,7 cm af kónískri gerð Tíðnisvið 40—20.000 rið AUKAHLUTIR Tveir hátalarar Tveir hljóðnemar. .Ein Cr 02 kasetta FM loftnet. Stuttbylgju loftnetsvír. sch-: CROWIN á horni Skipholts og Nóatúns sími 29800 (5 línur) 26 ár í fararbroddi. Komið og skoðið í g hljómtækjaverslun l£ — Fullkomin hlustunarskily Þetta er ^ sértilboð sem við bjóðum á meðan birgðir endast

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.