Morgunblaðið - 27.11.1977, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. N.ÓVEMBER 1977
61
..—^
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10 — 11
FRÁ MÁNUDEGI
hringir eru hafðir á alröngum
stöðum á skipunum yfirleitt, sér-
staklega fiskiskipum og minni
bátum, en þar eru þeir langoftast
á stýrishúsinu í rammlega lokaðri
kistu sem oft er bundin aftur með
sterkum kaðli. Hversu oft höfum
við ekki séð dæmi um þetta.
Björgunarbúnaðurinn á að vera
við stafn skipa og hann á ekki að
vera margbundinn með sterkum
köðlum I lokaðri kistu — þetta
ættu allir að vita.
Það er með öllu tilgangslaust að
vera með björgunarbáta og björg-
unarútbúnað í skipum þegar
gengið er þannig frá honum eins
og áður er getið og hversu mörg
eru dauðaslysin sem rekja má til
þess að skip hafa sokkið svo skjótt
að ekki hefur náðst til björgunar-
útbúnaðarins af fyrrnefndum
ástæðum. Við Islendingar þurfum
liklega enn um sinn að sjá á eftir
duglegum og góðum drengjum í
hafið, drengjum, sem mæta dauða
sínum langt fyrir aldur fram ein-
ungis vegna kæruleysis okkar
sjálfra. Góðir samlandar, látum
þetta okkur að kenningu verða.
við getum ekki heiðrað minningu
þeirra föllnu betur.
1730—6804“
Ekki er Velvakandi viss um að
slysavarnamenn hérlendis sam-
þykki að öllu leyti þessi skrif, það
hefur án efa verið gert mjög
margt til að gæta þess að fyllsta
öryggis sé gætt, en vitanlega er
sjálfsagt að vera stöðugt opinn og
vakandi fyrir þvi hvernig öryggi
verði bezt tryggt.
í»essir hringdu . . .
% Um reyk f
sjónvarpi
Guðmundur Glslason:
— Eg á ekki nógu sterk orð
til að lýsa hneykslun minni á því
að i þættinum Vöku á miðviku-
dagskvöldið var nokkuð um reyk-
ingar. Þar voru sem sé stjórnend-
ur þáttarins að ræða við fjóra
listamenn og þeir sátu og reyktu
þannig að varla sást i þá fyrir
reyk. Æskan í landinu berst gegn
reykingum og sjónvarpið svarar
fyrir sig á þann hátt að leyfa
reykingar i innlendum umræðu-
þáttum. Þetta ætti ekki að koma
fyrir og það er alveg óþarfi að
vera að sýna reykingar á þennan
hátt i sjónvarpinu.
0 Vantarverð-
merkingar
Húsmóðir:
— Það var fyrir nokkru sett
í iög að verzlunareigendur ættu
að verðmerkja alla hluti sem þeir
stilla út í glugga verzlana sinna.
Ekki hefur verið farið eftir þessu
mjög nákvæmlega þvi þegar ég
gekk niður Laugaveg og um
Skólavörðustíg nýlega þá sá ég i
mjög fáum bókabúðum t.d. að
bækurnar væru verðmerktar, og
átti það sérstaklega við um barna-
bækur, eða a.m.k. var ég aðaliega
að svipast um eftir þeim. Hið
sama má reyndar segja um aug-
lýsingar i blöðum og útvarpi, þar
er svo til aldrei getið um verð
hlutanna.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á skákþingi Argentínu í fyrra
kom þessi staða upp i skák þeirra
Szmetans, sem hafði hvítt og átti
leik, og Foguelmans
Annað mál vildi ég aðeins
drepa á f leiðinni en það er um
þrifnað í brauðbúðum, en ég
minntist aðeins á það fyrir stuttu.
Ekki hef ég enn orðið vör við að
viðkomandi búðir hafi bætt úr
hreinlæti sinu, þar eru stúlkur
enn að taka á brauðum og skítug-
um peningum til skiptis og er
nauðsynlegt að bæta úr þvi.
• Of mikill
launamunur
Björn Indriðason:
— Ég er alveg undrandi á
þvi hversu fólk er rólegt og hve
það talar iitið um þann launamun,
sem ríkir í landinu en hann hefur
komið allvel i ljós i öllu þvi talna-
flóði sem birzt hefur i blöðum um
samningamál hinna einstöku
HÖGNI HREKKVÍSI
Skilaðu álnum!
24. Dxc6 + ! — Rxc6, 25. Bxc6+ —
Ka7, 26. Bb7 og svartur gafst upp.
Hann á ekkert svar við hótuninni
27. Ra5! og siðan 28. Rc6 mát.
Szmetan varð skákmeistari Ar-
gentínu og af þessari skák að
dæma verðskuldaði hann svo
sannarlega titilinn.
03^ SlGeA V/öGA 11/LVtRAM
V/9 Y/£Ytf\9 VÍI/A9 W/INN
'btG\%J,oTÓL'<0$. \IANN *
tfLAKBMl 49 LÁVtftfTA
LíUGttA
VA9 mWTfKOZ S/6
\\óm wan/v m
þTSm YlBtt
NÝTT ÍSLENZKT
ÞROSKAIÆIKFANG
KASSAKULAN
ER KOMÍN... DREÍFÍNG^PENNÍNN
stétta. Þar hefur m.a. komið i Ijós
að laun hinna lægstu eru aðeins
þriðjungur á við laun þeirra hæst
launuðu eða 100 þúsund krónur á
móti 300 þúsund, gróft sagt. Mér
finnst að launamunur ætti ekki að
vera meiri en sem nemur helm-
ing, annað er hrein fjarstæða að
minu viti. Og ég endurtek aftur
hvað ég er hissa á að fölk skuli
ekki tala meira um þetta. Hvað
hafa menn að gera með öll þessi
laun? Borða þeir hæst iaunuðu
meira en aðrir? Væri ekki tilvalið
að opinberir starfsmenn gengju á
undan með góðu fordæmi og gæfu
eftir hluta af launahækkun sinni
til þeirra sem lægra eru iaunaðir í
þeirra hópi? Það er mikið búið að
taia um launajöfnunarstefnu, en
ekki sjást merki um það að hún
hafi orðið ofan á i siðustu samn-
ingum.
Nýkomnar
hljómplötur
1350 kr.
Eric Clapton
Clossis go Disco
Disco Hits
Stevie Wonder
Chuck Berry
Elton John
Living Strings
Donny and Marie
Living Voices
m
heimilistæki sf
Hafnarstræti 3 - 20455.
mm